Bonmati valin best og Paralluelo besti ungi leikmaðurinn Spánverjar tryggðu sér í dag heimsmeistaratitil kvenna í knattspyrnu í fyrsta sinn í sögunni með 1-0 sigri gegn Englendingum. Að leik loknum voru bestu leikmenn mótsins heiðraður. Fótbolti 20. ágúst 2023 12:34
Spánn heimsmeistari í fyrsta sinn Spánverjar eru heimsmeistarar kvenna í knattspyrnu í fyrsta sinn í sögunni eftir 1-0 sigur gegn Englendingum í úrslitaleik HM í Sydney í dag. Fótbolti 20. ágúst 2023 12:04
Svíar sóttu bronsið með sigri gegn heimakonum Svíþjóð vann til bronsverðlauna á HM kvenna í knattspyrnu er liðið vann góðan 2-0 sigur gegn heimakonum í Ástralíu í dag. Þetta er í fjórða sinn sem Svíar taka brons á heimsmeistaramóti. Fótbolti 19. ágúst 2023 10:01
Ensku ljónynjurnar fá styttu af sér fyrir utan Wembley Enska kvennalandsliðið á enn eftir að spila úrslitaleikinn á HM í fótbolta en það er þegar ljóst að þær verða gerðar ódauðlegar fyrir utan Wembley-leikvanginn í nánustu framtíð. Fótbolti 18. ágúst 2023 16:00
Hvað á gera við stórstjörnuna sem hefur verið í banni í tveimur síðustu leikjum? Enska kvennalandsliðið í fótbolta er komið alla leið í úrslitaleik heimsmeistaramótsins sem fer fram á sunnudaginn. Það gerði liðið án þess að vera að vera með sinn markahæsta og stoðsendingahæsta leikmann. Fótbolti 18. ágúst 2023 13:00
Spánardrottning mætir á úrslitaleikinn en breska konungsfjölskyldan situr heima Letizia Spánardrottning ætlar ekki að missa af fyrsta úrslitaleik spænska kvennalandsliðsins á HM frá upphafi þegar liðið mætir Englendingum í Ástralíu á sunnudaginn. Fótbolti 18. ágúst 2023 11:31
Enska sambandið gæti boðið Sarinu Wiegman að þjálfa karlalandsliðið Enska knattspyrnusambandið sér þjálfara kvennalandsliðsins sem góðan kost til að taka við þjálfun karlalandsliðsins. Sport 18. ágúst 2023 11:00
Segir að jöfn laun karla og kvenna á HM myndu ekki leysa neitt Gianni Infantino, forsenti alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA, segir að verið sé að stefna í þá átt að konur og karlar fái jafn mikið greitt fyrir þátttöku á HM í knattspyrnu, en það eitt og sér muni hins vegar ekki leysa neinn vanda. Fótbolti 18. ágúst 2023 08:02
Hávær orðrómur en Englendingar munu hafna öllum tilboðum Enska knattspyrnusambandið mun hafna öllum tilboðum sem kunna að berast í Sarinu Wiegman, lansliðsþjálfara kvennalandsliðsins, en orðrómur er um að bandaríska knattspyrnusambandið vilji fá hana til liðs við sig. Fótbolti 17. ágúst 2023 17:45
„Besta skotið mitt á ævinni“ Manchester United konan Ella Toone skoraði fyrsta mark enska landsliðsins í 3-1 sigri á Ástralíu í undanúrslitaleik HM kvenna í fótbolta í dag. Markið var glæsilegt og hún var líka ánægð með það í leikslok. Fótbolti 16. ágúst 2023 15:16
Ensku stelpurnar komnar í úrslitaleikinn á HM Enska kvennalandsliðið í fótbolta varð í fyrra fyrsta enska landsliðið í 56 ár til að vinna stóran titil og í dag urðu þær fyrsta enska landsliðið í 57 ár til að tryggja sér sæti í úrslitaleik heimsmeistaramóts. Fótbolti 16. ágúst 2023 11:52
HM-stjarna Spánverja var að æfa allt aðra íþrótt fyrir tveimur árum Salma Paralluelo hefur skoraði mjög mikilvæg mörk í tveimur síðustu leikjum spænska landsliðsins á HM kvenna í fótbolta. Fótbolti 16. ágúst 2023 10:30
Njósnað um enska kvennalandsliðið úr lofti Evrópumeistarar Englands mæta heimakonum í Ástralíu í undanúrslitaleik HM kvenna í fótbolta í fyrramálið. Fótbolti 15. ágúst 2023 15:00
Carmona skaut Spánverjum í úrslit í fyrsta sinn Olga Carmona reyndist hetja Spánverja er hún skoraði sigurmark liðsins í 2-1 sigri gegn Svíum í undanúrslitum HM kvenna í knattspyrnu í morgun. Spánverjar eru því á leið í úrslit í fyrsta sinn í sögunni, en öll mörk leiksins voru skoruð á seinustu tíu mínútum venjulegs leiktíma. Fótbolti 15. ágúst 2023 09:55
Komnar með fleiri fylgjendur en karlalandsliðið Ástralska kvennalandsliðið í fótbolta er komið alla leið í undanúrslit á HM á heimavelli og það er óhætt að segja að öll ástralska þjóðin sé að fagna með þeim. Fótbolti 14. ágúst 2023 12:01
