Fréttir
Annan skorar á þjóðir heims til aðstoðar Hundruð þúsunda þeirra sem þegar eiga um sárt að binda eftir hamfarirnar í Pakistan, kunna að farast á næstu vikum, ef frekari aðstoð berst ekki áður en harður vetur skellur á. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, skorar á þjóðir heims að láta ekki sitt eftir liggja. Innlent 26.10.2005 19:07
Verðstríð háð milli Byko og Húsasmiðjunnar Byko og Húsasmiðjan há nú mikið verð- og auglýsingastríð. Nokkrar algengar vörutegundir sem fréttastofan kannaði verð á í dag voru í öllum tilfellum ódýrari í Byko. Innlent 26.10.2005 19:05
Eldur kviknaði og hjólbarði sprakk í lendingu Rúmlega tvö hundruð og fimmtíu farþegum um borð í vél tælenska flugfélagsins Thai Airways brá heldur betur í brún þegar vélin lenti á flugvellinum í Melbourne í Ástralíu í morgun. Vélin lenti svo harkalega að einn hjólbarði sprakk og annar búnaður laskaðist, með þeim afleiðingum að eldur kviknaði á nokkrum stöðum í vélinni. Erlent 26.10.2005 18:42
Samiðn kærir Samiðn, samtök iðnfélaga, hafa kært sex fyrirtæki sem nýta sér krafta starfsmanna á vegum starfsmannaleigunnar 2B. Ekkert fyrirtækjanna gat lagt fram atvinnuleyfi fyrir starfsmennina og því voru fyrirtækin kærð. Innlent 26.10.2005 18:44
Auknar líkur á lokun herstöðvar í Keflavík Líkurnar á að Keflavíkurstöðinni verði lokað stórjukust í dag þegar bandaríska utanríkisráðuneytið baðst undan því að koma að varnarviðræðum við Íslendinga. Þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjanna mun framvegis fara með forræði í málinu, sem þykir benda til þess að varnarmálaráðuneytið fái sínu framgengt. Innlent 26.10.2005 18:36
Fjárfestingarsjóður Kaupþings í Svíþjóð fær viðvörun Fjárfestingarsjóður Kaupþings í Svíþjóð, Kaupþing Fonder, hefur fengið viðvörun frá sænska fjármálaeftirlitinu, samkvæmt frétt í sænska dagblaðinu Dagens Nyheter í dag. Sjóðurinn er sakaður um að hafa dregið taum stórs hluthafa á kostnað annarra og að hafa lagt rangt mat á hluthafaeign. Viðskipti innlent 26.10.2005 18:05
Lárus Orri tekur við þjálfun Þórs Fyrrum atvinnumaðurinn Lárus Orri Sigurðsson hefur verið ráðinn þjálfari fyrstu deildarliðs Þórs á Akureyri. Lárus hefur leikið með liðinu síðan hann sneri aftur heim úr atvinnumennsku og mun nú verða spilandi þjálfari liðsins. Samningurinn er til þriggja ára, en frá þessu er greint á heimasíðu félagsins í dag. Sport 26.10.2005 17:36
Keflvíkingar töpuðu í Finnlandi Íslandsmeistarar Keflavíkur biðu lægri hlut fyrir finnska liðinu Lappeenranta í fyrsta leik sínum í Evrópukeppninni í dag, 92-77, eftir að hafa verið 17 stigum undir í hálfleik. Sport 26.10.2005 17:42
Skuldabréfa útgáfa erlendis í íslenskum krónum nálgast þolmörk Útgáfa skuldabréfa í íslenskum krónum erlendis er komin nálægt þolmörkum íslenska hagkerfisins að sögn Tryggvs Þórs Herbertsson, forstöðumanns Hagfræðistofnunar. Útgáfan er nú komin í eitt hundrað milljarða króna eða sem nemur einum þriðja af fjárlögum íslenska ríkisins. Innlent 26.10.2005 17:33
