
Fjölmiðlar

Veislan tekin af dagskrá FM957
Útvarpsþátturinn Veislan á FM957 sem Ágúst Beinteinn og Patrik Atlason, betur þekktir sem Gústi B og Prettyboitjokko, hafa haldið úti heyrir sögunni til. Þetta staðfestir forstöðumaður útvarpsmiðla Sýnar. Þátturinn hefur verið á dagskrá stöðvarinnar í á þriðja ár.

„Eðlilegt að blaðamenn og fjölmiðlar verðleggi vinnu sína“
Skessuhorn ákvað að taka áskorun Facebook og selja áskriftir á fréttavef sinn í fyrra. Ritstjóri héraðsfréttamiðilsins segir eðlilegt að blaðamenn og fjölmiðlar fái greitt fyrir vinnu eins og aðrir sem selji þjónustu. Lesendur hafi tekið áskriftarsölunni vel.

Umfangsmikil fangaskipti gætu verið á næsta leiti
Merki eru um umfangsmikil fangaskipti á milli Rússlands og Hvíta-Rússlands annars vegar og Bandaríkjanna, Þýskalands og Slóveníu hins vegar. Hermt er að blaðamaður Wall Street Journal sem Rússar handtóku í fyrra verði hluti af skiptunum.

Hlustaðu á Snoop Dogg lýsa rúbbí á Ólympíuleikunum
Bandaríska tónlistarmanninum Snoop Dogg er ýmislegt meira til lista lagt en að rappa. Hann er matreiðslumaður, leikari og íþróttafréttamaður.

Þórður Snær segir skilið við Heimildina
Þórður Snær Júlíusson hefur látið af störfum sem annar tveggja ritstjóra Heimildarinnar. Fjölmiðilinn Kjarnann, sem sameinaðist Stundinni árið 2023, stofnaði hann fyrir tæpum ellefu árum síðan.

Maðurinn sem greindi frá andláti Elísabetar II játar barnaníð
Sjónvarpsmaðurinn Huw Edwards, 62 ára, hefur játað að hafa „búið til“ kynferðislegar myndir af börnum. Edwards, sem starfaði í áratugi hjá BBC og var einn þekktasti fréttalesari Bretlands, á yfir höfði sér allt að tíu ára fangelsi.

Rekinn heim af Ólympíuleikunum fyrir karlrembu
EuroSport hefur rekið margreyndan íþróttafréttamann heim af Ólympíuleikunum í París vegna karlrembulegra ummæla sem hann lét falla í beinni útsendingu.

„Sorgardagur þegar eigendurnir velja peningana fram yfir aðdáendurna“
Charles Barkley, einn af fjórmenningunum í Insinde the NBA teyminu á TNT sjónvarpsstöðinni, hefur sent frá sér yfirlýsingu um yfirtöku Disney, NBC og Amazon Prime Video á sjónvarpssamningum NBA deildarinnar.

Hugmyndafræðilegur ágreiningur klýfur Murdoch-fjölskylduna
Miklar deilur standa nú innan Murdoch-fjölskyldunnar eftir að ættfaðirinn og fjölmiðlamógúllinn Rupert Murdoch freistaði þess að breyta skilmálum fjölskyldusjóðs sem var stofnaður þegar hann skildi við aðra eiginkonu sína, Önnu Murdoch Mann.

Vörumerkistákn við fréttir RÚV að kröfu Ólympíunefndarinnar
Fréttir Ríkisútvarpsins af Ólympíuleikunum í París til þessa hafa verið merktar með vörumerkistákni. Íþróttastjóri sjónvarps hjá RÚV segir þetta gert að kröfu Alþjóðaólympíunefndarinnar en til standi að fjarlægja táknin.

Bless Barkley, Shaq og félagar: TNT stöðin missir NBA
NBA deildin í körfubolta ætlar að segja skilið við margra áratuga samstarf sitt við TNT sjónvarpsstöðina en þetta varð endanlega ljóst þegar gengið var frá sjónvarpssamningum við Disney, NBC og Amazon Prime Video í gær.

Kári vandar um við heimsfrægan rithöfundinn
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, er ekki hrifinn af kenningum Matt Ridleys, blaðamanns og rithöfundar, sem hefur verið hér á landi við veiðar og notaði tækifærið og viðraði kenningar sínar.

Bandarískur blaðamaður fær sextán ára dóm í Rússlandi
Evan Gershkovich, bandarískur blaðamaður Wall Street Journal, hlaut sextán ára fangelsisdóm í Rússlandi í dag fyrir meintar njósnir.

Vaktin: Vandræði um allan heim
Tæknileg vandamál eru að valda flugfélögum, bönkum og fjölmiðlum miklum vandræðum um allan heim.

Blaðamaður sektaður fyrir að segja Meloni litla
Ítalskur blaðamaður hefur verið dæmdur til að greiða Giorgiu Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, 5.000 evrur í miskabætur eftir að hafa gert grín að hæð hennar.

Fyrsta heimasmíðaða útvarp landsins til sýnis
Fyrsta heimasmíðaða útvarpstæki landsins, sem smíðað var 1923 á Seyðisfirði vekur nú mikla athygli gesta á Samgöngusafninu á Skógum undir Eyjafjöllum.

