Fréttir

Fréttamynd

Óttast að Houston verði illa úti

Ríta er nú þegar orðinn þriðji öflugasti fellibylur sögunnar. Hann er nú á miðjum Mexíkóflóa og stefnir hraðbyri í átt að ströndum Texas. Búist er við að miðja fellibylsins skelli á borginni Galveston á laugardagsmorgun og þar sem Ríta hefur færst örlítið í norður er óttast að Houston, sem er fjórða stærsta borg Bandaríkjanna, geti orðið illa úti.

Erlent
Fréttamynd

Merkel og Schröder ræðast við

Gerhard Schröder, leiðtogi Jafnaðarmanna, og Angela Merkel, leiðtogi Kristilegra demókrata, hefja í dag stjórnarmyndunarviðræður í kjölfar kosninganna til þýska sambandsþingsins á sunnudag. Búist er við erfiðum viðræðum, en bæði Merkel og Schröder hafa fagnað góðum árangri í kosningunum og gera bæði tilkall til kanslaraembættisins.

Erlent
Fréttamynd

Sérstakt eftirlit vegna innbrota

Innbrot í nýbyggingar og vinnuskúra í Hvarfa- og Kórahverfi í Kópavogi hafa verið tíð að undanförnu, samkvæmt lögreglunni í Kópavogi. Talsverðum verðmætum hefur verið stolið, aðallega verkfærum. Til að stemma stigu við þessu ætlar lögreglan halda uppi sérstöku eftirliti í þessum hverfum.

Innlent
Fréttamynd

Ráðherrar fóru gegn ráðgjöf HSBC

Ráðgjafi einkavæðingarnefndar í sölu ríkisbankanna 2002, HSBC, vildi að skilyrði yrðu sett um verðtilboð Samson í Landsbankann svo tryggja mætti hæsta verðið. HSBC mælti einnig gegn því að farið yrði í viðræður við Samson svo snemma í söluferlinu. Ráðherranefndin hunsaði ráðin. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Þurfti að nauðlenda vegna bilunar

Betur fór en á horfðist þegar farþegaflugvél þurfti að sveima yfir Los Angeles í þrjá klukkutíma í gær þar sem lendingarbúnaðurinn var í í ólagi. Framhjól vélarinnar sneru á hlið og ekki var hægt að ná þeim aftur inn í vélina. Töluverð ringulreið greip skiljanlega um sig og skelfingu lostnir farþegarnir gátu horft á atburðina og þar með eigin örlög í beinni útsendingu inni í vélinni.

Erlent
Fréttamynd

Sektin tæpar 70 milljónir

Fyrrum framkvæmdastjóri og stjórnarmaður fuglabúsins Móa, Ólafur Jón Guðjónsson, var í gær dæmdur til að greiða 68 milljónir króna í sekt til ríkissjóðs. Þá var hann dæmdur í tveggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár.

Innlent
Fréttamynd

Dómsmálanefnd staðfestir Roberts

Dómsmálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings samþykkti í dag tilnefningu George Bush Bandaríkjaforseta um að John Roberts verði næsti forseti Hæstaréttar. Verður tilnefningin send öldungadeildinni til staðfestingar. Reiknað er með að það verði í næstu viku og þar sem repúblikanar eru í meirihluta í deildinni er talið líklegt að tilnefning hans verði einnig staðfest þar.

Erlent
Fréttamynd

Lyf með kódíni úr lausasölu

Parkódín og önnur lyf með kódíni verða tekin úr lausasölu eftir rúma viku eða þann 1.október. Læknar og lyfjaverslanir hafa fæstar verið látnar vita hvað dag bannið tekur gildi.

Innlent
Fréttamynd

Segja umræðu í fjölmiðlum einhliða

Starfsmenn efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjórans hafa sent frá sér yfirlýsingu í tilefni af umræðum í fjölmiðlum og yfirlýsingum alþingismanna um rannsókn á málefnum stjórnenda Baugs Group hf.

Innlent
Fréttamynd

Lýsir yfir neyðarástandi í ríkjum

Georg Bush, forseti Bandaríkjanna, hefur lýst yfir neyðarástandi bæði í Texas og Louisiana vegna komu fellibylsins Rítu. Þung umferð og skortur á mat og bensíni hamlar þeim gífurlega fjölda fólks sem reynir nú að flýja heimili sín við Mexíkóflóa vegna fellibylsins. Talið er að yfir ein milljón manna sé að reyna að yfirgefa svæði þar sem talið er að Ríta muni ganga yfir.

