

Eurovision
Fréttir af framlagi Íslendinga og annarra þjóða í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva.

Eurovision staðreyndir sem skipta öllu og engu máli
Laugardagskvöldið 22. maí verður krýndur nýr sigurvegari í Eurovision. Framlag Íslands er meðal þeirra sigurstranglegustu ef marka má veðbanka. Hvað nú verður, veit nú enginn, vandi er um slíkt að spá.

Ætlaði út að hlaupa og taka daginn rólega
Sá sem greindist með kórónuveiruna í íslenska Eurovision-hópnum hefur ekki hugmynd um hvernig hann smitaðist, að sögn fararstjóra hópsins. Viðkomandi hafi ætlað út að hlaupa og taka daginn rólega á meðan aðrir í hópnum færu á opnunarhátíð Eurovision - en af því varð vitanlega ekki.

Við hestaheilsu og vonast til að geta stigið á svið
Daði Freyr og félagar hans í Gagnamagninu eru á leið á hótel íslenska hópsins í Rotterdam í Hollandi eftir að hafa farið í sýnatöku vegna Covid-19. Einstaklingur í íslenska teyminu greindist með Covid-19 í dag og var hópurinn af þeim sökum allur sendur rakleiðis í sýnatöku.

Svona var Blái dregillinn án Daða og Gagnamagnsins
Ekkert verður af því að íslenski Eurovision-hópurinn gangi rauða dregilinn í Rotterdam sem að þessu sinni er reyndar blár að lit.

Meðlimur íslenska Eurovision-hópsins með Covid
Meðlimur íslenska Eurovision-hópsins greindist með kórónuveiruna í Rotterdam í Hollandi í dag, þar sem keppnin fer fram. Þetta kemur fram í tilkynningu frá EBU, Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva.

Ítalska rokkið þykir líklegast til sigurs í Eurovision
Framlag Ítalíu til Eurovision þykir líklegast til að standa uppi sem sigurvegari laugardagskvöldið 22. maí eftir sviptingar hjá veðbönkum. Framlag Íslands er áfram talið fjórða líklegasta lagið til að fara með sigur.

Smit greindist í pólska hópnum
Meðlimur í pólska hópnum á Eurovision í Rotterdam greindist smitaður af Covid-19 í dag. Sá hafði síðast verið í Ahoy-höllinni þar sem keppnin fer fram á fimmtudaginn og þá hafði enginn í hópnum greinst smitaður.

Daði með lag vikunnar á BBC
Daði Freyr fær þann heiður að vera með lag vikunnar á BBC Radio 1.

Sænski tónlistarmaðurinn Svante Thuresson látinn
Sænski djasstónlistarmaðurinn Svante Thuresson er fallinn frá, 84 ára að aldri. Hann lést fyrr í vikunni eftir langvinn veikindi.

Sótti sjaldséð þrjú íslensk stig á Parken
Einar Bárðarson, oft titlaður umboðsmaður Íslands, stendur á tímamótum. Tuttugu ár eru liðin síðan hann vaknaði á hóteli í Kaupmannahöfn og verkefni dagsins var ekki spennandi. Lag hans Angel hafði hafnað í næst seinasta sæti í Eurovision, uppskorið þrjú stig, og Einar vaknaður fyrir allar aldir.

Daði mun standa grafkyrr og þögull síðustu fimmtán sekúndurnar
Daði Freyr og Gagnamagnið munu koma fram á seinna undankvöldinu í Eurovision þann 20. maí og flytja lagið 10 Years.

Óborganleg mistök í Eurovision
Eurovision hefst í næstu viku en fyrra undankvöldið verður 18. maí og það síðara þann 20. maí og þá stígur Daði Freyr og Gagnamagnið á sviðið í Rotterdam og flytja lagið 10 Years.

Sigurlíkur Íslands aukast eftir æfinguna
Svo virðist sem sigurlíkur Daða og Gagnamagnsins í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, séu meiri í dag en í gær. Veðbankar hafa að undanförnu talið sveitina þá sjöttu líklegustu til sigurs, en nú hefur sveitin, með lagið 10 Years, skotist upp í það fjórða.

„12 stiga frammistaða hjá Daða“
Nú er fyrsta æfingin hjá íslensk Eurovision-hópnum í Rotterdam yfirstaðinn og gekk hún vel í Ahoy-höllinni.

Daði og Árný fara yfir það hvernig þau gerðu vélmennin og búningana
Þann 20. maí stígur Daði Freyr ásamt Gagnamagninu á sviðið í Ahoy-höllinni í Rotterdam og flytja þau lagið 10 Years fyrir Íslands hönd í Eurovision.

