Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hreiðar Már og Kristján Ara sleppa líklega undan ábyrgð Allt útlit er fyrir að Hreiðar Már Sigurðsson, Kristján Arason og fleiri yfirmenn í Kaupþingi sleppi undan persónulegri ábyrgð vegna hlutabréfakaupa þar sem eignarhaldsfélög þeirra utan um bréfin voru stofnuð nógu snemma til að erfitt verði að rifta flutningnum. Búast má við að öðrum yfirmönnum sem stofnuðu félög sín síðar verði stefnt í haust náist ekki samkomulag um greiðslu. 31.8.2010 18:45
GAMMA: GBI hækkaði í um hálft prósent Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,5% í dag í 8,8 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,7% í 5,6 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,3% í 2,2 ma. viðskiptum. 31.8.2010 16:20
HS Orka stórtapar HS Orka talaði tæplega tveimur milljörðum króna á fyrri hluta ársins. Á sama tíma á síðasta ári skilaði HS Orka 612 milljóna króna hagnaði. 31.8.2010 15:44
Jóhannes keypti eitt stærsta smásölufyrirtæki Færeyja Færeyska smásölufyrirtækið sem Jóhannes Jónsson keypti helmingshlut í af Högum er eitt stærsta smásölufyrirtækið í Færeyjum með veltu upp á rúmlega sjö milljarða króna og átta verslanir. Þá keypti Jóhannes þrjár tískuvöruverslanir. Samningur Jóhannesar við Arion banka gerir ráð fyrir að kaupverðið verði greitt með reiðufé. 31.8.2010 12:15
Fjárfestingar á Cayman eyjum jókst um sextán þúsund prósent Bein fjárfesting Íslendinga í skattaskjólinu á Cayman eyjum jókst um tæplega sextán þúsund prósent milli áranna 2008 og 2009. Hækkunin skýrist fyrst og fremst af því að Seðlabankinn hefur ekki haft aðgang að gögnum frá skattaparadísinni fyrr en nú. 31.8.2010 12:08
Skuldir þjóðarbúsins minnka Skuldir íslenska þjóðarbúsins umfram eignir nam 5.711 krónum í lok annars ársfjórðungs og lækkuðu nettóskuldir um 189 milljarða króna frá fyrsta ársfjórðungi. Við lok annars ársfjórðungs námu erlendar skuldir þjóðarbúsins 13.917 milljörðum króna en erlendar eignir voru 8.206 milljarðar króna, samkvæmt tölum Seðlabankans sem birtar voru í gær. 31.8.2010 11:20
Íslendingar léttari í lundu Væntingar Íslendinga hafa ekki verið eins miklar og nú frá bankahruni, ef marka má Væntingavísitölu Gallup sem birt var um hádegisbilið í gær. 31.8.2010 11:07
Hátt í þrjátíu manns sagt upp hjá Avant Bráðabirgðastjórn fjármögnunarfyrirtækisins Avant ákvað í gær að segja upp öllu starfsfólki fyrirtækisins. Helstu lánadrottnar Avatn hafa tekið vel í tillögu að nauðasamningum sem leggja á fyrir Héraðsdóm á næstunni. 31.8.2010 10:49
Hagar: 44 milljónir í hagnað og engar arðgreiðslur Hagar skiluðu 44 milljóna króna hagnaði rekstrarárið 2009/2010 en ársreikningur félagsins var birtur í gær en samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins 21. apríl 2010. Stjórnin hefur lagt það tl að ekki verði greiddur út arður til hluthafa að þessu sinni. 31.8.2010 10:47
Landsbjörg og Skyggnir í samstarf Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur samið við Skyggni um rekstur á upplýsingatækniumhverfi félagsins. Skyggnir mun annast rekstur lykilkerfa, vöktun á búnaði og neti Landsbjargar og afritun á tölvugögnum úr tölvukerfum þess. 31.8.2010 10:26
FME hefði átt að banna kaup á NIBC Fjármálaeftirlitið (FME) hafði efasemdir um það hvort skynsamlegt væri að gefa Kaupþingi leyfi til að kaupa hollenska bankann NIBC haustið 2007. Þetta segir Jónas Fr. Jónsson, þáverandi forstjóri FME. „Með því að samþykkja ekki umsóknina strax var komið í veg fyrir að bankakerfið hér yrði þriðjungi stærra,“ segir hann. 31.8.2010 06:15
Hagnast á sterkara gengi krónu Eignarhaldsfélagið Smáralind hagnaðist um 255 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tíma fyrir ári tapaði félagið rúmum einum milljarði króna. 31.8.2010 05:45
Steinn Logi tekur við af Jóhannesi „Það hefur verið ljóst að þetta gæti skeð,“ segir Jóhannes Jónsson, stofnandi Bónuss, sem í gær var vikið úr sæti stjórnarformanns Haga og tilkynnt að hann væri hættur afskiptum af félaginu. Réttur hans til að kaupa tíu prósent hlutafjár í Högum við sölu eða skráningu félagsins á markað var jafnframt felldur úr gildi. Kaupréttur stjórnenda Haga féll um leið niður. 31.8.2010 05:15
Hægir á hjöðnun verðbólgu Vísitala neysluverðs mun hækka um nærri eitt prósent í október, samkvæmt bráðabirgðaspá greiningardeildar Íslandsbanka. Ástæða hækkunarinnar er að langstærstum hluta hækkun Orkuveitu Reykjavíkur á gjaldskrá sinni og eru bein áhrif hennar metin um 0,39 prósent. Hækkunin mun hægja á hjöðnun verðbólgunnar næstu mánuði en ekki koma í veg fyrir hana. Má enn reikna með því að verðbólgan nái verðbólgumarkmiði Seðlabankans snemma á næsta ári, segir í Morgunkorni greiningardeildarinnar frá því í gær. Fyrir þau heimili sem kaupa veituþjónustu OR nemur hækkunin 0,7 prósentum af heimilisútgjöldum. 31.8.2010 04:15
Sigurður krafinn um 600 milljónir Slitastjórn Kaupþings hefur stefnt Sigurði Einarssyni, fyrrverandi stjórnarformanni, til greiðslu á um 600 milljóna króna skuld sem stofnað var til vegna hlutabréfakaupa í bankanum. 30.8.2010 18:45
Jóhannes fékk ekki lán hjá Arion banka „Kaupverðið fékk hann ekki að láni hjá Arion banka,“ segir Iða Brá Benediktsdóttir, upplýsingafulltrúi Arion banka, í samtali við fréttastofu aðspurð hvort bankinn hafi lánað Jóhannesi Jónssyni fyrir kaupunum á SMS verslununum í Færeyjum og sérvörubúðunum Top Shop, Zara og All Saints. Kaupverð þessara eigna er 1.237,5 milljónir króna. 30.8.2010 18:08
Jóhannes: Ætla að eignast Bónus aftur Jóhannes Jónsson, kaupmaður, hefur fullan hug á að gera tilboð í Haga og þar með eignast Bónus aftur. Fyrr í dag var tilkynnt að Jóhannes hefði vikið úr stjórn Haga hf. og hætt störfum og afskiptum af félaginu. Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, segir hagsmuni bankans og Jóhannesar ekki lengur fara saman. 30.8.2010 17:27
Erlendar skuldir Íslands nærri fjórtán þúsund milljarðar Á vef Seðlabanka Íslands hafa nú verið birt bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd á öðrum ársfjórðungi 2010 og um stöðu þjóðarbúsins í lok fjórðungsins. 30.8.2010 16:25
