Aron valdi tvo æfingahópa fyrir Evrópumótið í handbolta Aron Kristjánsson, þjálfari karlalandsliðsins í handbolta, valdi tvo æfingahópa fyrir Evrópumótið í handbolta sem fer fram í Póllandi í janúar. Handbolti 21. desember 2015 12:53
Dagskrá FÍ deildarbikarsins milli jóla og nýárs er tilbúin Handknattleikssamband Íslands hefur gefið út dagskrá FÍ deildarbikars HSÍ en eins og undanfarin ár fer hann fram milli jóla og nýárs. Handbolti 21. desember 2015 12:00
Einn af heimsmeisturum Þóris: Lukkusteinn stráksins hennar gerði sitt Línumaðurinn Heidi Löke átti frábært heimsmeistaramót með norska kvennalandsliðinu í handbolta og vann nú sitt sjötta gull undir stjórn Þóris Hergeirssonar. Handbolti 21. desember 2015 10:30
Handknattleiksdómarinn sem var skotinn niður: Enn eins og hann sé staddur í Herjólfi Handknattleiksdómarinn Gunnar Óli Gústafsson hefur ekkert dæmt síðan að hann var skotinn niður í leik Vals og FH í Olís-deild karla í handbolta 10. desember síðastliðinn. Handbolti 21. desember 2015 07:45
Þórir og norsku stelpurnar heimsmeistarar Noregur varð í dag heimsmeistari kvenna í handknattleik þegar liðið vann mjög öruggan sigur á Hollandi, 31-23, í Danmörku. Handbolti 20. desember 2015 17:48
Stephen Nielsen kominn með íslenskan ríkisborgararétt Stephen Nielsen, markvörður Eyjamanna, er kominn með íslenskan ríkisborgararétt en þetta kemur fram á vef Alþingis. Handbolti 20. desember 2015 14:52
Umfjöllun og viðtöl: Afturelding með rándýran útisigur á ÍBV Afturelding vann sterkan 28-26 útisigur á ÍBV í dag og tryggði sér þar með farseðilinn í deildarbikarinn sem fram fer milli jóla og nýárs. Handbolti 20. desember 2015 00:01
Hannover og Kiel unnu sína leiki - Bergischer tapaði illa Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Kiel voru ekki í neinum vandræðum með Lemgo í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld en þeir unnu öruggan sigur 34-26. Handbolti 19. desember 2015 19:52
Aron og félagar með góðan sigur Aron Pálmarsson og félagar í Veszprem unnu átta marka sigur á slóvaska liðinu Tatran Prešov í SEHA-deildinni í kvöld, 39-31. Handbolti 19. desember 2015 19:18
Haukar flugu áfram í bikarnum Haukar komust auðveldlega í 8-liða úrslit Coca Cola bikarsins í handknattleik en liðið vann þægilegan sigur á ÍR, 37-29, í DB Schenkerhöllinni. Handbolti 19. desember 2015 18:33
Löwen rígheldur í toppsætið Rhein-Neckar Löwen vann fínan sigur á Balingen/Weilstetten, 29-24, í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag. Handbolti 19. desember 2015 15:52
Noregur í úrslit eftir framlengdan leik Það verða Norðmenn og Hollendingar sem leika til úrslita á HM kvenna í handbolta. Stelpurnar hans Þóris Hergeirssonar í Noregi tryggðu sér sæti í úrslitum í kvöld eftir sigur á Rúmeníu, 35-33, eftir framlengingu. Handbolti 18. desember 2015 21:40
Ólafur Bjarki öflugur í jafnteflisleik Íslendingaliðið Eisenach nældi í mikilvægt jafntefli í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld. Handbolti 18. desember 2015 20:28
Holland í úrslit Hollenska kvennalandsliðið í handknattleik tryggði sér í kvöld sæti í úrslitaleik HM. Handbolti 18. desember 2015 18:23
Verdens Gang: Þórir með súpertölfræði í undanúrslitaleikjum Íslendingurinn Þórir Hergeirsson stýrir liði Noregs í kvöld í undanúrslitaleik HM kvenna í handbolta en norsku stelpurnar mæta þá spútnikliði Rúmeníu og í boði er sæti í úrslitaleiknum á sunnudaginn. Handbolti 18. desember 2015 13:00
