Fréttir

Fréttamynd

Tafir á fréttum Stöðvar 2

Tafir urðu á útsendingu frétta Stöðvar 2 í kvöld vegna tæknilegra vandamála í tengslum við flutninga fréttastofunnar frá Lynghálsi 5 í Skaftahlíð 24. Það fórst fyrir að breyta tengingum í línumiðstöð í gömlu höfuðstöðvum Stöðvar 2 sem varð til þess að hljóð var ekki sent út með fréttunum fyrr en 18:53.

Innlent
Fréttamynd

Held að Henry fari frá Arsenal

Ruud Gullit, fyrrum knattspyrnustjóri Chelsea og Newcastle, telur að Thierry Henry muni líklega yfirgefa Arsenal fljótlega, úr því að hann hefur neitað að framlengja samning sinn við enska félagið. Gullit telur að Barcelona væri kjörið lið fyrir Frakkann.

Sport
Fréttamynd

Valur tekur á móti Fram

Það verður sannkallaður toppslagur í Laugardalshöllinni í DHL-deild karla í kvöld, þegar Valur tekur á móti Fram í Laugardalshöllinni. Fram er í toppsæti deildarinnar með 14 stig, en Valur kemur næst með 12 stig. ÍBV tekur á móti KA í Eyjum og þá leika Haukar og Stjarnan á Ásvöllum klukkan 20, en hinir leikirnir hefjast klukkan 19:15.

Sport
Fréttamynd

Fjármálaráðherra ásakaður um spillingu

Fjármálaráðherra Brasilíu, Antonio Palocci, verður yfirheyrður í dag af öldungadeild þingsins vegna gruns um spillingu. Palocci, sem er ásakaður um mútuþægni þegar hann var borgarstjóri í Ribeirao Preto, neitar allri sök. Framtíð hans í starfi er óviss sem stendur og veldur það miklum óróa í fjármálaheiminum í Brasilíu. Antonio Palocci er náinn samstarfsmaður forsetans, Luiz Inacio Lula da Silva, en verkamannaflokkur hans hefur einnig setið undir ásökunum um spillingu undanfarna mánuði

Erlent
Fréttamynd

Trinidad og Tobago á HM í fyrsta sinn

Lið Trinidad og Tobago komst í dag á HM í fyrsta skipti í sögunni þegar liðið lagði Bahrein 1-0 á útivelli og samtals 2-1. Trinidad verður því minnsta þjóðin sem tekur þátt í lokakeppni HM í Þýskalandi á næsta ári, því aðeins um ein milljón manna búa í Trinidad og Tobago.

Sport
Fréttamynd

Nær fjórðungur fyrrum ráðherrar

Sex fyrrum ráðherrar hafa verið skipaðir sendiherrar frá árinu 1995. Meirihluti sendiherra á þessu tímabili kemur þó úr störfum innan utanríkisþjónustunnar, eða fimmtán af 27 sendiherrum.

Innlent
Fréttamynd

Ein véla CIA stödd hérlendis

Ein af flutningavélum leyniþjónustunnar CIA er á Reykjavíkurflugvelli. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu hafa vélar Devon Holding & Leasing komið við hér á landi í það minnsta níu sinnum, og þær eru tíðir gestir á þeim flugvöllum sem vitað er að vélar á vegum CIA millilenda gjarnan á Möltu og Azor-eyjum en líka í Austur-Evrópu og Afganistan.

Innlent
Fréttamynd

Ronaldo, Baptista og Zidane klárir gegn Barcelona

Real Madrid er nú óðum að fá stjörnur sínar til baka úr meiðslum fyrir leik ársins í spænska boltanum á laugardaginn, en þá mætast erkifjendurnir Barcelona og Real Madrid í uppgjöri stórliðanna á Spáni.

Sport
Fréttamynd

Við spiluðum eins og kerlingar

Age Hareide, þjálfari Norðmanna var ekki sáttur við frammistöðu sinna manna gegn Tékkum í fyrri leik liðanna um laust sæti á HM í Þýskalandi næsta sumar, en síðari leikurinn fer fram í Tékklandi nú í kvöld. Hareide sagði að sínir menn hefðu spilað eins og kerlingar, en það fór fyrir brjóstið á nokkrum löndum hans.

