Fréttir

Fréttamynd

Sprengju líklega komið fyrir í farangri

Spænsk kona sem handtekin var í Mexíkó um síðustu helgi, hefur verið ákærð fyrir að ætla að flytja sprengiefni til Spánar. Spænski konsúllinn í Cancún segir næsta víst að sprengiefnunum hafi verið komið fyrir í farangri hennar. Um sé að ræða unga stúlku sem var með eiginmanninum í brúðkaupsferð í Cancun, hún komi frá litlu þorpi í Galisíu og reki eigin hárgreiðslustofu.

Erlent
Fréttamynd

Ódýrari leið til lækkunar matarverðs

Matarverð á Íslandi gæti orðið það sama og í Finnlandi og Svíþjóð með því að afnema vörugjaldakerfið og lækka tolla, segja Samtök atvinnulífsins. Lækkun virðisaukaskatts hefði ekki þurft að koma til. Samtökin telja að önnur leið en sú sem stjórnvöld hafa valið til lækkunar matvælaverðs, hefði verið vænlegri til árangurs.

Innlent
Fréttamynd

Veður tefur innanlandsflug

Slæmt veður hefur tafið flugumferð í morgun. Flogið var til Akureyrar og Egilstaða, en flug til Ísafjarðar liggur niðri og verður athugað klukkan rúmlega tvö. Þá á að athuga flug til Færeyja og Akureyrar nú um hádegið.

Innlent
Fréttamynd

Kortavelta dregst saman

Kortavelta hefur dregist saman um rúmlega 3% frá því í ágústmánuði. Þetta kemur fram í hálffimm fréttum KB banka. Samdráttinn má aðallega rekja til minnkandi veltu í debetkortum, en hún dróst saman um 9% milli mánaða. Velta þeirra í septembermánuði nam rúmlega 33 milljörðum króna.

Innlent
Fréttamynd

Sönnun á kjarnorkutilraun N-Kóreu

Bandaríkin hafa tilkynnt að geislavirkni hafi mælst í loftsýnum sem tekin voru úr sérhannaðri flugvél bandaríkjahers daginn eftir kjarnorkutilraun Norður-Kóreumanna. Sýnin voru tekin nálægt staðnum sem neðanjarðarsprengingin átti sér stað. Þetta staðfestir að kjarnorkutilraunin fór fram, en getgátur voru uppi um það síðustu daga að einungis hefði verið um dýnamítsprengingu að ræða.

Erlent
Fréttamynd

Stofnun stærsta verkalýðsfélags landsins

Í dag klukkan þrjú verður eitt stærsta verkalýðsfélag landsins stofnað þegar Vélstjórafélag Íslands og Félag járniðnaðarmanna sameinast undir einum hatti. Á stofnfundinum sem verður klukkan þrjú á Grand Hótel, verður rætt hvort iðn og tækninám hafi orðið utanveltu í menntamálum á Íslandi og velt upp stöðu verknáms. Þá verða mál tengd erlendum starfsmönnum í brennidepli.

Innlent
Fréttamynd

Funda um aðgerðir gegn loftslagsbreytingu

Forystumenn úr alþjóðlegu viðskiptalífi funda um aðgerðir gegn loftlagsbreytingum á Bessastöðum í dag. Fundurinn er í boði Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, en frumkvæði að fundinum eiga Young Global Leaders sem starfa á vettvangi hinnar árlegu Davos-ráðstefnu. Um sjötíu manns eru komin hingað til lands til funda en samráðsfundurinn hófst á fimmtudag og lýkur á morgun. Þeir koma úr alþjóðlegu viðskiptalífi, fjölmiðlum og frjálsum félagasamtökum sem eiga það sameiginlegt að beita sér í umhverfismálum. Auk forseta Íslands taka tveir Íslendingar þátt í fundinum, þeir Björgólfur Thor Björgólfsson athafnamaður og Ólafur Elíasson myndlistarmaður.

Innlent
Fréttamynd

Ban kjörinn nýr aðalritari SÞ

Allsherjarþing Sameinuðu Þjóðanna kaus í gær Ban Ki-Moon nýjan aðalritara Sameinuðu Þjóðanna. Ban tekur við af Kofi Annan um áramótin, en Annan hefur gengt starfinu í áratug. Ban er fyrrverandi utanríkisráðherra Suður Kóreu. Á fyrsta blaðamannafundi Ban eftir kjörið sagðist hann styðja þær refsiaðgerðir sem Bandaríkjamann hafa lagt fyrir öryggisráðið.

