Fréttir

Fréttamynd

Rafmagnslaust víða í Reykjavík

Rafmagn fór af stórum hluta Reykjavíkur og hluta af Kópavogi klukkan tíu mínútur í sex í dag. Líklegt þykir að eldur í rafmagnsskúr í efri hluta Breiðholtsins hafi valdið rafmagnsleysinu.

Innlent
Fréttamynd

Aron Pálmi áfram hjá vinum

Aron Pálmi Ágústsson fær að dvelja áfram hjá vinafólki í Tyler í Texas þar til rafmagn kemst á að nýju í Beaumont eftir fellibylinn Rítu. Hann getur því að óbreyttu snúið að nýju til síns heima þar sem hann á að vera undir eftirliti næstu tvö árin.

Erlent
Fréttamynd

Beiðni Arons Pálma hafnað

Rick Perry, ríkisstjóri í Texas, hafnaði í gær náðunarbeiðni Arons Pálma Ágústssonar sem verið hefur um árabil í stofufangelsi í Texas. Perry gengur þar þvert á samþykki fylkisþingsins frá því í ágúst sem féllst á beiðnina fyrir sitt leyti.

Innlent
Fréttamynd

Hefja átak gegn mansali

Ítölsk stjórnvöld tilkynntu í dag að þau hefðu farið að stað með átak gegn mansali til aðstoðar löndum í Suður- og Austur-Evrópu.

Erlent
Fréttamynd

Upptaka evru verði könnuð

Samfylkingin telur eðlilegt að skoða hvort upptaka evrunnar hér á landi sé besta leiðin til að koma í veg fyrir að íslenskt efnahagslíf þurfi áfram að búa við miklar gengissveiflur og háa vexti. Þingmenn flokksins leggja fram á næstu dögum þingsályktunartillögu um stöðu íslensku krónunnar.

Innlent
Fréttamynd

Verð á sumu tóbaki hækkar

Verð á 45 tóbakstegundum breyttist um síðustu mánaðamót, eftir því sem fram kemur á heimasíðu ÁTVR. Flestar tegundanna hækka á bilinu eitt til tvö prósent en nokkrar lækka um eina krónu. Að sögn Ívars J. Arndals, nýs forstjóra ÁTVR, eru hækkanirnar fyrst og fremst tilkomnar vegna hækkana hjá birgjum áfengisverlsunarinnar, en ÁTVR er hætt að flytja inn tóbak líkt og áfengi.

Innlent
Fréttamynd

Ekki enn borist beiðni um framsal

Albaninn sem dæmdur var fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum við komu hingað til lands í síðasta mánuði, og síðar kom í ljós að væri eftirlýstur vegna morðs í Grikklandi, er enn í haldi lögreglu. Að sögn Smára Sigurðssonar hjá alþjóðadeild ríkislögreglustjóra, er ekki vitað hvort maðurinn verði framseldur til Grikklands þar sem beiðni þar að lútandi hafi ekki borist frá grískum lögregluyfirvöldum. Það muni þó væntanlegt skýrast á allra næstu dögum.

Innlent
Fréttamynd

Kosningalögum í Írak breytt

Umdeildum kosningalögum í Írak verður breytt vegna gagnrýni Sameinuðu þjóðanna og mótmæla stjórnmálaleiðtoga. Kosið verður um nýja stjórnarskrá Íraks í þjóðaratkvæðagreiðslu þann fimmtánda október næstkomandi og voru taldar þónokkrar líkur á að stjórnarskráin yrði felld.

Erlent
Fréttamynd

Skattalækkun betri en launahækkun

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir engar forsendur fyrir því að segja upp samningum á vinnumarkaði. Hann segir kaupmátt hafa aukist um 60 prósent á tíu árum og séu skattalækkanir miklu meiri kjarabót en almennar launahækkanir.

