Fréttir

Fréttamynd

Féll af bifhjóli og viðbeinsbrotnaði

Ökumaður bifhjóls viðbeinsbrotnaði og hlaut fleiri meiðsl þegar hann féll af hjóli sínu á mótum Glerárgötu og Þórunnarstrætis á Akureyri í gærkvöldi. Slysið var með þeim hætti að hann óttaðist að ökumaður bíls, sem kom á móti, ætlaði að beygja þvert fyrir hann. Hann nauð hemlaði því hjólinu en við það féll hann í götuna.

Innlent
Fréttamynd

Námuverkamaður settur í súrefnismeðferð

Eini verkamaðurinn sem lifði af þegar sprenging varð í kolanámu í Vestur-Virginíu fyrr í vikunni hefur verið fluttur á sjúkrahús í Pittsburgh í Pennsylvaníu til súrefnismeðferðar. Læknar segja ástand Randals McCloy yngri enn alvarlegt en hann er í dái og hugsanlegt er að hann hafi hlotið heilaskaða.

Erlent
Fréttamynd

Fjögur fíkniefnamál í Hafnarfirði og Kópavogi

Fjögur fíkniefnamál komu upp í sameiginlegu átaki lögreglunnar í Hafnarfirði og í Kópavogi í gærkvöldi og í nótt og var lagt hald á hass, anfetamín og kókaín. Fjórir menn voru handteknir í aðgerðunum en sleppt undir morgun að yfirheyrslum loknum. Auk þessa var einn maður handtekinn í Keflavík í nótt með fíkniefni í fórum sínum.

Innlent
Fréttamynd

Tuttugu látnir eftir að gistihús hrundi í Mekka

Að minnsta kosti tuttugu biðu bana og tæplega sextíu eru slasaðir eftir að átta hæða gistihús hrundi til grunna í Mekka í Sádi-Arabíu í gær. Byggingin var nánast tóm þegar slysið varð en margir voru á ferðinni nálægt gistihúsinu og urðu því undir brakinu. Um eitt þúsund björgunarsveitarmenn leita nú að fólki í rústum byggingarinnar.

Erlent
Fréttamynd

Breska þingið endurskoðar eiturlyfjaflokkun kannabisefna

Breska ríkisstjórnin hefur ákveðið að endurskoða flokkun á kannabis. Kannabis hefur var lengst af flokkað í B flokki en var ekki hvað síst fyrir þrýsting frá lögreglunni, sett í C flokk fyrir nokkrum árum. Fari kannabis aftur í B flokk þýðir það þyngri viðurlög við neyslu og sölu þess. Breytingunni var ætlað að beina kröftum og eftirliti lögreglunnar að harðari eiturlyfjum eins og heróíni og krakki. Heimavarnarráðherra Bretlands, Charles Clark, hefur skipað endurskoðun á þessari ákvörðun þar sem nýjar rannsóknir sýna að kannbis hafi mun meiri áhrif á geðheilsu neytenda en áður hefur verið talið.

Innlent
Fréttamynd

Ítölskum gíslum sleppt í Jemen

Fimm ítölskum ferðamönnum sem rænt var í Jemen á nýársdag var sleppt í morgun, eftir því sem yfirvöld í Jemen greina frá. Það voru menn af tilteknum ættbálki í landinu sem rændu fólkinu en þeir kröfðust þess að ættingjum sínum yrði sleppt úr fangelsi.

Erlent
Fréttamynd

Fundu loðnu út af Héraðsflóa

Skipverjar á hafrannsóknaskipinu Árna Friðirkssyni fundu loðnu út af Héraðsflóa í nótt en langt er síðan nokkur loðna hefur fundist hér við land. Að sögn Sveins Sveinbjörnssonar leiðangursstjóra,virðist þetta þó vera lítil torfa og hin loðnuskipin fimm, sem taka þátt í skipulegri leit, hafa ekkert fundið eftir því sem best er vitað.

Innlent
Fréttamynd

Framboðslisti Vinstri grænna fyrir borgarstjórnarkosningar samþykktur

Vinstri grænir í Reykjavík samþykktu framboðslista fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor á félagsfundi sem haldinn var nú í kvöld. Í efsti sex sæti er raðað samkvæmt úrslitum prófkjörs sem haldið var í haust, fyrir utan fimmta sætið sem féll í skaut Gríms Atlasonar í prófkjörinu en hann kaus að taka ekki sætið. Efstu sæti listans eru því þannig skipuð að Svandís Svavarsdóttir leiðir listann, í öðru sæti Árni Þór Sigurðsson, þriðja sæti Þorleifur Gunnlaugsson, í því fjórða Sóley Tómasdóttir, Hermann Valsson í fimmta og Ugla Egilsdóttir í sjötta.

