Valur og FH í úrslit Lengjubikarsins Valur og FH tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitaleiknum í Lengjubikarnum í knattspyrnu. Valsmenn lögðu Víking 1-0 í Egilshöllinni og Íslandsmeistarar FH lögðu HK 4-1á Stjörnuvelli. Úrslitaleikurinn fer fram á þriðjudagskvöldið. Íslenski boltinn 27. apríl 2007 21:21
Ein breyting á U-17 ára landsliðinu Ein breyting hefur verið gerð á íslenska landsliðshópnum sem leikur til úrslita í Evrópukeppni landsliða leikmanna 17 ára og yngri. KR-ingurinn Dofri Snorrason tekur sæti í liðinu fyrir Kristinn Steindórsson úr Breiðabliki sem er meiddur. Íslendingar mæta Englendingum í fyrsta leik 2. maí. Fótbolti 27. apríl 2007 21:15
Góður sigur Blika á KR Fimm leikir fóru fram í Lengjubikarnum í knattspyrnu í dag. Breiðablik lagði KR 3-0, Fylkir lagði Grindavík 1-0, ÍA vann ÍBV 2-0 og Valur burstaði KA 5-0. FH-ingar eru efstir í riðli 1 með 19 stig og Valur í öðru með 15. Blikar eru efstir í riðli 2 með 21 stig en KR í öðru með 18 stig. FH og Breiðablik eru einu taplausu liðin í keppninni og hafa Blikar unnið alla sjö leiki sína til þessa. Íslenski boltinn 19. apríl 2007 19:38
Mounir með Grindavík í Tyrklandi Sóknarmaðurinn Mounir Ahandour sem leikið hefur með knattspyrnuliði Grindavíkur síðustu tvö ár hitti Grindvíkinga í Tyrklandi á dögunum þar sem Milan Stefán Jankovic, þjálfari þeirra gulu, mun fylgjast með leikmanninum við æfingar og í æfingaleikjum með Grindavík. Íslenski boltinn 13. apríl 2007 14:22
Fyrsti leikur gegn Englendingum Í dag var dregið í riðla í úrslitakeppni EM hjá U-17 ára landsliða. Íslenska liðið er í riðli með Englendingum, Belgum og Hollendingum. Leikið verður í Belgíu dagana 2.-13. maí. Átta lið taka þátt í keppninni og fimm efstu liðin tryggja sér þáttökurétt á HM í Suður-Kóreu. Fyrsti leikur íslenska liðsins verður gegn Englendingum og verður sjónvarpsstöðin Eurosport með eitthvað af leikjum mótsins í beinni útsendingu. Fótbolti 4. apríl 2007 13:16
Kolbeinn skoraði fernu í sigri Íslands Framherjinn Kolbeinn Sigþórsson skoraði fjögur mörk fýrir íslenska U-17 ára landsliðið sem lagði það rússneska af velli, 6-5, í undanriðli fyrir Evrópukeppnina í þessum aldurslokki. Íslendingar tryggðu sér þar með efsta sætið í undanriðlinum, hlutu alls fimm stig í þremur leikjum og tryggðu sér þáttökurétt í lokakeppni EM. Fótbolti 24. mars 2007 16:58
Valur að fá danskan framherja Danski knattspyrnukappinn, Dennis Bo Mortensen á leið til Vals. Mortensen er 26 ára framherji og er samningsbundinn danska úrvalsdeildarliðinu Nordsjælland. Bo Mortensen hefur spilað með dönsku ungmennalandsliðunum, m.a. á móti Íslendingum. Arnar Björnsson greindi frá þessu í kvöldfréttum Stöðvar 2. Íslenski boltinn 16. mars 2007 19:17
Rúnar Kristinsson í KR? Rúnar Kristinsson, fyrrum landsliðsmaður í knattspyrnu og núverandi atvinnumaður hjá Lokeren í Belgíu, er við það að ganga í raðir KR og mun leika með liðinu í Landsbankadeildinni í sumar. Steingrímur Sævarr Ólafsson, ritstjóri Íslands í dag, heldur þessu fram á bloggsíðu sinni og segir ekki langt að bíða þar til tilkynnt verður opinberlega um komu Rúnars í Vesturbæinn. Fótbolti 12. mars 2007 17:02
FH og Breiðablik á toppnum Breiðablik er í fyrsta sæti sínum riðli Lengjubikarsins í knattspyrnu eftir sigur á Þrótti 4-1 í gær. Breiðablik hefur unnið alla 3 leiki sína og er með 9 stig. Fram og KR eru með 6 stig en liðin hafa sigrað í báðum sínum leikjum. Keflavík er einnig með 6 stig en eftir 3 leiki. Íslenski boltinn 12. mars 2007 09:33
