Fréttir
Múslimar í Danmörku Trúarleiðtogi múslima í Kaupmannahöfn sagði í ræðu á föstudaginn að hann fordæmdi hryðjuverkin í London. Hann kenndi jafnframt Bandaríkjamönnum um slíkar árásir, þar sem þeir træðu hugmyndafræði sinni uppá aðra menningarheima. Erlent 13.10.2005 19:29
Árásarmennirnir breskir? Leitin að þeim sem gerðu árásirnar í Lundúnum heldur áfram. Fyrrverandi lögreglustjóri Lundúnaborgar, John Stevens, skrifar grein í dagblað í dag þar sem hann lýsir þeirri skoðun sinni að yfirgnæfandi líkur séu á að árásarmennirnir séu breskir, en ekki útlendingar. Hann segir jafnframt að lögreglan hafi komið í veg fyrir átta árásir af sama tagi á undanförnum fimm árum. Þrjár hreyfingar íslamskra öfgamanna hafa gengist við tilræðunum í Lundúnum. Erlent 13.10.2005 19:29
Deilan gæti farið fyrir félagsdóm Verkalýðsfélag Akraness ætlar að fara með deilu sína við Fang ehf. fyrir félagsdóm ef ekki nást fram kjarabætur fyrir starfsmenn fyrirtækisins. Innlent 13.10.2005 19:29
Engin stórviðskipti í hálft ár Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, segir í viðtali við breska dagblaðið Sunday Times í gær að kaup á stórum breskum verslunarkeðjum verði látin bíða meðan nafn hans verði hreinsað. Hann muni þó áfram standa að minni kaupum sem ekki veki jafnmikla athygli og segist til að mynda vera að skoða tískuvöruverslunina Jane Norman um þessar mundir. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:29
Tvær milljónir flýðu heimili sín Hátt í tvær milljónir einstaklinga þurftu að yfirgefa heimili sín í strandbyggðum Flórída og Alabama þegar fellibylurinn Dennis gekk yfir og olli miklum skemmdum. Fellibylurinn fór yfir á sama stað og fellibylurinn Ivan olli miklum skemmdum fyrir innan við ári síðan. Skaðinn þá var svo mikill að enn er ekki búið að byggja upp allt sem eyddist þá. Erlent 13.10.2005 19:29
Fækkun í herliðum á næsta ári Bandaríkjamenn og Bretar ætla að fækka um helming í herliði sínu fyrir mitt næsta ár, samkvæmt leyniskýrslu breska varnarmálaráðuneytisins, sem lekið hefur verið í fjölmiðla. Erlent 13.10.2005 19:29
Mávar til vandræða Mávar virðast hafa hertekið Seltjörnina á Seltjarnaresi. Þar hefur vanalega verið að finna litríkt fuglalíf en þessa dagana er litadýrðin lítil og fátt annað en svartir og hvítir mávar sjást þar á sveimi. Innlent 13.10.2005 19:29
Óvissa um uppruna tilræðismanna Þrír menn voru handteknir á Heathrow flugvelli í gær á grundvelli heimilda laga um hryðjuverkastarfsemi. Yfirvöld neituðu því þó að handtakan stæði í tengslum við hryðjuverkaárásirnar á fimmtudag. "Þessar handtökur eru ekki á grundvelli upplýsinga um sprengingarnar í Lundúnum," sagði Brian Paddick hjá lögreglunni. Erlent 13.10.2005 19:29
Fjölamorðanna í Srebrenica minnst Þúsundir múslíma í Bosníu röktu í dag slóð þeirra átta þúsund karla og drengja sem voru drepnir í bænum Srebrenica. Tíu árum eftir voðaverkin er biturð og reiði enn áberandi í Bosníu og íbúar þar segjast óttast að átök geti brotist út hvenær sem er. Erlent 13.10.2005 19:29
Styrjaldarloka minnst í Lundúnum Tugþúsundir manna tóku þátt í hátíðahöldum í Lundúnum í dag þar sem fórna þjóðarinnar í seinni heimsstyrjöldinni var minnst. Elísabet Englandsdrottning og Tony Blair forsætisráðherra mættu til messu í Westminster Abbey í dag, ásamt hundruðum uppgjafa hermanna. Gríðarlegur mannfjöldi safnaðist saman við kirkjuna Erlent 13.10.2005 19:29
