Frakkland

Hundrað þúsund lögreglumenn munu koma í veg fyrir samkomur
Yfirvöld í Frakklandi hafa ákveðið að setja hundrað þúsund lögreglumenn í viðbragðsstöðu á gamlárskvöld til þess að sporna gegn samkomum og fögnuðum. Útgöngubann er í gildi frá klukkan 20 og mun lögregla vera með sýnilega viðveru á almenningssvæðum.

Tregir Frakkar: Aðeins fjórir af tíu hyggjast þiggja bólusetningu
Aðeins fjórir af hverjum tíu Frökkum hyggst láta bólusetja sig gegn Covid-19, samkvæmt niðurstöðum könnunar Ipsos Global Advisor og World Economic Forum.

Fatahönnuðurinn Pierre Cardin er látinn
Franski fatahönnuðurinn Pierre Cardin er látinn. Þetta staðfestir fjölskylda Cardin í samtali við franska fjölmiðla, en hann varð 98 ára gamall. Hann lést á sjúkrahúsi í Neully, vestur af höfuðborginni París.

Stormurinn Bella olli usla í Frakklandi og Bretlandi
Flugsamgöngur röskuðust og þúsundir heimila voru án rafmagns þegar stormurinn Bella fór yfir suðurhluta Bretlands og norðurhluta Frakklands í gær. Bellu fylgdi bæði mikið úrhelli og sömuleiðis hvassviðri.

Nýja afbrigðið skotið upp kollinum á fleiri stöðum
Fjögur tilfelli af nýju afbrigði kórónuveirunnar hafa fundist á Spáni, sama dag og það var tilkynnt að það hefði einnig verið greint í Frakklandi. Afbrigðið, sem er betur þekkt sem breska afbrigðið, er mun meira smitandi en önnur.

Nýja afbrigðið greindist í Frakklandi
Nýja afbrigði kórónuveirunnar sem hefur náð að dreifa sér víða á Bretlandseyjum hefur greinst í Frakklandi. Þetta staðfesti franska heilbrigðisráðuneytið, en sá sem greindist er franskur ríkisborgari sem hafði komið frá Lundúnaborg þann 19. desember.

Árásarmaðurinn í Frakklandi fannst látinn
48 ára gamall karlmaður sem grunaður er um að hafa skotið þrjá lögreglumenn til bana í smábænum Saint-Just í miðhluta Frakklands seint í gærkvöldi fannst síðar látinn.

Þrír franskir lögregluþjónar skotnir til bana
Þrír franskir lögregluþjónar voru skotnir til bana í smábænum Saint-Just í miðhluta Frakklands seint í gærkvöldi.

Munu opna á vöruflutninga um Ermarsundsgöngin
Breski forsætisráðherrann Boris Johnson og Emmanuel Macron Frakklandsforseti hafa náð samkomulagi um að opna landamæri ríkjanna að nýju.

Lést í slysi eftir fótboltaleik
Hræðilegt atvik átti sér stað eftir leik Lorient og Rennes í frönsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi þegar starfsmaður vallarins lést eftir að hafa fengið flóðljós yfir sig.

Svíar og Frakkar loka á Bretland
Svíþjóð og Frakkland hafa bæst í hóp þeirra Evrópuríkja sem hafa sett takmörk á eða bannað alfarið samgöngur frá Bretlandi vegna nýs afbrigðis kórónuveiru sem dreifst hefur um Bretland, og er talið meira smitandi en önnur afbrigði.

Macron greindist með Covid-19
Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur greinst með Covid-19.

Greiddi 12,5 milljónir fyrir að komast í návígi við Monu Lisu
Ónefndur einstaklingur hefur greitt jafnvirði 12,5 milljóna króna til að fá að komast í meiri nálægð við Monu Lisu en gestum Louvre gefst vanalega kostur á.

Gérard Houllier látinn
Gérard Houllier, fyrrverandi knattspyrnustjóri Liverpool, er látinn, 73 ára að aldri.

Yfirvöld í Frakklandi boða tilslakanir þrátt fyrir 10 þúsund dagleg smit
Yfirvöld í Frakklandi hafa boðað tilslakanir í sóttvarnaaðgerðum þrátt fyrir að enn greinist meira en 10 þúsund manns smitaðir í landinu dag hvern. Til stóð að opna menningarstaði að nýju en því hefur verið frestað og hefur útgöngubann að nóttu til verið boðað.

