Umfjöllun, viðtöl og myndir: FH - Valur 19-29 | Valur valtaði yfir andlausa FH-inga Valur valtaði yfir FH í áttundu umferð Olís-deild karla í Kaplakrika í kvöld. Staðan í hálfleik var 14-6, gestunum frá Hlíðarenda í vil, og lokatölur urðu svo tíu marka sigur Vals, 19-29. Handbolti 12. október 2015 21:00
Umfjöllun og viðtöl: Afturelding - Haukar 24-23 | Birkir hetja Mosfellinga Afturelding vann eins marks sigur, 24-23, á Haukum í 8. umferð Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. Handbolti 12. október 2015 21:00
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Víkingur - ÍBV 22-26| Góður útisigur Eyjamanna í meiðslahrjáðri viðureign Eyjamenn fara sigurreifir heim til Eyja með tvö stig í farteskinu. Handbolti 12. október 2015 19:45
Miðstöð Boltavaktarinnar | Allir leikir á sama stað Íþróttavefur Vísis býður lesendum sínum upp á að fylgjast með öllum leikjum kvöldsins í Olís-deild karla samtímis. Handbolti 12. október 2015 19:00
ÍR-ingar spila í bleiku í kvöld ÍR-ingar verða í óhefðbundnum búningum í kvöld er þeir taka á móti Fram í Olís-deild karla. Handbolti 12. október 2015 16:30
Umfjöllun. viðtöl og myndir: Ísland - Þýskaland 17-22 | Þýska liðið númeri of stórt fyrir Stelpurnar okkar Íslenska kvennalandsliðið í handbolta tapaði öðrum leiknum í röð gegn Þýskalandi í kvöld en þýska liðið reyndist einfaldlega vera of stór biti fyrir landsliðið í dag. Handbolti 11. október 2015 18:00
Sjö íslensk mörk í sigri Aue Lærisveinar Rúnars Sigtrygssonar í Aue unnu fimm marka sigur á Saarlouis á heimavelli í þýsku 2. deildinni í handbolta í dag en íslensku leikmenn liðsins skiluðu sjö mörkum í leiknum. Handbolti 11. október 2015 16:55
Íslendingarnir komust ekki á blað í dag | Úrslit dagsins Hvorki Róbert né Aron komust á blað í öruggum sigrum Vezsprem og PSG í Meistaradeild Evrópu í handbolta í dag. Handbolti 11. október 2015 16:32
Lærisveinar Hannesar aftur á sigurbraut Hannes Jón Jónsson, spilandi þjálfari West Wien, var meðal markaskorara í 4 marka sigri liðsins á Linz í 8. umferð austurrísku deildarinnar í handbolta í dag. Handbolti 11. október 2015 15:45
Guðjón Valur með fjögur mörk í öruggum sigri | Úrslit dagsins Guðjón Valur Sigurðsson og félagar í Barcelona unnu sannfærandi tíu marka sigur á Montpellier á útivelli í Meistaradeild Evrópu í handbolta í dag en spænska liðið hefur nú unnið þrjá leiki í röð í keppninni. Handbolti 10. október 2015 20:15
Ólafur Bjarki öflugur í tapleik gegn Wetzlar | Öll úrslit dagsins Öll Íslendingaliðin í efstu deild töpuðu leikjum sínum í dag en íslensku leikmennirnir í Emsdetten fóru á kostum í sigri liðsins í 2. deildinni. Handbolti 10. október 2015 20:00
Íslendingaliðin með sigra Íslendingaliðin Sönderjyske og Aalborg unnu bæði leiki sína í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag en ekkert íslenskt mark leit dagsins ljós. Handbolti 10. október 2015 17:09
Karen: Þurfum ekki að sigra heiminn í hverri sókn Karen Knútsdóttir segir að leikmenn íslenska kvennalandsliðsins í handbolta þurfi að vera rólegri á bolta og að bæta sóknarleik sinn gegn Þýskalandi á morgun. Handbolti 10. október 2015 14:00
Rut: Komum ákveðnari til leiks á morgun Rut Jónsdóttir segir að íslenska landsliðið sé ákveðið í að gera mun betur í leiknum gegn Þýskalandi á morgun og að það hefjist á að bæta sóknarleik liðsins. Handbolti 10. október 2015 13:00