Bjarni aðstoðar Eyjólf Bjarni Jóhannsson, þjálfari Blika í Landsbankadeildinni, mun verða aðstoðarmaður félaga síns Eyjólfs Sverrissonar hjá íslenska landsliðinu. Þetta var tilkynnt í dag og kemur kannski ekki mikið á óvart, því þeir félagar hafa starfað saman áður. Sport 26.10.2005 17:26
Hafa engin samskipti við dómstólinn Lögmenn Saddams Husseins segjast ekki munu hafa nein samskipti við dómstólinn sem réttar í máli hans þar til réttarhöldunum verður framhaldið í lok nóvember. Þeir vilji nefnilega ekki tefla lífi sínu í hættu en í síðustu viku var lögmaður eins af fyrrverandi samverkamönnum Saddams myrtur eftir að hafa verið rænt af skrifstofu sinni. Erlent 26.10.2005 17:22
Sala á framleiðslu jókst um 45% Sala á framleiðslu Össurar hf. jókst um fjörtíu og fimm prósent í Bandaríkjadölum samkvæmt uppgjöri þriðja ársfjórðungs. Innlent 26.10.2005 17:19
Eiga kost á störfum erlendis Þeim 40 starfsmönnum sem sagt hefur verið upp störfum hjá Flögu Medcare munu fá aðstoð við að leita sér að nýrri vinnu. Starfsmannastjóri fyrirtækisins útilokar ekki að sumir muni eiga þess kost að vinna hjá höfðuðstöðvum fyrirtækisins erlendis. Innlent 26.10.2005 17:18
Gengi hlutabréfa Flögu Group hf. hefur hríðfallið Gengi hlutabréfa Flögu Group hf. hafa hríðfallið, eða um nær helming á síðasta árið og náðu hlutabréfin lágmarki fyrr í mánuðinum. Afkoma fyrirtækisins hefur farið versnandi á síðustu árum og áætlanir um bætta afkomu hafa ekki gengið eftir. Innlent 26.10.2005 17:10
Áhersla á vinnustaðatengda íslenskukennslu Alþjóðahúsið er byrjað að bjóða upp á íslenskukennslu fyrir innflytjendur. Megináherslan verður lögð á svokallaða ,,vinnustaðatengda" íslenskukennslu þar sem námsefnið er sérhannað fyrir hvern vinnustað og tekur mið af daglegum veruleika starfsmanna. Innlent 26.10.2005 16:57
Pardew skrifar undir nýjan samning Bresk blöð greina frá því í dag að Alan Pardew, stjóri West Ham, sé búinn að undirrita nýjan samning við félagið sem gildi til ársins 2010. Sport 26.10.2005 15:47
Kýldi í vegg og handarbrotnaði Glen Johnson hjá Chelsea kýldi í vegg á heimili sínu og handarbrotnaði, samkvæmt fréttum í breskum blöðum í dag. Johnson hefur ekki verið í náðinni hjá Jose Mourinho knattspyrnustjóra liðsins og hefur átt í vandræðum með aga, bæði hjá Chelsea og enska landsliðinu. Sport 26.10.2005 15:34
Sjúkraliðar látnir sitja á hakanum Sjúkraliðar hafa vísað launadeilu sinni við launanefnd sveitarfélaga til Ríkissáttasemjara. Formaður Sjúkraliðafélags Íslands segir ástæðuna þá að launanefndin hafi ekki gefið sér tíma til að funda með sjúkraliðum. Innlent 26.10.2005 15:17
Gott fólk íhugar að kæra Verðstríð virðist skollið á á byggingar- og heimilisvörumarkaði á milli Húsasmiðjunnar og BYKO. Fyrirtækin bjóða nú bæði verðvernd fyrir viðskiptavini en auglýsingastofa BYKO sakar Húsasmiðjuna um að hafa stolið hugmyndinni. Innlent 26.10.2005 15:11
Hryggð í bland við feginleika Minningarnar brjótast fram á Flateyri segir Vigdís Finnbogadóttir fyrrum forseti Íslands sem er komin þangað vegna minningarathafnar um að tíu ár eru liðin síðan snjóflóð féll á Flateyri og varð tuttugu íbúum að bana. Innlent 26.10.2005 15:10