Sjö breytingar á íslenska liðinu Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur gert sjö breytingar á byrjunarliði kvennalandsliðsins sem leikur við Íra í Algarve Cup æfingamótinu í Portúgal á morgun. Þar ber hæst að Anna Björg Björnsdóttir verður í byrjunarliðinu í sínum fyrsta landsleik. Íslenska liðið spilar leikaðferðina 4-4-2 og hefst leikurinn klukkan 18 að íslenskum tíma á morgun. Fótbolti 8. mars 2007 19:27
Tap fyrir Ítalíu Íslenska kvennalandsliðið tapaði í kvöld 2-1 fyrir því ítalska í fyrsta leik sínum í Algarve bikarnum sem fram fer í Portúgal. Ítalska liðið skoraði sigurmarkið í uppbótartíma, en áður hafði Margrét Lára Viðarsdóttir jafnað leikinn úr vítaspyrnu. Þetta var fyrsti leikur íslenska liðsins undir stjórn Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar. Fótbolti 7. mars 2007 19:59
FH, KR og HK á sigurbraut FH, KR og HK unnu öll leiki sína í Lengjubikarnum um helgina. FH vann 2-1 sigur á Val, KR vann Þrótt 2-0 og HK vann Grindavík 1-0. Íslenski boltinn 6. mars 2007 11:00
Sigurður valdi 20 stúlkur Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu, hefur valið 20 stúlkur til að taka þátt í Algarve-mótinu í knattspyrnu sem hefst í Portgúal þann 5. mars nk. Átta leikmenn Vals eru í hópi Sigurðar. Fótbolti 26. febrúar 2007 15:00
KR tapaði naumlega fyrir Rosenborg KR tapaði naumlega fyrir norsku meisturunum í Rosenborg, 1-0, á æfingamóti á La Manga í dag. Eftir því sem fram kemur á vef Nettavisen í Noregi áttu KR-ingar fínan leik og hefðu vel getað skorað mörk í leiknum. Það var Alexander Banor Tettey sem skoraði mark Rosenborg. Fótbolti 23. febrúar 2007 14:46
Sinisa Kekic í Víking Sinisa Valdimar Kekic skrifaði í dag undir eins árs samning við Víking. Kekic lék með Þrótti á síðustu leiktíð eftir að hann fór frá liði Grindavíkur, þar sem hann lenti upp á kant við þjálfara liðsins. Kekic er 37 ára gamall og hefur verið einn besti leikmaður í efstu deild hérlendis í rúman áratug. Íslenski boltinn 19. febrúar 2007 21:24
Góður sigur KR á Brann KR náði í dag að rétta sinn hlut á æfingamótinu í knattspyrnu sem fram fer á La Manga á Spáni. Eftir tap í fyrstu tveimur leikjunum á mótinu vann liðið stórsigur á norska liðinu Brann í dag 4-0. Íslenski boltinn 17. febrúar 2007 20:00
Nýr framkvæmdastjóri KSÍ Stjórn KSÍ samþykkti á fundi sínum í dag að veita Geir Þorsteinssyni, nýjum formanni sambandsins, heimild til að ráða Þóri Hákonarson í stöðu framkvæmdastjóra. Fótbolti 16. febrúar 2007 17:45
Lilleström burstaði KR Norska liðið Lilleström var ekki í vandræðum með KR á æfingamótinu í La Manga á Spáni og sigraði 5-0 eftir að hafa verið yfir 2-0 í hálfleik. Áður hafði KR tapað 1-0 fyrir Valerenga í fyrsta leik sínum á mótinu. Íslenski boltinn 14. febrúar 2007 14:46
Dregið í riðla á EM Í dag var dregið í riðla fyrir Evrópumót undir 21 árs landsliða karla í knattspyrnu en úrslitakeppnin verður í Svíþjóð eftir tvö ár. Ísland var í þriðja styrkleikaflokki og lenti í sjöunda riðli með Belgíu, Slóvakíu, Austurríki og Kýpur. Riðlarnir eru tíu og sigurvegarar hvers riðils komast áfram ásamt fjóru bestu þjóðunum í öðru sæti riðlanna. Fótbolti 13. febrúar 2007 18:00
Fram tefldi fram ólöglegum leikmanni Það verða Víkingur og Fylkir en ekki Valur og Fylkir sem leika til úrslita í Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu eftir að Fram tefldi fram ólöglegum leikmanni í leik sínum gegn Víkingi í lokaleik sínum í riðlakeppninni. Fram vann leikinn 2-1 en Hjálmar Þórarinsson var ekki orðinn löglegur og því vann Víkingur leikinn 3-0. Víkingur fór þar með upp fyrir Val í riðlinum og leikur til úrslita þann 1. mars. Íslenski boltinn 13. febrúar 2007 12:53