Gleður norsku þjóðina fyrir hver jól Þórir Hergeirsson er sannur íslenskur jólasveinn fyrir norsku þjóðina en norsku stelpurnar eru enn á ný að fara spila um verðlaun á stórmóti rétt fyrir jólin. Norska kvennalandsliðið mætir spútnikliði Rúmeníu í kvöld í undanúrslitaleik á HM kvenna í Danmörku. Handbolti 18. desember 2015 06:00
Guðlaugur: Ógeðslega svekktur með að stigið hafi verið tekið af okkur Guðlaugur Arnarsson var ekki ánægður með dómgæsluna í leik Aftureldingar og Fram í Olís-deild karla í kvöld. Handbolti 17. desember 2015 22:05
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Afturelding - Fram 22-21 | Árni Bragi hetja Aftureldingar með flautumarki Árni Bragi Eyjólfsson skoraði sigurmark Aftureldingar á flautumarki þegar Afturelding vann Fram með minnsta mun, 22-21, í Olís-deildinni í kvöld. Handbolti 17. desember 2015 21:45
Daníel tryggði Val stigin tvö Daníel Þór Ingason tryggði Val sigur á Víkingi, 20-21, í hörkuleik í Víkinni í Olís-deild karla í kvöld. Handbolti 17. desember 2015 21:11
Kristianstad enn með fullt hús stiga Sigurganga Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta heldur áfram en í kvöld bar liðið sigurorð af botnliði Drott, 24-31. Handbolti 17. desember 2015 20:34
Umfjöllun og viðtöl: Akureyri - ÍBV 25-25 | Einar hetja Eyjamanna Einar Sverrisson var hetja Eyjamanna sem komu til baka og náðu í stig gegn Akureyri í KA-heimilinu í kvöld. Lokatölur 25-25. Handbolti 17. desember 2015 20:15
Snorri Steinn skoraði tvö mörk í stjörnuleiknum Úrvalslið Frakka hafði betur gegn úrvalsliði erlendra leikmanna í stjörnuleiknum í frönsku 1. deildinni. Handbolti 17. desember 2015 12:00
Sjáðu hvernig Löwen komst á ótrúlegan hátt í undanúrslit bikarsins | Myndband Alexander Petersson fiskaði vítakast þegar nokkrar sekúndur voru eftir við sinn eigin vítateig. Handbolti 17. desember 2015 09:30
Stelpurnar hans Þóris komnar í undanúrslit á HM Þórir Hergeirsson stýrði norska kvennalandsliðinu til sigurs á Svartfjallalandi, 26-25, í 8-liða úrslitum á HM í handbolta í Danmörku í kvöld. Handbolti 16. desember 2015 22:02
Dramatískir sigrar Bergischer og Löwen Björgvin Páll Gústavsson átti flottan leik í marki Bergischer sem tryggði sér sæti í undanúrslitum þýsku bikarkeppninnar með eins marks sigri, 24-23, á Minden í kvöld. Handbolti 16. desember 2015 21:25
Sigurbergur með sex mörk í áttunda sigri Team Tvis Holstebro í röð Fimm leikir fóru fram í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Handbolti 16. desember 2015 20:46
Mark á elleftu stundu hjá Tandra Tandri Már Konráðsson tryggði Ricoh stig gegn Lugi í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Handbolti 16. desember 2015 20:08
Sterkur varnarleikur lagði grunninn að sigri Arons og félaga Aron Pálmarsson og félagar hans í Veszprém unnu sinn þriðja leik í röð í SEHA deildinni þegar þeir báru sigurorð af PPD Zagreb á útivelli, 19-23. Handbolti 16. desember 2015 19:55
Kiel úr leik í þýska bikarnum | Magdeburg komst áfram Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Kiel eru úr leik í þýsku bikarkeppninni í handbolta eftir sjö marka tap, 27-34, fyrir bikarmeisturum Flensburg í kvöld. Handbolti 16. desember 2015 19:43
Holland og Pólland áfram í undanúrslit á HM í Danmörku Holland og Pólland tryggðu sér í dag sæti í undanúrslitum á HM kvenna í handbolta í Danmörku. Handbolti 16. desember 2015 19:14