Aron lék allan leikinn með Coventry Íslenski landsliðsmaðurinn Aron Einar Gunnarsson lék allan tímann fyrir Coventry sem gerði 1-1 jafntefli gegn Sheffield United. Mark Coventry kom eftir að varnarmönnum Sheffield mistókst að hreinsa frá langt innkast Arons. Enski boltinn 16. september 2008 23:50
Wenger að horfa til Appiah? Talið er að Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, hyggist setjast við samningaborðið og ræða við Stephen Appiah á næstu dögum. Enski boltinn 16. september 2008 18:33
Wigan fær markvörð Wigan hefur fengið markvörðinn Richard Kingson á frjálsri sölu. Kingson er þrítugur og lék með landsliði Gana á HM 2006. Hann var á mála hjá Birmingham en náði ekki að brjótast inn í aðalliðið þar. Enski boltinn 16. september 2008 17:46
Barnes að taka við Jamaíka? John Barnes gæti orðið næsti landsliðsþjálfari Jamaíka. Barnes er fyrrum leikmaður Liverpool en hann á nú í viðræðum við knattspyrnusamband Jamaíka um að taka við sem landsliðsþjálfari. Enski boltinn 16. september 2008 17:14
Carrick fótbrotinn - Úr leik í sex vikur Miðjumaðurinn Michael Carrick hjá Manchester United verður væntanlega frá keppni næstu sex vikurnar eftir að í ljós kom að hann er með brákað bein í fæti. Carrick meiddist í tapinu gegn Liverpool um helgina. Enski boltinn 16. september 2008 13:48
Terry mun spila gegn United John Terry, fyrirliði Chelsea, verður löglegur með Chelsea þegar liðið mætir Manchester United á sunnudaginn kemur eftir að rauða spjaldið sem hann fékk í leik gegn Manchester City á dögunum var dregið til baka. Enski boltinn 16. september 2008 13:42
Gutierrez meiddur í þrjár vikur Miðjumaðurinn Jonas Guiterrez sem nýverið gekk í raðir Newcastle mun ekki geta leikið með liðinu næstu þrjár vikurnar. Hann meiddist á öxl í landsleik í síðustu viku og þarf að gangast undir læknismeðferð. Enski boltinn 16. september 2008 13:00
Tuncay frá í sex vikur Framherjinn Sanli Tuncay hjá Middlesbrough sér fram á að verða frá keppni í um sex vikur með liði sínu eftir að hafa meiðst á hné í landsleik með Tyrkjum á dögunum. Enski boltinn 16. september 2008 11:39
Jewell nýtur stuðnings Paul Jewell, stjóri Derby í ensku B-deildinni, nýtur fulls trausts stjórnar félagsins þó liðið hafi ekki deildarleik í tæpt ár. Enski boltinn 16. september 2008 10:43
City hefur ekki áhuga á Ronaldo Talsmaður Manchester City segir að félagið muni ekki bjóða brasilíska framherjanum Ronaldo samning eins og leikmaðurinn hefur gefið upp í viðtölum. Enski boltinn 16. september 2008 10:30
Ramos neitar að örvænta Juande Ramos, knattspyrnustjóri Tottenham, kallar eftir þolinmæði stuðningsmanna liðsins. Tottenham tapaði fyrir Aston Villa á heimavelli í gær og er í neðsta sæti úrvalsdeildarinnar. Enski boltinn 16. september 2008 10:19
Guthrie biður Fagan afsökunar Danny Guthrie, leikmaður Newcastle, hefur beðið Craig Fagan hjá Hull afsökunar á að hafa fótbrotið hann um helgina. Guthrie fékk brottvísun fyrir hættulega tæklingu sína. Enski boltinn 15. september 2008 23:00
Reo-Coker: Hugsum ekki um andstæðinginn Nigel Reo-Coker segir að leikmenn Aston Villa ætli að leggja áherslu á að hugsa ekki um andstæðingana á tímabilinu heldur einbeita sér að eigin styrk. Enski boltinn 15. september 2008 21:37
Enn eitt tap Tottenham Hrakfarir Tottenham halda áfram en liðið tapaði 1-2 fyrir Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Tottenham er í neðsta sæti með aðeins eitt stig eftir fjóra leiki. Enski boltinn 15. september 2008 20:53
DIC ætlar ekki að kaupa fótboltalið Fjárfestafélagið Dubai International Capital hefur gefið það út að það sé ekki að reyna að kaupa knattspyrnulið. DIC hefur lengi verið orðað við Liverpool og komst nálægt því að eignast hlut George Gillett í félaginu. Enski boltinn 15. september 2008 19:00
