Aron búinn að semja í Svíþjóð Aron Bjarnason er genginn til liðs við sænska úrvalsdeildarliðið Sirius, þangað sem hann var keyptur frá ungverska úrvalsdeildarliðinu Újpest. Fótbolti 7. febrúar 2021 07:01
Dagskráin í dag - Orrustan um Ofurskálina Úrslitin ráðast í ameríska fótboltanum þegar Tom Brady og félagar taka á móti Patrick Mahomes og félögum. Sport 7. febrúar 2021 06:02
Moyes æfur í leikslok: VAR til skammar VAR myndbandadómgæslan var í sviðsljósinu í markalausu jafntefli Fulham og West Ham í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Enski boltinn 6. febrúar 2021 23:00
Solskjær: Þrjár marktilraunir og þrjú mörk Ole Gunnar Solskjær, stjóri Man Utd, var vonsvikinn eftir að hafa séð sína menn glutra niður forystu í tvígang í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Enski boltinn 6. febrúar 2021 22:39
Sex marka jafntefli á Old Trafford Everton tryggði sér stig með síðustu spyrnu leiksins þegar liðið heimsótti Manchester United á Old Trafford í kvöld. Enski boltinn 6. febrúar 2021 22:00
Markalaust í nágrannaslagnum Ekkert mark var skorað þegar Lundúnarliðin West Ham United og Fulham áttust við í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Enski boltinn 6. febrúar 2021 19:26
Ronaldo með mark í öruggum sigri á Rómverjum Ítölsku meistararnir í Juventus áttu ekki í teljandi erfiðleikum með AS Roma þegar liðin áttust við í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld. Fótbolti 6. febrúar 2021 19:04
Daníel Hafsteinsson snýr aftur heim Daníel Hafsteinsson er genginn til liðs við uppeldisfélag sitt, KA, frá sænska úrvalsdeildarliðinu Helsingborg. Íslenski boltinn 6. febrúar 2021 18:19
Valsarar Reykjavíkurmeistarar eftir vítaspyrnukeppni Íslandsmeistarar Vals bættu við sig meistaratitli í dag þegar liðið varð Reykjavíkurmeistari eftir sigur á Fylki í vítaspyrnukeppni en leikið var í Árbænum. Íslenski boltinn 6. febrúar 2021 17:31
Jón Daði lagði upp mark í öruggum sigri Íslenski landsliðsmaðurinn Jón Daði Böðvarsson var í byrjunarliði Millwall þegar liðið tók á móti Sheffield Wednesday í ensku B-deildinni í fótbolta í dag. Fótbolti 6. febrúar 2021 17:20
Varane hetja Madrid gegn Huesca Raphaël Varane skoraði bæði mörk Real Madrid er liðið vann nauman 2-1 útisigur á Huesca í spænsku úrvalsdeildinni í dag. Fótbolti 6. febrúar 2021 17:10
Jóhann Berg tryggði Burnley stig og níu menn Newcastle héldu út Jóhann Berg Guðmundsson skoraði eina mark Burnley í 1-1 jafntefli gegn Brighton & Hove Albion í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Þá vann Newcastle United 3-2 sigur á Southampton. Enski boltinn 6. febrúar 2021 17:00
Mikilvægur sigur hjá Lyon á meðan hvorki gengur né rekur hjá Le Havre Sara Björk Gunnarsdóttir og Anna Björk Kristjánsdóttir voru í eldlínunni í frönsku úrvalsdeildinni í dag. Sara Björk lék allan leikinn á miðju Lyon er liðið vann 2-1 sigur á Montpellier. Anna Björk var í miðverði Le Havre sem tapaði enn einum leiknum. Fótbolti 6. febrúar 2021 16:11
Mikilvægur sigur hjá Alberti og félögum á meðan Guðlaugur Victor mátti þola súrt tap Albert Guðmundsson og AZ Alkmaar vann mikilvægan sigur í Evrópubaráttunni í Hollandi. Á sama tíma eru Guðlaugur Victor Pálsson og samherjar hans í Darmstadt að sogast niður í fallbaráttu þýsku B-deildarinnar. Fótbolti 6. febrúar 2021 15:15
Selfoss heldur áfram að sækja leikmenn Selfoss hefur styrkt sig enn frekar fyrir komandi átök í Pepsi Max deild kvenna í knattspyrnu næsta sumar. Í dag var staðfest að félagið hefði samið við Evu Núru Abrahamsdóttur um að leika með liðinu næsta sumar. Íslenski boltinn 6. febrúar 2021 15:00
