Fréttir
Konan og stúlkan fundnar Konan og stúlkan sem leitað hefur verið að á Austurlandi í dag eru komnar í leitirnar. Þær fundust inni á Möðrudalsöræfum rétt fyrir klukkan ellefu í kvöld. Vegfarandi sem heyrt hafði tilkynningu lögreglu um að þeirra væri leitað keyrði fram á þær og lét lögreglu vita. Innlent 25.10.2005 23:21
Neyðarsendir skútunnar fundinn Þyrla frá danska varðskipinu Hvítabirninum fann í dag neyðarsendi skútunnar Vamos skammt undan strönd Grænlands. Þann 27. september björguðu áhafnir þyrlunnar Lífar og flugvélarinnar Synjar einum skipbrotsmanni af skútunni en félagi hans fórst. Innlent 25.10.2005 23:07
Konu og barns leitað Leit stendur yfir á öllu Austurlandi að konu og barni. Björgunarsveitir hafa leitað meðfram vegum á Austurlandi en eftirgrennslan er jafnframt hafin um allt land. Innlent 25.10.2005 21:55
Heiðar og félagar úr leik Heiðar Helguson og félagar í Fulham biðu lægri hlut fyrir West Brom í framlengdum leik 3-2 í enska deildarbikarnum í kvöld og Wigan skoraði þrjú mörk í framlengingu gegn Watford og tryggði sér farseðilinn í 16-liða úrslitin. Sport 25.10.2005 21:29
Liverpool úr leik, Heiðar skoraði Crystal Palace sló Evrópumeistara Liverpool út úr deildarbikarnum í kvöld og fullkomnaði slæma viku fyrir Rafael Benitez og hans mönnum. Dougie Freedman kom Palace yfir í leiknum, en Steven Gerrard jafnaði skömmu síðar. Það var svo Marco Reich sem gerði út um leikinn í síðari hálfleik og skaut Palace í 16-liða úrslitin. Sport 25.10.2005 20:45
Með einkarétt á fetaosti Hvað er „feta"? Ostur, en meira en það. Evrópudómstóllinn úrskurðaði í dag að feta væri nánar til tekið saltur, grískur ostur gerður úr blöndu af kúa- og geitamjólk. Erlent 25.10.2005 19:09
Heimilin skulda 65 milljarðar króna í óverðtryggðum lánum Vextir óverðtryggðra lána hafa hækkað um fimmtíu prósent á innan við einu og hálfu ári, og geta farið yfir átján prósent. Heimilin skulda sextíu og fimm milljarða króna í óverðtryggðum lánum. Innlent 25.10.2005 19:08
60 grindhvalir syntu upp á land Nærri sextíu grindhvalir syntu upp á land á ströndum Tasmaníu í gær. Björgunarmenn þustu á staðinn en þeir náðu aðeins að bjarga tíu hvöldum. Erlent 25.10.2005 18:56
Léleg laun fyrir umönnunarstörf Starfskona á sambýli er með 136 þúsund krónur í grunnlaun. Starfskona á leikskóla er með 125 þúsund krónur í grunnlaun og starfskona á elliheimili er með 116 þúsund krónur í grunnlaun. Þetta eru dæmi um mánaðartekjur kvenna í láglaunastörfum fyrir skatta. Innlent 25.10.2005 18:49
Grunur um fuglaflensu í Portúgal og Þýskalandi Dauðir fuglar hafa vakið grun um fuglaflensu í Portúgal og Þýskalandi. Í báðum löndum er rannsakað hvort að um sé að ræða mannskæða stofninn H5N1. Innlent 25.10.2005 18:53
Jafnt í hálfleik hjá Palace og Liverpool Nú er hálfleikur í enska deildarbikarnum, en þar er fjöldi leikja á dagskrá í kvöld. Í sjónvarpsleiknum á Sýn er staðan hjá Crystal Palace og Liverpool jöfn 1-1. Dougie Freedman kom Palace yfir í leiknum, en Steven Gerrard jafnaði skömmu síðar. Sport 25.10.2005 19:22
Geta ekki tekið upp evruna án þess að ganga í ESB Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, telur hvorki Ísland né Noreg hafa möguleika á að taka upp evruna án þess að ganga í Evrópusambandið. Innlent 25.10.2005 19:22
Þátttaka vonum framar Ekki komust allir sem vildu nálægt sviðinu sem sett var upp í tilefni af kvennafrídeginum. Skipuleggjendur hans óraði ekki fyrir því að þátttakan yrði jafn mikil og raun bar vitni. Innlent 25.10.2005 19:07
Sökk í Sandgerðishöfn Þilfarsbáturinn Ritur ÍS-22 sökk í höfninni í Sandgerði í dag. Báturinn, sem er tíu brúttórúmlestir, sökk á skammri stund þar sem hann var bundinn við flotbryggju í höfninni. Innlent 25.10.2005 18:34
Ægir á leið til hafnar með bát í togi Varðskipið Ægir er nú á leið til hafnar með síldveiðibátinn Hákon EA-148 í togi. Hákon fékk veiðarfærin í skrúfuna og þar sem ekki tókst að losa um þau tók Ægir síldveiðibátinn í tog. Innlent 25.10.2005 18:43
Fauk í Bandaríkjamenn Það fauk í Bandaríkjamenn í kjölfar viðræðufunda með Íslendingum um varnarmál í síðustu viku í Washington. Í bandaríska varnarmálaráðuneytinu er vilji fyrir því að loka Keflavíkurstöðinni og hörð samningatækni Íslendinga gerir þeim sem bera á móti erfitt fyrir. Innlent 25.10.2005 18:01
