Fréttir

Fréttamynd

Flóð í Grikklandi

Allt er á floti í austurhluta Grikklands þar sem ár hafa flætt yfir bakka sína og kaffært ræktarland og jafnvel hús. Mikið hefur snjóað og rignt á svæðinu síðustu daga og hafa flóðgarðar brostið. Óttast er að flóðin nú verði þau verstu í fimmtán ár.

Erlent
Fréttamynd

Réttarhöldin í uppnámi

Réttarhöldin yfir Zacharias Moussaoui eru í uppnámi eftir að í ljós kom að einn lögmanna stjórnvalda hafði samband við nokkur lykilvitni í málinu.

Erlent
Fréttamynd

Palestínumenn reiðir Bretum og Bandaríkjamönnum

Vesturlandabúar hafa verið skotmörk ævareiðra Palestínumanna á Gasaströndinni og Vesturbakkanum í dag vegna umsátursástand við fangelsi í Jeríkó. Ísraelsher gerði áhlaup á það í morgun og var ætlunin að taka höndum Ahmed Saadat, einn helsta leiðtoga herskrárra Palestínumanna. Palestínumenn kenna Bretum og Bandaríkjamönnum um.

Erlent
Fréttamynd

65 milljónir til Vestfjarða

Húsafriðunarnefnd hefur úthlutað styrkjum fyrir árið 2006 og fara rúmar 65 milljónir króna til Vestfjarða. Í frétt á fréttavefnum Bæjarins besta kemur fram að tíu kirkjur á Vestfjörðum fái styrk en hæsta styrkinn, fjórar milljónir króna, fær Þingeyrarkirkja við Dýrafjörð.

Innlent
Fréttamynd

Leggur til að upplýsingar um líffæragjöf komi fram á ökuskírteini

Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur lagt fram á Alþingi þingsályktunartillögu um að upplýsingar um líffæragjafir komi fram í ökuskírteinum einstaklinga. Hann leggur til að farin verði sú leið að notast við upplýsingar á ökuskírteinum líkt og gert sé í Bandaríkjunum, en látnir ökumenn koma oft til greina sem líffæragjafar.

Innlent
Fréttamynd

Sparisjóður Vestfjarða fagnar 110 ára afmæli

Sparisjóður Vestfjarða fagnar 110 ára afmæli í dag. Sparisjóðurinn var stofnaður árið 1896 og hét þá Sparisjóður Vestur Ísafjarðarsýslu en nafninu var síðar breytt í Sparisjóð Þingeyrarhrepps.

Innlent
Fréttamynd

Leiðir til hærri vaxta og verri þjónustu

Breyting Íbúðalánasjóðs í heildsölubanka fyrir viðskiptabankana getur leitt til þess að vextir íbúðalána hækka og þjónusta við lántakendur minnkar, segir Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Methagnaður hjá Sparisjóði Svarfdæla

Sparisjóður Svarfdæla skilaði 403 milljóna króna hagnaði á síðasta ári en um methagnað er að ræða í sögu sparisjóðsins. Þetta er 220 milljónum króna meira en árið 2004. Arðsemi eigin fjár var 58,3 prósent á síðasta ári en var 36,4 prósent árið á undan. Eigið fé nam rúmum milljarði króna í árslok og hafði aukist um 404 milljónir eða tæp 64 prósent á milli ára.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Glitnismótið í hraðskák hefst á morgun

Á morgun hefst Glitnismótið í hraðskák í Ráðhúsinu í Reykjavík. Meðal þátttakenda á mótinu eru Judit Polgar og Vishy Anand og er mótið er haldið í minningu um Harald Blöndal sem hefði orðið sextugur á þessu ári. Bakhjarl mótsins er Glitnir en undiriritun samnings þess efnis fór fram í húsnæði Gltinis í morgun

Innlent
Fréttamynd

Enn einn kvöldfundurinn um vatnalög

Umræður um vatnalagafrumvarp ríkisstjórnarinnar halda áfram á Alþingi í dag, eftir enn einn kvöldfundinn í gær, þar sem aðeins örfáir þingmenn komust í ræðustól. Ekki er útlit fyrir að umræðu um málið ljúki á næstunni. Við upphaf umræðunnar í gærkvöldi gagnrýndi stjórnarandstaðan fundarstörf forseta og krafðist þess að skipulagi væri komið á þingstörf svo þingmenn gætu skipulagt tíma sinn í samræmi við það.

