Kosningar 2018

Kosningar 2018

Fréttir og greinar tengdar sveitarstjórnarkosningum í maí 2018.

Fréttamynd

Kosningar 2010: Ólafur F. leiðir H-listann

Ólafur F. Magnússon, læknir og fyrrverandi borgarstjóri, mun skipa fyrsta sæti H-listans fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík. Ólafur mun leggja fram lista skipaðan 30 frambjóðendum á fundi kjörstjórnar í dag en frestur til að skila inn framboðum rennur út á hádegi. Bryndís H. Torfadóttir, framkvæmdastjóri, skipar annað sæti listans og Katrín Corazon Surban það þriðja.

Innlent
Fréttamynd

Línurnar í borginni lítt teknar að skýrast

Fundargestir á opnum fundi með oddvitum allra framboða fyrir borgarstjórnarkosningarnar þann 29. maí næstkomandi héldu að þeir hefðu orðið vitni að tímamótum í borgarstjórnar­pólitíkinni í gær.

Innlent
Fréttamynd

Ekkert persónukjör í kosningunum í vor

Ekkert persónukjör er í boði í kosningum til sveitarstjórna í maí. Frumvarp um slíkt var lagt fram í haust en er inni í allsherjarnefnd. Meðal þeirra sem lögðust gegn afgreiðslu frumvarpsins var stjórn Vinstri grænna, sem vildi vísa málinu til stjórnlagaþings. Þá töldu sveitarfélögin of skamman tíma til stefnu fyrir vorið.

Innlent
Fréttamynd

Svarti listinn býður fram í Borgarbyggð

Nýtt framboð, Svarti listinn, býður fram í Borgarbyggð í sveitarstjórnarkosningunum sem fara fram 29. maí næstkomandi. Svarti listinn hyggur á umbætur á stjórnsýslu sveitarfélagsins. Ástandið sé slæmt og ekki sé hægt að kenna efnahagsgruni eingöngu um.

Innlent
Fréttamynd

Þingmaður í framboði fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor

Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, tekur þátt í sameiginlegu framboði allra stjórnmálaafla í Garðinum fyrir næstu sveitastjórnarkosningar. Oddný er fyrrverandi bæjarstjóri í Garðinum og sat áfram sem bæjarfulltrúi eftir að hún tók sæti á Alþingi. Oddný segist ekki telja að störf sín fyrir sveitastjórnina í Garði hafi áhrif á þingstörf sín.

Innlent
Fréttamynd

Flestir vilja Hönnu Birnu

Flestir vilja að Hanna Birna Kristjánsdóttir núverandi borgarstjóri og oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík, gegni borgarstjóraembættinu að loknum kosningum, samkvæmt könnun Fréttablaðsins og Stöðvar tvö.

Innlent
Fréttamynd

Tíu sveitarfélög til sérstakrar skoðunar vegna fjárhagsvanda

Tíu sveitarfélög á Íslandi hafa verið til sérstakrar skoðunar af hálfu eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga, samkvæmt upplýsingum frá Kristjáni Möller samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, spurði ráðherra út í málið á Alþingi. Samkvæmt svari ráðherra er um að ræða sveitarfélögin Kópavogsbæ, Hafnarfjarðarbæ, Sveitarfélagið Álftanes, Reykjanesbæ, Sandgerðisbæ, Borgarbyggð, Grundarfjarðarbæ, Bolungarvík, Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað.

Innlent
Fréttamynd

Jónína hætt í framsókn

Jónína Benediktsdóttir hefur sagt sig úr Framsóknarflokknum en hún skipaði 15. sæti listans í Reykjavík fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Á Facebook síðu sína skrifaði hún í dag: „Ég hef sagt mig úr Framsóknarflokknum. Treysti því ekki að spilltu öflin séu horfin úr flokknum. Ég verð því ekki á listanum.“

Innlent
Fréttamynd

Samstarf við VG fyrsti kostur

Valdimar Svavarsson, oddviti sjálfstæðismanna í Hafnarfirði, segir að Hafnfirðingar vilji gefa Samfylkingunni frí frá stjórn bæjarfélagsins. Meirihlutasamstarf með Vinstri grænum sé fyrsti kostur verði niðurstöður kosninganna í næsta mánuði í samræmi við skoðanakönnun sem Fréttablaðið birti í dag.

