Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gjaldeyrisforðinn minnkaði um 17,6 milljarða í febrúar Gjaldeyrisforði Seðlabankans nam um 514,6 milljörðum kr. í lok febrúar og lækkaði um 17,6 milljarða kr. milli mánaða. 14.3.2013 06:18
Tugmilljóna verð fyrir stóðhest Framherji frá Flagbjarnarholti er líklega með dýrustu stóðhestum sem seldir hafa verið hér á landi og keyptir af einum aðila. Á vef Eiðfaxa segir að talið sé að hann hafi verið seldur á dögunum fyrir um 40 til 50 milljónir íslenskra króna. Til samanburðar þá var verðmiðinn á Álfi frá Selfossi 60 milljónir, þegar falast var eftir honum fyrir nokkrum árum. 13.3.2013 15:02
Miklar lækkanir á skuldabréfamarkaði Miklar hræringar hafa verið á skuldabréfamarkaði í morgun. Ávöxtunarkrafa allra markflokka hefur hækkað, og í mörgum tilfellum hefur hækkunin verið veruleg, segir í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka. 13.3.2013 13:59
Spáir óbreyttum stýrivöxtum Greining Íslandsbanka spáir því að Seðlabankinn muni halda stýrivöxtum sínum óbreyttum á næsta vaxtaákvörðunarfundi, sem verður 20. mars næstkomandi. 13.3.2013 10:51
Hafa áhyggjur af "gullgrafaraæði" í ferðaþjónustunni Stjórn Ferðamálasamtaka Íslands lýsir áhyggjum af því "gullgrafaraæði“ sem virðist vera að grípa um sig í ferðaþjónustunni. 13.3.2013 10:37
FME varar við viðskiptum sem auglýst eru á Facebook á Íslandi Fjármálaeftirlitið (FME) vekur athygli á því að Evrópska eftirlitsstofnunin á verðbréfamarkaði (ESMA) og Evrópska eftirlitsstofnunin á bankamarkaði (EBA) hafa gefið út viðvörun til fjárfesta um viðskipti með CFD fjármálagerninga. Slíkir gerningar hafa verið markaðssettir hér á landi m.a. með auglýsingum á Facebook. 13.3.2013 06:26
Afhjúpandi málsgögn í innherjasvikamáli Glitnir stóð afar höllum fæti strax í upphafi árs 2008 og starfsmenn bankans gerðu sér grein fyrir því, samkvæmt töluvupóstum sem vitnað er til í dómi Héraðsdóms Reykjaness í innherjasvikamáli frá því í gær. Maðurinn sem fékk eins árs fangelsisdóm fyrir innherjasvik í gær, hefur áfrýjað dómnum til Hæstaréttar. 12.3.2013 20:12
Styrkja hönnuð á RFF um hálfa milljón Tískuhátíðin Reykjavík Fashion Festival hefst á fimmtudag og nær hápunkti með stórri sýningu í Hörpu á laugardag. Nokkrir af fremstu fatahönnuðum þjóðarinnar taka þátt á hátíðinni og sýna nýjustu línur sínar. 12.3.2013 17:00
Um tíu innherjamál hafa verið til rannsóknar hjá saksóknara Um tíu innherjamál hafa verið til rannsóknar hjá embætti sérstaks saksóknara, sem tengjast hruni fjármálakerfisins. Fjármálaeftirlitið kærði eða vísað 22 innherjamálum til embættisins er tengjast hruni fjármálakerfisins. 12.3.2013 13:55
Hallinn á rekstri hins opinbera minnkaði töluvert milli ára Afkoma hins opinbera var neikvæð um 58,5 milljarða króna í fyrra eða 3,4% af landsframleiðslu. Til samanburðar var afkoman neikvæð um 91,1 milljarð króna árið 2011 eða 5,6% af landsframleiðslu. 12.3.2013 09:06
Gengi krónunnar á undir högg að sækja í vor Reikna má með að gengi krónunnar eigi undir högg að sækja þegar kemur fram á vorið. Mikið útflæði verður þá á gjaldeyri frá opinberum aðilum. 12.3.2013 07:04
Framkvæmdir fyrir 3 milljarða hafnar í Leifsstöð Framkvæmdir eru hafnar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar sem miða að því að auka afköst í stöðinni og stytta biðtíma við afgreiðslu flugfarþega meðal annars með fjölgun sjálfsinnritunarstöðva, fjölgun brottfararhliða, fjölgun landamærabásum og nýjum biðsvæðum. 12.3.2013 06:15