Eftirlitsnefnd vissi ekki um vanskil hjá Reykjanesbæ Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hyggst senda bréf til þeirra sveitarfélaga sem skulda meira en 150% af heildartekjum á næstu dögum. Reykjanesbær hefur ekki greitt lán upp á 1,8 milljarða sem féll í gjalddaga í byrjun ágúst. Eftirlitsnefndin vissi ekki um það. 30.8.2010 12:01
Þorskurinn skilar þriðjungi Aflaverðmæti þorskafurða nam 36,9 milljörðum árið 2009. Heildaraflaverðmæti var 115 milljarðar svo 32 prósent þess liggja í þorskinum. 30.8.2010 06:00
Fleiri 11-11 verslunum verður lokað Kaupás hefur lokað þremur matvöruverslunum 11-11 á höfuðborgarsvæðinu upp á síðkastið; einni við Skipholt og annarri við Kirkjustétt í Grafarholti. Um síðustu áramót lokaði fyrirtækið annarri 11-11 verslun við Skúlagötuna. Verslanir undir merkjum 11-11 eru nú fimm talsins. 30.8.2010 02:00
Milljarða hagnaður OR Orkuveita Reykjavíkur skilaði meira en fimm milljarða hagnaði á fyrri hluta ársins, þrátt fyrir að stjórn Orkuveitunnar telji hana ekki geta staðið undir endurgreiðslu lána að óbreyttu. Stjórnarformaðurinn segir hagnaðinn kunna að horfa einkennilega við almenningi. 29.8.2010 18:30
Sitja uppi með hækkun á dreifigjaldi Fjögurra manna fjölskylda getur mest sparað sér um hundrað krónur á mánuði með því að skipta við annan smásala eftir gjaldskrárhækkun Orkuveitu Reykjavíkur. Þeir sitja hins vegar uppi með stórfellda hækkun á dreifigjaldi Orkuveitunnar. 29.8.2010 12:00
Fasteignir seldar fyrir 1300 milljónir í síðustu viku Heildarvelta á fasteignamarkaði nam tæplega 1,3 milljörðum króna í vikunni sem leið. Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu dagana 20. ágúst til og með 26. ágúst 2010 var 55. Þar af voru 45 samningar um eignir í fjölbýli, 8 samningar um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Meðalupphæð á samning 22,9 milljónir króna. 28.8.2010 11:14
Engar afskriftir hjá Róberti Wessman Róbert Wessman segir að engin lán Glitnis til hans verði afskrifuð, allar lánveitingar bankans til hans verði gerðar upp og hann hafi ekkert að fela. 27.8.2010 22:43
Róbert Wessman meðal stærstu skuldara Glitnis Róbert Wessman, fyrrverandi forstjóri Actavis, var með 22 milljarða króna útistandandi lán hjá Glitni banka, rétt fyrir hrunið, en aðeins ári áður seldi hann hluti sína í Actavis til Novators fyrir um það bil 11 milljarða króna. Stærstur hluti lánsins er að öllum líkindum glatað fé. 27.8.2010 18:57
Sigurður Einarsson neitar að biðja þjóðina afsökunar Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings banka, segist ekki ætla að biðja þjóðina afsökunar á framferði sínu þar sem hann hafi ekki haft neitt umboð frá henni, aðeins hluthöfum Kaupþings. Honum þykir samt leitt að starfsemi bankans hafi bitnað á fólkinu í landinu. 27.8.2010 18:48
Bjarni Ármanns: Átti ekki íbúðina í Noregi Bjarni Ármannsson, fyrrverandi bankastjóri Glitnis, segist ekki hafa átt íbúð í Noregi sem hann dvaldi í meðan hann var bankastjóri. Þá segir hann að kostnaður sem bankinn greiddi vegna dvalar hans hafi verið hluti af rekstrarkostnaði bankans, enda var íbúðin eign bankans. 27.8.2010 13:16