Erlent
Fréttamynd

Hussein kominn til Bretlands

Osman Hussein, sem sakaður eru um að vera einn fjórmenninganna sem stóðu á bak við misheppnaðar sprengjuárásir í Lundúnum 21. júlí, kom í dag til Bretlands. Hussein, sem einnig gengur undir nafninu Hamdi Issac, var handtekinn á Ítalíu skömmu eftir tilræðin og fyrr í mánuðinum féllst ítalskur dómstóll á að hann yrði framseldur til Bretlands vegna málanna.

Erlent
Fréttamynd

Skar nef og varir af mágkonu sinni

Pakistanskur maður skar nefið og varirnar af mágkonu sinni eftir að hún hugðist sækjast eftir skilnaði frá bróður hans. Eftir því sem Reuters-fréttastofan greinir frá skaut maðurinn á konuna og bróður hennar sem voru á leið heim úr dómhúsi í Punjab-héraði á mótorhjóli. Við það féllu systkinin af hjólinu og réðst þá maðurinn á konuna og skar af henni nefið og varirnar.

Erlent
Fréttamynd

Sextíu látnir í flóðum í SA-Asíu

Meira en sextíu manns hafa látist af völdum mikilla vinda og flóða í suðurhluta Asíu undanfarna daga. Hundraða er saknað og óttast er að flestir þeirra finnist aldrei. Í Bangladess og á Indónesíu hafa meira en hundrað þúsund manns þurft að yfirgefa heimili sín í strandhéruðum þar sem yfirborð sjávar hefur hækkað um allt að þrjá metra.

Erlent
Fréttamynd

Sakfelldur fyrir mannskæða árás

Dómstóll í Ísrael sakfelldi í dag Hamas-liða fyrir að skipuleggja sprengjuárás á hótel árið 2002 sem kostaði 30 Ísraela lífið. Árásin var sú mannskæðasta í fimm ára uppreisn Palestínumanna sem lauk fyrr á þessu ári. Abbas al-Sayed, sem fór fyrir herskáum hópi Hamas í Tulkarm á Vesturbakkanum, var einnig sakfelldur fyrir að hafa staðið á bak við sprengjuárás í verslunarmiðstöð árið 2001 en þar létu fimm manns lífið.

Erlent
Fréttamynd

Tíu mánuðir fyrir fjölda brota

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag tæplega tvítugan mann í tíu mánaða fangelsi fyrir bílþjófnaði, innbrot, þjófnaði og fyrir að aka bifreið í ein tíu skipti án ökuréttinda. Maðurinn játaði brot sín sem hann framdi að hluta til í félagi við annan mann á þrítugsaldri. Mál eldri mannsins voru hins vegar aðskilin frá máli þess yngri og því verður dæmt í því máli síðar.

Innlent
Fréttamynd

Hvetja íbúa í strandbæjum að fara

Yfirvöld í Louisiana hvetja nú alla íbúa meðfram ströndum fylkisins að yfirgefa heimili sín. Nýjust veðurfréttir benda til þess að fellibylurinn Ríta muni ganga mun innar en búist var við. Suðvesturhluti Louisiana er talinn vera í mestri hættu.

Erlent
Fréttamynd

Hálka og hálkublettir víða um land

Hálka eða hálkublettir eru víða um land og er fólk beðið um að fara varlega af þeim sökum. Hálkublettir eru á Hellisheiði, í Þrengslum, á Bröttubrekku, Holtavörðuheiði, Fróðárheiði, Vatnaleið og á milli Grundarfjarðar og Stykkilshólms. Þá er hálka eða hálkublettir víða á Vestfjörðum, Norðausturlandi og Austurlandi.

Innlent
Fréttamynd

Hvetja til barneigna í Frakklandi

Fjölskyldum í Frakklandi er heitið góðum fjárstuðningi frá stjórnvöldum ef þær ákveða að eignast fleiri börn. Villepin, forsætisráðherra Frakklands, kynnti í dag nýjar tillögur stjórnarinnar sem taka gildi á næsta ári og miða að því að hvetja þá foreldra, sem þegar eiga tvö börn, til að eignast fleiri til að hækka fæðingartíðnina í landinu.