Innlent
Fréttamynd

Sharon enn haldið sofandi í öndunarvél

Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, er enn haldið sofandi í öndunarvél eftir heilablóðfallið sem hann fékk í fyrradag. Sharon gekkst undir sjö tíma langa aðgerð vegna heilablæðingarinnar í fyrrinótt og segja læknar við Hadassah-sjúkrahúsið í Jerúsalem, þar sem forsætisráðherrann dvelur, að honum verði haldið sofandi næstu tvo sólarhringana.

Erlent
Fréttamynd

Sterling sakað um brot á dönskum samkeppnislögum

Dönsk samkeppnisyfirvöld segja Lággjaldaflugfélagið Sterling, sem er í eigu Íslendinga, brjóta lög. Sterling innheimtir of há gjöld af flugmiðum sem keyptir eru með greiðslukortum. Kaupi viðskiptavinur flugmiða á tvö-hundruð og sextíu danskrar krónur getur hann þurft að borga þrjátíu krónur í kostnað sé borgað með ákveðnum kreditkortum eins og Diners Club eða American Express og tíu krónur borgi hann með Master Card eða Visa. Svo há gjöld innheimta kreditkortafyrirtækin ekki og Sterling tekur mismuninn og það segja dönsk samkeppnisyfirvöld vera ólöglegt.

Innlent
Fréttamynd

Ein glæsilegasta íshátíð í heimi

Í yfir tvo áratugi hefur kínverska borgin Harbin boðið gestum og gangandi upp á eina glæsilegustu íshátíð í heimi. Þúsundir manna söfnuðust saman þegar hátíðin var sett í dag í tuttugasta og annað sinn, en þar er að finna einstaklega fallegar byggingar gerðar úr ís.

Erlent
Fréttamynd

Gengið frá lista VG fyrir borgarstjórnarkosningar

Hermann Valsson íþróttakennari skipar 5.sætið á lista Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs til borgarstjórnarkosninga í vor. Svandís Svavarsdóttir framkvæmdastjóri leiðir listann. Tillaga uppstillingarnefndar um skipan á lista VG fyrir kosningarnar í vor var samþykkt á almennum félagsfundi nú í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Árni segir göng kosta sextán milljarða

Áætlun tveggja norskra sérfræðinga gerir ráð fyrir að göng á milli lands og Eyja kosti um sextán milljarða króna. Árni Johnsen og félagar hans í hópi sem stóð að úttekt á gangagerð kynntu niðurstöður hennar á fundi í dag.

Innlent
Fréttamynd

Tónleikar gegn stóriðjuframkvæmdum

Heimsþekktir tónlistarmenn, íslenskir og erlendir, koma fram til styrktar íslenskri náttúru í Laugardalshöllinni á laugardagskvöldið. Með tónleikunum sem bera yfirskriftina "Er þjóðin að verða náttúrulaus?" vill hópurinn og listamennirnir sem þar koma fram vekja athygli á einstakri innanlands sem utan á náttúru Íslands og þeirri hættu sem að henni steðjar vegna stóriðjuframkvæmda.

Innlent
Fréttamynd

Takmarkaðir vöruflutningar víða um land vegna hláku

Vöruflutningar um helstu samgönguleiðir landsins, þar á meðal á milli Reykjavíkur og Akureyrar, hafa verið takmarkaðir vegna aurbleytu og hættu á slitlagsskemmdum. Hver trukkur verður að skerða farm sinn um allt að fimm tonn í hverri ferð.

Innlent
Fréttamynd

Rúmlega helmingur Íslendinga trúir því að eitthvað taki við eftir dauðann

Rúmlega helmingur Íslendinga trúir því að eitthvað taki við eftir dauðann án þess að geta útskýrt það frekar. Þetta kemur fram í könnun sem unnin var af IMG gallup fyrir Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma í febrúar og mars árið 2004. Alls töldu 458 aðspurðra í könnuninni eða 55,9%, að eitthvað taki við eftir dauðanna en enginn geti vitað hvað það sé.

Innlent
Fréttamynd

Brot á leikreglum segir bæjarfulltrúi

Það á að umbuna starfsmönnum Seltjarnarnesbæjar með einhverju öðru en gjafakorti í Kringlunni. Þetta segir oddviti minnihlutans í bæjarstjórn en bæjarstjóri hefur upp á sitt einsdæmi gefið vilyrði fyrir því að allir starfsmenn Seltjarnarnesbæjar, 300 að tölu, fái gjafakort að upphæð tuttugu þúsund krónur. Brot á leikreglum, segir fulltrúi minnihlutans.

Innlent
Fréttamynd

Starfslokasamningar þurfa ekki að vera einkamál fyrirtækja

Starfslokasamningar þurfa ekki að vera einkamál fyrirtækja sem slíka samninga gera eða æðstu stjórnenda þeirra, segir viðskiptasiðfræðingur við Háskólann í Reykjavík. Hann segir að almenningur geti gert kröfu um að fyrirtæki sem skipta miklu máli í samfélaginu borgi starfsmönnum sínum laun í takt við hefðir og venjur í samfélaginu en snúi ella baki við fyrirækinu.

