

Enski boltinn
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Leikirnir

Dagný hetja West Ham gegn Tottenham
Íslenska landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir var í eldlínunni í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Þægilegt hjá Manchester City gegn Everton
Manchester City sýndi mátt sinn og megin þegar að liðið vann Everton í ensku úrvalsdeildinni í dag, 3-0. Everton sáu ekki til sólar og sigurinn var aldrei í hættu.

Solskjær látinn fara frá Man. United
Ole Gunnar Solskjær hefur verið leystur frá störfum sínum sem knattspyrnustjóri Manchester United í ensku úrvalsdeildinni. Þetta staðfestir félagið á samfélagsmiðlum og á vefsíðu sinni.

Neyðarfundur eftir niðurlæginguna gegn Watford - Solskjær rekinn og Zidane boðið gull og grænir skógar?
Manchester United tapaði á niðurlægjandi hátt fyrir nýliðum Watford í ensku úrvalsdeildinni í gær og hafa forráðamenn félagsins miklar áhyggjur af stöðu liðsins.

Klopp: Ég átti gula spjaldið skilið
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, var í skýjunum með frammistöðu sinna manna gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Arsenal gjörsigraðir á Anfield
Liverpool lék sér að Arsenal í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni þegar liðin áttust við á Anfield í kvöld.

De Gea: Erfitt að horfa upp á þetta - Ekki stjóranum að kenna
David De Gea var ekki að skafa af hlutunum í viðtali eftir niðurlægjandi tap Man Utd gegn Watford í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Watford niðurlægði Manchester United | Enn þyngist róðurinn hjá Solskjær
Manchester United tapaði í fjórða sinn í síðustu fimm leikjum í ensku úrvalsdeildinni í dag. Liðið mætti í heimsókn til Watford og heimamenn gerðu sér lítið fyrir og unnu sigur, 4-1.

Newcastle á botninum - Gerrard byrjar með sigri
Newcastle vermir botnsæti ensku úrvalsdeildarinnar og er enn án sigurs eftir tólf leiki. Steven Gerrard hóf stjóratíð sína í deildinni með sigri á heimavelli.

Ljúft og létt hjá Chelsea sem styrkti stöðu sína á toppnum
Chelsea náði sex stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir öruggan 0-3 sigur á Leicester City í hádegisleiknum í dag.

Smitaður og missir af fyrsta leiknum með Newcastle
Eddie Howe, nýráðinn knattspyrnustjóri Newcastle, er smitaður af kórónuveirunni og missir því af fyrsta leiknum sem stjóri liðsins. Newcastle á leik í dag gegn nýliðum Brentford.

Áfall fyrir Hamranna: Ogbonna frá út tímabilið
Stórt skarð var höggið í titilvonir West Ham United er liðið lagði Liverpool óvænt 3-2 í ensku úrvalsdeildinni í síðasta leik fyrir landsleikjahlé. Ítalski miðvörðurinn Angelo Ogbonna meiddist í leiknum og verður frá út tímabilið.

Klopp fór yfir hatur sitt á landsleikjahléum
Jürgen Klopp, þjálfari Liverpool, ræddi í dag við blaðamenn fyrir stórleik helgarinnar í enska boltanum þar sem lið hans mætir Arsenal.

Vill að Livramento fái meiri vernd frá dómurum deildarinnar
Tino Livramento, hægri bakvörður Southampton, er einn af þeim leikmönnum ensku úrvalsdeildarinnar sem er hvað oftast brotið á. Ralph Hasenhüttl, þjálfari liðsins, segir að Livramento verði að fá meiri vernd frá dómurum ensku úrvalsdeildarinnar.

De Bruyne kom til baka með kórónuveiruna og missir af leikjum
Kevin De Bruyne missir af næstum þremur leikjum Englandsmeistara Manchester City eftir að hafa náð sér í kórónuveiruna í landsliðsglugganum.

Bandaríkjamenn borga nú 165 milljörðum meira fyrir sjónvarpsréttinn
Enska úrvalsdeildin í fótbolta hefur náð samkomulagi um nýjan sjónvarpsrétt fyrir deildina í bandarísku sjónvarpi og það er óhætt að segja að Bandaríkjamenn séu nú farnir að borga alvöru upphæð fyrir réttinn.