Staða bankans mun verri en gögn gáfu til kynna Erlend tryggingafélög hins fallna Landsbanka telja að rangar upplýsingar hafi legið til grundvallar þegar samningur um tryggingar voru gerðir. Staða bankans hafi verið mun verri en ársreikningar og önnur gögn um rekstur hans gáfu til kynna. 11.3.2013 19:11
WOW flýgur til Parísar allt árið WOW air hefur ákveðið að auka við flug félagsins til Parísar og mun fljúga þangað allt árið um kring. Flogið verður sex sinnum í viku næsta sumar, á mánudögum, miðvikudögum, föstudögum, laugardögum og sunnudögum. Fyrsta flug sumarsins til Parísar verður 8. júní, segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. 11.3.2013 15:21
Eins árs fangelsi fyrir innherjasvik Friðfinnur Ragnar Sigurðsson, fyrrverandi starfsmaður Glitnis, var dæmdur í tólf mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir innherjasvik. Þá eru 19,2 milljónir króna gerðar upptækar hjá honum. Friðrik Ragnar var fundinn um að hafa selt bréf í Glitni, í aðdraganda hruns hans, þrátt fyrir að hafa haft upplýsingar sem töldust innherjaupplýsingar. Í dómnum segir að með hliðsjón af nauðsyn varnaðaráhrifa kemur ekki til greina að skilorðsbinda refsinguna. 11.3.2013 12:13
Tæplega 4,2 milljarða velta á fasteignamarkaði borgarinnar Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku var 112 að því er segir á vefsíðu Þjóðskrár Íslands. Þetta er nokkuð yfir vikumeðaltalinu síðustu þrjá mánuði sem er 101 samningur. 11.3.2013 10:35
Íslandsbanki og Datamarket kynna fasteignamælaborð Íslandsbanki hefur í samvinnu við Datamarket þróað sérstakt fasteignamælaborð þar sem hægt er að skoða þróun íbúðamarkaðarins og lykiltalna honum tengdum. Til að mynda er hægt að fletta upp verðþróun íbúða/einbýla í einstökum hverfum höfuðborgarsvæðisins og eftir landshlutum. Hægt er að skoða þróunina allt frá árinu 1990. 11.3.2013 08:53
Hagnaður Faxaflóahafna jókst um 119 milljónir milli ára Rekstrarhagnaður Faxaflóahafna á síðasta ári nam rúmlega 367 milljónum kr. Þetta er tæplega 119 milljónum kr. betri niðurstaða en árið áður. 11.3.2013 07:58
Katrín Jakobs: Þurfum að ræða myntsamstarf við Norðmenn til hlítar Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, segir að ræða þurfi alla raunhæfa kosti Íslands í gjaldmiðilsmálum til hlítar. Hún segir myntsamstarf við Norðmenn eitthvað sem þurfi að skoða í þessu samhengi. 10.3.2013 23:30
Brandenburg með bestu mörkunina Auglýsingastofan Brandenburg hlaut verðlaun fyrir bestu mörkunina á verðlaunahátið FÍT – félags íslenskra teiknara í kvöld. Verðlaunin fékk stofan fyrir heildarútlit sitt, en auk verðlauna fyrir bestu mörkun vann Brandenburg aðalverðlaun fyrir merki stofunnar og í flokknum bókakápur fyrir bókina "Stuð vors lands“ sem Hrafn Gunnarsson hannaði fyrir Sögur útgáfu. 8.3.2013 23:04
Dow Jones hækkaði fjórða daginn í röð Dow Jones vísitalan á Wall Street sló met fjórða daginn í röð þegar mörkuðum var lokað vestanhafs í dag. Hún hækkaði um 0,5 prósent frá því í gær. 8.3.2013 21:46
Einblínt á að lífeyrissjóðirnir eignist hlut í bönkunum Íslenskir einstaklingar og fjárfestar sem tengjast MP banka, fá ekki að kaupa Íslandsbanka eða Arion banka, en þeir hafa sýnt áhuga á því að kaupa bankana. Fyrst og fremst er horft til þess að íslenskir lífeyrissjóðir kaupi hluta í bönkunum, en það er liður í því að semja við kröfuhafa bankanna. 8.3.2013 18:30
