Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Orð ferðamálastjóra lýsi skorti á upplýsingaöflun og vanþekkingu Formaður Cruise Iceland segir margt sem kom fram í viðtali fráfarandi ferðamálastjóra við Túrista í síðustu viku ekki vera rétt. Hann segir orð ferðamálastjóra lýsa skorti á upplýsingaöflun og vanþekkingu á uppbyggingu í þessum hluta ferðaþjónustunnar. 15.12.2022 09:00
Ísrael fyrsta Asíuríkið í leiðakerfi Icelandair Icelandair hefur í fyrsta sinn sett Asíuríki inn í áætlun sína og hyggst hefja beint flug til Ísraels næsta vor. Meginástæðan er mikill áhugi Ísraelsmanna á Íslandi en helsta forsendan er að Boeing Max-þotan hefur reynst langdrægari en reiknað var með. 14.12.2022 21:32
Kristín Soffía segir upp stöðu sinni hjá KLAK Kristín Soffía Jónsdóttir hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra hjá KLAK - Icelandic Startups, síðan í júní 2021 og hefur nú sagt starfi sínu lausu. Kristín gengur til liðs við Leitar Capital á nýju ári. 14.12.2022 15:39
„Svona myndi ekki gerast í nokkru öðru lýðræðisríki“ Meirihluti fjárlaganefndar Alþingis leggur til að fjölmiðlar á landsbyggðinni sem framleiða sjónvarpsefni fái hundrað milljónir króna í styrk úr ríkissjóði á næsta ári. 14.12.2022 15:01
Biðst afsökunar á ónærgætni við tilkynningu um hækkun leiguverðs Formaður stjórnar Ölmu leigufélags biðst afsökunar á því að hafa ekki sýnt nægilega nærgætni þegar leigjanda hjá félaginu var tilkynnt um þrjátíu prósent hækkun á leiguverði. Hann segir að búið sé að endurskoða verkferla fyrirtækisins og uppfæra þá. 14.12.2022 11:02
Nýr drykkur trónir á toppnum sem ódýrasti vínandi Vínbúðarinnar Ísland í dag fjallaði um bjórverð á hinum ýmsu stöðum síðasta miðvikudag, þar sem tekin var punktstaðan á skjali sem heldur utan um ódýrasta áfengið í Vínbúðinni. 14.12.2022 09:00
Veit um tvo fjölmiðla sem gætu skipt með sér hundrað milljón króna styrk Meirihluti fjárlaganefndar leggur til að fjölmiðlar á landsbyggðinni sem framleiða sjónvarpsefni fái hundrað milljón króna styrk úr ríkissjóði á næsta ári. Formaður nefndarinnar getur bent á tvo slíka fjölmiðla, N4 á Akureyri og Víkurfréttir á Suðurnesjum. Framkvæmdastjóri N4 sendi nýverið erindi á nefndina þar sem óskað var eftir hundrað milljón króna styrk. 14.12.2022 08:48
Afurðastöðvar fái ekki undanþágu frá reglum um ólöglegt samráð Samkeppniseftirlitið leggst gegn frumvarpsdrögum um undanþágur frá samkeppnislögum til handa afurðastöðvum í kjötiðnaði og telur drögin alls ekki til þess fallnar að treysta íslenskan landbúnað. 14.12.2022 08:40
Birkir til Arctic Adventures Birkir Björnsson hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra upplýsingatækni hjá ferðaþjónustufyrirtækinu Arctic Adventures. 14.12.2022 08:02
Loðna flæðir inn í vinnslur á Vopnafirði og Norðfirði Fyrstu loðnuförmum vertíðarinnar var landað í tveimur Austfjarðahöfnum í dag. Á Vopnafirði sögðu menn loðnuna sannkallaðan jólabónus en áratugur er liðinn frá því síðast tókst að hefja þar loðnuvinnslu fyrir jól. 13.12.2022 22:24