Nýskráningum einkahlutafélaga fækkar Í júlí 2010 voru skráð 103 ný einkahlutafélög samanborið við 208 einkahlutafélög í júlí 2009, sem jafngildir rúmlega 50% fækkun milli ára. Á sama tíma voru 39 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 35 fyrirtæki í júlí 2009. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. 27.8.2010 10:16
Vísitala framleiðsluverðs lækkar Vísitala framleiðsluverðs í júlí lækkaði um 3,3% frá júní. Miðað við júlí 2009 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 6,1%, að því er fram kemur á veg Hagstofu Íslands. 27.8.2010 09:32
Öllum framkvæmdastjórum Landsbankans sagt upp Öllum núverandi framkvæmdastjórum Landsbankans, átta að tölu, verður sagt upp og stöður þeirra auglýstar lausar til umsóknar. Þetta er á meðal þess sem kom fram þegar Steinþór Pálsson bankastjóri kynnti í gær nýtt skipurit fyrir starfsmönnum í gær. 27.8.2010 07:15
ÍLS tapar 1,7 milljarði, sjóðurinn á nú 739 íbúðir Tapið af rekstri Íbúðalánasjóðs (ÍLS) á fyrstu sex mánuðum ársins nam tæpum 1,7 milljarði kr. samkvæmt rekstrarreikningi. Eigið fé sjóðsins í lok júní nam 8.4 milljörðum kr. og er eiginfjárhlutfallið því komið niður í 2,1%. Sjóðurinn á nú orðið 739 íbúðir sem hann hefur leyst til sín. 26.8.2010 21:20
Fyrstu skref í átt að stórframkvæmdum Tilboð í byggingarhluta Búðarhálsvirkjunar voru opnuð í dag þrátt fyrir að alger óvissa ríki um fjármögnun verksins. Þetta eru fyrstu skref að því að koma stórframkvæmdum í gang eftir efnahagshrunið sem varð haustið 2008. 26.8.2010 14:43
Jarðboranir hafa fækkað starfsmönnum úr 210 í 90 Jarðboranir ætla að segja upp 20 starfsmönnum og taka uppsagnirnar til allra deilda félagsins. Meginástæðan fyrir þessum uppsögnum er sá dráttur sem orðið hefur á fyrirhuguðum framkvæmdum við orkuöflun í tengslum við álverið í Helguvík. Í tilkynningum frá Jarðborunum segir að fyrirtækið hafi eins og fjölmörg íslensk fyrirtæki þurft að draga saman seglin í þeirri efnahagslægð sem nú ríki. Fyrir utan almennar hagræðingaraðgerðir hafi félagið neyðst til að fækka starfsmönnum úr 210 niður í 90 á tveimur árum. 26.8.2010 13:54
GGE mótmælir vinnubrögðum og biðlar til umboðsmanns Geysir Green Energy, sem á dögunum seldi hlut sinn í HS Orku, hefur sent viðskiptaráðherra bréf þar sem vinnubrögðum ríkisstjórnarinnar í kjölfar sölunnar er mótmælt. Fyrirtækið segir að nefnd, sem forsætisráðherra hefur skipað og á að rannsaka kaup Magma Energy Sweden á hlut GGE, starfi ekki í krafti neinna laga og sé í raun umboðslaus. 26.8.2010 13:26
Íslandsbanki sendir ekki greiðsluseðla í september Íslandsbanki Fjármögnun hefur ákveðið að senda ekki út greiðsluseðla vegna gjalddaga í september á bílalánum og kaupleigusamningum í erlendri mynt. Áður hafði bankinn frestað gjalddögum í júlí og ágúst á fyrrgreindum lánum, þar sem óvissa ríkti um hvernig haga skyldi endurreikningi þeirra í kjölfar dóms Hæstaréttar frá 16. júní um ólögmæti lánanna. 26.8.2010 12:09
