Fréttir
Fræða ungmenni um kynlíf Læknanemar fara í yfir 200 heimsóknir á þessu ári í menntaskóla til að fræða ungmenni um kynlíf. Um er að ræða sjálfboðaverkefni sem staðið hefur í nokkur ár og er árangurinn að þeirra mati góður. Læknanemar hafa staðið fyrir kynfræðslu meðal menntaskólanema í nokkur ár. Innlent 12.3.2006 19:13
Sumarbústaður alelda Gamall sumarbústaður í Norðlingaholti varð alelda í nótt. Bústaðurinn er í rjóðri rétt fyrir utan nýja hverfið. Slökkviliðið var kallað út klukkan rúmlega þrjú og stóð slökkvistarf í einn og hálfan klukkutíma. Fara þurfti aftur á staðinn í morgun til að slökkva í glóðum. Innlent 12.3.2006 11:08
Giftingarhringar og farsímar í páskaeggjum Ótrúlegust hlutir geta leynst í páskaeggjum en á síðustu árum hafa giftingarhringir og gsm símar verið meðal þess sem þar hefur mátt finna. Páskaeggin byrja að streyma í verslanir eftir helgi. Innlent 12.3.2006 11:02
Íslandsbanki verður Glitnir Íslandsbanki veitir þjónustu sína héðan í frá undir nafninu Glitnir. Þetta var tilkynnt á fundi bankans í dag. Samhliða nýju nafni tekur bankinn upp nýtt merki og útlit. Dótturfélög bankans og skrifstofur í fimm löndum heita einnig framvegis Glitnir. Innlent 11.3.2006 19:20
Mikill viðbúnaður vegna væntanlegs Kötlugoss Ef Katla gýs gæti fylgt gosinu gríðarstórt jökulhlaup sem talið er geta verið nærri sjö sinnum stærra en hlaupið á Skeiðarársandi árið 1996. Undirbúningsvinna vegna væntanlegrar rýmingar stendur yfir en rýma gæti þurft svæðið frá Þykkvabæ og austur fyrir Meðalland. Innlent 11.3.2006 18:09
07.07.07 vinsæll brúðkaupsdagur Flestir laugardagar yfir sumartímann eru vinsælir til þess að ganga í það heilaga. Einn laugardagur virðist þó ætla að verða öðrum vinsælli en það er sjöundi júlí á næsta ári og eru dæmi um að kirkjur séu uppbókaðar á þessum tíma. Innlent 11.3.2006 18:13
Umræðum um vatnalög frestað fram á mánudag Umræðum á Alþingi um umdeild vatnalög var frestað laust fyrir klukkan fjögur. Það var gert að ósk Birkis Jóns Jónssonar formanns iðnaðarnefndar, en fundur í nefndinni um málið hefur verið boðaður á mánudag. Innlent 11.3.2006 15:58
Símkerfið gaf sig undan álagi Fullkomið brúðkaup, leikritið sem sló öll aðsóknarmet á Akureyri í vetur, er að endurtaka leikinn í Borgarleikhúsinu í Reykjavík. Símkerfi leikhússins sprakk í morgun og á fyrsta degi miðasölu í gær seldust fjögur þúsund miðar. Sýningar hefjast í lok apríl. Innlent 11.3.2006 15:51
Tvennar sameiningarkosningar Tvennar kosningar um sameiningu sveitarfélaga fara fram í dag. Annars vegar í Strandasýslu þar sem kosið er um sameiningu Broddaneshrepps og Hólmavíkurhrepps og hins vegar í Austur- Húnavatnssýslu þar sem kosið verður um sameiningu Áshrepps og Húnavatnshrepps. Innlent 11.3.2006 12:25
Getur hækkað verð fyrirtækja Ný raforkulög sem tóku gildi um áramótin hafa töluverð áhrif á mörg iðnfyrirtæki. Verði hækkunum velt út í verðlagið geta þær numið yfir 20%. Innlent 11.3.2006 12:20
Þrír fóru út af Þrír ökumenn misstu stjórn á bílum sínum í hálku á Fífuhvammsvegi í Kópavogi rétt fyrir klukkan tólf í gærkvöldi. Bílarnir lentu ekki saman heldur fóru út af hver á eftir öðrum með mjög skömmu millibili. Engin slys urðu á fólki. Innlent 11.3.2006 09:38