Icelandair hefur flugferðir til Ísrael Icelandair tilkynnti í dag borgina Tel Aviv í Ísrael sem þeirra nýjasta áfangastað. Flogið verður þangað þrisvar á viku frá Keflavíkurflugvelli frá maí á næsta ári til október. 13.12.2022 15:19
Jólabónus Vopnfirðinga að hefja loðnuvinnslu fyrir jól Fyrsti loðnufarmur þessarar vertíðar kom til Vopnafjarðar í morgun en þar stendur núna yfir löndun úr Víkingi AK, skipi Brims. Rekstrarstjóri Brims segir loðnuna sannkallaðan jólabónus en tíu ár eru frá því loðnuvinnsla hófst síðast á Vopnafirði fyrir jól. 13.12.2022 13:32
Ólafur Karl nýr framkvæmdastjóri Marel Fish Ólafur Karl Sigurðsson hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri Marel Fish. Hann tekur við af Guðbjörgu Heiðu Guðmundsdóttur sem yfirgefur nú Marel og tekur við sem forstjóri tryggingafélagsins Varðar. 13.12.2022 10:02
Guðbjörg Heiða tekur við Verði Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir hefur verið ráðin í starf forstjóra tryggingafélagsins Varðar. 13.12.2022 09:27
Fyrstu loðnufarmarnir á leið til Vopnafjarðar og Norðfjarðar Búist er við að fyrstu loðnu þessarar vertíðar verði landað á Austfjörðum á morgun. Von er á farmi til Vopnafjarðar í fyrramálið og öðrum til Norðfjarðar eftir hádegi. Nýafstaðin loðnuleit gefur ekki tilefni til að auka loðnukvótann, að mati Hafrannsóknastofnunar. 12.12.2022 20:22
Salóme til PayAnalytics Salóme Guðmundsdóttir hefur verið ráðin sem forstöðumaður í viðskiptaþróun hjá PayAnalytics. Hún mun því taka leiðandi þátt í uppbyggingu og sókn fyrirtækisins á erlendri grundu. 12.12.2022 19:12
Loðnuveiðar hafnar en ekki talið tilefni til að auka kvóta Fyrsta loðnan á þessari vertíð er veidd og var skip Síldarvinnslunnar, Beitir, komið með ellefuhundruð tonn nú laust fyrir hádegi. Hafrannsóknastofnun telur ekki tilefni til þess að auka loðnukvótann, eftir auka loðnuleiðangur sem lauk um helgina. 12.12.2022 12:20
Ætla að endurskoða viðbrögð við erfiðum áföllum starfsfólks Sjávarútvegsfyrirtækið Brim hf segir miður hvernig mál sjómannsins Boga Theodórs Ellertssonar hafi þróast. Verkferlar verði skoðaðir en fyrirtækið tjái sig ekki um málefni einstakra starfsmanna. 11.12.2022 21:57
Þrátt fyrir allt „nautheimsk vél“ með tilheyrandi göllum Gervigreind mun aldrei geta komið í staðinn fyrir mennska listamenn, að mati listamanns sem unnið hefur með slíka tækni. Nýr veruleiki blasi þó við - og hann hefur orðið var við áhyggjur af hinni ógurlega hröðu þróun í ákveðnum kreðsum. Við kynntum okkur nýjasta gervigreindaræðið á samfélagsmiðlum. 11.12.2022 10:30
Í fyrsta sinn sem hlutfall tengifarþega er hærra hjá Play Stjórnendur Icelandair og Play hafa birt farþegatölur síðasta mánaðar og er niðurstaðan sú að í fyrsta sinn er hlutfall tengifarþega hærra hjá því síðarnefnda. 9.12.2022 20:35
Landsbankinn hækkar vexti Vextir Landsbankans hækka frá og með 12. desember næstkomandi. Breytilegir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum hækka um 0,25 prósentustig, sem og breytilegir vextir á verðtryggðum íbúðalánum. 9.12.2022 15:04
