Fréttir
Öryggiseftirlit hert Starfsfólk hefur miklar áhyggjur, ekki einungis þeir sem lentu í ránunum heldur líka hinir," segir Hjalti Sölvason, rekstrarstjóri Lyfja og heilsu. Ákveðið hefur verið að grípa til róttækra öryggisaðgerða í fyrirtækinu eftir tvö vopnuð rán í lyfjabúðir fyrirtækisins fyrr í vikunni. Innlent 13.10.2005 19:31
Londonárás: 4 handteknir í viðbót Fjórir menn sem grunaðir eru um aðild að hryðjuverkunum í London í síðustu viku voru handteknir í Pakistan í dag. Mennirnir voru handsamaðir í borginni Faisalabad í miðhluta landsins. Erlent 13.10.2005 19:31
Talið að 136 hafi farist Mörg hundruð þorpsbúa komu saman í morgun á vettvangi lestarslyssins sem varð í Pakistan á miðvikudag til að vera við jarðsetningu þeirra sem ekki hafa verið borin kennsl á en alls eru það 64. Talið er að 136 hafi farist í árekstri þriggja hraðlesta en ekki er var hryðjuverkum um að kenna að þessu sinni heldur var um mannleg mistök að ræða. Erlent 13.10.2005 19:31
Þúsundir minntust fórnarlambanna Þúsundir manna komu saman við Trafalgar-torg í London í gærkvöld til að minnast þeirra sem létu lífið í sprengingunum í London í síðustu viku en tala látinna er nú komin í fimmtíu og fjóra. Lögreglan segir að enn megi búast við að tala látinna muni hækka. Erlent 13.10.2005 19:31
Ráðist inn í landbúnaðarráðuneytið Ólga fer vaxandi á Filippseyjum vegna ásakana um kosningasvindl Gloriu Arroyo, forseta landsins, á dögunum. Erlent 13.10.2005 19:31
Töluvert magn fannst við húsleit Töluvert magn af amfetamíni og e-töflum fanst við húsleit fíkniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavík í miðbænum síðastliðinn mánudag. Í framhaldinu var erlend kona handtekin og úrskurðuð í gæsluvarðhald til 19. júlí. Á miðvikudag var síðan annar útlendingur handtekinn í tengslum við málið. Innlent 13.10.2005 19:31
Sprenging í Madríd Sprengja sprakk í Madríd, höfuðborg Spánar, í morgun. Ekki virðist sem nokkur hafi særst í sprengingunni, sem var ekki mikil, en rúður brotnuðu þó í nærliggjandi húsum. Málið er í rannsókn. Erlent 13.10.2005 19:31
Hans Markús hjá ráðherra Séra Hans Markús Hafsteinsson, sóknarprestur í Garðabæ, fundaði í gær með Birni Bjarnasyni, dóms- og kirkjumálaráðherra, vegna þeirra stöðu sem uppi hefur verið í sókn hans. Innlent 13.10.2005 19:31
Tilkynnt um skothríð við Grindavík Lögreglunni í Keflavík var í gærkvöldi gert viðvart um skothríð í grennd við Grindavík og voru lögreglumenn þegar sendir á vettvang. Þar var hópur ungra manna að skjótast á með sjö litboltabyssum og var lagt hald á þær allar. Innlent 13.10.2005 19:31
Mótmæltu við hús Leoncie Hópur ungmenna stóð fyrir mótmælum fyrir utan hús söngkonunnar Leoncie og eiginmanns hennar í Sandgerði í gærkvöldi og hrópuðu til söngkonunnar. Innlent 13.10.2005 19:31
Vopnahléið kvatt Vopnahléi er lokið milli herskárra Palestínumanna og Ísraela að því er virðist. Yfirmaður palestínsku öryggissveitanna sagði í morgun að sveitirnar muni ekki hika við að koma á lögum og reglu á sjálfstjórnarsvæðunum og að flugskeytaárásir herskárra samtaka Palestínumanna verði stöðvaðar. Erlent 13.10.2005 19:31