Gerði þriggja ára samning Eins og fram kom í Fréttablaðinu í morgun hefur Ásgeir Elíasson samþykkt að taka við þjálfun 1. deildar liðs Fram og hefur nú undirritað þriggja ára samning við sitt gamla félag, sem náði góðum árangri undir stjórn Ásgeirs á sínum tíma. Sport 25.10.2005 17:57
Héraðsdómur tekur fyrir tvö mál Hannesar í vikunni Tvö mál Hannesar Hólsteinar Gissurarsonar verða tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni. Innlent 25.10.2005 17:34
Neitar ákæru knattspyrnusambandsins David O´Leary hefur neitað að gangast við ákæru enska knattspyrnusambandsins sem lagðar voru á hendur honum eftir leik Aston Villa og Birmingham á dögunum, þar sem O´Leary var sakaður um ósæmilega hegðun. Sport 25.10.2005 16:14
Vaxtabyrði heimilanna eykst Vaxtabyrði heimila er að aukast vegna hækkunar vaxta á óverðtryggðum lánum. Meira af ráðstöfunartekjum heimilanna fer nú í að borga vexti en áður. Innlent 25.10.2005 17:18
Grunuð um smygl á fíkniefnum Karl og kona hafa verið dæmt í tíu daga gæsluvarðhald vegna gruns um fíkniefnasmygl. Fólkið er grunað um að hafa smyglað fíkniefnum til landsins með póstsendingum. Innlent 25.10.2005 17:38
Olíufélagið hf. dæmt til að greiða skaðabætur Olíufélagið hf. var í dag dæmt í Hérðasdómi Reykjavíkur til að greiða fyrrum starfsmanni sínum tæpar fimm milljónir í skaðabætur, sökum vinnuslys sem átti sér stað á einni afgreiðslustöð Olíufélagsins hf. í Reykjavík í apríl árið 2003. Innlent 25.10.2005 17:35
Egeland gat ekki mætt á Norðurlandaráðsþingið Jan Egeland, yfirmaður neyðaraðstoðar Sameinuðu þjóðanna, sá sér ekki fært að mæta á þing Norðurlandaráðs, vegna þess hve illa hefur gengið að safna fé til hjálparstarfs á jarðskjálftasvæðinunum í Pakistan. Innlent 25.10.2005 17:05
Brýtur lög um erlenda starfsmenn Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir ljóst að allir starfsmenn starfsmannaleigunnar 2B hér á landi, starfi hér ólöglega. Verkalýðsfélag Akraness kærði fyrirtækið í gær og vill að Sýslumaður stöðvi vinnu 10 Pólverja á Grundartanga sem Ístak hefur í vinnu í gegnum leiguna 2B. Innlent 25.10.2005 16:54
Íslenskar konur fyrirmynd annarra kvenna Konur á Norðurlöndum eru fyrirmynd kvenna sem berjast fyrir jafnrétti í öðrum löndum. Þetta var meðal þess sem fram kom í ræðu Rannveigar Guðmundsdóttur, forseta Norðurlandaráðs, við setningu Norðurlandaráðsþings klukkan þrjú í dag. Rannveig sagði að þrátt fyrir þetta væru enn mörg verkefni óunnin hér á landi, meðal annars þurfi að vinna bug á ofbeldi gegn konum og börnum. Innlent 25.10.2005 16:38
Spjald Beckham dregið til baka David Beckham verður klár í slaginn með Real Madrid í spænska boltanum annað kvöld eftir að rauða spjaldið sem hann fékk gegn Valencia um helgina var dregið til baka nú rétt áðan. Sport 25.10.2005 16:02
Ekkert laust í Fossvogskirkjugarði Engin legstæði eru laus í Fossvogskirkjugarði í Reykjavík og því getur fólk á Reykjavíkursvæðinu látið grafa sig í Gufuneskirkjugarði, að þeim undanskildum sem eiga frátekið legstæði í öðrum kirkjugörðum í Reykjavík. Innlent 25.10.2005 16:16
Heimsýn vill eflingu norræns samstarfs Norrænu ríkin ættu að efla samstarf sitt en ekki láta draga sig inn í stofnun nýs stórríkis í Evrópu sem glímir nú við mikla kreppu. Þetta segja norrænar hreyfingar gegn aðild að Evrópusambandinu, en þær kynntu áherslur sínar í morgun í tengslum við fund Norðurlandaráðs hér á landi. Innlent 25.10.2005 16:13
Norræn samvinna ef fuglaflensufaraldur brýst út Heilbrigðisráðherrum Norðurlandanna hefur verið falið að finna hvar megi styrkja samvinnu norrænu landanna ef fuglaflensufaraldur brýst út á Norðurlöndum en yfirvöld í löndunum er öll vel á verði. Þetta kom fram á fundi forsætisráðherra norrænu ríkjanna í morgun. Innlent 25.10.2005 16:05
Gerrard væntanlega með Liverpool Níu leikir verða á dagskrá í enska deildarbikarnum í kvöld og verður leikur Crystal Palace og Liverpool sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn. Gert er ráð fyrir að Steven Gerrard verði í leikmannahópi Liverpool í kvöld. Sport 25.10.2005 15:19