Bryndís kveður Símann og tekur við markaðsmálum Storytel Bryndís Sigurðardóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri Storytel á Íslandi. Hún tekur við starfinu af Birki Ágústssyni sem hættur er störfum hjá fyrirtækinu. 9.12.2022 12:07
Ragnar nýr forstöðumaður hjá Landsbankanum Ragnar Einarsson hefur tekið við nýju starfi forstöðumanns Færsluhirðingar Landsbankans. 9.12.2022 11:14
Þrjú ný til Aurbjargar Íslenska fjártæknifyrirtækið Aurbjörg hefur ráðið til sín þrjá nýja starfsmenn í vöruþróunarteymi sitt. Þeim er ætlað að styðja við frekari vöxt fyrirtækisins. 9.12.2022 10:45
Taka fyrstu breiðþotuna í notkun Icelandair Cargo hefur tekið fyrstu breiðþotu félagsins í notkun. Fyrsta flug vélarinnar er áætlað í kvöld til Liege í Belgíu. Vélin er af gerðinni Boeing 767. 8.12.2022 15:56
Spá 9,6 prósent verðbólgu í desember Hagfræðideild Landsbankans spáir því að verðbólgan hækki um þrjú prósentu stig í desember og verði 9,6 prósent. Þá er því spáð að vísitala neysluverðs (VNV) hækki um 0,55 prósent milli mánaða. Þrír undirliðir hafa hvað mest áhrif á spáða hækkun. 8.12.2022 15:40
Alvotech á aðalmarkað Nasdaq á Íslandi Viðskipti með hlutabréf Alvotech færðust af First North markaðnum yfir á Aðalmarkað Nasdaq á Íslandi í morgun. 8.12.2022 15:02
Framkvæmdastjóri Ölmu í felum og neitar að svara spurningum Framkvæmdastjóri leigufélagsins Ölmu hefur ekki viljað ræða við fréttastofu vegna nýlegrar hækkunar á leigu öryrkja sem leigt hefur íbúð hjá félaginu undanfarin ár. Fjármálaráðherra segir hækkunina óforsvaranlega og formaður VR hefur kallað eftir neyðarlögum á leigufélög. 8.12.2022 13:14
Ætla að byggja 180 herbergja hótel í Þorlákshöfn Sveitarfélagið Ölfus og Íslenskar fasteignir ehf. hafa undirritað viljayfirlýsingu um fyrirhugaðar framkvæmdir við hótel og afþreyingarmiðstöð í Hafnarvík við Leirur í Þorlákshöfn. Byggt verður allt að 180 herbergja hótel. 8.12.2022 11:50
Birkir nýr forstjóri TM Birkir Jóhannsson hefur verið ráðinn forstjóri TM sem er dótturfélag Kviku banka. Hann tekur við af Sigurði Viðarssyni. 8.12.2022 09:10
Fimmtán mánaða fangelsi og 142 milljóna sekt fyrir meiri háttar skattalagabrot Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í fimmtán mánaða fangelsi og til greiðslu rúmlega 142 milljóna króna í sekt fyrir að hafa skilað röngum skattframtölum og ekki talið fram tekjur frá einkahlutafélaginu Smíðalandi á þriggja ára tímabili. 8.12.2022 08:11
Mastodon innbyggður í Vivaldi Vivaldi er orðinn fyrsti vafrinn sem er með samfélagsmiðilinn Mastodon innbyggðan í kóða vafrans. Það er meðal annarra breytinga sem gerðar hafa verið á vafranum. 7.12.2022 15:02
Ásgeir hefur aldrei komið til Tene Seðlabankastjóri telur umdeilda vaxtahækkun á viðkvæmu stigi í kjaraviðræðum hafa verið heiðarlega og samningsaðilar hafi þannig vitað hverju þeir væru að ganga að. Hann segir hættulegt að hlusta á hagsmunaaðila og telur að verðbólgan hafi náð hámarki. Fólk sé viðkvæmt fyrir gagnrýni á utanlandsferðir til Tenerife. Sjálfur hefur hann aldrei komið þangað. 7.12.2022 12:01
