Van Dijk eltir met fyrrum leikmanns Grindavíkur Hollenski miðvörðurinn Virgil van Dijk hefur átt góðu gengi að fagna frá því að hann gekk í raðir Liverpool frá Southampton árið 2018. Hann á enn eftir að tapa heimaleik með liðinu. Fótbolti 23. ágúst 2021 22:31
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Fylkir 2-0 | Garðbæingar unnu fallslaginn Stjarnan steig stórt skref frá fallsvæðinu í Pepsi Max-deild karla í fótbolta með 2-0 heimasigri á Fylki í kvöld. Fylkismenn eru í bráðri hættu eftir að hafa leikið sex leiki í röð án sigurs. Íslenski boltinn 23. ágúst 2021 22:10
Sama sagan hjá Skyttunum Breskir fjölmiðlar greina frá því að Gaboninn Pierre-Emerick Aubameyang, fyrirliði Arsenal, sé til sölu. Stjórnendur liðsins hyggist losa hann af launaskrá áður en yfirstandandi félagsskiptagluggi lokar eftir rúma viku. Fótbolti 23. ágúst 2021 22:00
„Þetta var góður vinnusigur hjá okkur og við spiluðum vel“ Stjörnumenn unnu 2-0 sigur á Fylki í Pepsi-Max deild karla á heimavelli í Garðabænum í kvöld. Þorvarldur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, var léttur í leikslok. Íslenski boltinn 23. ágúst 2021 21:50
Umfjöllun og viðtöl: Þróttur R. - Þór/KA 1-0 | Þróttarar sigruðu í kaflaskiptum leik Þróttur og KA/Þór mættust í 15. umferð Pepsi Max deildar kvenna á Eimskipsvellinum í kvöld. Kaflaskiptur leikur þar sem bæði lið skiptust á að taka frumkvæði. Þróttur kom sér yfir um miðbik seinni hálfleiks og lokatölur því 1-0. Íslenski boltinn 23. ágúst 2021 21:28
Umfjöllun og viðtöl: Leiknir R. - HK 0-0 | Markalaust í Breiðholti Það var mikið í húfi fyrir gestina úr Kópavogi þegar þeir mættu nýliðum Leiknis á Domusnovavellinum.Markmenn beggja liða voru á tánum í leiknum og átti þeir báðir góðan leik. Í fyrri hálfleik átti Arnar Freyr Ólafsson frábæra markvörslu þegar hann varði skalla frá Sóloni Breka.Í seinni hálfleik varði Guy Smit þrumu skot frá Ívari Erni Jónssyni. Liðin fóru síðan bæði að skjóta boltanum langt fram sem lukkaðist ekki og 0-0 jafntefli niðurstaðan. Íslenski boltinn 23. ágúst 2021 21:12
Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - ÍBV 6-2 | Stórsigur Selfoss í Suðurlandsslagnum Selfoss vann öruggan 6-2 sigur á ÍBV í slagnum um Suðurlandið á Selfossi í Pepsi Max-deild kvenna í fótbolta í kvöld. Selfoss heldur í við Þrótt í baráttunni um þriðja sæti deildarinnar með sigrinum. Íslenski boltinn 23. ágúst 2021 21:07
Nik Chamberlain: Við spiluðum mjög vel og pressuðum vel Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar, var sáttur með baráttusigur sinna kvenna er þær tóku á móti Þór/KA í 15. umferð Pepsi Max deildar kvenna í kvöld. Kaflaskiptur leikur sem endaði með eins marks sigri Þróttar, 1-0. Fótbolti 23. ágúst 2021 20:58
Antonio í stuði er West Ham vann tíu leikmenn Leicester West Ham United vann 4-1 heimasigur á Leicester City í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í Lundúnum í kvöld. Leicester lék allan síðari hálfleikinn einum manni færri. Enski boltinn 23. ágúst 2021 20:55
AC Milan byrjar á sigri án Zlatans AC Milan vann 1-0 útisigur á Sampdoria í fyrstu umferð ítölsku A-deildarinnar í fótbolta í kvöld. Sigurmarkið kom snemma leiks. Fótbolti 23. ágúst 2021 20:45
