Fréttir
Alvarlegt slys ofan Sveinatungu Alvarlegt umferðarslys varð í Norðurárdal í Borgarfirði nú á þriðja tímanum þegar fólksbíll hafnaði út í Norðurá, skammt ofan Sveinatungu. Lögregla og sjúkralið eru á vettvangi. Innlent 20.11.2005 16:30
Avion tekur við framsækniverðlaunum Avion Group hlaut í gær viðurkenningu fyrir að vera annað framsæknasta fyrirtæki Evrópu árið 2005. Magnús Þorsteinsson, stjórnarformaður Avion Group, tók við verðlaununum í Barcelona fyrir hönd fyrirtækisins. Innlent 20.11.2005 16:16
Auðveldur sigur Premat Frakkar héldu sigurgöngu sinni áfram á heimsmeistaramótinu í kappakstri um helgina, þegar Malasíukappaksturinn fór fram. Alexandre Premat, sem var annar í rásröðinni í morgun, vann sprettkeppnina og vann svo auðveldan sigur í aðalkeppninni eftir að hafa haldið forystunni í 30 hringi. Sport 20.11.2005 17:05
Schröder kvaddur í Hannover Kveðjuathöfn var haldin fyrir Gerhard Schröder, fráfarandi kanslara Þýskalands, í heimabæ hans Hannover í gærkvöld. Mikið var um dýrðir þar sem bæði hermenn báru kyndla honum til heiðurs og herlúðrasveit lék lög sem eiginkona kanslarans hafði valið. Erlent 20.11.2005 16:10
Bíll út í Norðurá í Borgarfirði Þyrla Landhelgisgæslunnar og köfunarmenn voru fyrr í dag kölluð út vegna bíls sem lent hafði ofan í Norðurá í Borgarfirði. Beiðni um hjálp var hins vegar afturkölluð en læknir, sjúkrabíll og lögregla munu vera komin á vettvang. Ekki hafa fengist upplýsingar um það hversu margir voru í bílnum og hvert ástand þeirra er. Innlent 20.11.2005 15:23
Ferdinand tryggði West Ham stig Anton Ferdinand tryggði West Ham stig á elleftu stundu gegn Tottenham í fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í dag. Mido kom heimamönnum í Tottenham yfir á 16. mínútu, en Ferdinand jafnaði leikinn á síðustu andartökunum í uppbótartíma. Sport 20.11.2005 15:43
Íranar hóta aðgerðum ef máli þeirra verður vísað til örygisráðs SÞ Íranska þingið samþykkti í dag að skylda ríkisstjórn landsins til að hætta að leyfa eftirlitsmönnum Sameinuðu þjóðanna að kanna kjarnorkuver landsins og halda áfram vinnslu úrans ef kjarnorkumálum Írana verður vísað til öryggisráðs SÞ. Erlent 20.11.2005 14:26
Löng bið hjá Greiningarstöð ríkisins Grunnskólabörn þurfa að bíða í um og yfir tvö ár eftir greiningu hjá Greingar- og ráðgjafarmiðstöð ríkisins. Forstöðumaður stofnunarinnar segir ástandið ekki viðunandi og horfir fram á vanda næstu árin. Styrktartónleikar fyrir Greiningarmiðstöðina verða haldnir í Landakotskirkju í dag klukkan fjögur. Innlent 20.11.2005 14:13
Mikil stemmning á vínsýningu í Smáralind Mikil stemmning er á Vínsýningu 2005 sem fram fer þessa helgi í Vetrargarðinum í Smáralind en í dag er hún opin milli klukkan eitt og sex. Innlent 20.11.2005 12:20
Albert formlega tekinn við völdum í Mónakó Albert fursti af Mónako hefur nú formlega tekið við völdum í furstadæminu eftir íburðarmikla krýningarhátíð í gær. Um 800 boðsgestir mættu til hátíðahaldanna, en eini þjóðhöfðinginn sem sá sér fært að fara til Mónakó að samfagna Alberti fursta var Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands. Erlent 20.11.2005 12:14