Frakkar beita Google og Amazon háum sektum
Yfirvöld í Frakklandi hafa sektað Google um hundrað milljónir evra og Amazon um 35 milljónir. Það samsvarar rúmum fimmtán milljörðum króna annars vegar og rúmum fimm milljörðum hins vegar.

Fimm látnir eftir þyrluslys í Frakklandi
Fimm fórust þegar þyrla hrapaði til jarðar nærri bænum Bonvillard í Savoja-héraði í frönsku Ölpunum í gær. Einn komst lífs af úr slysinu, en hann er á sjúkrahúsi og ástandið sagt alvarlegt.

Giscard d'Estaing fyrrverandi Frakklandsforseti látinn
Valéry Giscard d'Estaing fyrrverandi forseti Frakklands er látinn, 94 ára að aldri. Andlát hans er sagt tengt veikindum af völdum Covid-19 en hann hafði nýverið verið lagður inn á sjúkrahús í Tours í Vestur-Frakklandi.

Verður fyrst kvenna til að dæma í Meistaradeild Evrópu
Hin franska Stephanie Frappart verður á morgun fyrsta konan til að dæma leik Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu, það er að segja karlamegin. Dæmir hún leik Juventus og Dynamo Kiev í G-riðli.

Lögreglan í París beitti táragasi gegn mótmælendum sem berjast fyrir fjölmiðlafrelsi
Þónokkur mótmæli hafa brotist út í Frakklandi gegn frumvarpi sem kveður meðal annars á um að hvers kyns myndataka af lögreglu við skyldustörf verði gerð að saknæmu athæfi, sé myndatakan „í annarlegum tilgangi.“

Táningarnir sem bentu morðingjanum á kennarann ákærðir
Yfirvöld Í Frakklandi hafa ákært fjóra táninga vegna morðs á kennara sem hafði sýnt nemendum sínum skopmyndir af spámanninum Muhammed í tíma um málfrelsi. Þrír þeirra bentu morðingjanum á kennarann.

Vill samkomulag um að skíðasvæði í Evrópu verði lokuð fram yfir áramót
Þýsk stjórnvöld leitast nú eftir samkomulagi við önnur aðildarríki ESB um að halda skíðasvæðum lokuðum fram í byrjun janúar. Skuli það gert til að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar.

Ruðningsheimurinn í sárum eftir andlát franskrar hetju
Frakkar syrgja ruðningskappann Christophe Dominici sem lést í gær.

Segir myndefni af lokun tjaldbúða í París vera sláandi og heitir rannsókn
Innanríkisráðherra Frakklands segir myndefni af lögregluþjónum loka tjaldbúðum í París í gær vera sláandi og heitir því að málið verði rannsakað. Búðirnar voru reistar af aðgerðasinnum og stjórnmálamönnum í mótmælaskyni við því að sambærilegum búðum annarsstaðar í borginni var lokað í síðustu viku.

Ferðalög innanlands bönnuð í Portúgal fyrir jólin
Portúgölsk yfirvöld hafa ákveðið að banna ferðalög innanlands og loka öllum skólum í kring um tvo hádegisdaga í von um að stemma stigu við útbreiðslu kórónuveirunnar fyrir jólin.

Myrti konuna sína og brenndi líkið
Frakkinn Jonathann Daval hefur verið dæmdur í 25 ára fangelsi fyrir að hafa myrt eiginkonu sína og brennt lík hennar.

Dánartilkynningar heimsfrægra birtar fyrir slysni
Á heimasíðu frönsku útvarpsstöðvarinnar Radio France Internationale birtust tilkynningar um andlát margra þekktustu einstaklinga í heimi.

Felldu alræmdan vígamann í Malí
Hernaðaryfirvöld Frakklands segja að franskir hermenn hafi fellt háttsettan leiðtoga al-Qaeda í Malí.

Vara almenning við því að skipuleggja ferðalög um jólin
Yfirvöld í nokkrum Evrópuríkjum hafa varað fólk við að skipuleggja ferðalög um jólin, enda sé kórónuveirufaraldurinn enn í sókn víða í álfunni.

Segir Rússa gruna að eitrað hafi verið fyrir Navalní á leið til Þýskalands
Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, segir að ríkisstjórn Rússlands gruni að taugaeitrið Novichok, hafi borist í rússneska stjórnarandstæðinginn Alexei Navalní þegar verið var að flytja hann til Þýskalands.