Sækja peninga með samúræjabréfum 14. október 2006 00:01 Byggt við Kaupþing.
Kaupþing banki hefur gefið út svokölluð Samurai-skuldabréf í Japan fyrir samtals fimmtíu milljarða japanskra jena, sem svarar 29 milljörðum króna. Skuldabréfaútgáfan er sú fyrsta hjá Kaupþingi í Japan. ¿Skuldabréfin eru gefin út til þriggja ára og bera 1,8 prósenta fasta vexti eða sem nemur 75 punktum yfir þriggja ára föstum vöxtum í Japan,¿ segir í tilkynningu bankans. Fram kemur að umframeftirspurn hafi verið eftir bréfunum, en alls óskuðu fjárfestar eftir að kaupa skuldabréf fyrir rúmlega 75 milljarða jena. ¿Var því ákveðið að stækka skuldabréfaútgáfuna úr tuttugu milljörðum jena, eins og gert var ráð fyrir í upphafi, í fimmtíu milljarða jena. Skuldabréfin voru seld til fjölbreytts hóps japanskra fagfjárfesta, en 63 fjárfestar tóku þátt í útboðinu.¿ Guðni Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri fjárstýringar Kaupþings, segir að síðustu mánuði hafi mikil áhersla verið lögð á að dreifa fjármögnun bankans og markvisst unnið að útgáfu skuldabréfa á nýjum mörkuðum. ¿Við byrjuðum undirbúning vegna þessarar útgáfu í upphafi ársins þannig að þetta hefur verið nokkuð langt ferli. Viðtökur japanskra fjárfesta nú eru því sérlega ánægjulegar og gera má ráð fyrir að skuldabréfaútgáfur í Japan verði framvegis reglulegur hluti af endurfjármögnun bankans,¿ segir Guðni. Umsjón með útgáfunni höfðu Daiwa Securities SMBC og Nomura Securities Co. Ltd. - óká
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Icelandair ræður þrjá nýja stjórnendur til starfa Viðskipti innlent Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Fleiri fréttir Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Sjá meira