Guðjón Baldvinsson ekki með KR næsta sumar - samdi við Halmstad Guðjón Baldvinsson er genginn til liðs við sænska liðið Halmstad en þetta staðfesti hann sjálfur á twitter-síðu sinni í dag. Guðjón var lykilmaður í Íslands- og bikarmeistaraliði KR-inga í sumar. Íslenski boltinn 22. desember 2011 14:15
Sigurður Ragnar fundar með stelpunum um jólin Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, hefur boðað 40 leikmenn til fundar á milli jóla og nýárs. Framundan er spennandi ár hjá íslenska kvennalandsliðinu en fyrsta verkefnið er hið geysisterka Algarve mót sem hefst í lok febrúar. Þetta kemur fram á KSÍ. Íslenski boltinn 22. desember 2011 12:00
Hallbera Guðný spilar í Svíþjóð næsta sumar Hallbera Guðný Gísladóttir hefur fengið tilboð frá þremur liðum í sænsku úrvalsdeildinni og ætlar að taka næstu vikuna til að fara yfir þau. Hún á von á því að taka ákvörðun fyrir áramót og segir að það liggi nokkuð ljóst fyrir að hún sé á leið frá Val. Íslenski boltinn 22. desember 2011 08:00
Fram og Juventus búin að gera munnlegt samkomulag um Hörð Fram og Ítalska stórliðið Juventus hafa náð munnlegu samkomulagi um kaup Juventus á Herði Björgvini Magnússyni. Samkvæmt heimildum Vísis þá er samningurinn til langs tíma eða upp á sex til sjö ár. Íslenski boltinn 21. desember 2011 12:15
Karlalandsliðið áfram í 104. sæti á heimslistanum Íslenska karlalandsliðið stendur í stað á nýjum styrkleikalista FIFA sem gefinn var út í morgun. Ísland er í 104. sæti listans en sem fyrr eru Spánverjar í efsta sætinu. Íslenski boltinn 21. desember 2011 11:00
Guðjón Árni samdi við FH FH-ingar fengu fínan liðsstyrk í dag þegar bakvörðurinn Guðjón Árni Antoníusson skrifaði undir tveggja ára samning við félagið. Íslenski boltinn 20. desember 2011 16:10
Eyjamenn ætla að kaupa Gunnar Má frá FH Gunnar Már Guðmundsson er á leiðinni í ÍBV og mun væntanlega gera þriggja ára samning við Eyjaliðið gangi allt saman upp. Morgunblaðið greindi fyrst frá þessu í morgun og Magnús Gylfason, þjálfari ÍBV, staðfesti þetta við íþróttadeild. Íslenski boltinn 20. desember 2011 12:15
Lagerbäck: Get ekki valið alla leikmenn í fyrsta leikinn Lars Lagerbäck var í stuttu viðtali við heimasíðu KSÍ í dag þar sem var farið yfir tvo fyrstu landsleikina undir hans stjórn. KSÍ tilkynnti í dag að íslenska karlalandsliðið mun spila við Japan 24. febrúar næstkomandi en áður hafði verið gefið út að liðið mætir Svartfjallalandi fimm dögum síðar. Íslenski boltinn 20. desember 2011 10:00
Fyrsti landsleikurinn undir stjórn Lagerbäck verður í Japan Knattspyrnusambönd Íslands og Japans hafa komist að samkomulagi um karlalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik í Japan, 24. febrúar næstkomandi. Leikið verður á Nagai vellinum í Osaka en á þessum velli var m.a. leikið á HM í Japan/Suður Kóreu árið 2002. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ. Íslenski boltinn 20. desember 2011 09:00
Gísli Páll og Sindri Snær sömdu við Breiðablik Breiðablik samdi í dag við þá Gísli Pál Helgason og Sindra Snæ Magnússon. Þeir skrifuðu undir þriggja ára samning við Blikana. Íslenski boltinn 18. desember 2011 19:00
Pape gerði þriggja ára samning við Grindavík Pape Mamadou Faye er orðinn leikmaður Grindavíkur en hann hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Íslenski boltinn 16. desember 2011 17:15
Atli Sigurjónsson: Það er ekki ætlunin að sitja á bekknum hjá KR KR-ingar eru komnir langt með að setja saman liðið sem mun reyna að verja Íslands- og bikarmeistaratitlana á næsta sumri en þeir héldu blaðamannafund í gær þar sem tilkynnt var um undirskriftir fjórtán leikmanna. Íslenski boltinn 16. desember 2011 06:30
Hópundirskriftir í Vesturbænum | 14 leikmenn skrifuðu undir hjá KR KR-ingar héldu blaðamannafund í dag þar sem að tilkynnt var að fjórtán leikmenn hafi gengið frá samningum við Íslands- og bikarmeistarana fyrir titilvörnina í Pepsi-deild karla næsta sumar. Íslenski boltinn 15. desember 2011 17:30
Ungu strákarnir streyma í KR | Atli skrifar væntanlega undir á eftir Rúnar Kristinsson, þjálfari Íslands- og bikarmeistara KR, er að yngja upp í leikmannahópnum sínum því tveir ungir landsbyggðarmenn hafa þegar samið við félagið og Þórsarinn Atli Sigurjónsson verður væntanlega sá þriðji en KR-ingar hafa boðað til blaðamannafundar seinna í dag. Íslenski boltinn 15. desember 2011 15:00
