Fréttir
Tveir slösuðust í árekstri Ökumenn tveggja bíla slösuðust þegar bílarnir skullu saman í mótum Sæbrautar og Faxagötu um klukkan hálf tvö í nótt. Annar bíllinn stóð kyrr á rauðu ljósi þegar hinum var ekið aftan á hann á talsverðri ferð. Bílarnir stórskemmdust og þurfti að fjarlægja þá af vettvangi með kranabílum. Innlent 5.1.2006 07:53
Lík þess síðasta sem var saknað fundið Björgunarmenn hafa fundið lík síðustu manneskjunnar, sem vitað er til þess að hafi verið saknað, í rústum skautahallar sem féll saman á mánudag í Þýskalandi. Alls létust því 15 manns í slysinu, þar af tólf börn. Erlent 5.1.2006 10:51
Hringvegurinn opnaður á ný Hringvegurinn, sem lokaðist í gærkvöldi austan við Höfn í Hornafirði vegna vatnavaxta í Jökulsá í Lóni, var opnaður á ný á tíunda tímanum. Vatn flæddi yfir veginn í alla nótt, en þrátt fyrir það urðu þar óverulegar skemmdir. Vegageraðrmenn eru nú að aka möl í skörð, þar sem runnið hefur úr köntum. Innlent 5.1.2006 09:26
Búum við fimmta mesta frjálsræði í heimi Íslendingar búa við fimmta mesta efnahagsfrelsi allra þjóða heims samkvæmt nýrri úttekt The Heritage Foundation sem ár hvert metur hversu mikið frjálsræðið er í ríkjum heims. Það er mest í Hong Kong en minnst í Norður-Kóreu. Innlent 5.1.2006 09:56
Hvetur landa sína til að sniðganga vörur frá Ísrael Kristin Halvorsen, fjármálaráðherra Noregs, hefur hvatt landa sína til að sniðaganga vörur frá Ísrael vegna óánægju með stefnu Ísraela í málefnum Palestínu. Flokkur hennar, Sósíalíski vinstriflokkurinn, hefur í lok mánaðarins átak til þess að auka skilning á málstað Palestínu og hvatningin er liður í því. Erlent 5.1.2006 07:49
Grunaðir um fjárdrátt Tveir menn hafa verið úrskurðaðir í gærluvarðhald, grunaðir um fjárdrátt af fyrirtækinu Og Vodafone, eftir að upp komst um falsaðar beiðnir í umferð á milli jóla og nýárs. Innlent 5.1.2006 09:32
Þrjú lík til viðbótar fundust í skautahöll í Þýskalandi Björgunarmenn hafa fundið lík þriggja manna til viðbótar sem létust þegar þak skautahallar í bænum Bad Reichenall í Þýskalandi hrundi undan snjóþunga á mánudag. Alls hafa því fjórtán fundist látnir eftir slysið, flestir þeirra börn og unglingar. Þá er eins enn saknað. Erlent 5.1.2006 07:32
Hópur Hornfirðinga kaupir hlut í CityStar Hópur Hornfirðinga hefur keypt tíu prósent hlutabréfa í flugfélaginu CityStar í Aberdeen í Scotlandi. Frá þessu er greint á fréttavefnum Hornafjörður.is. Flugfélagið er í eigu Íslendinga og flýgur frá Aberdeen til Lundúna, Óslóar og Stafangurs og hefur einnig verið með leiguflug til Íslands. Innlent 5.1.2006 07:46
Úkraínumenn greiða tvöfalt hærra verð fyrir gasið Vladímír Pútín, forseti Rússlands, sagði á blaðamannafundi sem haldinn var í Moskvu í gær, að samkomulag við stjórnvöld í Úkraínu um kaup á gasi frá Rússlandi á hærra verði en áður, yrði til að tryggja stöðugt framboð á gasi til annarra Evrópuríkja. Munu Úkraínumenn greiða að jafnvirði um sex þúsund krónum fyrir hverja þúsund rúmmetra af gasi frá Rússlandi sem er tvöfallt hærri upphæð frá því sem áður var. Erlent 5.1.2006 07:36
Átta prósenta aukning milli ára Gistinóttum á hótelum fjölgaði um rúm átta prósent frá nóvember 2004 til nóvember í fyrra samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Gistinætur voru 57.400 talsins í nóvember í fyrra en 53 þúsund árinu áður. Innlent 5.1.2006 09:04