Mál Auðar gegn Hannesi upp í desember Máli Auðar Laxness, ekkju Halldórs Laxness, gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor var frestað til 19. desember næstkomandi við fyrirtöku í Héraðdsómi Reykjavíkur í morgun. Auður höfðaði málið vegna meintra brota á höfundarrétti í bók Hannesar um Nóbelskáldið, Halldór. Innlent 26.10.2005 14:35
SFLÍ vísar kjaradeilu til ríkissáttasemjara Sjúkraliðafélag Íslands vísaði í gær kjaradeilum sínum við Launanefnd sveitarfélaga til ríkissáttasemjara. Fyrsti fundurinn hjá honum haldinn var síðdegis í gær þar sem fulltrúar launanefndar lögðu fram nýjar tillögur að kjarasamningi. Innlent 26.10.2005 14:03
Getum ekki keppt við Chelsea Alex Ferguson segir að Manchester United eigi ekki möguleika á að keppa við Chelsea á leikmannamarkaðnum, því liðið hafi ótakmarkað fé og geti því fengið til sín hvaða leikmenn sem er, en Ferguson er þó með ákveðnar hugmyndir um hvernig á að byggja upp gott knattspyrnulið. Sport 26.10.2005 14:19
Menningarstofnunum og -nefndum fækkað um níu Níu af tuttugu nefndum og stofnunum í menningarsamstarfinu verða lagðar niður, en starfsemi þeirra verður þó haldið áfram með ýmsu móti. Norrænu menningarmálaráðherrarnir ákváðu einróma á fundi sínum í dag að breyta skipulagi á menningarsamstarfi norrænu þjóðanna og gera það sveigjanlegra. Innlent 26.10.2005 13:54
Greiddu 682 milljónir fyrir ráðgjöf Morgan Stanley fjárfestingabankinn fékk greiddar 682 milljónir króna fyrir ráðgjöf sína vegna sölu Símans. Tíu milljónir af söluandvirði Símans fóru til framkvæmdanefndar um einkavæðingu vegna nefndarlauna og ferðakostnaðar. Innlent 26.10.2005 13:19
Fylkingar súnníta saman í framboð Nú þegar ný stjórnarskrá hefur verið samþykkt í Írak hafa þrjár stjórnmálafylkingar súnníta tekið höndum saman og ætla að bjóða fram undir sömu merkjum í þingkosningum í landinu í desember. Í tilkynningu frá fylkingunum þremur eru súnnítar hvattir til að taka þátt í kosningunum, en þátttaka þeirra í kosningunum í janúar var afar dræm. Erlent 26.10.2005 13:03
Bjart og fagurt veður á Flateyri Flateyringar minnast þess í dag að tíu ár eru liðin frá snjóflóðinu mikla sem kostaði tuttugu manns lífið. Bjart og fagurt veður er á Flateyri í dag og fátt sem minnir á ógnaratburðinn fyrir tíu árum. Hann er þó ofarlega í hugum manna og hans er minnst á margvíslegan hátt í dagskrá sem stendur í allan dag og lýkur með samkomu í kirkjunni sem hefst klukkan átta í kvöld. Innlent 26.10.2005 12:53
Ná ekki samkomulagi um reykingabann Breska ríkisstjórnin nær ekki að koma sér saman um lög gegn reykingum, sem átti að kynna í gær. Nokkra ráðherra greinir á um hvort bannið eigi að ná til allra opinberra staða eða hvort undanskilja eigi veitingastaði sem ekki selja mat. Erlent 26.10.2005 12:29
Tvö þúsund Bandaríkjamenn fallnir í Írak Tvö þúsund Bandaríkjamenn hafa fallið í Írak síðan innrásin í landið hófst í mars 2003. Erlent 26.10.2005 12:25
Máli vegna meintra atvinnréttindabrota vísað frá Héraðsdómur Reykjaness hefur vísað frá dómi máli ákæruvaldsins gegn fyrirsvarsmanni SK Smáverka ehf. og Perlunnar ehf. um að hafa brotið lög um atvinnuréttindi útlendinga með því að ráða í vinnu til sín sex Litháa. Innlent 26.10.2005 12:58