Arsenal á toppinn eftir sigur á Bolton Arsenal er komið í toppsætið í ensku úrvalsdeildinni eftir góðan 3-1 útisigur á Bolton í lokaleik dagsins. Enski boltinn 20. september 2008 18:48
Jóhannes skoraði fyrir Burnley Jóhannes Karl Guðjónsson kom inn sem varamaður og skoraði mark sinna manna í Burnley þegar þeir gerðu 1-1 jafntefli við Swansea á útivelli í ensku 1. deildinni í dag. Enski boltinn 20. september 2008 17:24
Stoke hélt jöfnu á Anfield Liverpool var að láta sér lynda markalaust jafntefli gegn nýliðum Stoke City í ensku úrvalsdeildinni í dag. Liverpool átti 27 marktilraunir gegn aðeins þremur hjá gestunum og mark fyrirliðans Steven Gerrard í fyrri hálfleik var dæmt af vegna rangstöðu. Enski boltinn 20. september 2008 15:55
Ronaldo var næstum farinn til Arsenal Alex Ferguson segir að litlu hafi mátt muna að Cristiano Ronaldo hefði gengið í raðir Arsenal áður en hann ákvað að semja við Manchester United. Enski boltinn 20. september 2008 15:14
Konur myndu auka gæði leiksins David James, markvörður Portsmouth og enska landsliðsins, segir að konur geti vel keppt við karlmenn í knattspyrnu. Hann segir þær geta aukið gæði leiksins og séu í mörgum tilvikum duglegri en karlarnir. Enski boltinn 20. september 2008 15:06
Chopra tryggði Sunderland sigur á Boro Sunderland vann góðan 2-0 sigur á Middlesbrough í fyrsta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í dag. Boro klúðraði vítaspyrnu áður en Michael Chopra skoraði tvö mörk fyrir heimamenn undir lokin og tryggði þeim sigur í grannaslagnum í norðri. Enski boltinn 20. september 2008 13:47
Scolari í vandræðum með að velja vín Luiz Felipe Scolari, stjóri Chelsea, stendur frammi fyrir sannkölluðu lúxusvandamáli á sunnudaginn þegar hann mun halda í hefðina og fá sér vínglas með Sir Alex Ferguson eftir leik Chelsea og Manchester United. Enski boltinn 20. september 2008 13:45
Chelsea að landa Brassa Sky fréttastofan greinir frá þvi að Chelsea sé við það að landa til sín brasilíska miðjumanninum Mineiro til að fylla skarð Michael Essien sem meiddist á dögunum. Enski boltinn 20. september 2008 11:49
Aron: Fæ frekar rautt en að leyfa honum að taka vítið Aron Einar Gunnarsson, leikmaður Coventry í ensku B-deildinni, segist ætla að taka að sér hlutverk vítaskyttu í liðinu eftir að félagi hans brenndi af víti á þriðjudaginn. Enski boltinn 19. september 2008 17:30
Arsenal hefur gengið illa á Reebok Arsenal á fyrir höndum erfiðan leik gegn Bolton í ensku úrvalsdeildinni á morgun ef marka má viðureignir liðanna síðustu ár. Enski boltinn 19. september 2008 14:38
Ben Foster meiðist enn Markvörðurinn Ben Foster hjá Manchester United hefur orðið fyrir enn einu áfallinu. Foster meiddist á ökkla í varaliðsleik með United og sér nú fram á tvo mánuði á meiðslalistanum. Hann var nýkominn til leiks eftir 10 mánaða fjarveru vegna hnémeiðsla. Enski boltinn 19. september 2008 14:30
Riley hefur farið minnst í taugarnar á þeim Það kemur í hlut Mike Riley frá Jórvíkurskíri að dæma stórleik Chelsea og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn. Enski boltinn 19. september 2008 12:58
Wenger: Rosicky kemur aftur fyrir jól Arsene Wenger stjóri Arsenal segist vongóður um að tékkneski miðjumaðurinn Tomas Rosicky geti byrjað að spila með liðinu á ný fyrir jól. Enski boltinn 19. september 2008 12:36
Ronaldo segist enn vera í viðræðum við City Brasilíski framherjinn Ronaldo segist enn vera í viðræðum við Manchester City um að ganga í raðir félagsins. Forráðamenn City lýstu því yfir fyrir skömmu að viðræðum þessum hefði verið hætt. Enski boltinn 19. september 2008 12:15