Búa sig undir fyrstu æfinguna í algerum Covid-hliðarveruleika
Gísli Marteinn Baldursson sjónvarpsmaður hefur heimild til þess að vera á tveimur stöðum í Rotterdam í Hollandi, þangað sem hann kom í gær ásamt íslenska Eurovision-hópnum.

Fulltrúar Íslands flognir af stað
Fulltrúar Íslands í Eurovision í ár héldu af stað út á flugvöll úr útvarpshúsinu í Efstaleiti snemma í morgun, þaðan sem þeir flugu af stað til Rotterdam.

Stigin kynnt af Jaja ding dong-aðdáandanum
Olaf Yohansson mun kynna stigin fyrir Íslands hönd í úrslitum Eurovision söngvakeppninnar í ár. Úrslitin fara fram í Rotterdam þann 22. maí næstkomandi.

Daði Freyr með Eurovision-tónleika á rás keppninnar
Daði Freyr stóð fyrir Eurovision-tónleikum á YouTube-rás keppninnar þann 1. maí síðastliðinn.

Tóku upp dansmyndband við Eurovision lag Daða Freys á gossvæðinu
Eurovision mánuðurinn er hafinn og aðdáendur gera hvað sem þeir geta til að halda stemningunni uppi og styðja sitt fólk með allskonar leiðum. Vegna sóttvarnarreglna er því miður nánast hægt að afskrifa fyrir aðdáendur að ferðast til Rotterdam.

Daði fær silfurplötu í Bretlandi
Daði Freyr hefur fengið silfurplötu í Bretlandi fyrir lagið Think About Things. Um er að ræða söluviðurkenningu sem vottar að lagið seldist í 200 þúsund eintökum þar í landi.

Daði og Árný eiga von á öðru barni
Daði Freyr Pétursson og Árný Fjóla Ásmundsdóttir, kona hans, eiga von á sínu öðru barn. Frá þessu greinir Daði á Instagram og segir.

Vaktin: Heimurinn horfði á stúlknakór við Húsavíkurhöfn
Íslendingar hringdu inn Óskarsverðlaunin í ár þegar upphitun hátíðarinnar hófst með myndbandi frá Húsavík, þar sem sænska söngkonan Molly Sanden söng lag sitt Husavik - My Home Town með bakröddum úr heimabyggð, nefnilega stúlknakórnum úr fimmta bekk í Borgarhólsskóla.

Þakklátir Húsvíkingar moka peningum í RÚV
Óskarsverðlaunin verða sýnd í Ríkissjónvarpinu í kvöld eftir að samningar náðust við Disney á síðustu stundu.

Daði bruggar sinn eigin bjór
Daði og Gagnamagnið undirbúa nú útgáfu á sérstökum bjór í tengslum við þátttöku þeirra í Eurovision. Bjórinn er þróaður og bruggaður í samstarfi við Borg Brugghús og væntanlegur í Vínbúðir um mánaðamótin.

„Ótrúlegt að við séum að taka upp lag fyrir óskarsverðlaunin hér niðri á bryggju“
Sautján stúlkur í fimmta bekk í Borgarhólsskóla á Húsavík munu syngja með sænsku söngkonunni Molly Sandén í tónlistarmyndbandi sem sýnt verður á Óskarsverðlaunahátíðinni í næstu viku. Myndbandið verður tekið upp á Húsavík í dag.

Stúlknakór á Húsavík syngur í atriði á Óskarsverðlaunahátíðinni
Sautján stúlkur í fimmta bekk í Borgarhólsskóla á Húsavík munu syngja með sænsku söngkonunni Molly Sandén í tónlistarmyndbandi sem sýnt verður á Óskarsverðlaunahátíðinni í lok apríl. Líkt og kunnugt er hefur lagið Husavik – My home town úr kvikmyndinni Eurovision Song Contest: The Story og Fire Saga verið tilnefnt til Óskarsverðlauna.

Hlustaðu á brot úr öllum lögunum sem taka þátt í Eurovision
Eurovision-keppnin fer fram í Rotterdam 18., 20. og 22. maí í Ahoy-höllinni.

Daði Freyr kennir fólki dansinn við 10 Years
Ísland tekur þátt í Eurovision í Rotterdam í maí og þá mun Daði Freyr og Gagnamagnið flytja lagið 10 Years.

Gríðarleg gleði og stemning á Húsavík í kjölfar Óskarstilnefningar
„Við náttúrulega áttuðum okkur ekki á því þá að þetta ætti eftir að spila svona rosalega stóran þátt í okkar uppbyggingu til framtíðar,“ segir Örylgur Hnefill Örygsson hótelstjóri á Húsavík í viðtali við Ísland í dag.