Sport
Fréttamynd

Samtök iðnaðarins vara við starfsmannaleigum

Samtök iðnaðarins ráðleggja félagsmönnum sínum fremur að ráða fólk til sín en að notast starfsmannaleigur. Varhugavert sé að nýta sér þjónustu starfsmannaleiga vegna óljósrar stöðu skattamála hjá þeim. Samtök iðnaðarins segja það ekki skipta máli þótt starfsmannaleigur ábyrgist skattgreiðslur starfsmanna þar eð skattayfirvöld telji fyrirtæki bera fulla ábyrgð á skattskilum þeirra sem fyrir þau vinna.

Innlent
Fréttamynd

Sektaður um 1000 pund fyrir að hrækja á barn

Vandræðagemlingurinn El Hadji Diouf hjá Bolton var í dag sektaður um 1000 pund fyrir að hrækja á ellefu ára gamalt barn eftir leik Bolton og Middlesbrough í nóvember á síðasta ári. Líklegt þótti að Diouf yrði dæmdur í bann vegna atviksins, en hann slapp með skrekkinn. Diouf á yfir höfði sér dóm vegna ölvunaraksturs á dögunum, en hann hefur átt mjög erfitt með að hegða sér vel undanfarið.

Sport
Fréttamynd

Sigur hjá Ólafi og félögum

Ciudad Real, lið Ólafs Stefánssonar í spænsku úrvalsdeildinni, sigraði Arrate 24-20 í gærkvöld og því heldur liðið toppsæti deildarinnar ásamt Barcelona. Ólafur lét lítið fyrir sér fara í leiknum og náði ekki að skora. Börsungar sigruðu Bidasoa með níu mörkum 38-29 og Barcelona og Ciudad eru því efst og jöfn með 16 stig eftir 9 leiki.

Sport
Fréttamynd

Alonso verður næsti Schumacher

Flavio Briatore, stjóri Renault-liðsins í formúlu 1, segir að Fernando Alonso eigi eftir að feta í fótspor Michael Schumacher og verða sigursælasti ökumaðurinn formúlu 1.

Sport
Fréttamynd

Úrvalsvísitalan aldrei mælst hærri

Úrvalsvísitalan sló enn eitt metið þegar hún hækkaði um 3,83% í viðskiptum dagsins. Hún mælist nú 4986 stig og hefur aldrei verið hærri, samkvæmt Greiningardeild Íslandsbanka. Frá ármótum hefur hún hækkað um 48,40%. Þau félög sem hækkuðu mest í dag eru Kaupþing Banki, Atorka Group, Jarðboranir og Landsbankinn. Það félag sem lækkaði mest í viðskiptum dagsins er SÍF um -2,54%.

Innlent
Fréttamynd

Dregið í 8-liða úrslit í dag

Í dag varð ljóst hvaða lið mætast í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar í handknattleik. Í karlaflokki mætast Fram og Fylkir, Þór og Stjarnan, HK og Haukar og svo FH og ÍBV. Leikirnir fara fram 6. og 7. desember. Í kvennaflokki mætast Valur og Fram, FH og Haukar, HK og ÍBV og svo bikarmeistarar Stjörnunar og Grótta. Kvennaleikirnir fara fram um miðjan janúar.

Sport
Fréttamynd

Guðrún Helgadóttir hlaut verðlaunin ár

Í dag, miðvikudaginn 16. nóvember var hátíðardagskrá í sal Listasafns Reykjanesbæjar í Duus-húsum í Reykjanesbæ. Þar vor afhent Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar fyrir árið 2005 og sérstakar viðurkenningar fyrir störf í þágu íslenskrar tungu. Í ár runnu verðlaunin til Guðrúnar Helgadóttur.

