

Víglínan
Þjóðmálaþáttur á vegum fréttastofu Stöðvar 2 þar sem fjallað er um það helsta sem er í umræðunni hverju sinni.

Ólga á opinberum vinnumarkaði og efnahagsmál í Víglínunni
Víglínan, þjóðmálaþáttur Stöðvar 2, hefst klukkan 17:40.

Gerir ekki athugasemd við að kannað verði hvort góð hugmynd sé að selja raforku til útlanda
Iðnaðarráðherra sér ekkert því til fyrirstöðu að það verði kannað hvort það sé góð hugmynd fyrir Íslendinga að selja raforku í gegnum sæstreng til annarra landa til þess að auka fjölbreytni og samkeppni í íslenskum raforkuiðnaði.

Vaxandi atvinnuleysi og raforkusala til útlanda í Víglínunni
Víglínan er í beinni útsendingu klukkan 17:40.

Deildu um höfrungahlaup á vinnumarkaði
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands, ræddu kjarabaráttu félagsmanna Eflingar sem starfa hjá Reykjavíkurborg í Víglínunni.

Sigríður segir skjóta skökku við að íslenski dómarinn endurmeti eigin dóm
Sigríður Á. Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra, gagnrýnir Mannréttindadómstólinn harðlega fyrir að hafa ekki skipt íslenska dómaranum við réttinn áður en málið var tekið upp við yfirrétt dómstólsins.

Mannréttindadómstóllinn og verkfallsaðgerðir Eflingar í Víglínunni
Í vikunni fór fram málflutningur í Landsréttarmálinu svokallaða fyrir yfirdeild Mannréttindadómstóls Evrópu.

Wuhan-veiran og áhrif eldsumbrota á alþjóðaflug í Víglínunni
Fréttir af jarðhræringum á Reykjanesi og Wuhan veirunni í Kína hafa gnæft yfir öðrum fréttum vikunnar sem leið.

Wuhan-veiran og öldrun þjóðarinnar í Víglínunni
Verður meðal annars rætt við Jón Magnús Kristjánsson, forstöðumann bráðaþjónustu Landspítalans, um það hvernig bráðamóttakan og íslenskt heilbrigðiskerfi er í stakk búið til að bregðast við tilfellum Wuhan-veirunnar ef til þess kæmi.

Enginn uppgjafartónn í Vestfirðingum
"Ég held að þessar byggðir hafi skilað svo miklu inn í samfélagið að þær eigi það skuldlaust að staðið verði vörð um öryggi þessara íbúa,“ segir Lilja Rafney Magnúsdóttir,

„Skulum ekki flýta okkur en vinnum hratt og örugglega“
Sigurður Ingi Jóhannsson var á meðal gesta í Víglínunni á Stöð 2 í dag. Ræddi hann þar á meðal ofanflóðasjóð og snjóflóðin á Flateyri og Suðureyri.

Vestfirðingar og samgöngu- og sveitastjórnarráðherra í Víglínunni
Náttúruhamfarir, óveður og alvarleg slys settu svip sinn á vikuna sem leið. Snjóflóðin sem féllu á Vestfjörðum höfðu töluverðar afleiðingar í för með sér og hafa vakið ýmsar spurningar.

Bjarni segir greinilega veikleika í kerfum sem ekki var vitað nóg um
"Það er alveg greinilegt að það hafa komið fram veikleikar í kerfum okkar sem við vorum ekki nægilega meðvituð um. Það er til að mynda mjög alvarlegt þegar við áttum okkur á því að grunnstofnanir eru ekki með neitt varaafl og vararafstöðvar á viðkvæmum svæðum hefðu þurft að vera til staðar,“ sagði Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra í Víglínunni í dag.

Ofsaveðrið hitamál í Víglínunni
Ofsaveðrið sem gekk yfir landið í vikunni og þær afleiðingar sem það hefur haft hefur vakið margar spurningar um innviði landsins og hvað þurfi að gera betur. Elín Margrét Böðvarsdóttir fréttamaður fær Bjarna Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í Víglínuna á Stöð 2 í dag.

Spyrja hvort verið sé að tryggja að Haraldur kjafti ekki frá
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og Helga Vala Helgadóttir formaður velferðarnefndar ræddu mál fráfarandi ríkislögreglustjóra í Víglínunni.