Telja öll líkin fundin Lundúnalögreglan telur að tekist hafi að finna öll líkin sem grafin voru undir braki á stöðunum fjórum í London þar sem hryðjuverkin voru gerð á fimmtudag. Talið er að endanleg tala látinna verði 49 eða litlu fleiri. Erlent 13.10.2005 19:29
Erlendum ferðamanni bjargað Björgunarsveitir fundu erlendan ferðamann á Langjökli í gærkvöld en hann treysti sér ekki til að ganga lengra vegna eymsla í baki og hafði sett neyðarsendi í gang. Þyrla Landhelgisgæslunnar nam sendinguna og fór á staðinn til að reyna að miða út staðsetningu. Innlent 13.10.2005 19:29
Tugir farast í sprengjuárásum Að minnsta kosti fjörutíu manns létust í fimm sjálfsmorðsárásum í Írak í gær. Mannskæðasta árásin átti sér stað þegar maður sprengdi sig í loft upp fyrir utan skráningarstöð hersins við flugvöllinn Muthana í Bagdad. Þar létust 25 og 47 eru særðir.</font /> Erlent 13.10.2005 19:29
Fellibylurinn Dennis í hámarki Nærri einni og hálfri milljón hefur verið skipað að yfirgefa heimili sín við Mexíkó-flóa í Bandaríkjunum, en hann hefur dýpkað mjög og er óttast að hann geti valdið gríðarlegri eyðileggingu. Erlent 13.10.2005 19:29
London í dag Hryðjuverk og viðvaranir komu ekki í veg fyrir að um tvöhundruð þúsund Lundúnabúar þyrptust út á götur borgarinnar til að minnast endaloka seinni heimsstyrjaldarinnar. Á sama tíma bárust fregnir af handtöku meintra hryðjuverkamanna. Erlent 13.10.2005 19:29
Viðbúnaðarstig í London hækkað Leitin að þeim sem gerðu árásirnar í Lundúnum heldur áfram, en fyrrverandi lögreglustjóri Lundúna telur hryðjuverkamennina innlenda. Enn er reynt að bjarga líkum úr lestargöngum við King's Cross, við erfiðar aðstæður. Erlent 13.10.2005 19:29
Fólk er bæði skelkað og hissa Sendiráðspresturinn í Lundúnum segir að mestu samstöðuna sýni fólk með því að halda sínu striki. Erlent 13.10.2005 19:29
Hvert dauðsfall er harmleikur Eftir því sem meira kemur í ljós um illvirkin sem unnin voru í Lundúnaborg á fimmtudagskvöldið á maður erfiðara með að skilja þau. Hvers vegna kýs nokkur maður að grípa til þess ráðs að skilja eftir tifandi tímasprengju í rútu eða lest fullri af saklausu fólki? Við þeirri spurningu er að líkindum ekki til neitt rökrétt svar. Erlent 13.10.2005 19:29
Óánægja með stjórnarhætti "Ég treysti mér einfaldlega ekki lengur til að starfa við núverandi stjórnarhætti hjá félaginu," segir Inga Jóna Þórðardóttir sem gaf skýringu á úrsögn sinni úr stjórn FL-group á hluthafafundi félagsins sem haldinn var á Nordica hótel í gær. Innlent 13.10.2005 19:29
Fjórir fengu að kenna á hornunum Naut stungu fjóra hlaupara með hornum sínum í nautahlaupinu í Pamplona í gær. Fjöldi annarra hlaupara slasaðist lítillega í hlaupinu sem dregið hefur að sér mikinn mannfjölda líkt og undanfarin ár. Erlent 13.10.2005 19:29
Tvenn samtök ábyrgð á hendur sér Abu Hafs al Masri hersveitin, sem segist tengjast al-Kaída, hefur lýst ábyrgð á hendur sér á hryðjuverkunum í Lundúnum. Sannleiksgildið hefur þó ekki fengist staðfest og leggja sérfræðingar í hryðjuverkamálum lítinn trúnað á tilkynninguna þar sem hópurinn hefur áður eignað sér verk sem hann hefur ekki staðið fyrir. Erlent 13.10.2005 19:29