Birkir: Við erum bara í bullandi fallbaráttu Birkir Hlynsson, aðstoðarþjálfari ÍBV, stýrði liðinu gegn Selfyssingum í kvöld. Hann var ósáttur með leik liðsins í en ÍBV tapaði 6-2. Hann segir liðið vera í bullandi fallbaráttu. Íslenski boltinn 23. ágúst 2021 20:35
Leiknir voru með flest alla sína leikmenn fyrir aftan miðju í seinni hálfleik HK sótti stig á Domusnovavellinum gegn Leikni. Fyriliði HK Leifur Andri Leifsson var ánægður með að liðið hélt hreinu en var svekktur að ná ekki inn einu marki. Sport 23. ágúst 2021 20:34
„Þetta er svolítið glórulaust hjá mér“ „Þetta gerðist svo fljótt að það eina sem mér datt í hug var að henda hausnum fyrir þetta. sagði Sölvi Geir Ottesen, varnarmaður Víkings, um björgun sína á marklínu með höfðinu er lið hans vann Val 2-1 í toppslag í Pepsi Max-deild karla í fótbolta í gær. Sölvi Geir segist ætla að hætta eftir tímabilið og vill kveðja með Íslandsmeistaratitli. Íslenski boltinn 23. ágúst 2021 19:00
Undrabarnið loks farið í frí eftir að spila á EM og Ólympíuleikunum Hinn 18 ára gamli Pedri spilaði stóra rullu hjá Barcelona á síðustu leiktíð. Þrátt fyrir ungan aldur var hann í stóru hlutverki hjá liðinu ásamt því að taka þátt á lokakeppni EM U-21 árs landsliða í mars. Fótbolti 23. ágúst 2021 17:46
Dómari féll á kné eftir að hafa gert mistök Kostulegt atvik átti sér stað í leik Vendsyssel og Fredericia í dönsku B-deildinni í knattspyrnu um helgina. Dómari leiksins áttaði sig þá á mistökum sem hann gerði og féll á kné sér áður en hann baðst afsökunar. Fótbolti 23. ágúst 2021 16:30
Ensku félögin hvergi hætt: Tottenham og Chelsea stefna á að bæta við sig Þó enska úrvalsdeildin sé farin af stað á nýjan leik og mörg lið virðast sátt með leikmannahópa sína þá eru önnur enn að leita að týnda hlekknum til að tryggja gott gengi í vetur. Enski boltinn 23. ágúst 2021 16:00
Gunnar og Kaj Leo í landsliðshópi Færeyja Gunnar Nielsen, markvörður FH, og Kaj Leo í Bartalsstovu, vængmaður Íslandsmeistara Vals, hafa verið valdir í færeyska landsliðið sem mun spila þrjá leiki í undankeppni HM 2022 í upphafi næsta mánaðar. Fótbolti 23. ágúst 2021 15:01
Ekki háskaleikur hjá Sölva: „Held að maður hefði alltaf leyst þetta eins“ Þóroddur Hjaltalín, formaður dómaranefndar KSÍ, telur að ekki hafi verið um háskaleik að ræða þegar Sölvi Geir Ottesen bjargaði á línu í leik Víkings og Vals í Pepsi Max-deild karla í gær. Íslenski boltinn 23. ágúst 2021 13:59
ÍTF vill fleiri en tvö hundruð í hverju hólfi og grímurnar burt Íslenskur toppfótbolti, hagsmunasamtök félaganna í efstu tveimur deildum karla og kvenna, telur rétt að endurskoða reglur um sóttvarnir á kappleikjum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá samtökunum. Íslenski boltinn 23. ágúst 2021 13:30
Erlingur fann fyrir óþægindum og var tekinn af velli Erlingur Agnarsson, leikmaður Víkings, var tekinn af velli í fyrri hálfleik á 2-1 sigri á Íslandsmeisturum Vals í gær. Erlingur og Haukur Páll Sigurðsson skullu saman með þeim afleiðingum að Erlingur þurfti að yfirgefa völlinn snemma leiks. Íslenski boltinn 23. ágúst 2021 13:00