Innlent
Fréttamynd

Oddviti VG: Könnunin gefur okkur byr í seglin

„Þetta er náttúrulega ekki fast í hendi en þetta yrði mjög gleðileg niðurstaða og við kæmumst í lykilstöðu. Þessi könnun gefur okkur byr í seglin,“ segir Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, oddviti VG í Hafnarfirði, um skoðanakönnun sem birtist í Fréttablaðinu í dag.

Innlent
Fréttamynd

Samfylkingin bíður afhroð í Hafnarfirði

Samfylkingin missir meirihluta sinn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar í komandi sveitarstjórnarkosningum, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sem gerð var í gærkvöldi.

Innlent
Fréttamynd

Víkur af lista framsóknarmanna

Guðrún Valdimarsdóttir, sem skipaði annað sætið á lista framsóknarmanna fyrir komandi borgarstjórnarkosningar hefur ákveðið að verða við ósk oddvita flokksins og víkja af listanum.

Innlent
Fréttamynd

Peningamarkaðssjóðir þöndust út

Heildarverðmæti peningamarkaðssjóða stóru bankanna þriggja jókst um rúm 400 prósent á árunum 2004 til 2008. Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis kemur fram að einn starfsmaður hjá Fjármálaeftirlitinu hafði yfirlit með sjóðunum fram til 2007.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sigurjón Árnason með 35 milljónir í mánaðarlaun 2008

Sigurjón Árnason, bankastjóri Landsbankans, fékk ríflega launahækkun á milli áranna 2007 og 2008. Mánaðarlaun bankastjórans námu tæpum 19,8 milljónum króna árið 2007. Þau voru komin í rúmar 34,8 milljónir ári síðar. Bankastjórinn var þó langt í frá launahæsti starfsmaður bankans.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Landsbankinn handstýrði virði Iceland Group

Landsbankinn hækkaði verð á hlutabréfum bresku matvöruverslunarinnar Iceland Food Group um sextíu prósent á sama tíma og verð lækkaði á sambærilegum fyrirtækjum. Hækkunin jók bókfærðan hagnað bankans á fyrri helmingi 2008 um átta milljarða króna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

VG býður fram í 15 sveitarfélögum

Vinstrihreyfingin grænt framboð býður fram lista á mun fleiri stöðum í sveitarstjórnarkosningunum í vor en áður, eða í 15 sveitarfélögum. Forystumenn flokksins í sveitastjórnarmálum komu saman í Grindavík um helgina til að leggja línurnar fyrir átökin sem eru framundan.

Innlent
Fréttamynd

Vilhjálmur: Golfið kemur ekki í stað vinnu

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segist alls ekki vera þeirrar skoðunar að golfíþróttin geti komið í staðin fyrir atvinnu. Orð hans á borgarstjórnarfundi í dag um að stærri golfvöllur yrði mikilvægt tómstundasvæði fyrir atvinnulausa hafa vakið athygli, svo ekki sé dýpra í árina tekið.

Innlent
Fréttamynd

Upplýsingavefur um kosningar opnaður

Upplýsingavefur dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins um sveitarstjórnarkosningarnar 29. maí næstkomandi hefur verið opnaður. Á vefnum, sem hefur slóðina www.kosning.is, eins og við aðrar kosningar, er að finna fróðleik og hagnýtar upplýsingar er lúta að framkvæmd kosninganna.

Innlent
Fréttamynd

Besti flokkurinn hefur alla burði til að ná langt

Besti flokkurinn, flokkur Jóns Gnarr, virðist sópa til sín atkvæðum óánægðra kjósenda í borginni. Forstöðumaður Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands telur að flokkurinn hafa alla burði til að ná langt í komandi kosningum.

Innlent
Fréttamynd

Besti flokkurinn nær tveimur mönnum inn

Besti flokkurinn fengi 12,7 prósenta fylgi og tvo borgarfulltrúa yrði kosið til borgarstjórnar Reykjavíkur í dag samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins sem gerð var í gærkvöldi.

Innlent
Fréttamynd

Jónmundur segir flokkinn ekki ofurseldan atvinnulífinu

Framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins segir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki verið ofurseldur atvinnulífinu þrátt fyrir styrki upp á 285 milljónir króna. Hann segir að styrkir frá Landsbankanum og FL Group hafi ekki átt rétt á sér og móttaka slíkra styrkja sé ekki stefna sem verði rekin í flokknum undir hans stjórn.

Innlent