Hafnaði á vegriði Umferðarslys varð á Reykjanesbraut í Hvassahrauni rétt fyrir miðnætti í gær. Hálkan var mikil og missti ökumaður vald á bifreið sinni sem hafnaði á vegriði. Þrír farþegar sem voru í bifreiðinni kenndu ekki til eymsla en ökumaður var fluttur með sjúkrabifreið á sjúkrahús í Reykjavík, vegna eymsla í hálsi og baki. Bifreiðin var óökufær og var flutt með dráttarbifreið. Innlent 11.3.2006 09:41
Skíðasvæði opin fyrir norðan Skíðasvæðin á höfuðborgarsvæðinu eru lokuð. Þó að snjó hafi kyngt niður í nótt þá er enn of lítill snjór í fjöllum til að hægt sé að opna. Hins vegar eru skíðasvæðin opin fyrir norðan. Innlent 11.3.2006 09:36
Veist að lögreglumönnum Veist var að lögreglumönnum við heimahús í Garðabæ um klukkan eitt í nótt og þeir slegnir. Samkvæmi var í húsinu og hafði lögregla upphaflega verið kölluð til vegna hávaða og fór hún á staðinn og bað húsráðendur að hafa lægra. Innlent 11.3.2006 09:30
Kokteilsósubað og lundadiskódans Sumar konur eru sjúkar í súrar gúrkur, aðrar hafa unun af því að fara í kokteilsósubað. Lundar geta líka dansað diskó og múmíur byggt sér kofa. Í Nýlistasafni Íslands í kvöld var hægt berja augum ýmislegt sem sjaldnast birtist almenningi. Það voru nemendur Listaháskóla Íslands sem buðu upp á gjörning í Nýlistasafninu og þar kenndi ýmissa grasa. Innlent 10.3.2006 22:22
Skiptar skoðanir um heilbrigðismál Skiptar skoðanir eru á álitum nefnda heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um endurskilgreiningu verksviða innan heilbrigðisþjónustunnar. Álitunum er ætlað að móta framtíðarumgjörð íslenskrar heilbrigðisþjónustu. Haldinn var opinn kynningar- og umræðufundur um niðustöður tveggja nefnda sem báðar fjalla um þau grundvallaratriði og lagaramma sem íslensku heilbrigðiskerfi er ætlað að mótast af. Innlent 10.3.2006 22:13
Fjögurra bíla árekstur í Grímsnesi Fjórir bílar lentu í árekstri við Minniborg í Grímsnesi á níunda tímanum í kvöld. Enginn slasaðist alvarlega í árekstrinum en tveir voru þó fluttir á brott með sjúkrabíl. Ekki fengust upplýsingar um tildrög slyssins nú rétt fyrir tíu. Innlent 10.3.2006 21:50
Boðað til helgarfundar um vatnalög Þingheimur hefur verið boðaður saman til fundar á morgun til að ræða frumvarp til vatnalaga. Umræður um frumvarpið hafa þegar staðið yfir í rúman sólarhring og ganga ásakanirnar á víxl milli stjórnarliða og stjórnarandstæðinga. Innlent 10.3.2006 21:28
Spá áframhaldandi hárri verðbólgu Verðbólgan helst há næstu mánuði og mun ef eitthvað er aukast frá því sem nú er. Þetta er meðal þess sem má lesa úr umsögnum greiningardeilda bankanna um nýjustu verðbólgumælingar. Innlent 10.3.2006 19:47
Sluppu lítið meiddir úr bílveltu Þrír menn sluppu lítið meiddir þegar bíll þeirra valt og endaði á hvolfi rétt fyrir ofan Gullinbrú á leið í Grafarvog snemma í kvöld. Meiðsl mannanna virðast vera minniháttar en einn þeirra er nú til rannsóknar á slysadeild Landspítalans. Innlent 10.3.2006 20:59
