FH, Aftureldingu, ÍBV og Fram spáð upp í úrvalsdeildirnar Keppni í Lengjudeildum karla og kvenna í fótbolta hefst á morgun. Samkvæmt spá komast FH og Afturelding upp í Pepsi Max-deild kvenna en ÍBV og Fram upp í Pepsi Max-deild karla. Fótbolti 5. maí 2021 13:01
„Þurfti nánast að slá mig utan undir í morgun“ „Fólk er mjög áhugasamt og spennt, sem er alveg geggjað, og hópurinn er líka rosalega spenntur en á mjög jákvæðan hátt. Við erum öll einbeitt á verkefnið,“ segir Skagfirðingurinn Bryndís Rut Haraldsdóttir, fyrirliði Tindastóls. Í kvöld spilar liðið sinn fyrsta leik í efstu deild í fótbolta. Íslenski boltinn 5. maí 2021 12:30
„Allir að tala um að krossbandið væri slitið og ég var ótrúlega stressuð“ „Allir sem sáu vídjóið virtust vissir um að krossbandið hefði slitnað og það sögðu líka læknar hérna í Svíþjóð. Þetta leit því ekki vel út fyrir mig,“ segir Sveindís Jane Jónsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, sem verður frá keppni vegna meiðsla næstu sex vikurnar. Fótbolti 5. maí 2021 11:01
Með nýja rómverska keisarann á forsíðunni Það er óhætt að segja það að Jose Mourinho eigi forsíðurnar á ítölsku blöðunum í dag. Fótbolti 5. maí 2021 10:31
Þekktustu leikmenn sem rekið hefur á íslenskar fótboltafjörur Vísir fer yfir þekktustu erlendu fótboltamennina sem hafa spilað á Íslandi. Þar má meðal annars finna fyrrverandi leikmenn Liverpool og Manchester United. Íslenski boltinn 5. maí 2021 10:00
Óvenju fljótar heim með stigin úr Eyjum Þór/KA varð fyrsta liðið til að fagna sigri í Pepsi Max deild kvenna í sumar þegar liðið vann 2-1 sigur á ÍBV í Vestmanneyjum í gærkvöldi. Íslenski boltinn 5. maí 2021 09:31
Eigandi Man. United neitaði að biðjast afsökunar á Ofurdeildinni Avram Glazer, eigandi Manchester United, gæti mögulega hafa hent olíu á eldinn í deilum Glazer fjölskyldunnar við stuðningsmenn félagsins. Nóg er nú hittinn í stuðningsfólkinu fyrir. Enski boltinn 5. maí 2021 09:01
Herrera og Verratti: Dómarinn sagði „f****** þér“ við leikmenn PSG Paris Saint-Germain leikmennirnir Ander Herrera og Marco Verratti voru allt annað en sáttir með hegðun hollenska dómarans Bjorn Kuipers gagnvart sér í tapleiknum á móti Manchester City í gærkvöldi. Fótbolti 5. maí 2021 08:01
Sagan með Manchester City í liði Manchester City komst í kvöld í fyrsta skipti í sögunni í úrslit Meistaradeildar Evrópu. Ef marka má gengi liðsins á tímabilinu til þessa ætti úrslitaleikurinn að vera gönguferð í garðinum. Ef marka má söguna allavega. Fótbolti 4. maí 2021 23:46
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Breiðablik - Fylkir 9-0 | Meistararnir sýndu fram á geigvænlegan mun Íslandsmeistarar Breiðabliks unnu risasigur á Fylki, 9-0, í fyrstu umferð Pepsi Max-deildar kvenna í fótbolta á Kópavogsvelli í kvöld. Íslenski boltinn 4. maí 2021 22:32
Andri Hjörvar: Mark Huldu lyfti liðinu ,,Ég er alveg fáránlega ánægður," sagði Andri Hjörvar Albertsson, þjálfari Þórs/KA eftir leik. Íslenski boltinn 4. maí 2021 22:01
„Þær fóru ekki eftir neinum fyrirmælum“ „Þetta var slæmt tap en líklegast lærdómsríkt. Við gerðum ansi mörg mistök sem að maður vill ekki sjá,“ sagði Kjartan Stefánsson, þjálfari Fylkis, eftir ótrúlegt 9-0 tap liðsins gegn Breiðabliki í fyrstu umferð Pepsi Max-deildar kvenna í fótbolta í kvöld. Íslenski boltinn 4. maí 2021 21:45
Ætluðu ekki að beita skyndisóknum en tryggðu sér sæti í úrslitum þökk sé þeim Riyad Mahrez var hetja Manchester City í einvígi liðsins gegn París Saint-Germain í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Alsíringurinn skoraði þrjú af fjórum mörkum City, þar á meðal bæði mörkin í 2-0 sigri kvöldsins. Fótbolti 4. maí 2021 21:30
Magnaður Mahrez skaut City í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu Manchester City vann 2-0 sigur á París-Saint Germain í síðari leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Man City vann einvígið þar með 4-1 og er komið í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Fótbolti 4. maí 2021 20:55
