Fréttir

Fréttamynd

Í fótspor Vesturfara

Hópur reiðmanna mun feta í fótspor íslenskra landnema í Kanada í sumar og ferðast um slóðir Vestur-Íslendinga á íslenskum hrossum. Það er ungur Kanadamaður sem skipuleggur ferðina en segja má að kveikjan að þessum leiðangri hafi verið snjóbrettaiðkun í kanadískum fjallshlíðum.

Innlent
Fréttamynd

Vill meiri þrýsting á Sýrlendinga

Sýrlendingar eru úr takt við önnur ríki í Mið-Austurlöndum, sagði George W. Bush Bandaríkjaforseti þegar hann lýsti því yfir að hann vildi vinna með öðrum ríkjum að því að þrýsta á Sýrlendinga um að hverfa með her sinn frá Líbanon.

Erlent
Fréttamynd

Bankarán IRA talið upplýst

Írskir lögreglumenn hafa handtekið sjö einstaklinga sem grunaðir eru um bankarán í Belfast og lagt hald á andvirði um 260 milljóna króna. Írska lýðveldishernum hefur verið kennt um bankaránið og það staðið í vegi fyrir friðarsamkomulagi á Norður-Írlandi.

Erlent
Fréttamynd

Fellur portúgalska ríkisstjórnin?

Portúgalska ríkisstjórnin mun falla í þingkosningunum um næstu helgi ef marka má skoðanakannanir þar í landi. Jafnaðarmannaflokkurinn sem er í stjórnarandstöðu hefur töluvert forskot á sósíaldemókrata, sem leiða ríkisstjórnina, og samkvæmt sumum könnunum myndu jafnaðarmenn ná hreinum meirihluta ef kosið yrði nú.

Erlent
Fréttamynd

Ekki forstjóri Icelandair

Bókmenntafræðingur og kvikmyndagerðarmaður hafa gaman af að vera ruglað saman við nafna sinn, hinn nýráðna forstjóra Icelandair. Sá er hins vegar Ólafsson en ekki Helgason eins og þeir. Skammdegisþreytu er kennt um ruglinginn. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Sprenging í Sómalíu fellir tvo

Tveir féllu í valinn og sex særðust í sprengingu sem varð í höfuðborg Sómalíu í morgun. Embættismenn frá grannríkinu Kenýa segja að flest bendi til þess að hryðjuverkamenn hafi staðið að sprengingunni.

Erlent
Fréttamynd

Þjálfunarbúðir hryðjuverkamanna

Írak er orðið að þjálfunarbúðum fyrir hryðjuverkamenn sem geta beitt reynslu sinni þaðan til árása annars staðar. Þetta kom fram í máli Porter Goss, yfirmanns bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) þegar hann svaraði bandarískum þingmönnum.

Erlent
Fréttamynd

Áfengisgjald lækkað um 30%

Gunnar Örlygsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, hefur lagt fram frumvarp um að áfengisgjald á léttvín og bjór verði lækkað um þrjátíu prósent sem myndi þýða mikla lækkun vegna þess hversu áfengisgjaldið vegur þungt í útsöluverði áfengis.

Innlent
Fréttamynd

Viðsnúningur á leigumarkaði

Spurn eftir leiguhúsnæði er mun minni en framboðið af því. Þessu valda bætt kjör á fasteignalánamarkaði þannig að fleiri geta keypt sér íbúð en áður. Leiga hefur lítið sem ekkert hækkað síðustu misseri.

Innlent
Fréttamynd

Ríkið kaupir Landsvirkjun

Ríkið mun kaupa hlut Reykjavíkurborgar og Akureyrarbæjar í Landsvirkjun en bæjarfélögin eiga helming í félaginu á móti ríkinu. Frá því var greint á blaðamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu fyrir stundu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Stöndum okkur verr en Írakar

Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, benti á það í umræðum um kosningarnar í Írak á Alþingi í fyrradag að hlutfall kvenna á íraska þinginu væri hærra en á Alþingi Íslendinga.

Innlent
Fréttamynd

Í einangrun á Hrafnistu

Íbúi á dvalarheimilinu Hrafnistu í Hafnarfirði er nú í einangrun, þar sem mosa - skýkingabaktería hefur ræktast í honum. Þetta er annað tilfellið á fáeinum dögum sem bakterían finnst hér á landi. Hún getur valdið alvarlegum sýkingum ef hún nær sér á strik. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Svíi biður umhjálp

Sænskur ríkisborgari, sem haldið er í gíslingu í Írak, bað Karl Gústaf Svíakonung og Jóhannes Pál II páfa um hjálp við að losna lifandi úr gíslingu sinni. Gíslatökumenn tóku hjálparbeiðni mannsins upp á myndband og sendu það til fjölmiðla.

Erlent
Fréttamynd

Krefjast brottreksturs forsetans

Foreldrar barna sem létu lífið þegar rússneskir hermenn réðust gegn gíslatökumönnum í skóla í Beslan krefjast þess að forseti Norður-Ossetíu verði rekinn. Þau skrifuðu Vladimír Pútín Rússlandsforseta bréf og báðu hann um að reka Alexander Dzasokhov úr embætti forseta Norður-Ossetíu.