Ronaldo ætlar að svara spörkum með mörkum Cristiano Ronaldo segist klár í slaginn fyrir óblíðar móttökur á Stamford Bridge á sunnudaginn þegar Manchester United sækir Chelsea heim í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Enski boltinn 19. september 2008 11:30
Deco og félagar í hefndarhug Miðjumaðurinn Deco hefur byrjað vel með liði sínu Chelsea á Englandi eftir að hann kom frá Barcelona í sumar. Hann segist gera sér fulla grein fyrir mikilvægi leiksins gegn Manchester United á sunnudag. Enski boltinn 19. september 2008 11:15
David Dunn úr leik hjá Blackburn Miðjumaðurinn David Dunn hjá Blackburn getur ekki spilað með liði sínu næstu fjóra mánuðina eða svo vegna meiðsla á hásin. Hinn 28 ára gamli Dunn þarf að fara í aðgerð og útilokað hefur verið að hann komi meira við sögu hjá liðinu á árinu. Enski boltinn 19. september 2008 11:06
Alan Smith fótbrotinn Enska úrvalsdeildarfélagið Newcastle hefur orðið fyrir enn einu áfallinu eftir að í ljós kom að Alan Smith er með brákað bein í fæti. Óttast er að hann gæti misst úr næstu þrjá mánuði með liðinu. Enski boltinn 19. september 2008 10:24
Innköst Arons vekja athygli Aron Gunnarsson, leikmaður Coventry á Englandi, hefur vakið verðskuldaða athygli á Englandi fyrir löng innköst sín sem þegar hafa lagt upp tvö mörk fyrir lið hans. Enski boltinn 19. september 2008 10:02
Kroenke í stjórn Arsenal Bandaríski viðskiptajöfurinn Stan Kroenke hefur þegið boð Arsenal um að taka sæti í stjórn félagsins. Enski boltinn 19. september 2008 09:54
Zola ánægður með skipulagið hjá West Ham Gianfranco Zola, nýráðinn knattspyrnustjóri West Ham, segist vera ánægður með skipulagið á innri starfsemi félagsins. Enski boltinn 18. september 2008 23:24
Bestu mörk Steven Gerrard Steven Gerrard fyrirliði Liverpool stimplaði sig rækilega inn í liðið á ný þegar hann skoraði bæði mörk liðsins gegn Marseille í fyrrakvöld - annað þeirra stórglæsilegt. Enski boltinn 18. september 2008 15:19
Owen vill eflaust fara frá Newcastle Graeme Souness, fyrrum knattspyrnustjóri Newcastle, segist viss um að Michael Owen og fleiri leikmenn liðsins óski þess að fara frá félaginu vegna þeirrar ólgu sem ríkt hefur undanfarið. Enski boltinn 18. september 2008 15:07
Gazza í ruglinu Fyrrum landsliðsmaðurinn Paul Gascoigne er enn á ný kominn í fréttirnar vegna baráttu sinnar við alkohólisma. Enski boltinn 18. september 2008 12:24
Sögulegur afmælisdagur hjá Sol Segja má að dagurinn í dag sé sérstakur fyrir varnarmanninn Sol Campbell hjá Portsmouth. Enski boltinn 18. september 2008 12:11
Ray Wilkins tekur við af Clarke Ray Wilkins hefur verið ráðinn þjálfari hjá Chelsea í stað Steve Clarke sem fór til West Ham á dögunum. Wilkins er fyrrum leikmaður Chelsea og varð bikarmeistari með liðinu árið 2000 sem aðstoðarmaður Gianluca Vialli. Enski boltinn 18. september 2008 11:59
Rosicky er ekki að hætta Umboðsmaður miðjumannsins Tomas Rosicky hjá Arsenal segir ekkert til í fréttaflutningi frá heimalandi hans þar sem því var haldið fram að ferill hans væri jafnvel á enda vegna meiðsla. Enski boltinn 18. september 2008 11:51
Ashton meiddur hjá West Ham Framherjinn Dean Ashton hjá West Ham verður frá keppni næsta mánuðinn eða svo eftir að hann meiddist á ökkla á æfingu liðsins á mánudagskvöldið. Gianfranco Zola verður því án framherjans öfluga í fyrstu leikjum sínum við stjórnvölinn hjá liðinu. Enski boltinn 18. september 2008 09:36
Abu Dhabi að ganga frá kaupunum á City Mark Hughes, knattspyrnustjóri Manchester City, býst við því að Abu Dhabi United Group muni ganga formlega frá kaupum sínum á félaginu áður en vikan verður liðin. Enski boltinn 17. september 2008 17:54
Titringur í kring um Ronaldinho Óvíst þykir að Brasilíumaðurinn Ronaldinho muni leika með AC Milan annað kvöld þegar liðið mætir FC Zurich í Uefa keppninni. Enski boltinn 17. september 2008 12:45