Ronaldo: Ég er alltaf á tánum Cristiano Ronaldo neitar að lofa því að hann verði leikmaður Manchester United á næstu leiktíð líkt og forráðamenn félagsins hafa haldið fram í fjölmiðlum síðustu daga. Enski boltinn 20. júlí 2008 13:30
Milan staðfesti risatilboð Chelsea í Kaka Varaforseti AC Milan segir að félagið hafi neitað risatilboði Chelsea í brasilíska miðjumanninn Kaka, en ítrekar að leikmaðurinn sé ekki til sölu. Enski boltinn 20. júlí 2008 13:20
Ferguson neitar að hafa tjáð sig um Berbatov Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, kannast ekki við að hafa lýst því yfir að félag hans væri á höttunum eftir Dimitar Berbatov í blaðaviðtölum. Enski boltinn 19. júlí 2008 21:15
Auðvitað verður Adebayor áfram Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segist reikna með því að framherjinn Emmanuel Adebayor verði áfram í herbúðum liðsins á næstu leiktíð þrátt fyrir að vera mikið orðaður við stærstu knattspyrnufélög Evrópu. Enski boltinn 19. júlí 2008 19:15
Chelsea með risatilboð í Robinho? Umboðsmaður Brasilíumannsins Robinho hjá Real Madrid segir að Chelsea hafi gert Real hátt í 32 milljón punda kauptilboð í leikmanninn. Enski boltinn 19. júlí 2008 17:14
Lítill meistarabragur á United í Afríku Manchester United varð að gera sér að góðu 1-1 jafntefli gegn Kaizer Chiefs í fyrsta leik sínum á Vodacom Challenge mótinu í Suður-Afríku í dag. Enski boltinn 19. júlí 2008 16:23
Kaka er ekki til sölu Forráðamenn AC Milan á Ítalíu voru ekki lengi að svara fullyrðingum umboðsmanns Kaka frá í dag þegar hann lýsti því yfir að miðjumaðurinn hefði áhuga á að fara til Chelsea á Englandi. Íslenski boltinn 19. júlí 2008 14:12
Rosicky missir af fyrstu leikjum Arsenal Miðjumaðurinn Tomas Rosicky hjá Arsenal mun missa af fyrstu leikjum liðsins í ensku úrvalsdeildinni, en hann fór í hnéuppskurð í maí í vor. Hann hafði vonast til að ná fyrsta leik liðsins í úrvalsdeildinni gegn West Brom þann 16. ágúst en nú er ljóst að hann nær því takmarki ekki. Enski boltinn 19. júlí 2008 13:52
Steven Gerrard meiddur Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, mun líklega missa af æfingaleik liðsins við Hertha Berlin í næstu viku eftir að hafa meiðst á nára á æfingu með liði sínu. Liverpool er nú við æfingar í Sviss, en Gerrard hefur verið sendur heim og verður frá keppni í viku til tíu daga. Enski boltinn 19. júlí 2008 13:38
Hermann skoraði fyrir Portsmouth Hermann Hreiðarsson var á skotskónum í gær þegar Portsmouth sigraði Swindon 3-1 í æfingaleik á County Ground. Swindon komst reyndar yfir í leiknum en Hermann Hreiðarsson skoraði jöfnunarmark Portsmouth. Enski boltinn 19. júlí 2008 12:34
Chimbonda í viðræðum við Sunderland Franski bakvörðurinn Pascal Chimbonda hjá Tottenham hefur átt í viðræðum við Sunderland með það fyrir augum að skipta um félag. Hann hefur ekki átt fast sæti í liði Tottenham síðan skoski landsliðsmaðurinn Alan Hutton var keyptur til Lundúnafélagsins í janúar. Enski boltinn 19. júlí 2008 11:49
Kaka vill fara til Chelsea Ráðgjafi miðjumannsins Kaka hjá AC Milan segir að leikmaðurinn vilji ólmur fara til Chelsea á Englandi og spila undir landa sínum Luiz Felipe Scolari. Enski boltinn 19. júlí 2008 11:42
Dave Kitson til Stoke Stoke hefur keypt Dave Kitson fyrir 5,5 milljónir punda frá Reading. Þessi 28 ára sóknarmaður hefur skrifað undir þriggja ára samning við nýliðana í úrvalsdeildinni. Enski boltinn 18. júlí 2008 20:30
Keane og Berbatov vilja fara - Tottenham leggur fram kvörtun Daniel Levy, stjórnarformaður Tottenham, viðurkennir að bæði Robbie Keane og Dimitar Berbatov hafi farið fram á sölu frá félaginu. Hann hefur lagt inn formlega kvörtun til úrvalsdeildarinnar vegna ummæla knattspyrnustjóra Liverpool og Manchester United. Enski boltinn 18. júlí 2008 20:23
Deco biður Lampard um að fara ekki Deco hefur biðlað til Frank Lampard að vera áfram hjá Chelsea og hjálpa liðinu að vinna Meistaradeildina. Lampard er orðaður við ítalska liðið Inter og hefur forseti félagsins, Massimo Moratti, sagt að Lampard vilji ganga til liðs við Ítalíumeistarana. Enski boltinn 18. júlí 2008 19:30