Innlent
Fréttamynd

Ók of hratt með kerru í eftirdragi

Ökumaður, sem lögreglan í Vík í Mýrdal tók nýverið fyrir að aka á hundrað tuttugu og þriggja kílómetra hraða, eða rösklega 40 kílómetrum yfir leyfilegum hámarkshraða, reyndist líka vera með kerru í eftirdragi. Kerrur eru afar mismunandi vel búnar, en hvað sem þær eru vel úr garði gerðar vill lögreglan benda fólki á að þær eru ekki ætlaðar til hraðaksturs.

Innlent
Fréttamynd

Öryggisráðið ræðir stöðu Írans

Fulltrúar þeirra ríkja í Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sem hafa þar neitunarvald, Kína, Frakklands, Rússlands, Bandaríkjanna og Bretlands, hittust í gær til að ræða stöðu Írans. Engin niðustaða fékkst í málinu en á meðan Bandaríkjamenn og Bretar vilja beita refsiaðgerðum sem fyrst, segja Rússar þá aðferð skila engum árangri.

Erlent
Fréttamynd

Krefjast afsagnar forsætisráðherra

Um 20 þúsund manns söfnuðust saman nærri bústað forsætisráðherra Taílands í Bangkok í gær og krafðist fólkið afsagnar Thaksin Shinawatra, forsætisráðherra landsins. Búist er við að mótmælin haldi áfram í dag. Ásaka mótmælendurnir Thaksin um spillingu og að taka ekki rétt á uppreisn múslíma í Suður-Taílandi. Einnig að hefta málfrelsi fjölmiðla og að stunda fyrirgreiðslupólitík.

Erlent
Fréttamynd

Eldur í mjölgeymi

Eldur kviknaði í mjölgeymi við fiskimjölsverksmiðjuna í Helguvík á níunda tímanum í gærkvöldi og var slökkvilið kallað á vettvang. Eldurinn náði ekki útbreiðslu og gekk greiðlega að slökkva hann. Ekki liggur fyrir hversu mikið tjón hlaust af honum en talið er að eldsupptök megi rekja til ofhitnunar á mjöli.

Innlent
Fréttamynd

Eitt stærsta fíkniefnamál á Litla Hrauni

Lögreglan á Selfossi rannsakar nú eitt stærsta fíkniefnamál, sem upp hefur komið í fangelsinu á Litla Hrauni. Við leit á fanga, sem hafði fengið dags leyfi um helgina, fundust hundrað grömm af hassi og nokkrir tugir gramma af amfetamíni þegar hann kom aftur í fangelsið. Hann var strax settur í einangrunarvist og verið er að rannsaka hvort hann hafi átt vitorðsmenn innan veggja fangelsisins.

Innlent
Fréttamynd

Enn deilt hart um dauða Milosevic

Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseti Júgóslavíu, verður grafinn í Belgrad án viðhafnar. Stjórnmálaskýrendur telja að allt að ein miljón manna verði við útförina. Dómstóll í Belgrad dró í gær til baka handtökutilskipunina á Miru Markovitch, ekkju Milosevic en Mira hefur dvalist í Rússlandi undanfarin ár ásamt syni sínum. Þau hafa verið eftirlýst í Serbíu, sökuð um að misnota vald sitt á valdatíma Milosevic.

Erlent
Fréttamynd

Féll af snjóbretti og missti meðvitund

Ungur drengur missti meðvitund þegar hann féll af snjóbretti í Bláfjöllum í gærkvöld. Þegar var kallað á sjúkrabíl, en þegar hann og lögregla komu á vettvang hafði drengurinn rankað við sér. Engu að síður var hann fluttur á Slysadeild til rannsóknar og reyndist hann óbrotinn.

Innlent
Fréttamynd

Tíu látist í skýstrokkum

Að minnsta kosti tíu manns hafa farist af völdum skýstrokka í miðvesturríkjum Bandaríkjanna undanfarna tvo sólarhringa. Mest varð tjónið í Missouri-ríki þar sem fjórir létust. Skólar voru víða lokaðir í gær vegna skýstrokka og hvassviðris þar á meðal í Suður-Dakóta, Wisconsin og Minnesota, auk Missouri.