Vatnstjón í fjölbýlishúsi á Akureyri Slökkviliðið á Akureyri var kallað að fjölbýlishúsi í bænum í gær en þar hafði vatn flætt um húsið eftir að húsráðandi á fjórðu hæð hafði gleymt að skrúfa fyrir krana. Vatnsskemmdirnar reyndust mestar í hans eigin íbúð en einnig urðu nokkrar skemmdir á íbúðum á neðri hæðum vegna vatnsflaumsins. Innlent 20.11.2005 10:28
Nefnd um flugvöll skilar áliti næsta sumar Nefnd sem meta á framtíð Reykjavíkurflugvallar, hefur brett upp ermar og áformar að skila áliti sínu næsta sumar. Innlent 20.11.2005 12:10
Vél sem lenti hér notuð til að flytja fanga til pyntingar CIA-vélin sem var í tæpan sólarhring á Reykjavíkurflugvelli hefur meðal annars verið notuð til að flytja Kanadamann til Jórdaníu þar sem hann var pyntaður. Erlent 20.11.2005 12:02
Át 67 hamborgara á átta mínútum Japanskur maður, Takeru Kobayashi, stendur uppi sem heimsmeistari í hamborgaraáti eftir að hafa torgað 67 hamborgurum. Heimsmeistarakeppni í hamborgaraáti fór fram í Chattanooga í Tennessee. Það tók hann átta mínútur að gleypa hamborgarana, en honum tókst þó ekki að slá heimsmetið, sem er 69 hamborgarar, en það á hann raunar sjálfur frá því í fyrra. Erlent 20.11.2005 10:26
Fara á mis við skólagöngu vegna fötlunar Fjöldi barna í Rússlandi fer á mis við skólagöngu vegna fötlunar. Þetta eru börn sem geta lært og vilja læra en skólarnir eru ekki hannaðir til þess að taka við fötluðum. Erlent 20.11.2005 10:08
Valgerður tekur ekki sæti á listanum Valgerður Sigurðardóttir, sem sóttist eftir fyrsta sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Hafnarfirði í gær en tókst ekki ætlunarverk sitt, ætlar ekki að taka sæti á listanum. Innlent 20.11.2005 11:17
Réðst á lögreglumenn í miðborginni Tveir menn gistu fangageymslur lögreglunnar í Reykjavík í nótt, annar fyrir ölvunarakstur en hinn fyrir ólæti. Sá síðarnefndi, sem var ölvaður, hafði þá ráðist á dyraverði skemmtistaðar í miðborginni. Þegar lögreglumenn hugðust róa hann og keyra hann heim réðst hann á þá og var hann því færður í fangageymslur þar sem hann var látinn sofa úr sér ölvímuna. Innlent 20.11.2005 10:05
Björguðu konu af syllu eftir langa dvöl Björgunarmenn í Kaliforníu náðu konu af klettasyllu í gær þar sem talið er að hún hafi verið í þrjá til fjóra daga. Konan var afar máttfarin og illa lemstruð eftir sextíu metra fjall af bjargbrún. Maður sem var á göngu á ströndinni fyrir neðan kom auga á konuna. Hann gerði lögreglu viðvart, sem kallaði á þyrlusveit til að ná konunni úr bjarginu. Erlent 20.11.2005 10:03
Tveir harðir árekstrar í borginni í gær Harður árekstur varð á mótum Kleppsvegar og Súðarvogar í Reykjavík á tólfta tímanum í gærkvöld. Engin slys urður á fólki en ung stúlka í öðrum bílnum var flutt á sjúkrahús í losti. Þá varð harður árekstur í Kópavogi á Hafnarfjarðarvegi til móts við Kársnesbraut í gærkvöld. Innlent 20.11.2005 10:00
Lögreglumenn pynta og drepa með rafmagnsbor Írakskir lögreglumenn hafa drepið að minnsta kosti tvo menn og pyntað fjölda annarra með rafmagnsbor. Þessu er haldið fram í breska dagblaðinu Independent on Sunday í dag. Erlent 20.11.2005 10:01
Haraldur Þór sigraði í Hafnarfirði Haraldur Þór Ólason leiðir lista sjálfstæðismanna í Hafnarfirði í bæjarstjórnarkosningum í vor en hann sigraði í prófkjöri í Sjálfstæðisflokksins þar í bæ sem fram fór í gær. Haraldur hlaut 921 atkvæði í fyrsta sæti en keppinautur hans um forystusætið, Valgerður Sigurðardóttir, hlaut 791 atkvæði í 1.-2. sætið. Innlent 20.11.2005 09:58