Geir boðar breytingar hjá KSÍ Geir Þorsteinsson, nýkjörinn formaður KSÍ, boðar breytingar hjá knattspyrnusambandinu nú þegar hann tekur við starfi Eggerts Magnússonar. “Vitanlega munum við sjá breytingar á komandi tímum. Ég er allt annar maður en Eggert Magnússon,” sagði Geir eftir að úrslitin lágu ljós fyrir. Ítarlegt viðtal við Geir, sem og aðra frambjóðendur, verður sýnt í kvöldfréttum Stöðvar 2 kl. 18:50. Fótbolti 10. febrúar 2007 17:09
Geir sigraði með miklum yfirburðum Geir Þorsteinsson var í dag kjörinn nýr formaður KSÍ. Geir hlaut yfirburðakosningu í kjörinu eða alls 86 atkvæði. Jafet Ólafsson hlaut 29 atkvæði en Halla Gunnarsdóttir hlaut 3 atkvæði. Geir tekur við starfi formanns af Eggerti Magnússyni, sem nú stígur af stóli eftir 18 ára langa setu. Fótbolti 10. febrúar 2007 14:12
Liðum fjölgar í efstu deild karla og kvenna 12 lið verða í Landsbankadeild karla og 10 lið verða í Landsbankadeild kvenna frá og með tímabilinu 2008, en breytingartillaga þess efnis var samþykkt á ársþingi KSÍ í dag. Þá var Eggert Magnússon kosinn heiðursforseti KSÍ. Fótbolti 10. febrúar 2007 13:58
Eggert: Þakklæti er mér efst í huga Eggert Magnússon, fráfarandi formaður KSÍ, fór um víðan völl í upphafsræðu sinni á ársþingi KSÍ sem sett var á Hótel Loftleiðum í morgun. Eggert sagði að sér væri fyrst og fremst þakklæti í huga að hafa fengið að starfa að sínu stóra áhugamáli í þau 18 ár sem hann hefur gegnt starfi formanns. Fótbolti 10. febrúar 2007 13:47
Margrét Lára fer til Vals Margrét Lára Viðarsdóttir mun samkvæmt heimildum fréttastofu skrifa undir tveggja ára samning við Val nú síðdegis. Margrét Lára hefur leikið með Valsstúlkum síðustu tvö sumur og þekkir því vel til aðstæðna á Hlíðarenda. Ekki þarf að fjölyrða um hversu mikill liðsstyrkur Margrét Lára er fyrir Val, en hún var langbesti leikmaður Landsbankadeildar kvenna á síðustu leiktíð. Fótbolti 9. febrúar 2007 12:19
Kristjáni meinað að tjá sig um mengunina Þjálfari knattspyrnuliðs Keflavíkur leitaði sér læknisaðstoðar eftir að hafa fengið sýkingu í augu vegna svifryks í Reykjaneshöll. Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ hyggjast leysa svifryksvandann með ryksugu, en þjálfaranum var bannað að veita viðtal vegna málsins. Íslenski boltinn 7. febrúar 2007 19:47
Svifryksvandinn í Reykjaneshöll leystur með ryksugu Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ telja sig hafa komist fyrir heilbrigðisvandamál vegna svifriks í Reykjaneshöllinni með því að fjárfesta í sérstakri ryksugu ef marka má frétt á vef Víkurfrétta. Kristján Guðmundsson þjálfari Keflvíkinga var einn þeirra sem fundið höfðu til ónota í augum vegna svifryksmengunar í húsinu. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Íslenski boltinn 7. febrúar 2007 14:49
Góð afkoma hjá KSÍ Ársreikningur KSÍ fyrir árið 2006 var birtur í dag og þar kemur fram að afkoma sambandsins er sem fyrr mjög góð. Tæplega 100 milljóna hagnaður var af rekstri sambandsins og var í framhaldi af þessu ákveðið að greiða sérstakt 16 milljóna framlag til aðildarfélaga sambandsins. Nánar má lesa um ársreikninginn á heimasíðu sambandsins, ksi.is. Íslenski boltinn 2. febrúar 2007 15:25
Margrét Lára hætt hjá Duisburg Landsliðskonan Margrét Lára Viðarsdóttir hefur fengið sig lausa frá þýska úrvalsdeildarliðinu Duisburg og ber við persónulegum ástæðum. Margrét staðfesti þetta í viðtali á fréttavefnum sudurland.is í morgun en vildi ekkert gefa upp um ástæður ákvörðunar sinnar, en segir þetta hafa komið snögglega upp. Fótbolti 30. janúar 2007 11:42
KSÍ: Jafnar greiðslur til karla og kvenna Stjórn knattspyrnusambands Íslands ákvað á stjórnarfundi í síðustu viku að jafna dagpeningagreiðslur til karla og kvennalandsliðanna auk þess sem kvennalandsliðinu var heitinn árangurstengdur aukastyrkur. Fótbolti 21. janúar 2007 14:30