Óhamingja og spilling í Víglínunni
Heimir Már Pétursson fréttamaður fær Lilju Alfreðsdóttur, Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur og Helgu Völu Helgadóttur í Víglínuna á Stöð 2 í dag.

Verja 200 milljónum til að kanna möguleika á flugvelli í Hvassahrauni
Ríki og borg hafa samþykkt að verja 200 milljónum króna til að kanna möguleikann á nýjum innanlandsflugvelli í Hvassahrauni. Með því samkomulagi er ljóst að Reykjarvíkurflugvöllur mun áfram þjóna innanlandsflugi, ásamt fleiru, næstu árin.

Auknu fé verði veitt til ríkisstofnana vegna Samherjamálsins
Katrín Jakobsdóttir fór yfir brotthvarf Andrésar Inga Jónssonar úr þingflokki VG, Samherjamálið og frumvarp um vernd uppljóstrara í Víglínunni í dag.

Forsætisráðherra og samgönguráðherra í Víglínunni
Víglínan er í opinni dagskrá á Stöð 2 klukkan 17:40 og fer síðan á sjónvarpssvæði Vísis.

„Það er ákveðinn Trumpismi sem er að ganga“
Bæði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar þakka stefnufestu fyrir ágæta niðurstöðu í nýrri skoðanakönnun MMR. Þorgerður Katrín segir skoðanakönnuna sýna að "ákveðinn Trumpismi“ hafi náð hingað til lands.

Heimssýn kvenna og barna og tveir pólar í pólitík í Víglínunni
Úrlausnarefni mannkynsins út frá sjónarhóli kvenna og barna voru ofarlega á baugi í umræðunni í vikunni, á alþjóðlegu þingi leiðtogakvenna og á fyrsta barnaþinginu sem haldið hefur verið hér á landi.

„Bannstefnan hefur einfaldlega ekki virkað“
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra kallar eftir endurskoðun á íslenskri fíkniefnalöggjöf og segir að bannstefnan hafi ekki skilað tilætluðum árangri. Mikilvægt sé að líta á fíkniefnaneytendur í auknum mæli sem sjúklinga fremur en glæpamenn.

Að hundelta ópið og dómsmálaráðherra í Víglínunni
Víglínan er í opinni dagskrá á Stöð 2 og Vísi klukkan 17:40.

Staða borgarinnar og skerðingar til öryrkja í Víglínunni
Borgarmálin í brennidepli í Víglínunni í dag.

Segir mikilvægt að auka fréttalæsi til að draga úr áhrifum falsfrétta
Silja Dögg Gunnarsdóttir, nýkjörinn forseti Norðurlandaráðs, segir að Ísland muni með formennsku sinni í Norðurlandaráði á næsta ári leggja áherslu á að standa vörð um grunngildi Norðurlandanna sem sé víða ógnað í heiminum í dag.

Sendiherra Palestínu telur að það myndi einungis taka tíu mínútur að koma á friði
Sedin afhenti Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, trúnaðarbréf sitt síðasta þriðjudag. Heimir Már Pétursson ræddi við hana í þættinum Víglínunni á Stöð 2 í dag.

Formennska Íslands í Norðurlandaráði og málefni Palestínu í Víglínunni
Víglínan er í opinni dagskrá á Stöð 2 og Vísi klukkan 17:40

Íslandsbanki ætti að biðja fjölmiðla afsökunar
Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélagsins, ræddi nýja stefnu Íslandsbanka ásamt Ólínu Þorvarðardóttur Kjerúlf í Víglínunni í dag.

Jafnréttisstefna Íslandsbanka og fangelsun stjórnmálamanna í Víglínunni
Víglínan er í opinni dagskrá klukkan 17:40.

Í stríði við orðið hinsegin
Heimildaþættirnir Svona Fólk, þættir um mannréttinda baráttu samkynhneigðra á Íslandi hafa verið sýndir á Ríkisútvarpinu í haust. Leikstjóri þáttanna, Hrafnhildur Gunnarsdóttir, hefur unnið að gerð þáttanna frá árinu 1992. Hrafnhildur var ásamt Ásu Ninnu Pétursdóttur, blaðamanni á Vísi, gestur Heimis Más Péturssonar í seinni hluta þjóðmálaþáttarins Víglínunnar á Stöð 2 í dag.

Víglína kynlífs, peningaþvættis og hryðjuverka
Víglínan er í opinni dagskrá á Stöð 2 og Vísi klukkan 17:40.