Evra ákærður eftir átökin á Stamford Bridge Franski varnarmaðurinn Patrice Evra hjá Manchester United hefur verið ákærður fyrir ósæmilega hegðun af enska knattspyrnusambandinu eftir áflog sem brutust út eftir leik Chelsea og Manchester United þann 26. apríl sl. Enski boltinn 18. júlí 2008 16:03
Carson semur við WBA Markvörðurinn Scott Carson hefur gengið frá þriggja ára samningi við enska úrvalsdeildarfélagið WBA og fær Liverpool um 3,25 milljónir punda fyrir hann. Carson er sjöundi leikmaðurinn sem gengur í raðir nýliðanna í sumar. Enski boltinn 18. júlí 2008 14:46
Ferguson: Ronaldo spilar með United næsta vetur Sir Alex Ferguson virðist nú hafa tekið af allan vafa með framtíð Cristiano Ronaldo hjá Manchester United. Knattspyrnustjórinn fullyrti í samtali við BBC nú rétt áðan að leikmaðurinn yrði hjá félaginu á næstu leiktíð. Enski boltinn 18. júlí 2008 14:23
Gerðu Ferguson bara reiðan Sápuóperunni í kring um Cristiano Ronaldo hjá Manchester United er hvergi nærri lokið og nú hefur Roy Keane blandað sér í hana með áhugaverðum ummælum. Enski boltinn 18. júlí 2008 10:32
Ferguson staðfestir tilboð í Berbatov Sir Alex Ferguson staðfesti í dag að Manchester United hefði gert kauptilboð í framherjann Dimitar Berbatov hjá Tottenham. Ekki hefur verið gefið upp hve hátt það var en fregnir herma að það hafi verið undir 25 milljónum punda - sem er sögð upphæðin sem Tottenham vill fyrir Búlgarann. Enski boltinn 18. júlí 2008 10:11
Peter Reid þjálfar Tæland Enski knattspyrnustjórinn Peter Reid er tekinn við landsliði Tælands en hann hefur skrifað undir samning til fjögurra ára. Enski boltinn 17. júlí 2008 21:45
Gilberto farinn til Panathinaikos Arsenal hefur staðfest að Gilberto Silva sé kominn til Panathinaikos. Gilberto missti sæti sitt til Mathieu Flamini á síðasta tímabili. Enski boltinn 17. júlí 2008 18:45
Af hverju að spila fyrir 6000 áhorfendur? Harry Redknapp, stjóri Portsmouth, segir að félagið hafi neitað 12 milljón punda tilboði Monaco í króatíska landsliðsmanninn Niko Kranjcar. Hinn 23 ára gamli miðjumaður hefur verið orðaður við nokkur félög í Evrópu í sumar, en virðist ánægður í herbúðum Portsmouth. Enski boltinn 17. júlí 2008 16:18
Lampard er milli steins og sleggju Massimo Moratti, forseti Inter Milan, segir að Frank Lampard hjá Chelsea viti ekki í hvorn fótinn hann á að stíga varðandi það hvort hann á að halda áfram hjá Chelsea eða breyta til og fara til Inter. Enski boltinn 17. júlí 2008 15:57
Ferguson vonast til að landa einum sterkum leikmanni Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir félagið hafa gert kauptilboð í leikmann sem muni styrkja liðið til muna. Annars ætlar hann að mestu að byggja lið sitt á sömu mönnum og tryggðu United frábæran árangur á síðustu leiktíð. Enski boltinn 17. júlí 2008 15:39
Everton hafnaði tilboði Wigan í Johnson Sky fréttastofan greindi frá því í dag að Everton hefði neitað 9 milljón punda tilboði Wigan í framherjann Andy Johnson í dag. Johnson hefur skorað 17 mörk í þeim 53 leikjum sem hann hefur verið í byrjunarliði Everton síðan hann kom frá Crystal Palace árið 2006. Enski boltinn 17. júlí 2008 15:02
Ramos útilokar ekki brottför Keane og Berbatov Juande Ramos, stjóri Tottenham, hefur nú tjáð sig um þrálátan orðróm þess efnis að þeir Robbie Keane og Dimitar Berbatov séu á leið frá félaginu. Enski boltinn 17. júlí 2008 14:47
Cahill missir af fyrstu leikjum Everton Miðjumaðurinn Tim Cahill mun missa af fyrstu leikjum Everton á leiktíðinni þar sem hann er enn að jafna sig eftir ristarbrot. Sömu sögu er að segja af framherjanum James Vaughan, en hann verður ekki klár þegar flautað verður til leiks í næsta mánuði. Enski boltinn 17. júlí 2008 14:45
Stoke hætt við að kaupa Carson Stoke City hefur dregið sig út úr kapphlaupinu um markvörðinn Scott Carson hjá Liverpool, sem á dögunum samþykkti 3,5 milljón punda kauptilboð nýliðanna í landsliðsmarkvörðinn. Enski boltinn 17. júlí 2008 14:42
Liverpool semur við Ungverja Liverpool gekk í dag frá samningi við fjórða Ungverjann á skömmum tíma þegar það fékk hinn 17 ára gamla Zsolt Poloskei frá MTK Budapest á eins árs lánssamning. Enski boltinn 17. júlí 2008 11:39