Þurfum að laga sóknina Stelpurnar okkar í íslenska handboltalandsliðinu mæta Þýskalandi í öðrum leik liðsins í undankeppni EM 2017, en sá fyrsti tapaðist gegn firnasterku liði Frakklands á fimmtudagskvöldið. Þjóðverjar eru með sterkt lið sem er vant því að vera á stórmótum. Handbolti 10. október 2015 07:00
Bjarki tryggði Berlínarrefunum stig Magdeburg og Füchse Berlin skildu jöfn, 24-24, í Íslendingaslag í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Handbolti 9. október 2015 19:52
Heimaleikur Eyjamanna færður um 51 dag Lið ÍBV og Akureyrar munu bæði eiga leik inni í heilar sjö vikur eftir að Handknattleikssamband Íslands ákvað að færa leik liðanna í 8. umferð Olís-deildar karla. Handbolti 9. október 2015 17:30
Mikkel Hansen skaut Snorra Stein af toppnum með stæl Danska stórskyttan Mikkel Hansen skoraði fjórtán mörk fyrir Paris Saint-Germain í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær og er orðinn markahæsti leikmaður deildarinnar. Handbolti 9. október 2015 16:15
Umfjöllun og viðtöl: Haukar - ÍR 38-23 | Íslandsmeistararnir í miklum ham Haukar unnu ÍR 38-23 í síðasta leik 7. umferðar Olís deildar karla í handbolta í kvöld í Schenkerhöllinni á Ásvöllum. Handbolti 9. október 2015 15:34
Klopp drakk í sig söguna á Anfield | Myndir Jürgen Klopp var kynntur í dag sem nýr knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Liverpool en hann tók á móti blaðamönnum og ljósmyndurum á Anfield í dag. Handbolti 9. október 2015 12:00
Hansen með 14 mörk í enn einum sigri PSG Paris Saint Germain hélt sigurgöngu sinni í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta áfram með átta marka sigri, 35-27, á Chambéry á heimavelli í kvöld. Handbolti 8. október 2015 21:55
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Afturelding 25-22 | Fjórði sigur Valsmanna í röð Valsmenn unnu fjórða leikinn í röð og komust á topp Olís-deildarinnar með þriggja marka sigri á Aftureldingu í kvöld en það var hart barist í Vodafone-höllinni. Handbolti 8. október 2015 21:30
Umfjöllun og viðtöl: Fram - Grótta 23-22 | Ótrúlegt sigurmark Fram Fram var næstum búið að missa unninn leik úr höndunum en skoraði sigurmark þegar þrjár sekúndur voru eftir af leiknum. Handbolti 8. október 2015 21:15
Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - FH 31-23 | Fimmti sigur Eyjamanna í röð ÍBV vann sinn fimmta leik í röð í Olís-deild karla í handbolta þegar FH-ingar komu í heimsókn í kvöld. Handbolti 8. október 2015 21:00
Örn Ingi með þrjú mörk í stórsigri Hammarby Örn Ingi Bjarkason skoraði þrjú mörk fyrir Hammarby sem rúllaði yfir Skövde, 19-32, á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Handbolti 8. október 2015 19:57
Ágúst: Of margar sem spiluðu undir getu í dag Ágúst Jóhannsson, þjálfari íslenska landsliðsins í handbolta, var að vonum vonsvikinn með 10 marka tap, 27-17, fyrir Frökkum í undankeppni EM 2016 í Frakklandi í dag. Handbolti 8. október 2015 19:34
De Gea: Erfið en þroskandi reynsla Mikil dramatík á lokadegi félagsskiptagluggans var erfið reynsla fyrir markvörðinn David De Gea. Handbolti 8. október 2015 18:30
Tíu marka tap í Frakklandi Íslenska kvennalandsliðið í handbolta hóf undankeppni EM 2016 á 10 marka tapi, 27-17, fyrir Frakklandi í Antibes í dag. Handbolti 8. október 2015 18:20
Veszprém vill fá Patrek Ungverska stórliðið búið að setja sig í samband við Patrek Jóhannesson. Handbolti 8. október 2015 16:32
Stelpurnar hefja leik í dag Undankeppni EM 2016 hefst hjá Íslandi í dag en stelpurnar okkar mæta Frökkum ytra. Handbolti 8. október 2015 08:15