Öruggt hjá Tottenham gegn Nottingham Forest

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Tvenna.
Tvenna.

Eftir erfitt gengi að undanförnu vann Tottenham öruggan heimasigur á Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Heimamenn mættu virkilega kröftugir til leiks og virtust vera að ná forystunni strax á þriðju mínútu þegar Richarlison skoraði en við nánari athugun VAR kom í ljós að Brasilíumaðurinn var rangstæður.

Harry Kane tók leikinn í sínar hendur í fyrri hálfleik og kom Tottenham í tveggja marka forystu með mörkum á 19. og 35.mínútu en síðara markið kom úr vítaspyrnu.

Eftir klukkutíma leik gerði Son Heung Min svo nánast út um leikinn þegar hann kom Tottenham í 3-0 eftir undirbúning Richarlison.

Joe Worrall klóraði í bakkann fyrir nýliðana með marki á 81.mínútu og í uppbótartíma var vítaspyrna dæmd en Andre Ayew brást bogalistin og lokatölur því 3-1 fyrir Tottenham.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira