Fréttir
Brasilíumenn af landi brott í fyrramálið Fimm brasilískir verkamenn, sem leituðu til Samiðnar vegna vangoldinna launa í gær, fara úr landi í fyrramálið. Samiðn telur þá eiga samtals um þrjár milljónir króna hjá fyrirtækinu Nýgifsi sem þeir unnu fyrir. Innlent 1.12.2005 19:36
Tilkynnt um tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna Í kvöld var tilkynnt hvaða bækur eru tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunna í ár. Annað árið í röð er glæpasaga tilnefnd í flokki fagurbókmennta, en það er bókin Tími nornarinnar eftir Árna Þórarinsson. Innlent 1.12.2005 19:59
Hæstiréttur sýknaði fyrrverandi starfsmenn Iceland Seafood Hæstiréttur sýknaði í dag fyrrverandi starfsmenn Iceland Seafood af kröfum fyrirtækisins. Mennirnir hættu hjá fyrirtækinu, lögbann var sett á þá, en þeir segjast ekki hafa byrjað hjá keppinautnum, fyrr en lögbanninu lauk. Innlent 1.12.2005 19:33
Ramadi hertekin í morgun Yfir fjögur hundruð uppreisnarmenn hertóku miðborg Ramadi í Írak í morgun. Ekki hafa fengist upplýsingar um mannfall en á veggspjöldum sem hafa verið hengd upp um alla borg segir að al-Qaida hafi náð völdum í borginni. Innlent 1.12.2005 19:27
Helguera samdi til þriggja ára Varnarmaðurinn Ivan Helguera hefur undirritað nýjan þriggja ára samning við Real Madrid á Spáni, en hann hefur verið fastamaður í liðinu síðan árið 1999. Honum gafst lítill tími til að ræða við blaðamenn eftir að hafa undirritað samning sinn í dag, því hann brunaði beint á fæðingardeildina þar sem kona hans á von á sér í dag. Það er því tvöföld ástæða fyrir Helguera að fagna þessa dagana. Sport 1.12.2005 16:26
Líklega gengið frá kaupum fyrir áramótin Magnús Kristinsson, útgerðarmaður, hefur gert tilboð í Toyota-umboðið, P. Samúelsson hf. Búist er við að gengið verði frá kaupum hans á þessu stærsta bílaumboði landsins fyrir áramót. Innlent 1.12.2005 17:44
Fær tveggja leikja bann fyrir kjaftbrúk George Karl, þjálfari Denver Nuggets í NBA deildinni, hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann fyrir að lesa dómurum pistilinn eftir að lið hans tapaði á heimavelli fyrir New Orleansí fyrrakvöld. Denver ætlar ekki að áfrýja dómnum. Sport 1.12.2005 14:17
Mikill áhugi fyrir tónleikum gegn virkjanastefnu Miðar í stúku seldust upp á aðeins fjórum mínútum á stórtónleika gegn virkjanastefnu, en þar munu margir af helstu tónlistarmönnum Íslands koma fram auk erlendra tónlistarmanna. Mikill áhugi er fyrir tónleikunum en erlendir tónlistamenn hafa beðið um að fá að koma fram á tónleikunum. Innlent 1.12.2005 17:25
Sakfelldur fyrir skilorðsrof og dæmdur í ársfangelsi Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann í eins árs fangelsi fyrir að hafa með fíkniefnabroti rofið skilorð. Rétturinn þyngdi dóm Héraðsdóms Norðurlands eystra um átta mánuði og staðfesti jafnframt upptöku á amfetamíni og e-pillum sem fundust á manninum á dansleik á Akureyri í fyrra. Innlent 1.12.2005 17:25
Fara í fyrsta lagi í febrúar á næsta ári Fjölmennt herlið á vegum Atlantshafsbandalagsins í Pakistan getur í fyrsta lagi farið þaðan í lok febrúar á næsta ári. NATO sendi um eitt þúsund hjúkrunarliða, verkfræðinga og þyrluflugmenn til hamfarasvæðanna í Pakistan, eftir að jarðskjálft reið þar yfir hinn áttunda október. Erlent 1.12.2005 17:14