Miðborg Birmingham rýmd Lögreglan í Birmingham hefur fyrirskipað fólki að yfirgefa skemmtanahverfið í miðborg borgarinnar. Um 30 þúsund manns þurftu því að hverfa á brott. Þetta er gert eftir að lögreglu bárust vísbendingar um að hætta væri á hryðjuverkaárásum. Lögregla umkringdi miðborgina og lokaði öllum leiðum inn í hana. Erlent 13.10.2005 19:29
Stígamót gera athugasemd við dóm Magnús Einarsson var dæmdur í níu ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í gær fyrir að bana 25 ára gamalli eiginkonu sinni og barnsmóður, Sæunni Pálsdóttur. Magnús játaði að hafa kyrkt Sæunni með þvottasnúru. Við málsmeðferð kom fram að erfiðleikar voru í hjónabandi þeirra. Í niðurstöðu dómsins segir að ekki verði vísað á bug frásögn Magnúsar um að Sæunn hafi skýrt honum frá kynferðislegum samskiptum sínum við aðra menn, og lýst þeim í smáatriðum. Innlent 13.10.2005 19:29
Björgunaraðgerðir í London Björgunarmenn reyna nú sitt ítrasta til að bjarga líkum þeirra sem fórust í hryðjuverkaárásunum á London, en fjöldi þeirra liggur í löskuðum lestargöngum langt undir yfirborði jarðar. Staðfest hefur verið að fjörutíu og níu voru myrtir í árásinni en vitað er að rauntalan er hærri þar sem líkin í göngunum eru ekki talin með. Erlent 13.10.2005 19:29
Ráðast verður að rótum hryðjuverka Ráðast verður að félagslegum orsökum hryðjuverka ef takast á að vinna bug á þeim sagði Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands. Orsakirnar sagði hann vera fátækt, skort á lýðræði og áframhaldandi átök í Mið-Austurlöndum. Erlent 13.10.2005 19:29
Ágreiningur um vandræðagang Fylgi Sjálfstæðisflokksins og R-listans í Reykjavík er nánast hnífjafnt. Um er að kenna vandræðagangi innan R-listans að sögn forseta borgarstjórnar, en við það vill formaður Borgarráðs þó ekki kannast. Í nýrri Gallup könnun sem gerð var fyrir borgarstjórnarflokk sjálfstæðismanna kemur fram að Sjálfstæðisflokkurinn næði meirihluta í borgarstjórn ef nú yrði gengið til kosninga. Innlent 13.10.2005 19:29
Tugir drukkna í Kaspíahafi Rúmlega 32 einstaklingar drukknuðu í Kaspíahafi þegar þeir voru á sundi undan norðurströnd Írans. Lík 32 einstaklinga fundust á sjö stöðum á ströndinni við Kaspíahaf á föstudag að sögn þeirra sem skipulögðu hjálparstarf. Erlent 13.10.2005 19:29
Sjálfstæðisflokkkur með meirihluta Sjálfstæðisflokkurinn næði meirihluta í borgarstjórn ef nú yrði gengið til kosninga samkvæmt nýrri Gallup könnun. Niðurstöður hennar gefa til kynna að Sjálfstæðisflokkurinn fengi 50,2 prósent atkvæða, R-listinn 49 prósent og Frjálslyndi flokkurinn 0,8 prósent ef kosið yrði til borgarstjórnar í dag. Innlent 13.10.2005 19:29
Leitað á Langjökli Björgunarsveitir úr Árnessýslu og frá Borgarfirði voru sendar út í gær til að leita þýsks ferðamanns sem fór fótgangandi á Langjökul. Neyðarskeyti barst frá manninum skömmu eftir hádegi í gær og var þyrla Landhelgisgæslunnar send af stað en mjög þungbúið var á jöklinum og því ógjörningur að lenda þar. Voru þá björgunarsveitirnar sendar út. Innlent 13.10.2005 19:29
Stjórnarformaður FL fær ádrepu Inga Jóna Þórðardóttir, fyrrverandi stjórnarmaður í FL Group, sakaði Hannes Smárason stjórnarformann um að virða hvorki starfsreglur né samþykktir félagsins á hluthafafundi í dag. Þrír stjórnarmenn sögðu af sér í lok júní og þrír aðrir seldu allan hlut sinn í félaginu og hurfu á braut. Innlent 13.10.2005 19:29