Rauðar og grænar tölur í kauphöllinni Rauðar tölur, sem einkenna lækkun, og grænar tölur, sem einkenna hækkun, sáust í lok dags í dag þegar lokað var fyrir viðskipti í Kauphöll Íslands. Gengi bréf í Vodafone lækkaði mest, eða um 1,34 prósent og er gengi bréfa félagsins nú 33,2. 8.3.2013 17:00
Latibær semur við Advania Latibær ehf. hefur samið við Advania um prentrekstur í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Garðabæ. Um er að ræða heildræna útvistun á umhverfisvottaðri prentþjónustu í samvinnu við Xerox. Samningurinn felur í sér að Latibær greiðir einungis fyrir prentuð eintök og sækir allan tækjabúnað, rekstrarvöru og þjónustu til Advania. 8.3.2013 12:51
Ísland er „jarðhitarisi“ - miklar áskoranir framundan í orkumálum heimsins "Ísland er lítið land, en risi á sviði jarðhita,“ segir Dr. Sri Mulyani Indrawati, framkvæmdastjóri Alþjóðabankans og fyrrverandi fjármálaráðherra Indónesíu. Hún telur sérþekkingu á Íslandi, á sviði jarðhitanýtingar og nýtingar á endurnýjanlegum orkugjöfum, geta hjálpað ríkjum heims að takast á við miklar áskoranir á sviði orkumála sem heimurinn stendur nú frammi fyrir. 8.3.2013 10:49
Kópavogur gengur frá samningi við Dexia bankann Kópavogsbær hefur staðfest að gengið hafi verið frá samkomulagi við Dexia bankann um framlengingu á skuld að upphæð 10 milljónir evra eða rúmlega 1,6 milljarða kr. 8.3.2013 09:30
Laun hækkuðu mest í fjármálafyrirtækjum Regluleg laun voru að meðaltali 0,8% hærri á fjórða ársfjórðungi í fyrra en í ársfjórðungnum á undan. Frá fyrra ári hækkuðu laun um 4,8% að meðaltali, hækkunin var 5,1% á almennum vinnumarkaði og 4,0% hjá opinberum starfsmönnum. 8.3.2013 09:09
Hagvöxturinn mældist 1,6% í fyrra Landsframleiðsla jókst að raungildi um 1,6% í fyrra og er það annað árið í röð sem landsframleiðsla eykst, en hún jókst um 2,9% árið 2011 eftir mikinn samdrátt tvö ár þar áður. 8.3.2013 09:04
Gullforði Íslands minnkar um milljarð frá áramótum Verðlækkanir á heimsmarkaði á gulli hafa leitt til þess að gullforði Seðlabankans hefur minnkað um rúman milljarð kr. í verði frá áramótum. Stendur gullforðinn í tæpum 12,7 milljörðum kr. 8.3.2013 07:26
Veltan eykst en á móti dregur úr verðhækkunum á íbúðamarkaðinum Veltan á fasteignamarkaðinum hefur aukist töluvert á síðustu mánuðum en á sama tíma hefur dregið verulega úr verðhækkunum á íbúðum. 8.3.2013 06:33
Tap HR í fyrra um 120 milljónir króna Háskólinn í Reykjavík hefur tapað um 750 milljónum króna á þremur árum. Rektor skólans segir að jafnvægi muni nást í rekstri hans á þessu ári. Mikill niðurskurður vinni á móti lækkandi framlögum ríkis og hærri húsnæðiskostnaði. 8.3.2013 06:00
Vodafone hagnaðist um tæpa 3 milljarða Hagnaður Vodafone (Fjarskipta hf.) á síðasta ári, fyrir fjármagnstekjur, afskriftir og skatta, nam 2.768 milljónum króna á síðasta ári og hækkaði um 352 milljónir milli ára. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. 8.3.2013 06:00
Nýja Facebook eins og dagblað Íslendingar eru engin undantekning þegar kemur að samfélagsmiðlinum Facebook. Fjölmargir kíkja á síðuna á degi hverjum og margir hverjir fylgjast með gangi mála þar daginn út og inn. 7.3.2013 19:00