Sjúkraliðar samþykkja samning Sjúkraliðar sem starfa á Hjúkrunarheimilunum Eir og Skjóli í Reykjavík hafa samþykkt kjarasamning. Samningurinn var undirritaður á fimmtudag í síðustu viku en samþykktur í atkvæðagreiðslu í dag. Innlent 1.12.2005 17:09
Átök einkenndu þingkosningar í Egyptalandi Átök hafa einkennt þriðju og síðustu umferð þingkosninganna í Egyptalandi sem fram fóru í dag. Að minnsta kosti einn maður hefur látið lífið í átökunum. Erlent 1.12.2005 17:06
Yngsta fólkið óttast ekki verðbólgu Verðbólga veldur sextán til 24 ára fólki minnstum áhyggjum en 25 til 34 ára fólki mestum áhyggjum. Þetta kemur fram í viðhorfskönnun Gallup fyrir Samtök iðnaðarins. Þar kemur fram að 54 prósent aðspurðra sögðu mikla verðbólgu valda sér mjög eða frekar miklum áhyggjum en 37 prósent sögðu hana valda sér mjög eða frekar litlum áhyggjum. Innlent 1.12.2005 17:00
Búist við jákvæðri rekstrarniðurstöðu hjá borgarsjóði Hreinar skuldir borgarsjóðs Reykjavíkur hafa lækkað um 1,4 milljarða króna samkvæmt árshlutauppgjöri sem lagt var fyrir borgarráð í dag. Í tilkynningu frá borgarstjóra segir að rekstrarniðurstaða borgarsjóðs 30. september 2005 hafi verið jákvæð um 743 milljónir króna, en samkvæmt útkomuspá verður niðurstaðan í árslok hagstæð sem nemur 549 milljónum. Innlent 1.12.2005 16:39
Drengur hætt kominn í sundlaug Bolungarvíkur Ellefu ára drengur var hætt kominn í sundkennslu í sundlauginni í Bolungarvík í morgun þegar hann var að leik. Drengurinn lét sig fljóta með andlitið í kafi en þegar hann hafði verið þannig nokkuð lengi fór félaga hans að gruna að ekki væri allt með felldu. Innlent 1.12.2005 16:27
Skattbyrðin hefur tvöfaldast Skattbyrði öryrkja hefur aukist mjög síðasta áratuginn samkvæmt nýrri rannsókn Stefáns Ólafssonar prófessors. Skattbyrði einhleypra öryrkja hefur farið úr sjö prósentum í sautján prósent, eða rúmlega tvöfaldast, og skattbyrði öryrkja í sambúð hefur aukist um 60 prósent. Innlent 1.12.2005 16:24
Mælirinn fullur Pólski landsliðsmarkvörðurinn Jerzy Dudek hjá Liverpool hefur nú fengið nóg af því að sitja á varamannabekk liðsins og fréttir herma að hann hafi farið fram á að verða seldur frá Liverpool í janúar, því hann vill fá að spila með félagsliði sínu til að tryggja sér sæti í pólska landsliðinu fyrir HM í Þýskalandi á næsta ári. Sport 1.12.2005 13:46
Borgarráð samþykkir tilboð í Heilsuverndarstöðina Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag að taka tilboði verktakafyrirtækisins Mark-Húsa í Heilsuverndarstöðina við Barónsstíg. Þar með er ljóst að fyrirtækið eignast húsið. Mark-Hús buðu 980 milljónir króna í húsið, um fimmtíu milljónum meira en sá sem átti næsthæsta tilboð. Innlent 1.12.2005 15:49
Skrifað undir viljayfirlýsingu um listdanskennslu Í dag var undirrituð viljayfirlýsing milli menntamálaráðuneytis, Menntaskólans við Hamrahlíð og Dansmenntar ehf. um samstarf um listdansnám á framhaldsskólastigi. Dansmennt tekur því við hlutverki Listdansskóla Íslands sem lagður verður niður í vor. Innlent 1.12.2005 15:13
Heil umferð í kvöld Sex leikir fara fram í Iceland Express-deild karla í körfubolta í kvöld og einn leikur í kvennaflokki. Topplið Njarðvíkur sækir botnlið Hattar heim á Egilsstaði, Hamar/Selfoss tekur á móti Haukum, Grindavík mætir Fjölni, Keflavík tekur á móti Þór, ÍR og KR mætast í Seljaskóla og þá verður væntanlega heitt í kolunum í Hólminum þar sem Snæfell og Skallagrímur eigast við. Sport 1.12.2005 12:57