Erlent
Fréttamynd

Ræða þarf stöðu trúarlegra skóla

Stefán Jón Hafstein, formaður menntaráðs Reykjavíkurborgar, hefur viðrað ugmyndir um hvernig breyta megi einkareknum skólum í borginni. Sagði hann meðal annars um Suðurhlíðarskóla, sem rekinn er af aðventistum, að hann væri rekinn á trúarlegum forsendum og ræða þyrfti stöðu borgarinnar gagnvart slíkum skólum. 

Innlent
Fréttamynd

Fischer fær ekki ríkisborgararétt

Á fundi allsherjarnefndar í gærmorgun var ákveðið að mæla ekki með því við Alþingi að bandaríska skákmanninum Bobby Fischer yrði veittur íslenskur ríkisborgararéttur að svo stöddu.

Innlent
Fréttamynd

20-50 þúsund fyrir yfirbókun

Farþegar sem komast ekki í flug vegna þess að flugvél hefur verið yfirbókuð einhvers staðar í Evrópusambandinu eiga nú rétt á 20-50 þúsund krónum í skaðabætur. Upphæðin er um það bil helmingi hærri en hingað til hefur tíðkast að farþegar fái greidda.

Innlent
Fréttamynd

Dýrt spaug ef flug tefst

Það getur verið þreytandi að bíða tímunum saman á flugvöllum eða jafnvel í flugvélum vegna tafa, en framvegis verður það líka dýrt spaug - fyrir flugfélögin. Nýjar Evrópureglur tóku í dag gildi sem gera ráð fyrir mun hærri greiðslum til farþega sem verða fyrir töfum.

Erlent
Fréttamynd

Ekki vitað um 30 kíló af plútóníum

Stjórnendur kjarnorkuendurvinnslustöðvarinnar í Sellafield í Bretlandi geta ekki gert grein fyrir því hvað varð af 30 kílóum af plútóníum sem koma ekki fram í tölum um birgðahald. Umhverfisráðherra hefur óskað upplýsinga frá breskum stjórnvöldum.

Erlent
Fréttamynd

Bið eftir stjórnarmyndun

Íraska kjörstjórnin kynnti í gær staðfest úrslit í þingkosningunum en talið er að nokkrar vikur líði áður en ný ríkisstjórn tekur við völdum. Ástæðan er sú að flokkarnir sem sæti eiga á þingi hafa enn ekki komið sér saman um hver verði næsti forsætisráðherra.

Erlent
Fréttamynd

Kjarnorkuvopnaeign helsta ógnin

Kjarnorkuvopnaeign Asíuríkja er meðal helstu ógna sem Bandaríkjamenn þurfa að fylgjast með að mati yfirmanns bandarísku leyniþjónustunnar, CIA. Hryðjuverk eru áfram ofarlega á lista yfir ógnir.

Erlent
Fréttamynd

Lokað á hjartadeild vegna bakteríu

Sýkingarbaktería sem fannst á hjartadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss í síðustu viku olli því að loka varð hluta deildarinnar. Enn er ein stofa lokuð. Þessi baktería er landlæg í erlendum sjúkrahúsum. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Hollendingar íhuga kjarnorku á ný

Hollendingar eru á ný farnir að velta því fyrir sér hvort þeir eigi að loka eina kjarnorkuverinu í landinu eða hvort starfrækja eigi það áfram.

Erlent
Fréttamynd

Norðmenn sniðgangi skoskt viskí

Norski þingmaðurinn Ivar Kristiansen skorar á norska neytendur að sniðganga skoskt viskí í vínbúðum í mótmælaskyni við aðför skoskra laxeldismanna að norsku laxeldi. Hann segir að Skotarnir beiti Evrópusambandinu fyrir sig til að vernda eigin hagsmuni á kostnað Norðmanna.

Erlent
Fréttamynd

Hafi persónuskilríki við álestur

Tillaga um að starfsmenn fyrirtækja, sem þurfa að senda menn til álesturs í híbýli eða aðrar fasteignir, hafi auðkennd persónuskilríki og skilji eftir nafnspjald hjá umráðamanni, er meðal þess sem fram kemur í greinargerð um einkarekna vakt- og öryggisþjónustu og lögregluna.

Innlent
Fréttamynd

Landsvirkjun verður hlutafélag

Ríkið kaupir Reykjavíkurborg og Akureyrarbæ út úr Landsvirkjun um næstu áramót með yfirtöku lífeyrisskuldbindinga, ef samningar nást um verð, samkvæmt viljayfirlýsingu sem undirrituð var í dag. Orkufyrirtæki ríkisins verða um leið sameinuð í einn orkurisa sem ætlunin er að breyta í hlutafélag eftir þrjú ár og bjóða nýjum fjárfestum að koma inn í. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Tveir harðir árekstar

Tveir harðir árekstrar urðu með skömmu millibili í gærkvöldi í umdæmi lögreglunnar á Selfossi.

Innlent
Fréttamynd

Yfirmaður allrar leyniþjónustu BNA

George Bush hefur skipað John Negroponte, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna í Írak, sem yfirmann allrar leyniþjónustu í Bandaríkjunum. Embættið er nýtt af nálinni og er stofnun þess liður í aðgerðum Bandaríkjastjórnar til að reyna að koma í veg fyrir að atburðirnir þann 11. september 2001 endurtaki sig.

Erlent
Fréttamynd

Víglína í átökum við Bandaríkin

Sýrland er vaxandi vandamál að mati utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Tilgangur bandalags Sýrlendinga og Írana er óljós en því er velt upp hvort það sé eins konar víglína í átökum við Bandaríkin.

Erlent