Innlent
Fréttamynd

Bifhjólamaður slasaðist nokkuð þegar hann féll í götuna

Bifhjólamaður slasaðist nokkuð þegar hann reyndi að koma í veg fyrir árekstur við bíl innanbæjar á Akureyri um sexleitið. Slysið varð með þeim hætti að tvö bifhjól komu akandi eftir Glerárgötu og mætti bíl sem var að koma úr gagnstæðri átt. Ökumaður fyrra bifhjólsins hélt að ökumaður bílsins ætlaði að beygja í veg fyrir hjólið og inn Þórunnarstræti svo hann hemlaði á hjólinu og féll í götuna.

Innlent
Fréttamynd

Laun kvenna lægri í öllum atvinnugreinum

Árslaun karla eru hærri en árslaun kvenna í öllum þeim atvinnugreinum sem athugaðar voru í launasamanburði sem gerður var í tæplega 30 Evrópulöndum. Þær atvinnugreinar sem skoðaðar voru eru iðnaður, byggingastarfsemi og mannvirkjagerð og verslunar- og viðgerðarþjónusta.

Innlent
Fréttamynd

Matvælaverð myndi lækka ef Ísland gengi í ESB

Matvælaverð á Íslandi myndi lækka ef gengið yrði í Evrópusambandið. Eins væri hægt að lækka matvöruverð með því að afnema tolla og fjarlægja viðskiptahöft af innfluttum matvælum. Þetta segir aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík.

Innlent
Fréttamynd

Námuverkamaðurinn sem bjargaðist liggur enn í dái

Eini námuverkamaðurinn sem bjargaðist eftir að hafa lokast inn í Sago kolanámunni í Virginíu fylki fyrr í vikunni, liggur enn í dái. Læknar óttast að maðurinn hafi hlotið heilaskaða vegna slyssins. Alls fórust 12 námuverkamenn þegar sprenging varð í námunni.

Erlent
Fréttamynd

Ný lyfta bíður

Jólin hafa ekki verið mjallahvít og óvenjuleg hlýindi um land allt í upphafi ársins hafa ekki lofað góðu fyrir skíðamenn. Ekkert var skíðafærið í Bláfjöllum snemma í morgun enda rigndi þar eins og hellt væri úr fötu eða þar til allt í einu, eins og hendi væri veifað, að allt fór á bólakaf í jólasnjó.

Innlent
Fréttamynd

Ekkert saknæmt átti sér stað

Krufningu á fólkinu sem fannst látið í húsi við Frakkastíg á milli jóla og nýárs er lokið. Engir áverkar fundust og er ekkert saknæmt því talið hafa átt sér stað.

Innlent
Fréttamynd

Svarstýnir á bata

Læknar Ariels Sharons, forsætisráðherra Ísraels, eru svartsýnir á að hann nái bata eftir heilablóðfallið sem hann fékk í gærkvöldi. Talsmaður Hamas-samtakanna segir gott að losna við Sharon, einn versta og grimmasta leiðtoga heimsins. Ehud Olmert, aðstoðarforsætisráðherra landsins, hefur tekið við völdum.

Erlent
Fréttamynd

40% utan nýbyggingarsvæða

40% nýbyggðra íbúða í Reykjavík eru á þéttingarsvæðum. Af 5.150 íbúðum, sem fullgerðar voru í Reykjavík á árunum 1996-2004, voru 2.025 á þéttingarsvæðum, það er að segja utan nýbyggingarsvæðanna austast í borginni.

Innlent
Fréttamynd

Enn mikið vatn á hringveginum við Jökulsá í lóni

Enn rennur talsvert mikið vatn yfir hringveginn vestan vð Jökulsá í Lóni á Suðausturlandi. Vegfarendur eru beðnir að aka með gát um þessa leið. Hálka er á Hellisheiði og Þrengslum og þá eru einnig hálkublettir á Suðurlandi. Á Vesturlandi er hálka og skafrenningur er á Holtavörðuheiði.

Innlent
Fréttamynd

Boða til opins fundar vegna stöðu leikskólamála

Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar í Kópavogi óskuðu eftir því að bæjarstjórnarflokkar í Kópavogi byðu foreldrum og starfsmönnum leikskóla til fundar þar sem farið yrði yfir stöðu leikskólamála. Forystumenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í Kópavogu lýstu því yfir í dag að ekki væri vilji hjá þeim til að taka þátt í slíkum fundi að sögn bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Laun á Íslandi há samanborið við önnur Evrópulönd

Árslaun á Íslandi eru há samanborið við önnur Evrópulönd. Þetta kemur fram í alþjóðlegum samanburði á launum sem gerður var undir forystu Evrópsku hagstofunnar. Þegar tillit er tekið til verðlags færist Ísland hins vegar nokkuð neðar á listann.

Innlent