Barton fékk tólf leikja bann Joey Barton hjá Newcastle var í dag dæmdur í tólf leikja keppnisbann af enska knattspyrnusambandinu vegna árásar hans á fyrrum liðsfélaga sinn þegar hann var leikmaður Manchester City. Enski boltinn 5. september 2008 14:22
Buffon hlær að City-slúðri Ítalski landsliðsmarkvörðurinn Gianluigi Buffon segir ekkert hæft í þeim orðrómi að Manchester City hafi gert í hann 70 milljón evra kauptilboð. Enski boltinn 5. september 2008 13:31
Curbishley var fljótur að kveðja Alan Curbishley sagði starfi sínu lausu hjá West Ham eftir aðeins þrjá leiki í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni. Aðeins einn stjóri hefur verið fljótari að kveðja í deildinni á síðasta áratug. Enski boltinn 5. september 2008 12:37
Newcastle reið ekki feitum hesti í tíð Keegan Newcastle er með lélegasta árangur allra liða sem spila í úrvalsdeildinni þegar tekið er mið af stigasöfnun liðsins í stjórnartíð Kevin Keegan sem sagði af sér hjá félaginu í gær. Enski boltinn 5. september 2008 12:21
Fleiri stjórar orðaðir við West Ham Nokkrir ítalskir þjálfarar hafa nú verið orðaðir við knattspyrnustjórastöðuna hjá West Ham. Í gær var Paolo Di Canio orðaður við stöðuna, en nú hafa nokkrir fleiri bæst í hópinn að sögn BBC. Enski boltinn 5. september 2008 12:07
Ronaldo: Ég var barnalegur Cristiano Ronaldo hefur nú loksins gert tilraun til að hreinsa til í sínum málum hjá Manchester United eftir Real Madrid ævintýrið sem stóð yfir í allt sumar. Enski boltinn 5. september 2008 11:13
West Ham svarar McCartney West Ham gaf í dag út yfirlýsingu þar sem fullyrðingum norður-írska landsliðsmannsins George McCartney í gær er vísað á bug. McCartney gagnrýndi stjórn West Ham og sagði hana bera ábyrgð á uppsögn Alan Curbishley. Enski boltinn 5. september 2008 11:01
Savage þykir slá óþarflega um sig Miðjumaðurinn Robbie Savage olli ólgu í herbúðum Derby County í vikunni þegar hann mætti á æfingu á nýjum Lamborghini sportbíl. Ónefndur maður tengdur liðinu lýsti því yfir í fjölmiðlum að svona stjörnustælar væru lýsandi fyrir vandræði liðsins, sem hefur ekki unnið deildarleik í næstum eitt ár. Enski boltinn 5. september 2008 10:51
Ferdinand með landsliðinu til Andorra Rio Ferdinand mun fara með enska landsliðinu til Andorra þó svo að enn sé óvíst hvort hann geti leikið með landsliðinu. Enski boltinn 4. september 2008 19:00
Keegan er hættur Kevin Keegan hefur nú formlega sagt starfi sínu lausu sem knattspyrnustjóri Newcastle. Enski boltinn 4. september 2008 18:29
Hughes varar við væntingum Mark Hughes, knattspyrnustjóri Manchester City, segir að stuðningsmenn félagsins eigi ekki að búast við því að fjöldi stórstjarna muni ganga til liðs við félagið næst þegar félagaskiptaglugginn opnar, í janúar næstkomandi. Enski boltinn 4. september 2008 18:15
McCartney: Stjórn West Ham hafði ekki samráð við Curbishley George McCartney, fyrrum leikmaður West Ham, segir að stjórn félagsins hafi ekki haft samráð við Alan Curbishley knattspyrnustjóra þegar hann og Anton Ferdinand voru seldir til Sunderland. Enski boltinn 4. september 2008 17:38
Di Canio vill taka við West Ham Ítalinn Paolo Di Canio hefur sett sig í samband við forráðamenn West Ham og boðist til að taka við starfi knattspyrnustjóra félagsins. Þetta staðfesti umboðsmaður hans í samtali við breska ríkissjónvarpið í dag. Enski boltinn 4. september 2008 16:17
Torres og Gerrard byrjaðir að æfa Fernando Torres og Steven Gerrard hjá Liverpool eru nú báðir byrjaðir taka þátt í léttum æfingum á ný eftir meiðsli sem héldu þeim frá því að spila með landsliðum sínum í undankeppni HM. Enski boltinn 4. september 2008 15:47
Giggs: Við erum enn stærstir og bestir Ryan Giggs segir að Manchester United sé enn stærsta knattspyrnufélag í heimi þó grannar þeirra í City séu komnir í eigu manna sem virðist hafa endalaust fjármagn til leikmannakaupa. Enski boltinn 4. september 2008 14:45
Neita fullyrðingum Curbisley Ásgeir Friðgeirsson, stjórnarmaður hjá West Ham, vísar á bug fullyrðingum Alan Curbisley í gær þar sem hann sagði að trúnaðarbrestur hefði verið aðalástæða þess að hann sagði af sér sem knattspyrnustjóri félagsins. Enski boltinn 4. september 2008 14:19
