Sjáðu fernu Emmu og gífurlega mikilvægt mark Vals Emma Nicole Phillips stal senunni í Bestu deild kvenna í fótbolta í gær er hún skoraði öll fjögur mörk Grindavíkur/Njarðvíkur gegn ÍBV. Þá Valur gífurlega mikilvægan sigur gegn Víkingi Reykjavík í botnslag deildarinnar. Öll mörk gærkvöldsins má sjá hér. Íslenski boltinn 8.8.2026 11:15
Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík-ÍBV 4-2 | Draumahálfleikur Emmu kláraði ÍBV Emma Nicole Phillips var kona kvöldsins í uppgjöri nýliðanna en hún skoraði fernu í einum hálfleik þegar Grindavík/Njarðvík vann 4-2 sigur á ÍBV í fjórtándu umferð Bestu deildar kvenna. Íslenski boltinn 7.8.2026 17:17
Sjáðu sjálfsmark og vítaspyrnur í Þjóðhátíðarleiknum ÍBV tók á móti Fram í gær á heimavelli í Bestu deild karla þar sem hinn árlegi Þjóðhátíðarleikur fór fram. Það voru dæmdar tvær vítaspyrnur og einnig skorað í opnum leik. Fótbolti 2.8.2026 20:03
Sjáðu Ollu kveðja með stæl, dramatík í Eyjum og Fram skjóta Valskonur á kaf Íslenski boltinn 30.7.2026 10:31
Sjáðu Ágúst Orra tryggja Breiðabliki sigur og viðhalda ótrúlegri tölfræði Íslenski boltinn 28.7.2026 11:32
„Þetta eru fagmenn sem lifa fyrir boltann“ Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, sagði 1-0 sigurinn á ÍBV í 16. umferð Bestu deildar karla mögulega falla undir skilgreininguna á iðnaðarsigri. Honum fannst leikurinn jafn og viðurkenndi að frammistaða Blika hefði ekki verið sannfærandi allan tímann. Íslenski boltinn 27. júlí 2026 20:41
Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-0 | Ágúst Orri hetjan Breiðablik vann 1-0 sigur á ÍBV á Kópavogsvelli í 16. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Ágúst Orri Þorsteinsson var hetja heimamanna. Íslenski boltinn 27. júlí 2026 19:55
„Búin að slá út ansi öflug lið“ Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Þróttar úr Reykjavík var afar hreykinn af liðsmönnum sínum eftir að liðið vann ÍBV 1-0 í undanúrslitum Mjólkurbikars kvenna í fótbolta á AVIS vellinum í Laugardal í kvöld. Þróttur er þar með kominn í bikarúrslit kvenna í annað sinn í sögunni. Íslenski boltinn 24. júlí 2026 22:05
Uppgjörið: Þróttur - ÍBV 1-0 | Þróttarar í bikarúrslit Þróttur úr Reykjavík er kominn í úrslitaleik Mjólkurbikarsins eftir að hafa lagt ÍBV að velli, 1-0, á AVIS vellinum í Laugardal í undanúrslitum í kvöld. Þróttur mætir Fram eða Grindavík/Njarðvík í bikarúrslitum þann 12. september næstkomandi. Íslenski boltinn 24. júlí 2026 21:10
Hetja Þróttar: „Ákvað að hoppa og vona það besta“ Þórdís Nanna Ágústsdóttir reyndist hetja Þróttar úr Reykjavík þegar liðið lagði ÍBV 1-0 að velli í undanúrslitum Mjólkurbikarsins í fótbolta á AVIS vellinum í Laugardal í kvöld. Þróttur fer þar með í bikarúrslit í annað sinn í sögunni. Íslenski boltinn 24. júlí 2026 21:05
Eyjakonur þétta vörnina ÍBV hefur borist liðsstyrkur í formi bandaríska varnarmannsins Jessica Hinton fyrir komandi átök í Bestu deild kvenna og undanúrslitum Mjólkurbikarsins. Íslenski boltinn 22. júlí 2026 13:46
Sjáðu Fram og Þór/KA hrista vel upp í fallbaráttunni í Bestu kvenna Fram og Þór/KA unnu gríðarlega mikilvæga sigra í fallbaráttu Bestu deildar kvenna í fótbolta í gær og komust bæði um leið upp úr fallsæti. Nú má sjá mörk gærdagsins hér inni á Vísi. Íslenski boltinn 20. júlí 2026 14:03
Sjáðu Stjörnusnakksmáltíð KR-inga og markajafntefli í Eyjum KR-ingar voru í miklu stuði í stórsigri á Stjörnunni í Bestu deild karla í gær, því þeir skoruðu ekki aðeins fimm mörk heldur héldu einnig hreinu í fyrsta sinn í sumar. Nú má sjá mörkin úr leikjunum tveimur í gær hér inni á Vísi. Íslenski boltinn 20. júlí 2026 09:03
„Vorum bara litlar í okkur og vorum bara hérna að grenja“ Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari ÍBV, segir lið sitt hafa verið lítið og Þór/KA átt sigurinn skilið þegar liðin mættust á VÍS vellinum á Akureyri í Bestu deild kvenna. Þór/KA fór með 2-1 sigur af hólmi. Íslenski boltinn 19. júlí 2026 20:33
