Fréttir

Fréttamynd

Olíufélögin taka við díselolíu

Leyfilegt var að kaupa 5000 lítra af olíu á hverja kennitölu áður en verðbreytingin átti sér stað um síðustu mánaðarmót og virðast allnokkrir hafa nýtt sér það og hamstrað olíu.

Innlent
Fréttamynd

Ofurölvi undir stýri

Lögreglan í Keflavík stöðvaði ökumann þar í bæ í gærkvöldi þar sem ökulag hans þótti ekki yfirvegað. Ökumaðurinn reyndist það ekki heldur og við blóðrannsókn kom í ljós að svo mikið áfengismagn var í blóði hans að hann hefði allt eins átt að vera sofnaður áfengisdauða. Honum var komið heim í háttinn að lokinni skýrslutöku.

Innlent
Fréttamynd

Viðey aðeins fyrir Sjálfstæðismenn

Össur Skarphéðinsson segir að tillögur sjálfstæðismanna í borginni um byggð í eyjunum við Reykjavík eigi að vera fyrir elítuna og fyrir þá sjálfa. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson segir Össur endurspegla vanda R-listans.

Innlent
Fréttamynd

Nýr kynsjúkdómur greinist í Evrópu

Kynsjúkdómurinn LGV er farinn að skjóta upp kollinum í nágrannalöndum Íslendinga. Yfirlæknir hjá Sóttvarnalækni telur að Íslendingar þurfi að vera vel vakandi fyrir þessum sjúkdómi. Hann er af klamydíutegund sem er einn algengasti kynsjúkdómur hér á landi.

Innlent
Fréttamynd

Sjítar spá borgarastyrjöld

Írak er á barmi allsherjar borgarastyrjaldar að mati leiðtoga Sjíta í landinu. Sjítaklerkurinn og þingmaðurinn Sjeik- al Saghir sagði á írakska þinginu í gær að stríð gegn sjítum væri að brjótast út og með sama áframhaldi yrði erfitt að stöðva herská samtök Sjíta, sem brátt myndu svara fyrir sig og þá væri voðinn vís.

Erlent
Fréttamynd

Sjúkraliðar semja

Sjúkraliðar hafa samþykkt kjarasamning við fjármálaráðherra sem undirritaður var 30. júní síðastliðinn. Þegar búið var að telja upp úr kjörkössunum kom í ljós að mikill meirihluti félagsmanna hafði samþykkt samninginn.

Innlent
Fréttamynd

Edward Heath látinn

Edward Heath, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, lést í gær áttatíu og níu ára að aldri. Hann var Íslendingum vel kunnur enda forsætisráðherra þegar annað þorskastríðið stóð.

Erlent
Fréttamynd

Skemmtiferðakskip á Flateyri

Þrjátíu og átta þúsund tonna bandarískt lúxus-skemmtiferðaskip kom til Flateyrar í morgun með 800 farþega innanborðs, og er að öllum líkindum fyrsta skemmtiferðaskipið sem þangað kemur.

Innlent
Fréttamynd

Fellibylurinn Emily í Mexíkó

Fellibylurinn Emily gengur nú sem stendur yfir Cancun í Mexíkó og hafast um þrjátíu þúsund ferðamenn við í neyðarskýlum. Alls hafa um hundrað og þrjátíu þúsund ferðamenn þurft að færa sig um set í Mexíkó síðan um helgina vegna fellibylsins.

Erlent
Fréttamynd

Geymsla díselolíu vandmeðfarin

Dæmi eru um að menn geymi díselolíu í rotþróm. Brunamálastjóri segir auðvelt að vera vitur eftir á og að stjórnvöld hefðu í raun átt að geta séð fyrir að fólk myndi hamstra eldsneyti í kjölfar verðhækkunar á díselolíu.