Erlent
Fréttamynd

Tvö fíkniefnamál og innbrot í nótt

Tvö fíkniefnamál komu upp á landinu í nótt. Á Akureyri var maður handtekinn við veitingastað með átta grömm af ætluðu amfetamíni, tvær e-töflur og lítilræði af hassi. Í framhaldinu var gerð húsleit heima hjá manninum og fundust þar loftbyssa og tveir ólöglegir hnífar. Málið telst upplýst. Í Reykjanesbæ voru tveir menn handteknir undir morgun eftir að amfetamín fannst á þeim.

Innlent
Fréttamynd

Geislavirk efni nærri tilraunastað

Frumrannsóknir bandarískra sérfræðinga sýna að geislavirk efni hafi fundist nærri þeim stað þar sem Norður-kóreumenn segjast hafa sprengt kjarnorkusprengju í tilraunaskyni á mánudaginn. Heimildarmaður í bandaríska stjórnkerfinu hefur staðfest þetta bæði við Reuters-fréttastofuna og CNN í kvöld.

Erlent
Fréttamynd

365 þúsund Írakar á vergangi

Mörg þúsund Írakar flýja nú heimaland sitt á degi hverjum. Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna segir þetta stöðuga og lágværa brottflutninga. Þeim Írökum sem leita hælis á Vesturlöndum fjölgi dag frá degi. Auk alls þessa séu 365 þúsund Írakar á vergangi og þeir verði aðeins fleiri eftir því sem á líði.

Erlent
Fréttamynd

Skilgreininga þörf í ljósi þjónustusamnings

Stjórn Framleiðendafélagsins SÍK fagnar nýjum þjónustusamningi Ríkisútvarpsins og Menntamálaráðuneytisins þar sem kveðið er á um verulega aukinn hlut íslensks dagskrárefnis í Sjónvarpinu á næstu 5 árum. Telur stjórn félagsins að skilgreina þurfi ýmis atriði í samningnum til að eyða öllum vafa um hvert stefni í reynd með honum.

Innlent
Fréttamynd

Nýr megrunardrykkur reynist umdeildur

Sérfræðingar í heilbrigðisgeiranum gera lítið úr fullyrðingum Coca-Cola og Nestle um að nýr drykkur frá þeim hjálpi fólki við að létta sig drekkið það þrjár 30 millilítra dósir á dag.

Erlent
Fréttamynd

Sýknaður af ákæru um að rjúfa friðhelgi einkalífs Díönu og Dodis

Franskur dómstóll hefur sýknað breskan ljósmyndara af ákæru um að hafa skert friðhelgi einkalífs Díönu prinsessu af Wales og Dodi Fayeds. Jason Fraser tók myndir af parinu þar sem þau kysstust á snekkju við ítölsku Rívíeruna í ágúst árið 1997, nokkrum dögum áður en þau týndu lífi í bílslysi í París. Það var faðir Dodis, auðjöfurinn Mohamed Al Fayed, sem kærði Fraser. Dómsorð í málinu hefur enn ekki verið birt opinberlega.

Erlent
Fréttamynd

Meðferð á föngunum í Guantanamo rannsökuð

Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur fyrirskipað rannsókn á meintri illri meðferð á föngum í Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu eftir að fréttir bárust af því að fangaverðir stærðu sig af því að hafa barið og misþyrmt föngum þar.

Erlent
Fréttamynd

Kortavelta dróst saman í september

Kortavelta í september nam 56,2 milljörðum króna sem er um 3,3% minna en mánuðinn á undan. Í Hálf-fimm fréttum KB-banka segir að samdráttinn megi einkum rekja til minnkandi veltu í debetkortum en heildarvelta debetkorta hafi numið rúmum 30 milljörðum króna í september og hafi dregist saman um 9% milli mánaða. Heildarvelta kreditkorta hafi numið rúmum 20 milljörðum króna í september sem sé um 7% hækkun frá ágústmánuði.

Innlent
Fréttamynd

Vilja aftur að samningaborðinu

Norður-kóreumenn eru tilbúnir til að snúa aftur að samningaborðinu og ræða næstu skref í kjarnorkudeilu sinni við vesturveldin. Alexander Alexeyev, vara-utanríkisráðherra Rússlands, sagði þetta í viðtali við Itar-Tass fréttastofuna síðdegis í dag. Ekki kemur fram í fréttinni að stjórnvöld í Pyongyang setji nokkur skilyrði fyrir því að hefja viðræður á ný eftir tæplega eins árs hlé.