Allt að 300 prósenta munur Það munar allt að 300 prósentum á hæsta og lægsta verði bökunarvara samkvæmt verðkönnun ASÍ. Í meira en helmingi tilfella munar 50 prósentum eða meira í verði milli verslana en kannað var verð 45 vörutegunda. Í tíu tilvikum var verðmunurinn meira en 100 prósent. Innlent 1.12.2005 14:42
Gerir hosur sínar grænar fyrir Chelsea Karl-Heinz Rummenigge segir að umboðsmaður miðjumannsins Michael Ballack sé í sambandi við Chelsea og Real Madrid með það fyrir augum að félögin geri tilboð í leikmanninn þegar samningur hans við þýsku meistarana rennur út. Sport 1.12.2005 12:30
Aftur hryðjuverk í Bangladesh Einn lést og tuttugu og fimm manns eru sárir eftir öfluga sprengingu við dómhús í Bangladesh í morgun. Erlent 1.12.2005 10:34
8-liða úrslitin kláruðust í gær Nokkrir Íslendingar voru í eldlínunni í þýska bikarnum í gærkvöldi, en þá varð ljóst hvaða lið komast áfram í fjórðungsúrslit keppninnar. Gummersbach átti í litlum vandræðum með Solingen og vann 41-22, þar sem Guðjón Valur skoraði 6 mörk og Róbert Gunnarsson skoraði 4 mörk. Sport 1.12.2005 09:35
Fer ekki til Portsmouth Knattspyrnustjórinn Neil Warnock fer ekki til úrvalsdeildarliðs Portsmouth eins og til hafði staðið, heldur verður um kyrrt í herbúðum 1. deildarliðs Sheffield United þar sem hann hefur náð góðum árangri í vetur. Forráðamenn Portsmouth hafa því beint sjónum sínum að fyrrum þjálfara félagsins, Harry Redknapp hjá Southampton. Sport 1.12.2005 12:02
Skilaboð Sameinuðu á alþjóðlega alnæmisdeginum Þjóðir heims mega ekki sofa á verðinum í baráttunni við alnæmi, þó að fjölmiðlar hafi fjallað meira um aðra sjúkdóma undanfarin misseri. Þetta eru skilaboð Sameinuðu þjóðanna á alþjóðlega alnæmisdeginum sem er í dag. Erlent 1.12.2005 12:23
Þórunn Björnsdóttir fær Barnamenningarverðlaununum árið 2005 Þórunn Björnsdóttir, kórstjóri Skólakórs Kársness, tók við Barnamenningarverðlaununum árið 2005. Þetta er í fyrsta sinn sem veðlaunin eru veitt en Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, veitti verðlaunin í húsakynnum fyrirtækisins fyrr í dag. Innlent 1.12.2005 12:14
Roger Moore kynnti hæsta framlag íslenskra fyrirtækja til þróunarhjálpar Þrjú íslensk stórfyrirtæki ætla að veita Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, 135 milljónir króna í styrk til þróunarhjálpar í Afríkuríkinu Gínea-Bissá. Þetta er hæsta framlag íslenskra fyrirtækja til þróunarhjálpar sem veitt hefur verið. Sir Roger Moore, velgjörðarsendiherra Sameinuðu þjóðanna, kom hingað til lands af þessu tilefni. Innlent 1.12.2005 12:14
Sigur hjá Ólafi og félögum Ólafur Stefánsson skoraði þrjú mörk fyrir lið sitt Ciudad Real á Spáni í gær þegar liðið burstaði Aragon 38-25 í úrvalsdeildinni þar í landi. Real er í 2-3 sæti deildarinnar ásamt Barcelona, en meistarar Portland San Antonio eru í efsta sætinu. Sport 1.12.2005 09:32
Þriðji hver starfsmaður myndi þiggja mútur Einn af hverjum þremur opinberum starfsmönnum í Víetnam myndi þiggja mútur ef honum byðist það. Þetta kemur fram í nýlegri könnun sem gerð var þar í landi. Spilltustu starfsmennirnir samkvæmt könnuninni eru þeir sem sjá um úthlutanir á landssvæðum og húsnæði en fast á hæla þeirra koma lögreglumenn, tollverðir og starfsmenn skattsins. Erlent 1.12.2005 08:36