Nauðgaði stúlku á stigagangi Tvítugur karlmaður var í dag dæmdur til eins árs fangelsisvistar fyrir að nauðga sextán ára stúlku á stigagangi heimilis hennar. Stúlkan var mjög ölvuð og þótti dómnum sýnt að maðurinn hefði misnotað sér ástand hennar. Innlent 10.3.2006 17:21
Gjaldeyrisjöfnuður bankanna jákvæður Gjaldeyrisstaða bankanna var jákvæð um tæpa 83 milljarða króna í lok síðasta mánaðar. Þetta er hækkun um 21,7 milljarða króna á milli mánaða, samkvæmt upplýsingum frá Seðlabanka Íslands. Viðskipti innlent 10.3.2006 17:02
Þrír mánuðir fyrir misbeitingu Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt 25 ára karlmann í eins árs fangelsi, þar af níu mánuði skilorðsbundið, fyrir að notfæra sér ölvun tvítugrar stúlku og hafa við hana mök þegar hún gat enga vörn sér veitt. Innlent 10.3.2006 16:53
Besti árangur FL Group frá upphafi 16 FL Group skilaði rúmlega tuttugu milljarða króna hagnaði fyrir skatta á síðasta ári. Afkoman er nokkuð betri en greiningardeildir bankanna höfðu spáð og er forstjórinn hæstánægður. Innlent 10.3.2006 16:13
GM innkallar 900.000 pallbíla Bandaríski bílaframleiðandinn General Motors Corp. tilkynnti í dag að fyrirtækið ætli að innkalla 900.000 pallbíla af gerðinni Chevrolet Silverado, Chevrolet Avalance, Cadillac Escalade EXT og GMS Sierra vegna galla í festingum sem styður við lok á palli bílanna. Bílarnir eru allir settir á markað á árunum 1999 til 2000. Viðskipti erlent 10.3.2006 16:07
Hlutabréf lækkuðu í Evrópu Hlutabréf lækkuðu nokkuð á helstu mörkuðum í Evrópu í dag og hefur gengi bréfa á helstu mörkuðum álfunnar ekki verið lægra í þrjár vikur. Ástæðan er lækkuninni er sú að búist er við minni vexti fyrirtækja en væntingar spáðu fyrir um auk þess sem evrópski seðlabankinn hækkaði stýrivexti í annað sinn á þremur mánuðunum í byrjun þessa mánaðar. Viðskipti erlent 10.3.2006 15:28
Bankaræningi í 19 ára fangelsi David Alexander Toska, höfuðpaurinn að baki bankaráninu í Stavangri í Noregi fyrir tveimur árum, var í hádeginu í dag dæmdur í 19 ára fangelsi fyrir þátt sinn í því. 12 aðrir voru einnig dæmdir í málinu í dag og voru þeir dæmdir í allt að 17 ára fangelsi. Erlent 10.3.2006 13:58
FL Group stærsti hluthafinn í easyJet FL Group hefur aukið hlut sinn í easyJet í 16,9 prósent. Markaðsvirði hlutarins nam í gær um tæpum 31 milljarði króna. Með þessu á FL Group orðinn stærsti hluthafi easyJet en stofnandinn Stelios Haji-Ioannou á 16,5 prósent. Viðskipti innlent 10.3.2006 14:55
Árdegi kaupir DagGroup Árdegi ehf hefur keypt alla hluti félaga í eigu Róberts Melax í Degi Group og Nordex og á nú félögin 100%. Í byrjun febrúar sl. seldi Dagur Group Senu ehf. til Dagsbrúnar hf. Dagur Group á og rekur 9 BT verslanir, 3 Skífuverslanir, 2 verslanir undir nafni Hljóðfærahússins auk Sony Center í Kringlunni. Innlent 10.3.2006 14:47
Atvinnuleysi 4,8 prósent í Bandaríkjunum Atvinnuleysi mældist 4,8 prósent í Bandaríkjunum í síðasta mánuði og er það 1,1 prósentustiga aukning frá janúarmánuði. Þrátt fyrir þetta urðu 243.000 ný störf urðu til í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. Aukning atvinnuleysisins kemur fjármálasérfræðingum á óvart þar sem þeir spáðu óbreyttu atvinnuleysi á milli mánaða. Viðskipti erlent 10.3.2006 14:45