Erlent
Fréttamynd

Búa sig undir það versta

George Bush, forseti Bandaríkjanna, segir að stjórnvöld búi sig undir það versta vegna fellibylsins Rítu. Ríkisstjórar Texas og Louisiana hafa fyrirskipað tafarlausan brottflutning allra íbúa í strandhéruðum ríkjanna vegna fellibylsins. Þegar hefur meira en ein og hálf milljón manna flúið heimili sín.

Erlent
Fréttamynd

Fann ekki Íbúðalánasjóð

Sophus Klein Jóhannsson er ósáttur vegna merkingaleysis. "Ég ók fram og til baka um Borgartúnið og marga hringi kringum hringtorgin tvö," segir Sophus Klein sem átti erindi í Íbúðalánasjóð á dögunum.  </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Embætti hafi brugðist skyldum

Ríkislögreglustjóraembættið hefur brugðist skyldum sínum í rannsókn og útgáfu ákæru í Baugsmálinu að sögn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingarinnar. Hún vísar hins vegar ásökunum efnhagsbrotadeildar frá því í morgun um að hún hafi sagt embættinu handstýrt af yfirboðurum sínum alfarið á bug.

Innlent
Fréttamynd

Næturlinsur dragi úr nærsýni

Næturlinsur, sem settar eru í augun áður farið er að sofa, gera linsu- eða gleraugnanotkun óþarfa yfir daginn. Þessar linsur, sem eiga að draga úr nærsýni, eru fáanlegar hér á landi.

Innlent
Fréttamynd

Funda um val fulltrúa á landsfund

Heimdallur, félagsskapur ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, mun í dag funda sérstaklega um val á fulltrúum á landsfund ungra sjálfstæðismanna. Fundurinn sem hefst klukkan 16:30 og er haldinn af kröfu 50 félagsmanna í Heimdalli sem telja fram hjá sér og öðrum félagsmönnum gengið með vali stjórnar Heimdallar á fulltrúum á landsfundinn fyrr í mánuðinum.

Innlent
Fréttamynd

Þrír fluttir á sjúkrahús

Þrír voru fluttir á sjúkrahús eftir harðan árekstur sendibíls og fólksbíls á Njarðarbraut í Reykjanesbæ í gærkvöldi. Fólksbílinn ók aftan á sendibílinn á mikilli ferð við hraðahindrun. Fólksbílinn gjöreyðilagðist og þurfti að flytja hann burt með dráttarbíl.

Innlent
Fréttamynd

Hefja brátt prófun á bóluefni

Fyrirtæki í Ástralíu hyggst í næsta mánuði hefja prófun á bóluefni gegn þeim stofni fuglaflensunnar sem dregið getur fólk til dauða. Að sögn talsmanns fyrirtækisins CLS, sem er með stærstu framleiðendum blóðvökva í heiminum, stendur til að prófa bóluefnið á 400 sjálfboðaliðum og er von á niðurstöðum áður en árið er liðið.

Erlent
Fréttamynd

Vopnað rán í Laugarnesapóteki

Vopnað rán var framið fyrir stundu í Laugarnesapóteki við Kirkjuteig í Reykjavík. Tveir grímuklæddir menn ruddust inn í apótekið vopnaðir litlum hnífum og ógnuðu starfsfólki. Þeir höfðu á brott með sér peninga og lyf en meiddu þó engan starfsmann. Mennirnir voru báðir handsamaðir skammt frá ránsstaðnum stuttu eftir ránið.

Innlent
Fréttamynd

Sat einn eftir í draugabæ

"Ég er mjög hræddur," sagði Aron Pálmi Ágústsson þar sem hann var einn eftir á heimili sínu í Baumont í Texas í gærmorgun, en flestir íbúar voru þegar flúnir vegna fellibylsins Ritu sem þá var yfirvofandi.

Innlent
Fréttamynd

Bílar skemmdir í Keflavík

Lögreglan í Keflavík leitar vitna að skemmdum sem unnar voru á tveimur bílum í bænum í fyrrinótt og biður þá sem eitthvað vita að hafa samband í síma 420-2400.

Innlent
Fréttamynd

Borgin fer fram á 151 milljón

Á fundi borgarráðs í gær var kynnt krafa Reykjavíkurborgar gegn olíufélögunum vegna samráðs í útboði árið 1996. Krafist er rúmlega 150 milljóna auk dráttarvaxta og innheimtukostnaðar.

Innlent