Innlent
Fréttamynd

Nýr skólastjóri í Landakotsskóla

Stjórn Landakotsskóla réði í gær Fríðu Regínu Höskuldsdóttur skólastjóra í Landakotsskóla. "Ég tel að við höfum valið hæfasta umsækjandann með tilliti til menntunar, kennslureynslu og stjórnunarreynslu," segir Björg Thorarensen, formaður stjórnar skólans.

Innlent
Fréttamynd

Óafvitandi ekki með réttindi

Meirapróf þarf á flesta þeirra pallbíla sem fluttir eru inn frá Bandaríkjunum en eigendur þeirra gera sér ekki alltaf grein fyrir því. Því eru dæmi um að bílstjórar hafi ekki réttindi til að aka þessum bílum sínum. Ef þeir lenda í umferðaróhappi mega þeir búast við að fá ekki greitt út úr tryggingum hvort sem þeir eru í rétti eða órétti.

Innlent
Fréttamynd

Stefnir ekki að borgarstjórastól

Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans, segist ekki stefna að því að verða borgarstjóraefni R-listans og hefur hann enga ákvörðun tekið í þeim efnum.

Innlent
Fréttamynd

220 látnir í flóðum á Indlandi

Alls hafa 220 manns látist og um 150 þúsund heimili eyðilagst í flóðum í norðausturhluta Indlands frá því regntímabilið hófst í vor. Um fjörutíu og fimm þúsund manns hafa verið fluttir í björgunarbúðir og búa nú þúsundir manna í opinberum byggingum, aðallega í skólum og á lestarstöðvum.

Erlent
Fréttamynd

Suðurnes hætta vinnslu

Stærsta fiskvinnslufyrirtæki Reykjanesbæjar, Suðurnes, hefur ákveðið að hætta rekstri. Alls hafa á fimmta tug starfsmanna starfað hjá fyrirtækinu og missa þeir nú vinnuna. Forsvarsmenn fyrirtækisins segja óhagstætt gengi krónunnar hafa verið eina helstu ástæðuna fyrir því að fyrirtækið missti rekstrargrundvöllinn.

Innlent
Fréttamynd

Snæuglur á Ströndum

Tvær Snæuglur, hugsanlega par, hafa sést á Ströndum undanfarið. Snæuglur eru sjaldséðir fuglar hér við land en uglurnar geta náð um 20 ára aldri.

Innlent
Fréttamynd

Flugeldur banaði barni

Sautján ára danskur piltur hefur verið ákærður fyrir að verða barni að bana. Hann hefur viðurkennt að hafa skotið flugeldi lárétt um síðustu áramót. Flugeldurinn fór í brjóstið á tveggja ára barni sem lést samstundis. Pilturinn segist ekki hafa orðið var við að flugeldurinn hafi hitt nokkurn en er ákærður fyrir manndráp af gáleysi.

Erlent
Fréttamynd

Óvíða stífari löggjöf

Á undanförnum árum hefur mikið borið á uppátækjum auglýsenda til að vekja athygli á bjór eða léttvíni með slíkum hætti að mörgum þyki lög sem um þetta gilda vera fótum troðin. Nú síðast ögraði Nóatún túlkun margra á þessum lögum með því að veita hverjum gasgrillkaupanda bjór svo lengi sem hann var yfir lögaldri.</font />

Innlent
Fréttamynd

Kveiktu í fyrir slysni

Tveir fjórtán ára piltar kveiktu í bíl við Smáralind fyrir slysni. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var í gærkvöldi kallað út eftir að kveikt hafði verið í bíl við Smáralindina. Að sögn lögreglunnar í Kópavogi gekk vel að ráða að niðurlögum eldsins en bíllinn telst þó gjörónýtur.

Innlent
Fréttamynd

Heilsan betri en útlitið

Viktor Júsjenko, forseti Úkraínu, er við mjög góða heilsu segir læknir hans, Jean Saurat, við háskólasjúkrahúsið í Genf þar sem Júsjenko hefur leitað lækninga vegna díoxíneitrunar.