Þungatakmarkanir á vegum víða um land Vegagerðin hefur gripið til þess að setja þungatakmarkanir á vegi víða um land vegna aurbleytu á vegum, sem ekki hafa bundið slitlag, og til að hlífa slitlaginu, þar sem það er. Í hlýindunum hefur klaki í vegunum bráðnað og er hætt við skemmdum þar sem þungum bílum er ekið um við þær aðstæður. Innlent 5.1.2006 07:34
Um fimmtíu létust í árásinni 49 hið minnsta létu lífið í sprengjuárás í borginni Kerbala í sunnanverðu Írak í morgun og tala látinna gæti enn átt eftir að hækka. 58 eru særðir. Maður með sprengiefni bundin um sig sprengdi sig í loft upp í mannþröng nærri einu af helstu helgiskrínum sjíamúslima. Erlent 5.1.2006 08:54
Biðjast afsökunar á röngum upplýsingum Forsvarsmenn kolanámunnar í Vestur-Virginíu í Bandaríkjunum, þar sem 12 námuverkamenn létu lífið eftir að sprenging varð, segjast harma það innilega að ættingjum og ástvinum hinna látnu hafi borist rangar upplýsingar um að mennirnir væru á lífi. Aðstandendur komu saman við kirkju í ríkinu í gær til að minnast hinna látnu. Erlent 5.1.2006 07:28
Jókst um 30 prósent milli ára Íbúðaverð á Akureyri hækkaði um 12,5 prósent á síðasta ári samkvæmt samantekt Fasteignamats ríkisins á kaupsamningum síðasta árs. Meðalíbúðaverðið fór úr 12,5 milljónum króna í fjórtán milljónir og seldum íbúðum fjölgaði um þrjátíu prósent milli ára. Innlent 5.1.2006 06:23
Tólf kíló af ruslpósti Safnast þegar saman kemur, segir orðtakið og það á við þó með óvenjulegum hætti sé, þegar ruslpóstinum sem kemur inn um dyralúgur landsmanna er safnað saman. Því komst Ísfirðingurinn Linda Pétursdóttir að þegar hún safnaði og vigtaði ruslpósti síðasta árs, samanlagt tæpum tólf kílóum. Innlent 5.1.2006 07:27
Ellefu létust í sprengjuárás Ellefu létust og átján særðust í sprengingu í Kerbala í Írak fyrir fáeinum mínútum. Þetta er önnur sprengjuárásin í borginni á jafnmörgum dögum en í gær særðust þrír í bílsprengjuárás en hún var sú fyrsta sinnar tegundar í borginni síðan í desember 2004. Erlent 5.1.2006 08:01
Systkin látast úr fuglaflensu í Tyrklandi Fjórtán ára drengur og systir hans hafa látist af völdum fuglaflensu í Tyrklandi síðan í gær. Þetta eru fyrstu tilfelli þess að fólk láti lífið þar af völdum veikinnar. Heilbrigðisráðherra Tyrklands greindi frá dauða drengsins á blaðamannafundi og fregnir af dauða systur hans bárust svo í morgun. Erlent 5.1.2006 07:25
Sharon enn í lífshættu Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, fékk annað heilablóðfall í gærkvöld, mun alvarlegra en það sem hann fékk þann 18. desember síðastliðinn. Læknar segja batahorfur hans ekki vera góðar þó tekist hafi að stöðva blæðingar í heila. Erlent 5.1.2006 07:51
Erlent flutningaskip tók niðri skammt frá Viðey Erlent flutningaskip, Irena Artica, tók niðri skammt frá Viðey, þegar það var að sigla út úr Sundahöfn í gærkvöldi. Því var snúið aftur til hafnar þar sem kafarar könnuðu skemmdir. Þær reyndust ekki alvarlegar og ollu ekki leka. Tildrög íhappsins liggja ekki fyrir en hafnsögumaður var um borð þegar atvikið varð. Innlent 5.1.2006 07:18
Reyndu að brjóta niður girðingar á Gasasvæðinu Hópur herskárra Palestínumanna stal tveimur jarðýtum í gær og hóf að reyna að brjóta niður landamæragirðingu milli Gasasvæðisins og Egyptalands. Mennirnir voru að mótmæla því að einn leiðtoga þeirra hafi verið handtekinn af palestínsku lögreglunni en hann er grunaður um aðild að ráni á þremur Bretum á Gasaströndinni í síðustu viku. Erlent 5.1.2006 07:13