„Frábært að vera komnar á sigurbraut aftur“ „Mér líður frábærlega. Það er frábært að vera komnar á sigurbraut aftur eftir erfiðan síðasta leik, 3-2 tap, svo það er flott að ná í 2-1 sigur í dag.“, sagði Erin Flurey, leikmaður Þór/KA, eftir 2-1 sigur gegn ÍBV þar sem hún skoraði fyrsta mark leiksins og átti góðan leik. Íslenski boltinn 19. júlí 2026 20:06
„Fannst mikilvægt að byrja þetta með krafti“ Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, þjálfari Þór/KA, var ánægður eftir 2-1 sigur gegn ÍBV á heimavelli í 13. umferð Bestu deildar kvenna. Íslenski boltinn 19. júlí 2026 19:19
Uppgjörið: Þór/KA - ÍBV 2-1 | Þriðji sigurinn í síðustu fjórum leikjum Þór/KA lyfti sér upp úr botnsæti Bestu deildar kvenna og upp í það sjöunda með 2-1 sigri á ÍBV á VÍS vellinum á Akureyri í dag. ÍBV eftir leikinn í fjórða sæti deildarinnar. Íslenski boltinn 19. júlí 2026 19:15
„Mér fannst þetta ekki víti“ Hans Viktor Guðmundsson, varnarmaður KA, var svekktur með vítið sem hann fékk dæmt á sig og leiddi til jöfnunarmarks ÍBV í 2-2 jafntefli liðanna í 15. umferð Bestu deildar karla. Hann segir dómarann hins vegar hafa hárrétt fyrir sér í rauða spjaldinu sem ÍBV fékk. Íslenski boltinn 19. júlí 2026 16:42
Uppgjörið: ÍBV - KA 2-2 | Fjörugt í Eyjum og sjö spjöld á loft ÍBV og KA gerðu 2-2 jafntefli í 15.umferð Bestu deildar karla á Hásteinsvelli í dag. Dómari leiksins hafði í nógu að snúast en alls fóru sex gul spjöld og eitt beint rautt á loft. Íslenski boltinn 19. júlí 2026 13:18
Sjáðu Blika fara á toppinn og glæsimark í Eyjum Valur og Víkingur eru bæði aðeins einu stigi frá botni Bestu deildar kvenna í fótbolta, eftir töpin gegn ÍBV og Breiðabliki í gærkvöld. Blikakonur komust á toppinn, að minnsta kosti í sólarhring, og Eyjakonur eru aðeins fjórum stigum á eftir þeim. Mörkin úr leikjunum í gær má sjá á Vísi. Íslenski boltinn 16. júlí 2026 11:03
Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Félagaskiptaglugginn á Íslandi verður opnaður á ný í dag, 16. júlí. Þá gefst liðum tækifæri til að styrkja sig fyrir seinni hluta tímabilsins. En hvað eru liðin í Bestu deild karla búin að gera og hvað þurfa þau að gera í glugganum? Vísir leitaði til Baldurs Sigurðssonar, sérfræðings Stúkunnar, um hvað liðin tólf þyrftu að gera áður en glugganum verður lokað 12. ágúst. Íslenski boltinn 16. júlí 2026 09:02
Uppgjörið: ÍBV - Valur 2-1 | Ferskir Frakkar, eitraðar Eyjakonur og veiklulegur Valur ÍBV vann verðskuldaðan 2-1 heimasigur á Val í elleftu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta. Valskonur eru í bullandi fallbaráttu en Eyjakonur komnar aftur á flug eftir strembinn kafla. Íslenski boltinn 15. júlí 2026 20:00
Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Alls var 21 mark skorað í fjórum leikjum í Bestu deild karla í gær. KA og FH unnu kærkomna sigra á meðan Fram og KR röðuðu inn mörkum. Íslenski boltinn 13. júlí 2026 10:32
Uppgjörið: KR - ÍBV 5-2 | Eyjamenn sáu ekki til sólar í rokinu vestur í bæ Eftir sex leiki án ósigurs var Eyjamönnum skellt á jörðina þegar liðið sótti KR heim í Vesturbænum. Lokatölur 5-2 í leik þar sem mörkin hefðu hæglega getað orðið fleiri. Leik liðanna í Eyjum lauk með 6-2 sigri KR og hafa Eyjamenn eflaust fengið nóg af því að spila við svarthvíta í sumar. Íslenski boltinn 12. júlí 2026 19:56
Eyjakonur með fyrsta sigurinn í tvo mánuði ÍBV lagði Víking 3-1 þegar liðin mættust í Bestu deild kvenna í kvöld. Eyjakonur komust tvívegis yfir í fyrri hálfleik og innsigluðu síðan mikilvægan sigur með þriðja markinu eftir hlé. Íslenski boltinn 9. júlí 2026 19:52
Sjáðu mörk og atvik helgarinnar í Bestu deildinni Tveir leikir fóru fram í Bestu deild karla í gær og einn fór fram á föstudaginn. Í þeim var skorað nóg af mörkum og fengum við jafnvel að sjá rautt spjald. Fótbolti 5. júlí 2026 10:02