Innlent
Fréttamynd

Vefsíður varasamari en áður

Fréttavefur Breska ríkisútvarpsins greinir frá því að tæknilega sinnaðir glæpamenn hafi horfið frá því að nota vírusa sem sendir eru í tölvupósti, yfir í að nota vefsíður til að fanga fórnarlömb. Þá nota tölvuþrjótar í auknum mæli njósnaforrit til að stelast í persónuleg gögn sem þeir geta ýmist selt eða notað sjálfir.

Erlent
Fréttamynd

Tafir á umferð við Borgarnes

Búast má við töfum á umferð vegna umferðarslyss sem varð við Hrafnaklett á Þjóðvegi 1 við Borganes norðan megin. Ekki er vitað nánar um slysið eða tildrög þess en fréttir verða birtar um leið og samband næst við lögregluna í Borgarnesi.

Innlent
Fréttamynd

Misskilningur hjá sagnfræðingum

Sólveig Pétursdóttir, forseti Alþingis, segir að misskilnings gæti í ályktun Sagnfræðingafélags Íslands sem gagnrýndi harðlega að Þorsteini Pálssyni, sendiherra og fyrrverandi forsætisráðherra, hafi veriðð falið að skrifa bók um hundrað ára afmæli þingræðis á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Iðgjöld á sjúkratryggingar

Lagt verður til á landsfundi Sjálfstæðisflokks að gera það að stefnu flokksins að taka upp greiðslu iðgjalda fyrir sjúkratryggingar. Á móti komi lækkun skatta. Einnig þurfi að skilgreina betur hvað falið sé í sjúkratryggingu.

Innlent
Fréttamynd

ESB refsar Úsbekum

Ríki Evrópusambandsins hafa stöðvað sölu á vopnum til Mið-Asíuríkisins Úsbekistans eftir fjöldamorð öryggislögreglu á óbreyttum borgurum í vor. Auk þess verður úsbeskum embættismönnum neitað um vegabréfsáritun til Evrópu.

Erlent
Fréttamynd

Með líkið heima í 20 ár

Háskólaprófessor á Indlandi sem lést nýlega var jarðsettur í sömu gröf og móðir hans. Það sem er enn athyglisverðara er að móðir mannsins lést fyrir tuttugu árum og hafði hann geymt líkið í glerkistu á heimili sínu öll þessi ár.

Erlent
Fréttamynd

Hælisleitandi grunaður um morð

Erlendur karlmaður, sem hefur verið dæmdur í 45 daga fangelsi hér á landi, er grunaður um morð í heimalandi sínu Grikklandi. Maðurinn kom hingað til lands 20. september. Við komuna framvísaði hann vegabréfi sem reyndist vera falsað. Hann óskaði þá eftir hæli hér á landi og eftir að hælismeðferð var maðurinn ákærður fyrir skjalafals.

Innlent
Fréttamynd

Tveir í vörslu lögreglunnar á Balí

Lögreglan á Indónesíu hefur tvo aðila í sinni vörslu í tengslum við rannsóknina á sjálfsmorðssprengjuárásinni á Balí síðastliðinn laugardag þar sem nítján létust og meira en hundrað manns særðust. Í gær voru birtar myndir af mönnum sem talið er að séu árásarmennirnir

Erlent
Fréttamynd

Kærður fyrir að áreita stúlkur

Karlmaður á Akranesi hefur verið kærður til lögreglu fyrir að senda ungum stúlkum í bænum kynferðisleg skilaboð í gegnum farsíma. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa beitt unga frænku sína grófu kynferðislegu ofbeldi um sex ára skeið fyrir nokkrum árum, en sýknaður í Hæstarétti vegna slælegra vinnubragða við rannsókn málsins.

Innlent
Fréttamynd

Fengu Nóbelinn í eðlisfræði

Tveir Bandaríkjamenn og Þjóðverji hlutu Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði í dag. Verðlaunin fengu þeir fyrir rannsóknir sínar í ljósfræðum, sem leiddu til mikilla framfara í fjarskiptum og geimrannsóknum. 