Erlent
Fréttamynd

Óvinsældir Bush aldrei meiri

George Bush, forseti Bandaríkjanna, fullyrðir að þótt ástandið í Írak sé spennuþrungið, sé lítil sem engin hætta á borgarastyrjöld. Hvatti forsetinn landa sína til að vera þolinmóða. Sprengjutilræði í mosku sjía í Írak þann 22. febrúar leiddi til þess að hátt í þúsund manns hafa fallið í hefndaraðgerðum.

Erlent
Fréttamynd

Þurfti að beita táragasi

Óeirðalögregla í París þurfti að beita táragasi til að dreifa fjölda námsmanna sem efndi til mótmæla gegn nýjum lögum um störf fyrir ungt fólk í gær. Lögin fjalla um starfssamninga fólks undir 26 ára aldri með ákvæðum um möguleika á uppsögn án útskýringa innan tveggja ára. Þeim er ætlað að hvetja vinnuveitendur til að ráða ungt fólk án þess að þeir þurfi að óttast að sitja uppi með starfsmenn sem ekki standa sig.

Erlent
Fréttamynd

Borgarbúar borga fyrir lagningu ljósleiðara á Seltjarnarnesi

Lagning ljósleiðara í mörgum hverfum Reykjavíkur hefur setið á hakanum á sama tíma og borgarbúar eru látnir standa undir kostnaði við ljósleiðaravæðingu í öðrum sveitarfélögum. Þessu heldur Félag sjálfstæðismanna í Vestur- og miðbæ fram og vandar borgaryfirvöldum ekki kveðjurnar.

Innlent
Fréttamynd

Markaðsvirði rýrnað um 200 milljarða

Markaðsvirði þriggja stóru bankanna hér á landi hefur rýrnað um tæpa tvö hundruð milljarða króna á þremur vikum eftir að Fitch Ratings gaf út skýrslu sína um íslenskt efnahagslíf. Þá vekur Morgan Stanley athygli á mikilli hlutabréfaeign bankanna og að íslensku bréfin hafi hækkað um 60 til 75 prósent á einu ári. Ef sú hækkun íslensku bréfanna gengi verulega til baka, eða um 50 prósent, myndi eign bankanna í þeim rýrna um samtals 48 milljarða króna.

Innlent
Fréttamynd

Atvinnuleysi 1,6% í febrúar

Atvinnuleysi á landinu mældist 1,6% í síðasta mánuði en var 2,8% á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í tölum sem Vinnumálastofnun birti á vefsíðu sinni í dag. Í ár voru skráðir hátt í 47 þúsund atvinnuleysisdagar á öllu landinu í febrúar sem jafngildir því að rúmlega 2300 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá.

Innlent
Fréttamynd

Markviss áróður gegn stjórnvöldum í Íran

Bandaríkjastjórn hyggst hefja markvissan áróður gegn stjórnvöldum í Íran. George Bush, Bandaríkjaforseti, sakaði Írana í dag um að eiga stóran þátt í ófremdarástandinu í Írak.

Erlent
Fréttamynd

Utanríkisráðherra í opinbera heimsókn til Danmerkur

Tveggja daga opinber heimsókn Geirs H. Haarde utanríkisráðherra og Ingu jónu Þórðardóttur, eiginkonu hans, til Danmerkur, hófst í dag. Heimsóknin hófst með fundi milli utanríkisráðherrans og danska varnarmáraráðherrans, Søren Gade.

Innlent
Fréttamynd

Milosevic hugsanlega jarðsettur í Serbíu

Boris Tadic, forseti Serbíu, útilokar ekki að Slobondan Milosevic verði jarðaður í Serbíu. Fyrr í dag sagði Tadic það fullkomlega óviðeigandi að Milosevic yrði borinn til grafar þar.

Erlent
Fréttamynd

Engin niðurstaða á fundi

Forseti Alþingis átti í kvöld fund með þingflokksformönnum til að reyna að leita leiða til að leysa þann hnút sem umræður um vatnalög iðnaðarráðherra eru komnar í á Alþingi. Ekkert samkomulag náðist. Kvöldfundi um málið var því framhaldið og alls óvíst hvenær annarri umræðu um málið lýkur.

Innlent