Hringvegurinn lokaður austan Hornafjarðar Hringvegurinn hefur verið lokaður austan við Hornafjörð síðan í gærkvöldi vegna vatnavaxta í Jökulsá í Lóni. Hún flæðir enn yfir veginn en samkvæmt athugun vegagerðarmanna fyrir stundu virðist vegurinn ekki hafa rofnað. Aðstæður verða kannaðar nánar með birtingu og þá verður jafnvel hægt að helypa einhverri umferð á veginn á ný. Innlent 5.1.2006 07:12
Sharon sagður lamaður fyrir neðan mitti Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, fékk annað heilablóðfall í gærkvöld, mun alvarlegra en það sem hann fékk þann 18. desember síðastliðinn og segja læknar batahorfur ekki vera góðar. Erlent 5.1.2006 07:09
Bæjarstjóri Seltjarnarness gefur starfsmönnum gjafabréf án samþykkis Þrjátíu leikskólastarfsmenn á Seltjarnarnesi fengu gjafabréf í Kringlunni upp á 20 þúsund krónur að gjöf frá bæjaryfirvöldum um áramótin. Bæjarstjóri Seltjarnarness gaf vilyrði fyrir gjöfinni án samráðs við fjárhags- og launanefnd bæjarins. Hann hefur einnig gefið vilyrði fyrir því að allir 300 starfsmenn bæjarins fái sams konar gjafabréf. Innlent 4.1.2006 22:12
Lítil ástæða til að óttast hringormasmit í sushi Hringormasmit er eitthvað sem líklega enginn vill greinast með en þeir geta leitað í mannslíkamann eftir neyslu á hráum og hálfhráum fiski. Sushineytendur ættu þó ekki að þurfa að óttast þrátt fyrir að hrár fiskur sé megin uppistaðan í þessu japanska góðgæti. Innlent 4.1.2006 22:04
Mikil óvissa ríkir um starfssemi leikskóla í Kópavogi vegna uppsagna starfsfólks Mikil óvissa ríkir um starfsemi leikskólanna í Kópavogi vegna uppsagna starfsfólks. Forráðamenn foreldrafélaganna í bænum funduðu í kvöld vegna málsins og segja kjarabætur nauðsynlegar til að halda starfsfólkinu í vinnu. Jóhanna Þorsteinsdóttir, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðismanna í bænum, segir launahækkun starfsfólksins ekki vera lausn á þeirri stöðu sem komin er upp. Innlent 4.1.2006 21:56
Sharon aftur á sjúkrahús eftir heilablóðfall Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, var fluttur með hraði á sjúkrahús í Jerúsalem í kvöld eftir að hafa fengið heilablóðfall. Aðeins eru tæpar þrjár vikur síðan Sharon var lagður inn á spítalann, einnig vegna heilablóðfalls, sem reyndist minniháttar. Heilablóðfallið sem ráðherrann fékk í kvöld er hins vegar mun alvarlegra, að því er ísraelskir fjölmiðlar hafa eftir lækni á sjúkrahúsinu. Erlent 4.1.2006 21:36
Aldrei aðgerðir gegn friðsamlegum mótmælum Samband ungra sjálfstæðismanna skorar á ríkisstjórnina að grípa aldrei framar til aðgerða gegn friðsamlegum mótmælum. Í ályktuninni er sérstaklega vísað til viðbragða ríkisstjórnarinnar við komu Falun-gong liða hingað til lands sumarið 2002. Innlent 4.1.2006 20:41
Vilja sambærileg laun og í Reykjavík Samfylkingin í Kópavogi vill að strax verði rætt við starfsfólk leikskólanna í Kópavogi og þeim tryggð sambærileg kjör og á leikskólum Reykjavíkur. Innlent 4.1.2006 20:36
Viðbótarlífeyrissparnaður skerðir ekki grunnlífeyri Viðbótarlífeyrissparnaður skerðir ekki grunnlífeyri almannatrygginga. Þetta segir framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða. Í rauninni segir hann slíkan sparnað þann besta sem völ sé á og það sé andstætt vilja löggjafans að skerða hann. Innlent 4.1.2006 19:38
Rodney Coronado dæmdur Dýraverndunarsinni sem sökkti tveimur hvalbátum í Reykjavíkurhöfn fyrir tuttugu árum á yfir höfði sér allt að sex ára fangelsisvist í Bandaríkjunum. Hann er talinn forsprakki í hópi sem lögregla í Bandaríkjunum segir að sé stórhættuleg hryðjuverkasamtök. Erlent 4.1.2006 19:12