Sex leikmenn Man. United sagðir kallaðir á krísufund með Solskjær
Framtíð knattspyrnustjóra Manchester United er mikið til umræðu í Englandi eftir slakt gengi liðsins á þessari leiktíð. Sumir eru að telja niður þar til að norski knattspyrnustjórinn Ole Gunnar Solskjær verði rekinn en hann er enn að berjast fyrir lífi sínu sem stjóri félagsins.

Þurfa að endurtaka endurtekna leikinn
Exeter City og Bradford þurfa að mætast í þriðja sinn í fyrstu umferð FA bikarsins eftir að Exeter gerði sex skiptingar í sigri liðsins í framlengingu síðastliðið þriðjudagskvöld.

Framtíð Lingard í óvissu eftir að samningaviðræður sigldu í strand
Framtíð miðjumannsins Jesse Lingard er í óvissu eftir að viðræður hans við Manchester United um framlengingu á samningi hans sigldu í strand.

Þurfti að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla en vann milljónir í vikunni
Óheppinn í meiðslum en heppinn í lottó eða hvernig var aftur orðtakið? Af öllu gríni slepptu þá breyttust hlutirnir snögglega fyrir Englendinginn Terry Kennedy á dögunum en hann var einn af þeim sem fékk ekki að upplifa drauma sína inn á knattspyrnuvellinum.

Umboðsmaður Pogba: „Desember er mánuður drauma“
Mino Raiola, umboðsmaður franska miðjumannsins Paul Pogba, heldur áfram að orða leikmanninn frá Manchester United.

Öruggt hjá Dagnýju og West Ham | María og stöllur hentu Man City úr keppni
Fjöldi leikja fór fram í enska deildarbikarnum í knattspyrnu í kvöld. Dagný Brynjarsdóttir og stöllur hennar í West Ham United unnu öruggan 4-0 útisigur á Birmingham City. Manchester United vann svo 2-1 sigur á nágrönnum sínum í Manchester City.

Sex stig dregin af Reading
Sex stig hafa verið dregin af enska B-deildarliðinu Reading sökum brota á fjárhagsreglum ensku deildarkeppninnar. Um er að ræða annað lið deildarinnar sem lendir í stigafrádrætti á leiktíðinni.

Conte beið við símann en enginn frá United hringdi
Antonio Conte var tilbúinn að taka við Manchester United áður en Tottenham réði hann.

Þrír leikmenn Liverpool nálgast endurkomu
Þrír leikmenn enska knattspyrnuliðsins Liverpool sem hafa verið að glíma við meiðsli að undanförnu tóku þátt á æfingu liðsins í dag.

Fullyrða að formaður ensku úrvalsdeildarinnar hafi sagt af sér
Formaður ensku úrvalsdeildarinnar, Gary Hoffman, hefur sagt starfi sínu lausu. Þetta fullyrða ýmsir miðlar, en ástæðan er sögð vera óánægja félaga deildarinnar vegna yfirtöku sádi-arabíska fjárfestingasjóðsins PIF á Newcastle.

Sterling sagður vilja komast aftur til Liverpool
Enski landsliðsmaðurinn Raheem Sterling gæti verið á förum frá Manchester City og spænskir miðlar hafa verið mjög forvitnir um það hvort hann gæti verið á leiðinni til Barcelona.

Enn einn Liverpool-maðurinn meiddist í landsleikjahléinu
Liverpool-menn geta eflaust ekki beðið eftir því að þetta síðasta landsleikjahlé ársins klárist en nokkrir leikmenn liðsins hafa meiðst í því.

Mendy ákærður fyrir tvær nauðganir í viðbót og sex alls
Saksóknari hefur staðfest að Benjamin Mendy, leikmaður Englandsmeistara Manchester City, hafi verið ákærður fyrir tvær nauðganir í viðbót.

Stjóri ensks úrvalsdeildarliðs svaf í tjaldi yfir nótt
Graham Potter og þjálfarateymi hans hjá Brighton & Hove Albion fóru á dögunum sérstaka leið til að vekja athygli á stöðu heimilislausra í Brighton & Hove sem er á suðurströnd Englands.