Útreikningar FÍB rangir Fjármálaráðuneytið segir það rangt sem fram kemur í máli Stefáns Ásgrímssonar, ritstjóra blaðs Félags íslenskra bifreiðaeigenda, í Fréttablaðinu í gær að íslenska ríkið taki til sín um áttatíu krónur af hverjum seldum lítra af bensíni. Innlent 13.10.2005 19:31
Hákarlar enn á ferð Hákarl beit 14 ára gamla stúlku í fótinn undan ströndum Texas í gær. Stúlkan fékk svöðusár á fótinn og gekkst undir aðgerð í gærkvöld. Hákarlaárásir hafa verið tíðar að undanförnu við Mexíkóflóa, þannig varð hákarl annarri 14 ára stúlku að bana undan ströndum Flórída í lok júní en þá viku var að minnsta kosti tilkynnt um þrjár hákarlaárásir. Erlent 13.10.2005 19:31
Sæll og glaður en þreyttur Fjórtán hundruð kílómetra hjólreiðaferð Eggerts Skúlasonar til styrktar samtökunum Hjartaheill lauk síðdegis í gær þegar Eggert hjólaði síðasta spölinn til Reykjavíkur ásamt öðrum sem slógust í hópinn í Mosfellsbæ. Innlent 13.10.2005 19:31
Vinnueftirlitið fríar sig ábyrgð Vinnueftirlit ríkisins segist ekki geta staðið yfir tívolíinu við Smáralind alla daga til að framfylgja því að öryggisreglum sé fylgt. Börn eru þar á ábyrgð foreldra sinna. Innlent 13.10.2005 19:31
Ótti um fuglaflensudauðsföll Grunur leikur á að þrír Indónesar hafi látist úr fuglaflensu. Sé það rétt eru það fyrstu dauðsföllin af völdum veikinnar í landinu. Erlent 13.10.2005 19:31
Vændishringur á Íslandi Vændishringur er starfræktur á Íslandi. Listi með nöfnum íslenskra vændiskvenna gengur kaupum og sölum á Netinu fyrir sex þúsund krónur. Sextán ára gömul stúlka var ginnt til að lána bankareikning sinn til að fela slóð mannsins sem stendur að listanum. Innlent 13.10.2005 19:31
Handtekinn vegna hryðjuverkanna Maður sem eftirlýstur var vegna hryðjuverkanna í London í síðustu viku hefur verið handtekinn í Egyptalandi. Innanríkisráðuneyti Egyptalands staðfesti þetta nú síðdegis. Maðurinn, Magdy Elnasher að nafni, er þrjátíu og þriggja ára gamall og með egypskt ríkisfang en hefur stundað nám í efnafræði bæði í Bretelandi og Bandaríkjunum. Erlent 13.10.2005 19:31
Fæðingar í heimahúsum Fæðingar í heimahúsum voru fjörtíu og fimm á síðasta ári, fjórum fæðingum fleiri en árinu áður. Kostnaður Tryggingastofnunar vegna heimafæðinga á síðasta ári nam rúmlega 57 þúsund krónum að meðaltali á hverja fæðingu eða rúmum tveimur og hálfri milljón króna. Innlent 13.10.2005 19:30
Styttra milli ferða á háannatímum Leiðakerfi strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu hefur verið gjörbylt og verður nýja kerfið tekið í notkun laugardaginn 23. júlí. Það miðar að því að koma farþegum á milli hverfa á sem stystum tíma og verða farnar ferðir á tíu mínútna fresti á háannatímum á sex stofnleiðum sem aka með fáum stoppum á milli helstu íbúðar- og atvinnuhverfa. Innlent 13.10.2005 19:31