Erlent
Fréttamynd

Ungt fólk getur auðveldlega nálgast fíkniefni

Mjög auðvelt er fyrir ungt fólk að nálgast fíkniefni. Unglingur á vegum fréttaskýringarþáttarins Kompáss gat á skömmum tíma komist yfir þó nokkurt magn fíkniefna, sem ritstjóri þáttarins skilaði svo til lögreglu í dag. Lögreglan tók við efnunum og boðaði ritstjórann í yfirheyrslu vegna málsins.

Innlent
Fréttamynd

Ban Ki-Moon næsti framkvæmdastjóri SÞ

Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna skipaði í kvöld Ban Ki-Moon, utanríkisráðherra Suður-Kóreu, í embætti framkvæmdastjóra samtakanna. Hann tekur við af Kofi Annan um næstu áramót.

Erlent
Fréttamynd

Úrskurður um gæsluvarðhald felldur úr gildi

Hæstiréttur felldi í dag úr gildi úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að maður skuli sæta gæsluvarðhaldi til 21. nóvember næstkomandi vegna rannsóknar á stórfelldu fíkniefnasmygli. Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 15. ágúst. Fram kemur í úrskurði Héraðsdóms að maðurinn er grunaður um að hafa aðstoðað tvo aðra menn sem teknir á Keflavíkurflugvelli við komuna til landsins 9. ágúst sl. með töluvert af fíkniefnum meðferðis. Maðurinn er grunaður um að hafa skipulagt, haft milligöngu um og fjármagnað ferð mannanna tveggja sem teknir voru með fíkniefnin.

Innlent
Fréttamynd

Skattbyrði jókst hvergi meira en á Íslandi

Aukin skattbyrði á síðasta ári nemur svipaðri upphæð og heildarútgjöld ríkisins til menntamála á þessu ári. Stefán Ólafsson, prófessor, segir að skattbyrðin á Íslandi hafi aukist þrisvar sinnum meira en í Bandaríkjunum, sem glími við kostnað af tveimur styrjöldum. Fjármálaráðherra segir auknar tekjur ríkissjóðs hafa skilað sér í aukinni velferðarþjónustu.

Innlent
Fréttamynd

Verða af flýttum starfslokum

Starfsmenn álversins í Straumsvík, sem sagt er upp störfum á seinni árum starfsævinnar, missa af flýttum starfslokum sem starfsmönnum með langan starfsaldur hjá fyrirtækinu bjóðast samkvæmt kjarasamningi.

Innlent
Fréttamynd

Hefði getað breytt sögunni

Leiðtogafundurinn í Höfða var enn dramatískari en áður var talið. Þetta sýna skjöl sem nýverið voru gerð opinber þar sem samtöl Gorbatsjovs og Reagans eru birt orðrétt. Aðeins vantaði herslumuninn til þess að fundurinn hefði breytt heiminum varanlega og gert hann að betri og öruggari stað, að mati bandarísks fræðimanns sem lesið hefur hvert einasta orð sem leiðtogunum og ráðgjöfum þeirra fór á milli

Innlent
Fréttamynd

Bandaríkjamenn milda ályktun til öryggisráðsins

Bandaríkjamenn hafa sent öryggisráði Sameinuðu þjóðanna nýja og mildari ályktun um aðgerðir gegn Norður-Kóreumönnum, en andstaða var við fyrri tillögur frá Rússum og Kínverjum. Í nýju ályktuninni eru viðskiptahöft milduð og ekki gert ráð fyrir hernaðaraðgerðum.

Erlent
Fréttamynd

Enn eitt hneykslið hjá Repúblíkönum

Fyrsti bandaríski þingmaðurinn hefur nú játað á sig mútuþægni í máli Jack Abramoffs, fulltrúa þrýsihóps sem hefur verið sakfelldur fyrir að bera fé á þingmenn. Bob Ney er fulltrúadeildarþingmaður Repúblíkanaflokksins frá Ohio. Hann dró framboð sitt til þingkosninganna í næsta mánuði til baka í ágúst þegar ljóst var að bandaríska dómsmálaráðuneytið hafði hafið rannsókn á tengslum hans við Abramoff. Ney mun segja af sér þingmennsku á næstu dögum.

Erlent