Stjórnendur VBS fjárfestingabanka lengdu í eigin kúlulánum Stjórnendur og starfsmenn VBS fjárfestingabanka lengdu í eigin kúlulánum upp á millarð króna, á svipuðum tíma og ríkið lagði tugi milljarða til bankans. Viðskiptablaðið greinir frá þessu í dag. Þar segir að með því að færa til gjalddaga, en á kúlulánum er aðeins einn gjalddagi, hafi stjórnendurnir komið sér undan því að þurfa að greiða nokkuð af lánunum næstu sjö árin. 26.8.2010 12:06
Tilboð opnuð í Búðarhálsvirkjun Tilboð verða opnuð í byggingarhluta Búðarhálsvirkjunar í dag. Samkvæmt tilkynningu frá Landsvirkjun er gert ráð fyrir að verkið hefjist fyrir árslok og að virkjunin verði komin í fullan rekstur fyrir árslok 2013. Gert er ráð fyrir að heildarfjöldi ársverka sem skapist á Íslandi vegna byggingar virkjunarinnar verði á milli 600-700 yfir allan framkvæmdartímann. Þegar flest verði á vinnustað verði þar um 300 manns. 26.8.2010 09:41
Íslendingar þéna vel á samgöngum Þjónustujöfnuður á öðrum ársfjórðungi var jákvæður um 13,6 milljarða króna, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Útflutningur á þjónustu nam 79,6 milljörðum króna en innflutningur á þjónustu 66,0 milljörðum króna. 26.8.2010 09:25
Um 4,5% verðbólga Tólf mánaða verðbólga er 4,5% samkvæmt tölum Hagstofunnar sem birtar voru í morgun. Neysluverðsvísitala án húsnæðis er um 5,8%. Neysluverðsvísitalan er 363 stig og hækkaði um 0,25% frá fyrri mánuði. Neysluverðsvísitala án húsnæðis er hins vegar 344,9 stig og hækkaði um 0,38% 26.8.2010 09:02
Vill síður selja orku til álvera Ross Beaty, hinn kanadíski eigandi Magma Energy, móðurfélags HS Orku, gefur í skyn í bréfi sem hann skrifaði Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra nýlega, að hann hafi lítinn áhuga á að HS Orka selji orku til álvers Norðuráls í Helguvík. Hann kjósi frekar að sú „græna orka" sem HS Orka framleiðir úr jarðvarma á Reykjanesi og Svartsengi verði seld öðrum kaupendum en álveri. 26.8.2010 06:45
Þrír skulda um átta hundruð milljónir Ákveðið var á fundi skiptastjóra þrotabús BGE eignarhaldsfélags í gær að innheimta lán sem félagið veitti fyrrum starfsmönnum Baugs. Skuldin nemur um einum milljarði króna. 26.8.2010 05:45
Neytendastofa sektar Vodafone og Tal Neytendastofa sektaði fyrirtækin Tal og Vodafone á mánudag fyrir brot á samkeppnislögum, um tvær og hálfa milljón hvort. Síminn kvartaði til Neytendastofu vegna auglýsinga sem birtar voru í útvarpi og á netinu. 26.8.2010 03:00
Með níu þúsund á tímann allan sólarhringinn Meðlimir skilanefndar og slitastjórnar Landsbankans eru í svipaðri stöðu og starfsbræður þeirra hjá Glitni því þeir tóku rúmlega sex milljónir króna á mánuði að meðaltali fyrir störf sín fyrir fyrstu sex mánuði þessa árs. Þá réð skilanefndin sem framkvæmdastjóra mann sem Fjármálaeftirlitið hafði áður vikið úr skilanefndinni. 25.8.2010 18:30
Neytendastofa kannaði verðmerkingar á söfnum Aðeins eitt safn af 21 á höfuðborgarsvæðinu var ekki með verðmerkingar í lagi þegar Neytendastofa kannaði málið á dögunum. Það safn sem ekki var með upplýsingar um aðgangseyri til sýnis á safninu var Hönnunarsafn Íslands við Garðatorg. Í öllum tilfellum reyndust verðmerkingar á minjagripum og öðrum sambærilegum vörum í lagi. 25.8.2010 15:45