Norður-Kórea er víða
Kim Il-Sung, hinn eilífi forseti Norður-Kóreu, stjórnaði landinu með harðri hendi til dauðadags árið 1994. Það var ekki til sá kimi samfélagsins sem laut ekki stjórn hans.

Jón Einar sakfelldur fyrir umfangsmikla sjónræningjastarfsemi
Jón Einar Eysteinsson, athafnamaður á Spáni, hefur verið dæmdur til að sæta fangelsi í 60 daga – skilorðsbundið. Og fallist er á bótakröfu á hendur honum af hálfu Stöðvar 2. Þetta er fyrir að hafa gegn betri vitund selt ótilgreindum fjölda fólks aðgang að læstri dagskrá sjónvarpsstöðva í gegnum streymisveitu sína.

Óréttlæti sem verði að leiðrétta
„Þetta er óréttlæti sem þarf að leiðrétta,“ segir formaður Blindrafélagsins um aðgengi blindra og sjónskertra að efni Ríkisútvarpsins. Hann segir lítið verða úr verki í Efstaleitinu þrátt fyrir fjölda fyrirspurna, bréfa og nýrra lausna.

Vill koma upp móttöku flóttamanna við Kaffi Vest
Stefán Einar Stefánsson siðfræðingur, víninnflytjandi og fjölmiðlamaður á Mogganum segir mjög óþægilegt að bera fram erfiðar spurningar í viðtölum, en það sé hlutverk blaðamanna. Og er hann þá ekki síst að tala um innflytjenda- og hælisleitendamál.

Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti
Hæstiréttur hefur samþykkt að taka fyrir skaðabótamál fyrrverandi eigenda Brúneggja á hendur Ríkisútvarpinu og Matvælastofnun. Málið varðar umfjöllun Kastljóss 28. nóvember 2016 um dýrahald og eggjaframleiðslu Brúneggja ehf.

Engin gúrka hjá Blaðamannafélaginu
Á þessum tíma árs hægist á öllu og umtöluð gúrkutíð ríður yfir. Þá gefst gjarnan ráðrúm til að fara yfir hverju hefur verið áorkað á annasömum vetri og vormánuðum.

Sjómenn „arfavitlausir“ og Lilja biður Stefán um frest
Sjómenn sem nú eru sambandslausir út á miðum eftir að RÚV hætti útsendingum gegnum gervihnött um mánaðamótin eru arfavitlausir vegna málsins, að sögn formanns Sjómannasambandsins. Ekkert samráð hafi verið haft við sjómenn. Menningarmálaráðherra hefur óskað eftir því við útvarpsstjóra að útsendingum verði haldið áfram til áramóta.

Íris segir RÚV henda blautri og kaldri tusku í andlit sjómanna
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir sérdeilis ólíðandi að sjómenn þurfi að greiða afnotagjöld af RÚV ohf., en séu hins vegar sviptir möguleikum á að ná sjónvarps og útvarpssendingum.

Gefa út afkomuspá eftir allt saman
Stjórn Sýnar hefur ákveðið að gefa út afkomuspá fyrir árið 2024 en ákveðið var samhliða útgáfu ársreiknings félagsins í febrúar að gera það ekki. Það var meðal vegna óvissu um framtíðareignarhald vefmiðla og útvarpsstöðva, sem nú hefur verið eytt. Spáin gerir ráð fyrir rekstrarhagnaði upp á um einn milljarð króna.

Hjálmar segist ekki kærður því það sé ekkert að kæra
Hjálmar Jónsson fyrrverandi framkvæmdastjóri BÍ segir stjórnina senda sér kaldar kveðjur við starfslokin. En fjallið hafi nú tekið joðsótt og það hafi fæðst mús.

Hátt reitt til höggs
Það kemur mér ekki á óvart að núverandi stjórn Blaðamannafélags Íslands hafi ákveðið að kæra mig ekki fyrir brot í starfi framkvæmdastjóra félagsins, eins og fram kemur í tilkynningu hennar til félagsmanna.

Stjórnin kærir Hjálmar ekki en telur hann þó sekan
Stjórn Blaðamannafélags Íslands tók einróma ákvörðun á stjórnarfundi 21. júní um að leggja ekki fram kæru til lögreglu vegna háttsemi Hjálmars Jónssonar, fyrrverandi formanns og framkvæmdastjóra félagins, þrátt fyrir niðurstöðu lögfræðiálits Logos þar sem fram kemur að háttsemin hafi verið verulega ámælisverð og jafnvel refsiverð.

Vara við svindlurum sem líkja eftir Mbl.is
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir umfangsmiklar tilraunir í gangi til að svíkja peninga út úr landsmönnum á netinu. Glæpamennirnir notist við gervifréttir af vel heppnuðum fjárfestingum til að lokka fólk inn í svikamyllu.

Að gefnu tilefni
Prófessor Gauti Kristmannsson, bókagagnrýnandi Ríkisútvarpsins, ritar pistil hér á Vísi þann 28. júní s.l. og virðist gáttaður á því að ég skuli voga mér að halda uppi vörnum fyrir íslenska tungu.