Á 181 leik að baki í ensku úrvalsdeildinni og 25 A-landsleiki en spilar með Þrótti Vogum í sumar Marc Wilson mun spila með Þrótt Vogum í 2. deild karla í knattspyrnu í sumar ásamt því að vera í þjálfarateymi liðsins. Þróttur gaf út tilkynningu þess efnis í gærkvöld. Íslenski boltinn 4. maí 2021 20:35
Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Þór/KA 1-2 | Karen María tryggði gestunum sigur Boltinn fór loksins að rúlla aftur í Pepsi Max deild kvenna þegar ÍBV tók á móti Þór/KA í Vestmannaeyjum í kvöld. Fór það svo að gestirnir unnu 2-1 sigur. Íslenski boltinn 4. maí 2021 20:30
Berglind í Árbæinn og Guðný á Suðurlandið Fylkir og Selfoss hafa sótt liðsstyrk stundarfjórðungi áður en Pepsi Max-deild kvenna fer af stað. Íslenski boltinn 4. maí 2021 18:01
Gareth Bale skorar örast allra í ensku úrvalsdeildinni Það hafa liðið fæstar mínútur á milli marka Gareth Bale heldur en hjá öllum öðrum leikmönnum í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. Enski boltinn 4. maí 2021 15:31
Birkir skoraði í þriðja leiknum í röð Íslenski landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason er heldur betur á skotskónum þessa dagana með ítalska liðinu Brescia. Fótbolti 4. maí 2021 13:54
Þegar Mbappé sagði hæ við heiminn á Etihad Kylian Mbappé mætir í kvöld á völlinn þar sem hann skoraði sitt fyrsta Meistaradeildarmark á ferlinum, Etihad, og kynnti sig almennilega fyrir fótboltaheiminum. Fótbolti 4. maí 2021 13:30
Mourinho tekur við Roma José Mourinho hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Roma. Portúgalinn tekur við liðinu í sumar af landa sínum, Paulo Fonseca. Fótbolti 4. maí 2021 13:16
Guardiola: Ég mun ekki segja eitt orð um PSG við leikmennina mína Leikmenn Manchester City eiga að einbeita að sér sjálfum en ekki mótherjunum í Paris Saint-Germain í undanúrslitaleik liðanna í Meistaradeildinni í kvöld. Enski boltinn 4. maí 2021 12:30
Messi bauð öllu Barcelona liðinu í mat heim til sín Barcelona og Atletico Madrid mætast um næstu helgi og Börsungar komast upp fyrir Atletico með sigri á Nývangi. Fótbolti 4. maí 2021 11:31
Merk tímamót á Króknum: „Höfum hingað til alltaf náð að afsanna spár“ Á morgun rennur upp merkur dagur í íþróttasögu Skagafjarðar þegar Tindastóll spilar sinn fyrsta leik í efstu deild í fótbolta. Tindastólskonur eiga hins vegar erfitt sumar fyrir höndum og er spáð botnsætinu í Pepsi Max-deildinni. Íslenski boltinn 4. maí 2021 11:01
Grétar bróðir þakklátur fyrir óvænt tækifæri hjá KR Grétar Snær Gunnarsson lék vel í miðri vörn KR þegar liðið vann Breiðablik, 0-2, á Kópavogsvelli í 1. umferð Pepsi Max-deildar karla á sunnudaginn. Hann kann einkar vel við sig í KR og ætlar að nýta tækifærið, sem kom nokkuð óvænt, til hins ítrasta eftir að hafa verið á flakki í nokkur ár. Íslenski boltinn 4. maí 2021 10:32
Spá um 1. og 2. sæti í Pepsi Max kvenna: Valdaskipti á toppnum Keppni í Pepsi Max-deild kvenna í fótbolta hefst í kvöld með tveimur leikjum. Í fimmta og síðasta hluta spár íþróttadeildar Vísis og Stöðvar 2 Sports fyrir tímabilið er komið að liðunum sem munu berjast um Íslandsmeistaratitilinn. Íslenski boltinn 4. maí 2021 10:00
Með yfir 100 leiki í ensku úrvalsdeildinni og spilar með Fram í sumar Danny Guthrie, fyrrverandi leikmaður Newcastle og fleiri liða, er búinn að semja við knattspyrnudeild Fram um að leika með liðinu í Lengjudeildinni í sumar. Íslenski boltinn 4. maí 2021 09:51
„Við ætlum ekki að skrifa þetta á Covid“ Það er ekki allt kórónuveirunni að kenna. Leikmenn í Pepsi Max deild karla þurfa bara að hrista úr sér hrollinn og fara að skora einhver mörk. Íslenski boltinn 4. maí 2021 08:00
„Áhyggjufullur“ yfir heilsu Mbappe Óvíst er hvort að Kylian Mbappe, stórstjarna PSG, verði klár í slaginn er liðið mætir Manchester City í undanúrslitum Meistaradeildarinnar annað kvöld. Fótbolti 3. maí 2021 23:01
West Ham þremur stigum frá Meistaradeildarsæti West Ham vann góðan 2-1 útisigur á Burnley er liðin mættust í síðasta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Enski boltinn 3. maí 2021 21:06