Fréttir
Strákarnir okkar seldir til Bandaríkjanna Sýningarréttur á kvikmyndinni Strákarnir okkar hefur verið seldur til Bandaríkjanna. Samið var um dreifingarrétt á myndinni á öllum miðlum, svo sem sýningu í kvikmyndahúsum og sjónvarpi auk annarrar útgáfu. Innlent 21.2.2006 19:54
Sullenberger yfirheyrður Jón Gerald Sullenberger og bandaríski bílasalinn Ivan Motta, voru meðal þeirra sem báru vitni fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, á öðrum degi aðalmeðferðar í baugsmálinu. Jón Gerald sagðist hafa búið til "svindlreikninga" fyrir Baugsfjölskylduna - að hennar ósk. Málið tók óvænta stefnu þegar verjendur drógu upp gögn frá kanadískum yfirvöldum, sem sýna að bílar Baugsfeðga, sem þeir keyptu í gegnum Jón Gerald, -séu enn skráðir þar. Innlent 21.2.2006 19:32
Frumvarp veiki stöðu blindra og sjónskertra Blindrafélagið lýsir sig mótfallið nýju frumvarpi heilbrigðisráðherra um Heyrnar-, tal- og sjónstöð og telur að slík stöð muni veikja stöðu blindra og sjónskertra. Þá hafa forystumenn blindrasamtaka á Norðurlöndum hvatt íslenska ríkið til að draga hugmyndir um sameiningu þessara stofnana til baka. Innlent 21.2.2006 19:19
Aftökunni frestað Yfirvöld í Kaliforníu urðu í morgun að fresta aftöku yfir dæmdum morðingja eftir að læknar sem taka áttu þátt í aftökunni höfnuðu því af siðferðisástæðum. Erlent 21.2.2006 19:15
Ekki svigrúm fyrir allar framkvæmdir í stóriðju Forsætisráðherra segir áform um frekari stóriðju í mikilli óvissu og hann telur ekki svigrúm fyrir allar þær framkvæmdir sem séu í umræðunni. Matsfyrirtækið Fitch Ratings greindi frá því í dag að horfur fyrir lánshæfismat ríkissjóðs Íslands vegna skuldbindinga í innlendri og erlendri mynt hafi breyst úr því að vera stöðugar í neikvæðar. Ráðherrann segir þetta viðvörun en neitar því að ríkisstjórnin hafi gert mistök í hagstjórninni. Innlent 21.2.2006 19:13
Mladic að líkindum handtekinn Óstaðfestar fregnir herma að Ratko Mladic, æðsti yfirmaður hers Bosníu-Serba, hafi verið handtekinn í Serbíu í dag. Hann hefur verið eftirlýstur fyrir stríðsglæpi í rúman áratug, þar á meðal fjöldamorðin í Srebrenica þar sem að minnsta kosti átta þúsund manns voru myrtir. Erlent 21.2.2006 19:05
Enginn samningur til Borgarstjóri segir að borgaryfirvöld geti farið með tilboð í lóðir við Úlfarsfell eins og þau vilji þar sem enginn samningur hafi verið gerður við þá sem áttu hæstu tilboðin. Heppilegra hefði þó verið ef öll tvímæli hefðu verið tekin af í útboðsgögnum. Innlent 21.2.2006 18:29
Jafnt í borginni Ef gengið yrði til borgarstjórnarkosninga nú fengju Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn jafn marga menn kjörna eða sjö hvor flokkur. Vinstri - grænir fengju fimmtánda manninn og yrðu því í oddaafstöðu. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands vann fyrir Samfylkinguna. Innlent 21.2.2006 18:22
Varar við ofnotkun þokuljósa Umferðastofa minnir ökumenn á að að þokuljós beri aðeins að nota þegar það er þoka og þá aðeins í dreifbýli, en samkvæmt stofnuninni ber töluvert á því að ökumenn ofnoti þokuljósin. Innlent 21.2.2006 18:42
Hermann nýr forstjóri Olíufélagsins Hermann Guðmundsson hefur verið ráðinn nýr forstjóri Olíufélagsins sem eigendur Bílanausts keyptu á dögunum. Hermann hefur verið framkvæmdastjóri Bílanausts síðastliðin fjögur ár. Innlent 21.2.2006 17:46
Farþegum með strætó fjölgaði í janúar Farþegum með vögnum Strætós fjölgaði um tæp sjö prósent í janúar miðað við sama mánuð í fyrra. Nam fjölgunin alls 50.346 farþegum. Í tilkynningu frá Strætó segir að þarna sé um umtalsverðan viðsnúning að ræða þar sem farþegum Strætós hafi fækkað lítillega síðustu misseri. Innlent 21.2.2006 17:37