Stelpurnar byrja á móti Þýskalandi á Algarve Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta verður í A-riðli á hinu geysisterka Algarve Cup á næsta ári en nú er búið að draga í riðla fyrir keppnina. Íslenska liðið er í riðli með Þýskalandi, Kína og Svíþjóð en í B-riðlinum eru bæði Heimsmeistarar Japans og bandaríska landsliðið auk Noregs og Danmörku. Íslenski boltinn 13. desember 2011 16:18
Halmstad á eftir Guðjóni Baldvinssyni Svo gæti farið að framherjinn Guðjón Baldvinsson reyni aftur fyrir sér erlendis en en sænska félagið Halmstad er með Guðjón undir smásjánni. Halmstad féll úr sænsku A-deildinni á síðasta tímabili. Ekki hefur formlegt tilboð borist til KR en Svíarnir sendu fyrirspurn um Guðjón Baldvinsson á dögunum. Íslenski boltinn 12. desember 2011 12:30
Heiðar og Margrét Lára knattspyrnufólk ársins Heiðar Helguson og Margrét Lára Viðarsdóttir voru í dag útnefnd knattspyrnumaður og -kona ársins árið 2011. Þetta er í áttunda skiptið sem valið fer fram. Íslenski boltinn 10. desember 2011 17:55
Sigursteinn Gíslason fékk gullmerki KSÍ í gær Sigursteinn Gíslason er ásamt Gunnari Guðmannssyni sá núlifandi Íslendingur sem hefur unnið Íslandsmeistaratitilinn í fótbolta oftast eða níu sinnum. Gunnar og Sigursteinn fengu í gær af því tilefni afhent fyrstu eintökin af síðara bindi af 100 ára sögu Íslandsmótsins eftir Sigmund Ó. Steinarsson. Íslenski boltinn 3. desember 2011 16:00
Spear samdi við ÍBV ÍBV hefur náð samkomulagi við framherjann Aaron Spear um að leika með félaginu næstu tvö árin. Íslenski boltinn 2. desember 2011 14:36
Guðjón og Þorvaldur með mestu menntunina af þjálfurum Pepsi-deildar Knattspyrnusamband Íslands birti í dag lag lista yfir menntun þjálfara í Pepsi-deildum karla og kvenna á næsta ári en á ksi.is segir að menntun þjálfara hafi líklega aldrei verið betri. Íslenski boltinn 2. desember 2011 13:00
Garðar Gunnlaugssson til ÍA Garðar Gunnlaugsson er genginn til liðs við uppeldisfélagið sitt, ÍA, en hann skrifaði undir eins árs samning í dag. Þetta staðfesti hann í samtali við Vísi. Íslenski boltinn 1. desember 2011 21:05
Guðmann í FH og Atli valdi Val Tveir íslenskir knattspyrnumenn sem hafa leikið í Noregi undanfarin ár gengu í dag báðir til liðs við félög í Pepsi-deild karla. Íslenski boltinn 1. desember 2011 17:28
Laufey verður áfram með Valsliðinu næsta sumar Landsliðskonan Laufey Ólafsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við bikarmeistara Vals og mun spila með liðinu í Pepsi-deild kvenna næsta sumar. Íslenski boltinn 30. nóvember 2011 11:05
Orri Freyr farinn heim í Þór Orri Freyr Hjaltalín hefur ákveðið að spila með Þórsurum í 1. deildinni næsta sumar en Þór og Grindavík náðu samkomulagi um félagaskiptin í morgun eins og fram kemur á heimasíðu Þórsara. Íslenski boltinn 29. nóvember 2011 13:00
Fylkismenn stóla á háar upphæðir frá borginni Fylkir þarf að byggja yfirbyggða áhorfendastúku við Fylkisvöll til að fá að spila heimaleiki sína þar í Pepsi- deildinni. Stúkan kostar 150-160 milljónir og stólar félagið að langmestu leyti á stuðning Reykjavíkurborgar. Íslenski boltinn 29. nóvember 2011 08:00
Lars Lagerbäck byrjar á móti Svartfjallalandi Knattspyrnusambönd Íslands og Svartfjallalands hafa komist að samkomulagi um að karlalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik miðvikudaginn 29. febrúar 2012. Leikið verður í Podgorica í Svartfjallalandi. Fótbolti 28. nóvember 2011 11:41
Elfar Árni samdi við Breiðablik Húsvíkingurinn Elfar Árni Aðalsteinsson skrifaði í dag undir þriggja ára samning við Pepsi-deildarlið Breiðabliks. Elfar Árni kemur til félagsins frá Völsungi og verður því áfram í grænu. Íslenski boltinn 26. nóvember 2011 17:53
Breiðablik samdi við Viggó Miðju- og sóknarmaðurinn Viggó Kristjánsson er kominn með leikheimild hjá Breiðabliki eftir að hafa gert þriggja ára samning við félagið. Íslenski boltinn 24. nóvember 2011 16:30
Erum ekki að yfirspenna bogann í Árbænum Finnur Ólafsson gekk í gær í raðir Fylkis frá ÍBV og samdi við Árbæinga til næstu þriggja ára. Finnur ákvað að fara frá ÍBV þar sem hann þurfti að flytja til Reykjavíkur af fjölskylduástæðum. Íslenski boltinn 24. nóvember 2011 08:15
Finnur gerði þriggja ára samning við Fylki Miðjumaðurinn Finnur Ólafsson gekk í dag til liðs við Fylki í Pepsi-deildinni frá ÍBV. Gerði hann þriggja ára samning við félagið. Íslenski boltinn 23. nóvember 2011 13:16