Erlent
Fréttamynd

Bæjarstjórn áminnt

Félagsmálaráðuneytið áminnti Bæjarstjórn Vestmannaeyja og gerði alvarlegar athugasemdir við drátt á afgreiðslu á þriggja ára áætlun Vestmannaeyjabæjar um að ganga inn í eignarhaldsfélagði Fasteign hf.

Innlent
Fréttamynd

Kjarasamningum sagt upp?

Kjarasamningum kann að verða sagt upp um áramót vegna rangrar stjórnarstefnu, sem leitt hefur til þess að verðbólga er tvöfalt hærri en gert var ráð fyrir þegar kjarasamningar voru undirritaðir, segir í ályktun stjórnar Eflingar.

Innlent
Fréttamynd

Neðanjarðarspilling

Þjóðin fær vart trúað að svona neðanjarðarspilling sé til staðar," sagði Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, þegar hann lagði út af fréttum um aðdraganda Baugsrannsóknarinnar í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Símasamband komið á

Eðlilegt símasamband er komið á í Kópavogi og Hafnarfirði en truflanir urðu á bæði fastlínu og GSM-sambandi vegna ljósleiðarabilunar í morgun. Einnig olli hún truflunum á GSM-sambandi á höfuðborgarsvæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Stærsta flugvél í heimi á Íslandi

Stærsta flugvél í heimi, Antonov 225, lenti á Keflavíkurflugvelli í nótt á leið sinni til Bandaríkjanna. Hún var að koma frá Grikklandi með gríðarstórar rafstöðvar sem nota á á hamfarasvæðunum í suðurríkjum Bandaríkjanna.

Innlent
Fréttamynd

Hótar sameiningu með lögum?

Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir Árna Magnússon félagsmálaráðherra hafa hótað þeim, sem ekki samþykktu sameiningu sveitarfélaga í kosningunum nú, að sveitarfélögin verði sameinuð með lögum. Hann segir Árna nær að skoða réttlátari og sanngjarnari tekjuskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga. 

Innlent
Fréttamynd

Vill álit á vistaskiptum þingmanns

Framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins hefur óskað eftir rökstuddu áliti umboðsmanns Alþingis á því hvort Gunnar Örn Örlygsson geti tekið þingsæti Frjálslynda flokksins og farið með það í Sjálfstæðisflokkinn.

Innlent
Fréttamynd

Samvaxnir tvíburar fá styrk

Bandarískur skurðlæknir hefur gefið tíu ára indverskum síamstvíburum von um að mögulegt sé að aðskilja þá. Farah og Saba eru samfastar á höfði og deila að auki nýrum og hjartaslagæð.

Erlent
Fréttamynd

200 milljónir vegna vegabréfanna

Rúmlega tvö hundruð milljónum verður varið í kaup á vél- og hugbúnaði fyrir Útlendingastofnun og sýslumannaembætti á næsta ári svo hægt verði að gefa út vegabréf með lífkennum. Þetta kemur fram í fjárlögum sem voru lögð fram í gær.

Innlent
Fréttamynd

Ekki skortur á aðhaldi

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sagði í upphafi stefnuræðu sinnar á Alþingi í gærkvöldi að ný lífskjarakönnun Sameinuðu þjóðanna sýndi að Ísland væri næstbesta landið í heiminum að búa í. Fyrir áratug hefði staðan verið önnur. Hagvöxtur væri meiri hér en í nálægum löndum og atvinnuleysi hvergi minna.

Innlent
Fréttamynd

Þrjú þúsund sagt upp í New Orleans

Ray Nagin, borgarstjóri í New Orleans, tilkynnti í dag að þrjú þúsund starfsmönnum á vegum borgarinnar yrði sagt upp í kjölfar þess að fellibylirnir Katrín og Ríta riðu yfir borgina. Gríðarlegur fjáhagsvandi blasir við borgaryfirvöldum og telja þau að með uppsögnunum muni borgin spara á bilinu 300-500 milljónir króna á mánuði.

Erlent