Þýðir ekkert að veifa peningum framan í mig Stuart Pearce er einn þeirra sem orðaður hefur verið við stjórastöðuna hjá West Ham United. Hann segist hinsvegar ætla að standa við gerða samninga við enska knattspyrnusambandið og halda áfram með U-21 árs lið Englands. Enski boltinn 4. september 2008 13:59
McCarthy stjóri mánaðarins í B-deildinni Mick McCarthy var í dag valinn stjóri ágústmánaðar í ensku Championship deildinni eftir að hafa komið liði Wolves á toppinn. Liðið gerði jafntefli í fyrsta leik sínum í deildinni en hefur síðan unnið þrjá leiki í röð. Enski boltinn 4. september 2008 13:48
Keegan skrópar á æfingu þriðja daginn í röð Framtíð Kevin Keegan hjá Newcastle er enn mjög óljós eftir að knattspyrnustjórinn mætti ekki á æfingu liðsins þriðja daginn í röð. Engin ný tíðindi hafa komið úr herbúðum liðsins enn sem komið er, en Sky fréttastofan segir að eigandi félagsins hafi flogið aftur til Englands úr viðskiptaferð til að finna lausn á málinu. Enski boltinn 4. september 2008 13:11
Joorabchian: West Ham gerði mistök í tíð Eggerts og Curbishley Umboðsmaðurinn Kia Joorabchian sem gegnir stöðu ráðgjafa hjá West Ham, segir að Alan Curbishley geti að hluta til kennt sjálfum sér um það að hann sé hættur störfum hjá félaginu. Enski boltinn 4. september 2008 11:56
Björgólfur: Bjartir tímar framundan hjá West Ham Björgólfur Guðmundsson, stjórnarformaður West Ham, segir bjarta tíma framundan hjá félaginu þrátt fyrir uppsögn Alan Curbishley knattspyrnustjóra í gær. Enski boltinn 4. september 2008 11:49
Ég hefði aldrei fetað í fótspor Robinho Spænski landsliðsmaðurinn David Villa hjá Valencia segir að hann hefði aldrei geta gert félagi sínu grikk líkt og þann sem Robinho gerði Real Madrid þegar hann heimtaði að verða seldur frá félaginu. Enski boltinn 4. september 2008 11:40
Blackburn er enn í viðræðum við Fowler Stjórnarformaður Blackburn segir að félagið sé enn í viðræðum við framherjann Robbie Fowler sem síðast lék með Cardiff. Fowler er með lausa samninga og stóð sig ágætlega þegar hann fór til Blackburn til reynslu í sumar. Enski boltinn 4. september 2008 11:28
Kenwright: Ég er fátæklingur Bill Kenwright eigandi Everton segir að félagið verði að finna sér nýjan eiganda ef það ætli sér að keppa við milljarðamæringa á borð við þá sem keyptu Manchester City á dögunum. Enski boltinn 4. september 2008 11:16
Tevez: Richards var erfiðasti andstæðingurinn Argentínumaðurinn Carlos Tevez hjá Manchester United segir að Micah Richards hjá Manchester City hafi verið erfiðasti andstæðingur sinn í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Enski boltinn 4. september 2008 10:22
Saha bauðst til að vinna kauplaust Franski framherjinn Louis Saha var svo ákafur að ganga í raðir Everton að hann bauðsti til að gefa vinnu sína þangað til hann næði sér af meiðslum til að greiða fyrir félagaskiptunum frá Manchester United. Enski boltinn 4. september 2008 10:14
Robinho: Pele hefði gert það sama Brasilíumaðurinn Robinho hefur viðurkennt að hann hafi upprunalega ætlað sér að ganga í raðir Chelsea á Englandi áður en hann gekk á endanum til liðs við Manchester City. Enski boltinn 4. september 2008 10:03
Ástandið í Newcastle er grátlegt Glenn Roeder, fyrrum stjóri Newcastle og núverandi stjóri Norwich, segir að ástandið í herbúðum Newcastle sé grátlegt. Hann segir að upplausnin í herbúðum liðsins í kring um Kevin Keegan komi verst niður á stuðningsmönnum liðsins. Enski boltinn 4. september 2008 09:57
Redknapp útilokar að taka við West Ham Harry Redknapp hefur gefið það út að hann sé ánægður í starfi knattspyrnustjóra Portsmouth og því komi ekki til greina að hann snúi aftur til West Ham eftir að Alan Curbishley sagði af sér í gær. Enski boltinn 4. september 2008 09:53
Curbishley: West Ham þarf stöðugleika Alan Curbishley segir að eftirmaður sinn hjá West Ham þarf að vera lengur í starfi lengur en hann var. Enski boltinn 3. september 2008 21:37