Þór Akureyri

Þór Akureyri

Fréttir af Íþróttafélaginu Þór á Akureyri.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Mér leið svipað í 3-0 eins og í 0-0.“

„Mér fannst við bara flottir, við gáfum allt í þetta. Við erum að spila á móti liði sem að hefðu geta lent 7-0 undir en hefðu samt alltaf komið aftur á okkur og haft trú á því að þeir væru að fara að vinna leikinn,“ sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þórs eftir 3-3 jafntefli á móti KR á Akureyri í dag. 

Sport
Fréttamynd

Aðal­steinn eftir fyrsta sigurinn: „Vinnu­semi dugnaður og sam­vinna skilaði sigrinum“

„Ég er mjög ánægður með það að vinna fyrsta leikinn í dag en umfram allt er ég ánægður með frammistöðuna sem stelpurnar lögðu í leikinn. Vinnusemi, dugnaður samvinna og bara það skilaði sigrinum í dag og við erum virkilega ánægð með það að vinna loksins“, sagði Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, þjálfari Þór/KA, eftir fyrsta sigur liðsins í Bestu deild kvenna sem kom gegn Þrótti nú í kvöld og var augljóslega létt.

Fótbolti
Fréttamynd

Fyrsti sigur deildarinnar kominn í hús

Þór/KA sótti sinn fyrsta sigur í Bestu deild kvenna þegar Þróttur kom í heimsókn á VÍS völlinn á Akureyri í níundu umferð deildarinnar. Heimakonur skoruðu tvö góð mörk í fyrri hálfleik og sigldu öruggum 2-0 sigri heim og lyfta sér þar með úr botnsætinu og upp fyrir Fram í töflunni.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Smá þolin­mæði sem þarf“

„Ég er mjög ánægður, sérstaklega með að fá þrjú stig á útivelli og glaður með að skora fjögur mörk og búa nokkuð af marktækifærum til þess að skora jafnvel enn fleiri mörk, ánægður með það, sagði Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, eftir sterkan 4-1 útisigur gegn Þór á VÍS-vellinum á Akureyri í 10. umferð Bestu deildar karla í dag.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Býst við skömmum frá KSÍ

Menn á Akureyri eru ekki parsáttir við tveggja leikja leikbann Danans Christian Greko Jakobsen vegna brots hans í 3-1 tapi fyrir Stjörnunni á dögunum. Þorkell Máni Pétursson, stjórnarmaður KSÍ, tekur undir gagnrýni Þórsara.

Íslenski boltinn