Ratko Mladic handtekinn Ratko Mladic, æðsti yfirmaður hers Bosníu-Serba, var handtekinn í Serbíu í dag. Hann hefur verið eftirlýstur fyrir stríðsglæpi í rúman áratug, þar á meðal fjöldamorðið í Srebrenica þar sem að minnsta kosti átta þúsund manns voru stráfelldir. Fréttir af handtökunni hafa ekki verið staðfestar af serbneskum yfirvöldum. Erlent 21.2.2006 17:37
Íslenskir fjárfestar kaupa breskt fjölmiðlafyrirtæki Hópur fjárfesta sem tengist Viðskiptablaðinu hefur keypt bresku frétta- og upplýsingaveituna M2 Communications Limited. Þetta kemur fram í tilkynningu frá þeim. Innlent 21.2.2006 17:19
Niðurgreiða þurfi laun farmanna til að halda stéttinni Eina leiðin til að halda farmannastétt hér á landi er að niðurgreiða laun farmanna eins og gert er í nágrannalöndunum, segir Helgi Laxadal, formaður Vélstjórafélags Íslands. Innlent 21.2.2006 16:59
Mikil ólga í bæjarpólitíkinni á Akureyri Líkur eru á að þrjú til fjögur sérframboð komi fram á Akureyri fyrir kosningarnar í vor. Það gæti því farið svo að kosið yrði um átta lista. Fyrir liggur nú þegar að Oddur Helgi Halldórsson mun bjóða fram sér, en listi hans, L-listinn, hefur nú tvo menn í bæjarstjórn. Þá hefur Ragnar Sverrisson, áhugamaður um Akureyrarlista á alþingi, sent inn beiðni um bókstafinn A fyrir bæjarstjórnarkosningarnar. Ragnar telur allar líkur á að boðið verði fram í vor, enda sé hann ekki fyllilega sáttur við stjórn bæjarins. Reifað hefur verið að L-listi og Akureyrarlisti sameinist. Ragnar og Oddur Helgi hafa ræðst við um sameiningu listanna. Ungliðar eru svo aftur óskrifað blað en döpur útkoma til dæmis ungliða sjálfstæðismanna vakti athygli í prófkjöri á dögunum þar sem formaður Varðar, ungliðafélags flokksins, lenti í neðsta sæti. Hann sagði í dag, að hann vildi engu spá um möguleika á sérframboði fyrr en búið væri að raða upp á lista sjálfstæðismanna. Aðeins efstu sæti voru bindandi hjá sjálfstæðismönnum. Þá hafa háskólanemar íhugað sérframboð með aukna hagsmuni Háskólans á Akureyri í huga og jafnvel eru þreifingar um enn eitt ungliðaframboð. 11 eru í bæjarstjórn á Akureyri. Um 750 atkvæði til að koma manni að í bæjarstjórn og því gæti slagurinn orðið harður og mörg atkvæði farið fyrir lítið ef allt að átta listar bjóða fram. Innlent 21.2.2006 16:39
Dregur saman með Samfylkingunni og Sjálfstæðisflokknum Samfylkingin dregur á Sjálfstæðisflokkinnn í fylgi samkvæmt nýrri kosningakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands vann fyrir Samfylkinguna. Ef niðurstöðurnar gengju eftir í kosningum í vor fengju flokkarnir sjö borgarfulltrúa hvor og Vinstri - grænir einn. Innlent 21.2.2006 16:00
Hlutabréf lækka eftir matslækkun Hlutabréf hafa lækkað mikið í verði í dag eftir að matsfyrirtækið Fitch Rating breytti horfum á lánshæfismati ríkissjóðs úr stöðugum í neikvæðar. Hlutabréf fóru yfir 6.800 stig í morgun en eftir að Fitch Rating tilkynnti niðurstöðu sína lækkuðu hlutabréfin snöggt og fóru undir 6.500 stig. Síðan þá hafa hlutabréf hækkað nokkuð og farið upp fyrir 6.500 stig. Innlent 21.2.2006 15:40
Breyta nafninu í VR Verzlunarmannafélag Reykjavíkur hefur breytt nafni sínu og heitir nú VR. Gamla skammstöfunin á nafni félagsins er sem sagt nýja nafn félagsins. Innlent 21.2.2006 14:47
Hrun í Kauphöllinni Hlutabréf hafa snarlækkað í dag í kjölfar þess að matsfyrirtækið Fitch telur að neikvæðar horfur séu á lánshæfismati ríkissjóðs. Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 4,7 prósent. Viðskipti innlent 21.2.2006 14:22