Forstjóri WorldCom dæmdur Bernard Ebbert, fyrrum forstjóri WorldCom, var í gær dæmdur í 25 ára fangelsi fyrir svæsin fjársvik og samsæri,sem leiddi fyrirtækið í stærsta gjaldþrot í sögu Bandaríkjanna. Hluthafar í WorldCom töpuðu um 12 þúsund milljörðum íslenskra króna og 20 þúsund starfsmenn fyrirtækisins misstu vinnuna. Erlent 13.10.2005 19:30
Risabor snúið við Grípa varð til þess neyðarúrræðis við gangagerð á Kárahnjúkum að snúa einum risaboranna við, þegar hann átti aðeins eftir um kílómetra að Hálslóni. Borinn lenti á óþéttu bergi og vatn tók að streyma inn. Innlent 13.10.2005 19:31
Mannanafnanefnd leyfir og hafnar Mannanafnanefnd hefur leyft nöfnin Þoka, Ljósálfur, Klementína og Betsý, en samkvæmt úrskurði nefndarinnar frá 27. júní má einungis nota nafnið Betsý sem eiginnafn en ekki millinafn. Nöfnunum Annalísa, í einu orði, Maí, Eleonora, Jónorri í einu orði, og Franziska var hafnað. Innlent 13.10.2005 19:30
Bjór með Níkótíni Þýski bjórframleiðandinn Nautilus hefur hafið framleiðslu á bjór með níkótíni sem á að geta komið í stað níkótínsplásturs eða -tyggjós. Bjórinn er 6,3 prósent að styrkleika og ein 25 cl flaska inniheldur einn þriðja af níkótínmagni heils sígarettupakka. Erlent 13.10.2005 19:31
Öryrkjar ósáttir Samkvæmt samþykktum Lífeyrissjóðanna mega samanlagðar bætur frá Tryggingastofnun og Lífeyrissjóði ekki vera hærri en nemur mánaðarlaunum fólks, fyrir örorku. Eins og kom fram í fréttum okkar í gær hefur vegna þessa verið kallað eftir allt að tuttugu til þrjátíu ára gömlum gögnum. Innlent 13.10.2005 19:31
Tekinn af lífi án dóms og laga Ísraelskir hermenn réðust í gær inn á heimili breskrar blaðakonu í bænum Nablus á Vesturbakkanum og skutu þar til bana, Mohammed Alassi, meintan palestínskan uppreisnarmann. Erlent 13.10.2005 19:31
Dæmd fyrir fíkniefnabrot Karl og kona á þrítugsaldri voru í héraðsdómi Reykjaness í dag dæmd í 18 mánaða og 6 mánaða fangelsi fyrir fíkniefnabrot. Karlmaðurinn skal sæta fangelsisvist í þrjá mánuði en fullnustu 15 mánaða verður látin niður falla haldi maðurinn skilorð. Konan var dæmd skilorðsbundið. Innlent 13.10.2005 19:30
Öryrkinn ósigrandi upp Esjuna Allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi. Þetta ætlar öryrkinn ósigrandi, eins og hann kallar sig, að sanna í Esjuferð sinni en hann stefnir á að vera kominn á toppinn á miðnætti í kvöld. Ungmennahreyfing Sjálfsbjargar stendur fyrir verkefninu með aðstoð góðra manna. Innlent 13.10.2005 19:31
Tívolíið slysagildra Er ferðatívolíið við Smáralind slysagildra eða er þar allt í góðu lagi? Opinberir eftirlitsaðilar leggja blessun sína yfir starfsemina en maður sem starfað hefur í svipuðum leikgarði og horfði upp á leiktæki bresta við Smáralindina í gær er lítt hrifinn. Sólveig Bergmann ræddi við hann í dag. Innlent 13.10.2005 19:31
Þögn í Evrópu Borgarstjóri Lundúna, Ken Livingstone, hefur beðið um tveggja mínútna þögn í dag til að minnast fórnarlambanna sem létust í hryðjuverkaárásnum í London fyrir viku. Þagnarstundin verður klukkan 11 að íslenskum tíma. Erlent 13.10.2005 19:30