Play aldrei verið stundvísara Flugfélagið Play flutti fjórum sinnum fleiri farþega í nóvember á þessu ári en í sama mánuði á síðasta ári. Sætanýting var tæplega áttatíu prósent og stundvísi rúmlega 98 prósent. Aldrei hafa vélar félagsins verið jafn stundvísar. 7.12.2022 09:32
Bein útsending: Gera grein fyrir yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans mun gera grein fyrir yfirlýsingu sinni sem birt var í morgun á blaðamannafundi sem hefst klukkan 9:30. 7.12.2022 09:01
Ráðinn markaðsstjóri nýsköpunarfyrirtækisins Justikal Sölvi Rúnar Pétursson hefur verið ráðinn markaðsstjóri nýsköpunarfyrirtækisins Justikal. 7.12.2022 09:00
Sáu sér leik á borði og tóku yfir Brynju yfir jólin Ölgerðin er með húsnæði við Laugaveg 29, þar sem byggingavöruverslunin Brynja var áður til húsa, á leigu hjá fyrrverandi eiganda hússins. Nýir eigendur taka ekki við húsinu fyrr en í byrjun árs. Næsta mánuðinn er húsið kallað „Pepsi max húsið“. 7.12.2022 08:43
Stundvísi komin yfir níutíu prósent Flutningatölur flugfélagsins Icelandair frá nóvembermánuði sýna aukningu á farþegum í mánuðinum á milli ára. Einnig var stundvísi félagsins 91 prósent. 6.12.2022 22:32
Stofnanir fóru alla leið með styttingu vinnutímans en fylgdu ekki lykilmarkmiðum Meirihluti stofnana ríkisins innleiddi hámarksstyttingu vinnutímans án þess að fylgja eftir markmiðum um gagnkvæman ávinning, skilvirkni og gæði þjónustu. Þetta er á meðal niðurstaðna í KPMG sem vann stöðumat fyrir fjármála- og efnahagsráðuneytið um innleiðingu betri vinnutíma í dagvinnu. 6.12.2022 15:45
Sólveig og Steinunn til Century Aluminum Sólveig Kr. Bergmann og Steinunn Dögg Steinsen hafa tekið við nýjum hlutverkum hjá Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls. 6.12.2022 13:20
Landsvirkjun áformar meiri orkuöflun á fjórum stöðum Ný orkuöflun Landsvirkjunar stefnir í að verða mjög umfangsmikil á næstu árum, að sögn forstjórans. Auk Hvammsvirkjunar áformar fyrirtækið stækkun virkjana á Þeistareykjum og við Sigöldu sem og vindorkulund við Búrfell. 6.12.2022 11:12
Delta hefur flugferðir til Detroit frá Íslandi Borgin Detroit í Michigan-ríki í Bandaríkjunum bætist við sem áfangastaður Delta Air Lines á Íslandi frá og með 15. maí næstkomandi. Um er að ræða þriðja áfangastaðinn sem fólk getur ferðast til frá Íslandi með Delta. 6.12.2022 11:00
Þrjú ný hjá PLAIO Sara Árnadóttir, Eggert Gíslason og Andri Sveinn Ingólfsson hafa öll verið ráðin til tæknifyrirtækisins PLAIO. Öll eru þau sérfræðingar í hugbúnaði. 6.12.2022 10:41
Gjaldþrot umdeildrar starfsmannaleigu nam 320 milljónum króna Um tuttugu milljónir króna fengust greiddar af forgangskröfum í þrotabú starfsmannaleigunnar Verkleigunnar. Forsvarsmaður fyrirtækisins fékk tveggja ára dóm fyrir tveimur árum fyrir skattsvik. 5.12.2022 16:48
Aðstoðarmaður borgarstjóra ráðinn þróunar- og viðskiptastjóri Veitna Pétur Krogh Ólafsson hefur verið ráðinn þróunar- og viðskiptastjóri Veitna, dótturfyrirtækis Orkuveitu Reykjavíkur (OR). Pétur mun meðal annars sjá um samskipti og samhæfingu áætlana milli sveitarfélaga og Veitna og mun heyra beint undir Sólrúnu Kristjánsdóttur framkvæmdastýru fyrirtækisins. 5.12.2022 15:36