Segist hafa fengið fyrirmæli um hvernig rukka ætti fyrir bílana Vitnaleiðslur yfir Jóni Geraldi Sullenberger hófust í morgun þegar aðalmeðferð í Baugsmálinu var fram haldið í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þar sagði hann að honum hefðu verið gefin fyrirmæli um hvernig rukka ætti fyrir innflutning á bílum sem ákært er vegna og að hann hafi farið að þeim óskum til að tryggja að hann fengi greiddan útlagðan kostnað vegna bílakaupanna. Innlent 21.2.2006 12:09
Nánast jafn margir karlar og konur skólastjórar Fjöldi kvenna sem gegna starfi skólastjóra í grunnskólum landsins er nánast orðinn jafn mikill og fjöldi karla. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Þá eru grunnskólanemendur landsins, með annað móðurmál en íslensku, rúmlega sextán prósentum fleiri nú í vetur en á síðasta skólaári. Innlent 21.2.2006 12:08
Óskaði eftir aðstoð lögreglu við að fá endurgreitt frá eiturlyfjasala Fólk óskar eftir aðstoð lögreglunnar í hinum ýmsu og oft ótrúlegustu málum en ósk Þjóðverja nokkurs á dögunum slær líklega flestar beiðnir um lögregluaðstoð út. Maðurinn keypti sér 200 grömm af maríjúana af ónefndum eiturlyfjasala, en þegar hann prófaði varninginn skömmu eftir viðskiptin var hann langt í frá ánægður með gæði efnisins. Erlent 21.2.2006 08:44
Nauðsynlegt að fólk virði öll trúarbrögð Benedikt páfi XVI segir nauðsynlegt að fólk virði öll trúarbrögð heimsins og forðist það eftir fremsta megni að vega ómaklega að trúarbrögðum, táknum þeirra og kennisetningum. Erlent 21.2.2006 08:39
14 ára stúlka tekin undir stýri Lögreglan á Selfossi stöðvaði bíl skammt utan við bæinn í nótt við venjubundið eftirlit og kom þá í ljós að þar um borð var allt í ólagi. Ökumaður var 14 ára stúlka og þess vegna að sjálfsögðu réttindalaus. Innlent 21.2.2006 07:44
Dalvíkurbúar krefjast þess að flugvöllurinn verði áfram Hagsmunasamtökin „Áfram" í Dalvíkurbyggð afhentu Sturlu Böðvarssyni samgönguráðherra undirskriftarlista í gær með sjö þúsund og fimm hundruð nöfnum þar sem þess er krafist að Reykjavíkurflugvöllur verði ekki lagður af. Innlent 21.2.2006 07:41
BBC fjallar um Baugsmálið Breska ríkisútvarpið, BBC, fjallar ítarlega um Baugsmálið á vefsíðu sinni í dag. Þar er að finna frétt um málið og aðalmeðferð þess í gær. Farið er yfir þróun málsins og þær ákærur sem eftir standa. Aðalmeðferð í Baugsmálinu verður fram haldið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Innlent 21.2.2006 07:48
Öll olíufélögin lækkuðu verðið Öll olíufélögin lækkuðu verð á bensínlítra um eina krónu í gær og díselolíuna um 50 aura. Algengt verð í sjálfsafgreiðslu er nú 108-109 krónur. Innlent 21.2.2006 07:36
Sveitarstjórinn í Vík fékk sovéska kosningu Sveinn Pálsson, sveitarstjóri í Vík í Mýrdal og oddviti sjálfstæðismanna þar, fékk svonefnda sovéska kosningu í fyrsta sæti flokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum í lokuðu pófkjöri flokksins. Alllir fimmtíu flokksmenn og stuðningsmenn flokksins sem þátt tóku í prófkjörinu greiddu honum atkvæði sitt. Innlent 21.2.2006 07:26
Féll fimm metra ofan af húsþaki Maður féll fimm metra ofan af húsþaki í Skerjafirði í gærkvöldi og gat sig hvergi hreyft eftir fallið. Hann var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans en mun ekki vera í lífshættu. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir. Innlent 21.2.2006 07:23
Umdeilt að arabískt fyrirtæki reki hafnir í Bandaríkjunum Fjölmargir bandarískir stjórnmálamenn hafa gagnrýnt þá ákvörðun stjórnar Bush Bandaríkjaforseta að heimilia arabísku fyrirtæki að taka yfir rekstur sex stórra hafna þar í landi. Fyrirtækið, sem staðsett er í Sameinuðu Arabísku furstadæmunum, hefur keypt breskt fyrirtæki sem hefur séð um rekstur hafna í sex borgum, þar á meðal Miami og New York. Erlent 21.2.2006 06:33