Innlent
Fréttamynd

Lagabreytingu þarf til

Hegningarlögunum þarf að breyta til þess að lögreglan geti rannsakað heimasíður þar sem tugir fólks selja líkama sinn gegn greiðslu. Samkvæmt lögunum virðist fólki heimilt að stunda vændi í frítíma sínum.

Innlent
Fréttamynd

Harry Potter í sjö milljónir

Nýjasta bókin um Harry Potter og ævintýri hans seldist í nærri sjö milljón eintökum fyrsta sólarhringinn eftir að hún kom út. Þetta þýðir að meira en tvö hundruð og fimmtíu þúsund eintök seldust á hverjum klukkutíma, en flestar bækur eru ekki gefnar út í svo mörgum eintökum. Þegar hefur verið ákveðið að auka upplag bókarinnar í 13,5 milljónir eintaka.

Erlent
Fréttamynd

Eystri-Rangá heldur forystunni

Allt stefnir í að Eystri-Rangá haldi forystu sinni sem mesta laxveiðiá landsins, eins og hún var í fyrra þegar hún var með þrjú þúsund laxa. 469 laxar voru komnir þar á land í gærkvöld, en meðalveiði undanfarinna daga hefur verið 60 laxar á dag.

Innlent
Fréttamynd

Stríðsherra dæmdur fyrir pyntingar

Breskur dómstóll hefur fundið afganskan stríðsherra sekan um pyntingar og gíslatöku sem áttu sér stað í útjaðri Kabúl, höfuðborgar Afganistans, á árunum upp úr 1990.

Erlent
Fréttamynd

Þúsundir manna flýja fellibyli

Fellibylurinn Emily skall á Yucatan-skaga í Mexíkó í fyrrinótt og skildi eftir sig slóð eyðileggingar. Ekki hafði þó frést í gær af neinum dauðsföllum eða alvarlegum meiðslum af völdum veðurofsans. Þúsundir heima- og ferðamanna leituðu skjóls í neyðarskýlum sem komið hafði verið upp í skólastofum og danssölum hótela.

Erlent
Fréttamynd

Tryggvi meðal umsækjenda

Tryggvi Gíslason, fyrrum skólameistari Menntaskólans á Akureyri, er samkvæmt öruggum heimildum Fréttablaðsins meðal þeirra sem þegar hafa skilað inn umsókn um stöðu útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins. Frestur til að skila inn umsókn rennur út á fimmtudag.

Innlent
Fréttamynd

Ásakanir um andvaraleysi MI5

Vangaveltur um hvort bresk yfirvöld hefðu sofið á verðinum færðust í aukana í gær, eftir að sagt var frá því í fjölmiðlum að innanríkisleyniþjónustan MI5 hefði tekið til athugunar að minnsta kosti einn mannanna fjögurra sem frömdu sprengjutilræðin í London þann 7. júlí.

Erlent
Fréttamynd

Enn friðarvon

Ísraelsk stjórnvöld munu ekki senda hersveitir inn á Gazaströnd ef Mahmoud Abbas tekst að koma í veg fyrir árásir vígamanna á Ísrael sagði Ehud Olmert, varaforsætisráðherra Ísraels. Hann segir Ísraela ekki vilja gera neitt sem geti orðið vatn á myllu herskárra Palestínumanna sem vilji binda enda á vopnahléið frá síðasta vetri.

Erlent
Fréttamynd

VG óánægðir með afskipti Össurar

Oddviti Vinstri Grænna í borgarstjórn er lítt hrifinn af afskiptum Össurar Skarphéðinssonar af málefnum R-listans. Össur segir að Samfylkingin eigi að bjóða fram R-lista, hvort sem er með þátttöku hinna flokkanna eða ekki.

Innlent
Fréttamynd

Erótísk nuddstofa til rannsóknar

Rannsókn á starfsemi erótískrar nuddstofu í Reykjavík er nú á lokastigi, en grunur leikur á að þar hafi verið boðið upp á vændi. Lögreglan leggur áherslu á að ná milliliðunum, það er, dólgunum sjálfum sem auglýsa konurnar og selja þær.

Innlent