Deildu um ný gögn í Al Thani - aðalmeðferð verður ekki frestað Lögmaður Ólafs Ólafssonar, eins ákærða í Al Thani-málinu, segir að samningur Sheiks Al Thani við slitastjórn Kaupþings, um að hann hafi greitt upp allar skuldir sínar vegna hlutabréfakaupa í bankanum, sýni að málið allt sé byggt á sandi. Þessu mótmælir saksóknari, en hann lagði fram ný gögn í málinu í morgun. 7.3.2013 18:34
Tíu hugmyndir keppa um Gulleggið Nú er orðið ljóst hvaða tíu hugmyndir keppa til úrslita í Gullegginu, frumkvöðlakeppni Innovit. Hátt í 330 hugmyndir hófu keppni í janúar sem er mesti fjöldi hugmynda frá upphafi. 7.3.2013 14:34
Ekkert lát á fjölgun ferðamanna í ár Ekkert lát virðist ætla að verða á fjölgun erlendra ferðamanna hér á landi. 7.3.2013 08:53
Fasteignaveltan í borginni jókst um 32% milli ára í febrúar Þinglýst var 431 kaupsamningi um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í febrúar s.l. 7.3.2013 08:23
Eignir lífeyrissjóða orðnar 2.434 milljarðar Hrein eign lífeyrissjóða nam 2.434 milljörðum kr. í lok janúar og hafði þar með aukist um 40 milljarða kr. frá áramótum eða um 1,7%. 7.3.2013 06:26
Verulegar breytingar á siglingakerfi Eimskips Eimskip hefur tilkynnt um verulegar breytingar á siglingakerfi félagsins. Þær helstu eru að teknar verða upp vikulegar strandsiglingar með beinni tengingu við Færeyjar, Bretland og meginland Evrópu 7.3.2013 06:23
Farþegum Icelandair í millilandaflugi fjölgaði um 12% Í febrúar flutti Icelandair um 104 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 12% fleiri en í febrúar á síðasta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. 7.3.2013 06:22
Hörð átök um stjórnarskrármálið Hörð átök hafa átt sér stað í umræðum um stjórnarskrárfrumvarpið á Alþingi í dag, en nú fer lokatilraun þeirra sem vilja að frumvarpið verði afgreitt í heild sinni fram á þingi, en stefnt er að því að ljúka annarri umræðu nú síðdegis. Þór Saari hefur lagt fram vantrauststillögu vegna nýrrar tillögu stjórnarmeirihlutans um að klára ekki heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar nú. 6.3.2013 18:12
Stórmarkaðir vísa eftirlitsmönnum aftur á dyr Starfsmönnum Verðlagseftirlits ASÍ var vísað á dyr í fjórum verslunum í gær, líkt og gerðist í síðasta mánuði. Þær verslanir sem vilja takmarka aðgengi neytenda að upplýsingum um vöruverð hjá sér eru Hagkaup, Nóatún, Víðir og Kostur, samkvæmt upplýsingum frá ASÍ. Þetta gerist á sama tíma og verðbólga í landinu er komin á skrið. 6.3.2013 15:43
Björgólfur Jóhannsson nýr formaður SA Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair, var kjörinn formaður Samtaka atvinnulífsins á aðalfundi samtakanna í dag. Björgólfur hafði einn lýst yfir framboði en hann tekur við af Vilmundi Jósefssyni. Björgólfur hefur verið forstjóri Icelandair um árabil. 6.3.2013 14:51
Gistinóttum fjölgaði um 25% í janúar Gistinætur á hótelum í janúar voru 90.300 og fjölgaði um 25% frá janúar í fyrra. Gistinætur erlendra gesta voru um 83% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 28% frá sama tíma í fyrra. Jafnframt fjölgaði gistinóttum Íslendinga um 13%. 6.3.2013 09:07
Vöruskiptin hagstæð um 7,6 milljarða í febrúar Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir febrúa var útflutningur 49,6 milljarðar króna og innflutningur tæpir 42 milljarðar króna. Vöruskiptin í febrúar, reiknuð voru því hagstæð um 7,6 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum, að því er segir á vefsíðu Hagstofunnar. 6.3.2013 09:05