Vélarnar hafa flogið til Guantanamo Hinar svokölluðu fangavélar bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, sem flogið hafa um danska lofthelgi, hafa meðal annars flogið til og frá fangelsi Bandaríkjahers á Guantanamo á Kúbu. Þetta kemur fram í Politiken í dag. Erlent 20.11.2005 10:27
Haraldur Þór sigraði í prófkjöri sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Haraldur Þór Ólason leiðir lista sjálfstæðismanna í Hafnarfirði í bæjarstjórnarkosningum í vor en hann sigraði í prófkjöri í Sjálfstæðisflokksins þar í bæ sem fram fór í dag. Haraldur hlaut 921 atkvæði í 1. sæti en keppinautur hans um forystusætið, Valgerður Sigurðardóttir, hlaut 791 atkvæði í 1.-2. sætið. Rósa Guðbjartsdóttir varð í þriðja sæti en hún hlaut 783 í 1.-3. sæti og flest atkvæði allra. Innlent 19.11.2005 23:05
Ólafur hafði betur í Íslendingaslagnum Ciudad Real, lið Ólafs Stefánssonar í spænska handboltanum, hafði betur gegn Torrevieja 35-27 í dag, en hornamaðurinn Einar Örn Jónsson leikur með Torrevieja. Ólafur skoraði fimm mörk í leiknum, þar af eitt úr vítakasti, en Einar Örn skoraði sex fyrir lið sitt, þar af þrjú úr vítum. Ciudad Real er í þriðja sæti deildarinnar, einu stigi frá toppnum, en Torrevieja er í ellefta sæti. Sport 19.11.2005 21:28
Haraldur Þór efstur í Hafnarfirði Haraldur Þór Ólason hefur forystu í prófkjöri sjálfstæðismanna í Hafnarfirði þegar ríflega helmingur atkvæða, eða þúsund, hafa verið talin. Haraldur Þór hefur fengið 505 atkvæði í fyrsta sæti en keppninautur hans um annað sætið, Valgerður Sigurðardóttir, hefur fengið 453 atkæði í 1. - 2. sæti. Innlent 19.11.2005 21:09
Gummersbach sigraði Pfullingen Þrír leikir fóru fram í þýska handboltanum í dag. Guðjón Valur Sigurðsson og félagar í Gummersbach unnu góðan sigur á Pfullingen 30-25, þar sem Guðjón Valur skoraði 7 mörk og Róbert Gunnarsson bætti við 6 mörkum. Sport 19.11.2005 20:50
Anja bætti eigið met Sundkonan Anja Ríkey Jakobsdóttir úr Ægi bætti eigið met í 100 metra baksundi á Íslandsmótinu í sundi í dag. Anja synti 100 metrana á 1 mínútu, 2,81 sekúndu, sem er bæting um 13/100 úr sekúndu. Sport 19.11.2005 20:26
Naumur sigur Hauka Haukar unnu nauman sigur á Víkingi/Fjölni í Grafarvogi í dag 30-28 og komust fyrir vikið í þriðja sæti deildarinnar. Þá vann topplið Vals auðveldan sigur á Selfyssingum 38-27. Sport 19.11.2005 20:12
West Brom burstaði Everton West Bromwich Albion tók lánlaust lið Everton í kennslustund á heimavelli í dag 4-0, en liðið hafði tapað þremur leikjum í röð fyrir leikinn í dag. Nathan Ellington skoraði tvö mörk fyrir West Brom og þeir Neil Clement og Robert Earnshaw gerðu út um leikinn. West Brom lyfti sér í 16. sæti deildarinnar með sigrinum, en Everton situr í því 18. Sport 19.11.2005 19:51
Mayweather drjúgur með sig Hinn ósigraði Floyd Mayweather er heldur betur drjúgur með sig fyrir bardagann við Sharmba Mitchell í nótt og segist vera farinn að hugsa um næsta bardaga, sem væntanlega muni skila honum meiri tekjum en bardagi kvöldsins. WBC belti Mayweather verður ekki undir í bardaganum í kvöld, sem sýndur er í beinni útsendingu á Sýn. Sport 19.11.2005 15:31