Innlent
Fréttamynd

Alþjóðleg herferð gegn ólöglegu niðurhali

Alþjóðleg samtök flytjenda og framleiðenda tónlistra hófu viðamikla herferð gegn ólöglegu niðurhali tónlistar af netinu, í gær. Fjöldi slíkra mála er rekinn fyrir dómstólum víða um heim og slík mál eru til rannsóknar á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Pistons með áttunda sigurinn í röð

Ellefu leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Detroit Pistons unnu áttunda leik sinn í röð í upphafi leiktíðar þegar liðið tók á móti Boston Celtics.

Sport
Fréttamynd

Kosningaúrslit á Grænlandi

Jafnaðarflokkurinn Siumut hélt velli sem stærsti stjórnmálaflokkur Grænlands í kosningunum í gær. Flokkurinn hélt sínum tíu þingmönnum með 30,7% atkvæða. Hægri flokkurinn Atassut og vinstri flokkurinn Inuit Ataqatigiit misstu báðir einn mann en Demókratar bættu við sig tveimur.

Erlent
Fréttamynd

Allt annað en Madrid yrði skref aftur á bak

"Keisarinn" Franz Beckenbauer, forseti Bayern Munchen, hefur látið hafa það eftir sér að úr því útlit sé fyrir að Michael Ballack sé að fara frá Bayern, sé Real Madrid eini raunhæfi kosturinn fyrir hann því annarsstaðar nái hann ekki að bæta sig sem knattspyrnumaður.

Sport
Fréttamynd

Ástralir tryggðu sér sæti á HM 2006

Ástralir tryggðu sér í dag sæti á HM í Þýskalandi eftir frækinn sigur á Ungverjum í vítaspyrnukeppni í Sydney. Marco Breciano skoraði mark Ástrala á 35. mínútu og því var staðan jöfn 1-1 samanlagt, en Ástralir höfðu betur í vítakeppninni.

Sport
Fréttamynd

14 létust af völdum jarðsprengju í Kambódíu

Að minnsta kosti 14 Kambódíumenn létust þegar flutningabíll sem þeir voru í ók yfir jarðsprengju í norðurhluta landsins. Bíllinn var að flytja fólkið heim af hrísgrjónaökrum og létust 13 mannanna samstundis

Erlent
Fréttamynd

Íslendingur dæmdur fyrir innflutning og sölu á hassi í Finnlandi

Íslendingur var í dag dæmdur í Finnlandi í eins árs og tveggja mánaða fangelsi fyrir innflutning og sölu á hassi í Finnlandi. Maðurinn, sem er á fertugsaldri, var dæmdur fyrir rétti í borginni Jyväskylä í mið-Finnlandi fyrir að hafa tvisvar flutt hass til landsins frá Hollandi, samtals 5,8 kíló, og selt það í Finnlandi.

Innlent
Fréttamynd

Umdeild en vinsæl

Ritt Bjerregaard verður næsti borgarstjóri í Kaupmannahöfn eftir stórsigur Jafnaðarmannaflokksins í sveitarstjórnarkosningunum í Danmörku í gær. Endurkoma hennar í embætti þykir merkileg fyrir margra hluta sakir en hún hefur tvívegis verið neydd til að segja af sér embætti og verið mjög umdeildur stjórnmálamaður.

Erlent
Fréttamynd

Börnum úr Arnarneshreppi hafnað um leiksskólapláss á Akureyri

Skólanefnd Akureyrarbæjar hefur hafnað fjórum börnum úr nágrannahreppnum, Arnarneshreppi, um leikskólavist í bænum. Oddviti hreppsins segir bagalegt að nefndin skuli hafa hafnað börnunum um leikskólavist enda hafi hún fengið þau skilboð að ekkert væri því til fyrirstöðu að þau fengju inni á leikskólum bæjarins.

Innlent
Fréttamynd

Hagnaður hjá Kögun

Hagnaður Kögunar eftir skatta nam 434 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins sem er aukning um 91% frá sama tímabili 2004. Kögun samanstendur af Verk- og kerfisfræðistofunni hf., Kögurnesi ehf., Ax hugbúnaðarhúsi hf., Huga hf., Landsteinum Streng hf., Skýrr hf., Teymi hf. og Opnum kerfum Group Holding ehf.

Innlent