Helgin á Englandi - Myndir Það var tíðindamikil helgi í enska boltanum en þar bar helst stórleikur Liverpool og Manchester United. Þá bauð Emmanuel Adebayor upp á þrennu og Robinho skoraði fyrir Manchester City gegn Chelsea þó það hafi ekki dugað til að ná í stig. Enski boltinn 15. september 2008 18:00
Clarke aðstoðar Zola Steve Clarke verður aðstoðarknattspyrnustjóri West Ham og hægri hönd Gianfranco Zola. Þetta varð ljóst í dag þegar West Ham náði loks samkomulagi við Chelsea. Enski boltinn 15. september 2008 17:09
Framherji Hull úr leik í þrjá mánuði Craig Fagan, framherji nýliða Hull í ensku úrvalsdeildinni, horfir fram á að missa úr næstu þrjá mánuði með liði sínu eftir að í ljós kom að hann er fótbrotinn. Enski boltinn 15. september 2008 15:19
Hasselbaink hættur Hollenski framherjinn Jimmy Floyd Hasselbaink hefur ákveðið að leggja knattspyrnuskóna á hilluna eftir glæsilegan feril. Enski boltinn 15. september 2008 14:30
Kemst Tottenham af botninum? Einn leikur er á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld en það er viðureign Tottenham og Aston Villa sem hefst klukkan 19 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Enski boltinn 15. september 2008 13:45
Lampard: Ekki afskrifa United Chelsea getur náð níu stiga forskoti á Manchester United í ensku úrvalsdeildinni með sigri í stórslag liðanna á Stamford Bridge næsta sunnudag. Enski boltinn 15. september 2008 13:30
10 verstu leikmannakaup Chelsea Forráðamenn Chelsea halda því fram að félagið muni brátt ná takmörkum sínum um að láta rekstur félagsins standa undir sér. Enski boltinn 15. september 2008 12:09
Ég vissi ekki að ég væri 22 milljarða virði Cristiano Ronaldo hjá Manchester United hefur útilokað að hann muni ganga í raðir grannliðsins Manchester City. Hann svaraði orðrómi þess efnis að City væri að undirbúa 22 milljarða króna kauptilboð í hann í janúar. Enski boltinn 15. september 2008 11:45
Chelsea áfrýjar brottvísun Terry Chelsea hefur ákveðið að áfrýja rauða spjaldinu sem John Terry fékk í leiknum gegn Manchester City á laugardaginn. Hann mun missa af leik Chelsea gegn Manchester United næsta sunnudag ef rauða spjaldið stendur. Enski boltinn 15. september 2008 11:23
Kuszczak framlengir við United Pólski markvörðurinn Tomasz Kuszczak hefur framlengt samning sinn við Englandsmeistara Manchester United til ársins 2012. Um er að ræða tveggja ára framlengingu. Enski boltinn 15. september 2008 10:44
Ronaldo reiknar með að verða tekinn í sátt Portúgalinn Cristiano Ronaldo hjá Manchester United reiknar með að fá góðar viðtökur á Old Trafford ef svo fer að hann spili sinn fyrsta leik eftir ökklaaðgerð í Meistaradeildinni á miðvikudagskvöldið. Enski boltinn 15. september 2008 09:31
Ashley: Þetta er brjálæði Mike Ashley, eigandi Newcastle, tilkynnti í gær að hann ætlaði að selja félagið. Hann segist ekki treysta sér til að taka þátt í því brjálæði sem það er að eiga knattspyrnufélag. Enski boltinn 15. september 2008 09:20
Dramatískur sigur Everton Everton vann 3-2 sigur á Stoke á Brittania-leikvanginum í eina leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. David Moyes, stjóri Everton, var sendur upp í stúku í leiknum. Enski boltinn 14. september 2008 14:26
Ince ekki til Newcastle Paul Ince hefur útilokað að taka við Newcastle og segist vera nýbyrjaður á langtímaverkefni hjá Blackburn. Enski boltinn 14. september 2008 11:54
Chelsea íhugar að áfrýja brottvísun Terry Luiz Felipe Scolari, knattspyrnustjóri Chelsea, sagði í gærkvöldi að félagið væri nú að íhuga að áfrýja rauða spjaldinu sem John Terry fékk í leiknum gegn Manchester City í gær. Enski boltinn 14. september 2008 11:48