Með för á hálsinum eftir stuðningsmenn Nice Upp úr sauð þegar Nice og Marseille áttust við í frönsku úrvalsdeildinni í gær. Átök brutust út á milli leikmanna og stuðningsmanna eftir að flösku var kastað í Dimitri Payet. Fótbolti 23. ágúst 2021 12:31
Reiðir stuðningsmenn Arsenal umkringdu bíl Artetas og sögðu honum til syndanna Eftir tap Arsenal fyrir Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í gær umkringdu reiðir stuðningsmenn liðsins bíl knattspyrnustjórans Mikels Arteta. Enski boltinn 23. ágúst 2021 12:01
Solskjær: Getum ekki farið úr körfubolta í ruðning Ole Gunnar Solskjær, knattspyrnustjóra Manchester United, finnst dómarar í ensku úrvalsdeildinni leyfa full mikið miðað við síðasta tímabil. Enski boltinn 23. ágúst 2021 11:30
Um ótrúlega björgun Sölva Geirs: Talandi um að vera stríðsmaður og fórna sér fyrir málstaðinn Sölvi Geir Ottesen, fyrirliði Víkinga, var óvænt í stöðu hægri bakvarðar í stórleik Víkings og Vals í Pepsi Max deild karla. Þessi 37 ára gamli leysti það verkefni óaðfinnanlega að mati Reynis Leóssonar, sérfræðings Pepsi Max Stúkunnar. Íslenski boltinn 23. ágúst 2021 09:45
Andri Fannar í danska stórveldið Landsliðsmaðurinn ungi Andri Fannar Baldursson er genginn í raðir danska stórliðsins FC Köbenhavn. Hann kemur til félagsins að láni frá Bologna á Ítalíu. Fótbolti 23. ágúst 2021 09:21
Landsliðsfyrirliðinn með veiruna Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í fótbolta, er með kórónuveiruna. Stutt er í næstu leiki landsliðsins sem verða í undankeppni HM 2022. Óvíst er hvort þetta hafi áhrif á komandi verkefni. Fótbolti 23. ágúst 2021 09:20
Stoltur og „ligeglad“ Ísak Óli spenntur fyrir framhaldinu þrátt fyrir undarlegar fyrstu vikur hjá Esbjerg Ísak Óli Ólafsson, miðvörður danska knattspyrnuliðsins Esbjerg, hefur staðið í ströngu í ár. Hann hóf það í frystinum hjá SønderjyskE, fór á EM U-21 árs landsliða, lék sinn fyrsta A-landsleik, spilaði með uppeldisfélaginu Keflavík, fór til Esbjerg og nokkrum vikum síðar sagði þjálfarinn upp sem sótti hann til félagsins. Fótbolti 23. ágúst 2021 09:00
Sjáðu mörkin er Víkingur jafnaði Val að stigum á toppi deildarinnar Víkingur lagði Íslandsmeistara Val 2-1 í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu í gærkvöld. Valsarar voru heppnir að tapa með aðeins einu marki og halda í toppsætið sem stendur þökk sé markatölu. Hér að neðan má sjá mörkin þrjú sem skoruð voru. Íslenski boltinn 23. ágúst 2021 08:01
Manchester United jafnaði útivallarmet Arsenal um helgina Manchester United gerði 1-1 jafntefli við Southampton á St. Mary´s-vellinum um helgina er liðin mættust í 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Með því jafnaði liðið met Arsenal yfir flesta leiki í röð á útivelli án þess að bíða ósigurs. Enski boltinn 23. ágúst 2021 07:30
Leik Nice og Marseille frestað eftir að Payet kastaði flösku upp í stúku Það var allt á suðupunkti þegar að Nice tók á móti Marseille í frönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Hætta þurfti leik þegar að stuðningsmenn ruddust inn á völlinn eftir að Dimitri Payet, leikmaður Marseille, fékk flösku í bakið og kastaði henni aftur upp í stúku. Fótbolti 23. ágúst 2021 07:01