Russo skaut Englandi í undanúrslit England er komið í undanúrslit heimsmeistaramóts kvenna í knattspyrnu eftir 2-1 sigur á Kólumbíu í dag. Alessia Russo var hetja Englendinga en hún skoraði sigurmarkið á 63. mínútu. Fótbolti 12. ágúst 2023 12:32
Ástralía í undanúrslit eftir dramatíska vítaspyrnukeppni Ástralía og Frakkland mættust í 8-liða úrslitum heimsmeistaramóts kvenna í morgun þar sem Ástralía komst áfram eftir bráðabana og eru komnar í undanúrslit á HM í fyrsta sinn í sögunni. Dramatíkin í vítaspyrnukeppninni var ótrúleg. Fótbolti 12. ágúst 2023 10:12
Sænsku stelpurnar tóku japönsku hraðlestina úr sambandi Svíþjóð er komið í undanúrslitin á HM kvenna í fótbolta eftir 2-1 sigur á Japan í átta liða úrslitum keppninnar í dag. Fótbolti 11. ágúst 2023 09:28
Táningurinn kom spænsku stelpunum í undanúrslitin í fyrsta sinn Varamaðurinn Salma Paralluelo skoraði sigurmark Spánar í framlengingu þegar liðið varð fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum á HM kvenna í fótbolta. Fótbolti 11. ágúst 2023 07:00
Lauren James fékk tveggja leikja bann Enska kvennalandsliðið þarf að komast alla leið í úrslitaleik HM ætli Lauren James að spila aftur á þessu heimsmeistaramóti. Fótbolti 10. ágúst 2023 13:56
Tveggja ára dóttir HM-stjörnunnar fær sannkallaða drottningameðferð á HM Harper er bara tveggja ára gömul en hún er heldur betur að njóta lífsins á heimsmeistaramóti kvenna í fótbolta í Ástralíu og Nýja Sjálandi. Fótbolti 10. ágúst 2023 13:30
Sú hollenska fagnar því að bandarísku hrokagikkirnir duttu úr leik á HM Lineth Beerensteyn, framherji hollenska kvennalandsliðsins í fótbolta, var ekki hrifin af derringnum í bandarísku landsliðskonunum fyrir heimsmeistaramótið í Ástralíu og Nýja Sjálandi. Fótbolti 10. ágúst 2023 11:01
Chloe skaut fastar en allir karlarnir í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð Enginn karlmaður í ensku úrvalsdeildinni náði jafnmiklum krafti í skot og mark og hetja enska kvennalandsliðsins í fyrstu umferð útsláttarkeppni HM í Ástralíu og Nýja Sjálandi. Enski boltinn 9. ágúst 2023 10:30
Lauren James full iðrunar og fékk líka kveðju frá þeirri sem hún steig á Enska landsliðskonan Lauren James hefur beðist afsökunar á framkomu sinni í leiknum á móti Nígeríu í sextán liða úrslitum HM kvenna í fótbolta þar sem hún fékk rautt spjald fyrir að stíga á mótherja. Fótbolti 9. ágúst 2023 08:01
Frakkar flugu áfram Frakkland átti ekki í neinum vandræðum með að slá út Marokkó í 16-liða úrslitum HM kvenna í fótbolta í dag. Fótbolti 8. ágúst 2023 13:00
Hetja enska landsliðsins í þriðja sinn á einu ári Enska kvennalandsliðið í knattspyrnu hefur verið að gera frábæra hluti undanfarin ár með því að vinna tvo titla og nú með því að komast í átta liða úrslit á HM. Einn leikmaður liðsins virðist alltaf stíga fram þegar mest á reynir. Fótbolti 8. ágúst 2023 11:31
Kólumbía braut múrinn mikla og mætir Englandi Jamaíka er úr leik á HM kvenna í fótbolta eftir að hafa fengið á sig aðeins eitt mark á öllu mótinu. Það var annað spútniklið á mótinu, Kólumbía, sem braut múrinn mikla og sló Jamaíku út með 1-0 sigri í 16-liða úrslitum í dag. Fótbolti 8. ágúst 2023 09:57
Danir úr leik eftir tap gegn heimakonum Ástralía er komið í 8-liða úrslit á HM í fótbolta eftir 2-0 sigur á Danmörku í Sydney í dag. Fótbolti 7. ágúst 2023 12:27
Rautt spjald kom ekki í veg fyrir að England færi áfram Evrópumeistarar Englands eru komnar í 8-liða úrslit á HM í Ástralíu og Nýja-Sjálandi eftir sigur á Nígeríu í vítaspyrnukeppni í 16-liða úrslitum keppninnar í morgun. Fótbolti 7. ágúst 2023 10:29
Svíar áfram eftir ótrúlega vítaspyrnukeppni Svíþjóð er komið í átta liða úrslit á HM kvenna eftir sigur á Bandaríkjunum. Vítaspyrnukeppni þurfti til og markvörður sænska liðsins varði sínar konur þangað. Fótbolti 6. ágúst 2023 11:51