Slæmt gengi Arsenal heldur áfram Aston Villa lagði Arsenal 1-0 í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Arsenal hefur nú leikið þrjá leiki í röð án sigurs á meðan Villa hefur nú unnið þrjá af síðustu fimm. Enski boltinn 6. febrúar 2021 14:25
Ramos á leið undir hnífinn Sergio Ramos þarf að fara í aðgerð á hné og mun vera frá í sjö vikur hið minnsta. Fótbolti 6. febrúar 2021 12:15
„Alltaf stefnan að keppa og reyna vinna alla titla“ „Það leggst bara rosalega vel í mig, þetta er virkilega spennandi verkefni,“ sagði Vilhjálmur Kári Haraldsson, nýráðinn þjálfari Íslandsmeistara Breiðabliks í knattspyrnu í viðtali við Vísi í gær. Íslenski boltinn 6. febrúar 2021 11:00
Samherji Arons og Sveins þurfti að biðjast afsökunar á ummælum um þjálfarann Mads Frøkjær, leikmaður danska úrvalsdeildarliðið OB, hefur nú beðist afsökunar á ummælum sínum um þjálfara liðsins Jakob Michaelsen. Viðtalið sem Mads fór í við Fyens Stifstidende vakti athygli og nú hefur hann beðið afsökunar. Fótbolti 6. febrúar 2021 09:01
Segir að Liverpool myndi sætta sig við að enda í topp fjórum Jamie Carragher, fyrrum varnarmaður Liverpool og nú spekingur hjá sjónvarpsstöðinni Sky Sports, segir að félagið þurfi nú að horfa í að ná einum fjórum efstu sætunum, en ekki bara ða verja titilinn. Enski boltinn 6. febrúar 2021 08:00
„Ekkert sjálfstraust, enginn karakter og enginn leiðtogi“ Rio Ferdinand, fyrrum fyrirliði Manchester United, var ekki brosmildur er hann ræddi um frammistöðu Tottenham gegn Chelsea í gærkvöldi. Leiknum lauk með 1-0 sigri Chelsea. Enski boltinn 6. febrúar 2021 07:00
Breiðablik fór illa með ÍA Breiðablik er Fótbolti.net meistari árið 2021. Blikarnir unnu ÍA 5-1 í úrslitaleiknum á Kópavogsvelli í kvöld eftir að hafa komist í 3-0 á fyrstu þrettán mínútunum. Íslenski boltinn 5. febrúar 2021 21:52
Inter á toppinn Inter Milan er komið á topp ítölsku úrvalsdeildarinnar eftir 2-0 sigur á Fiorentina í kvöld. Sigurinn kemur Inter einum stigi fram úr grönnunum í AC. Fótbolti 5. febrúar 2021 21:41
Valur Reykjavíkurmeistari Valur er Reykjavíkurmeistari kvenna í knattspyrnu eftir 2-0 sigur á Fylki í úrslitaleiknum. Leikið var á Origo vellinum að Hlíðarenda í kvöld. Íslenski boltinn 5. febrúar 2021 21:10
Bayern vann í snjónum í Berlín Bayern München er með tíu stiga forskot á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir 1-0 sigur á Herthu Berlín í höfuðborg Þýskalands í kvöld. Fótbolti 5. febrúar 2021 21:00
Messi hefur ekki sett sig í samband við City eða PSG og ætlar að bíða fram á sumar Síðasta sumar var mikið rætt um hvar Lionel Messi myndi spila á leiktíðinni sem nú er í gangi. Útlit er fyrir það að næsta sumar verði svipað og í ár; mikið rætt og ritað um framtíð Argentínumannsins. Fótbolti 5. febrúar 2021 19:01
Mourinho sendi dómaranum væna sneið Jose Mourinho, stjóri Tottenham, var ekki yfirsig hrifinn af frammistöðu Andre Marriner dómara í leik Tottenham og Chelsea í gærkvöldi. Enski boltinn 5. febrúar 2021 18:30
Gylfi og félagar þurfa að spila gegn City þremur dögum fyrir grannaslaginn Leikur Everton og Manchester City, sem var frestað í desember, verður leikinn sautjánda febrúar. Það verður því ansi stutt á milli stórleikja hjá báðum liðum í febrúar. Enski boltinn 5. febrúar 2021 18:00
RÚV mun sýna úrslitamót EM karla og kvenna í knattspyrnu RÚV hefur tryggt sér sýningarréttinn á úrslitamótum Evrópukeppni (EM) karla í knattspyrnu árin 2024 og 2028. Evrópumótið 2024 verður haldið í Þýskalandi en ekki hefur verið ákveðið hvar mótið verður haldið 2028. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ríkisútvarpinu. Viðskipti innlent 5. febrúar 2021 17:42
Í beinni: Juventus - Roma | Gamla konan tekur á móti Rómverjum Liðin í 3. og 4. sæti ítölsku úrvalsdeildinni eigast við á Allianz vellinum í Tórínó. Fótbolti 5. febrúar 2021 16:51