Gleður norsku þjóðina fyrir hver jól Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. desember 2015 06:00 Þórir hefur náð frábærum árangri með norska landsliðið. vísir/epa
Þórir Hergeirsson er enn á ný búinn að koma kvennalandsliði Noregs í handbolta í undanúrslit á stórmóti en norsku stelpurnar unnu Svartfjallaland í átta liða úrslitunum og mæta Rúmeníu í undanúrslitum í kvöld. Þetta er í sjöunda sinn á átta stórmótum liðsins undir hans stjórn sem norsku stelpurnar spila um verðlaun og það eru góðar líkur á því að fimmta gullið sé á leiðinni. Norska kvennalandsliðið er sannur gleðigjafi fyrir norsku þjóðin fyrir jól og það hefur nánast hægt verið að treysta á það undanfarin ár að norsku stelpurnar spili og fagni sigrum í jólamánuðinum. Norska liðið þykir nú afar sigurstranglegt á mótinu enda margir á því að leikurinn við Svartfjallaland hafi verið hálfgerður úrslitaleikur á mótinu. Ofan á það bætist að dönsku stelpurnar töpuðu fyrir Rúmeníu í framlengingu í átta liða úrslitunum og rússneska liðið datt út á móti Póllandi. Rússarnir unnu einmitt norska liðið í fyrsta leik en síðan þá hafa stelpurnar hans Þóris unnið sex leiki í röð á mótinu. Þórir var enginn nýgræðingur þegar hann tók við norska landsliðinu af Marit Breivik árið 2009. Þórir hafði aðstoðað Marit Breivik í átta ár og átt mikinn þátt í fjórum gullverðlaunum og þremur silfurverðlaunum norska liðsins á þeim tíma. Þórir á því mikið í þeim ótrúlega árangri norska liðsins að vera að spila um verðlaun í ellefta sinn á síðustu tólf stórmótum.fréttablaðiðTap í fyrsta leik boðar gott Tapið í fyrsta leik á móti Rússum var í þriðja sinn sem norska liðið hefur tapað fyrsta leik á stórmóti síðan Þórir tók við og það ætti bara að boða gott því í bæði hin skiptin, á HM 2011 og ÓL 2012, fagnaði Þórir og stelpurnar með gullið um hálsinn í mótslok. Norska liðið vann líka sinn 50. stórmótaleik undir stjórn Þóris á þessum HM en sá sigur kom einmitt á móti Rúmeníu í riðlakeppninni, mótherjunum í undanúrslitunum í kvöld. Rúmenska liðið vann bara Púertó Ríkó og Kasakstan í riðlakeppninni en er búið að slá út Danmörku í útsláttarkeppninni. Þetta er þegar orðinn besti árangur Rúmenanna á HM undanfarin 42 ár en rúmensku stelpurnar hafa fjórum sinnum orðið í fjórða sæti á þessum tíma.Sex úrslitaleikir á sex árum? Nú er að sjá hvort þær rúmensku haldi áfram að koma á óvart á heimsmeistaramótinu en flestir veðja þó á það að Þórir komi liðinu í sjötta úrslitaleikinn á sex árum. Vinni þær norsku leikinn í kvöld bíður liðsins úrslitaleikur á móti annaðhvort Póllandi eða Hollandi á sunnudaginn.
Handbolti Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Fótbolti Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Fótbolti „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Fótbolti Söguleg niðurlæging í Króatíu Fótbolti Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Körfubolti Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Baldur Fritz markahæstur í sigri Kristianstad Haukur náði að hefna sín á Reyni Þór Sjá meira