Vill síður selja orku til álvera 26. ágúst 2010 06:45 Ross Beaty.
Ross Beaty, hinn kanadíski eigandi Magma Energy, móðurfélags HS Orku, gefur í skyn í bréfi sem hann skrifaði Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra nýlega, að hann hafi lítinn áhuga á að HS Orka selji orku til álvers Norðuráls í Helguvík. Hann kjósi frekar að sú „græna orka" sem HS Orka framleiðir úr jarðvarma á Reykjanesi og Svartsengi verði seld öðrum kaupendum en álveri. Samkvæmt heimildum blaðsins setur Beaty þetta fram í bréfinu sem persónulega skoðun sína. Græn orka sé eftirsótt, fyrirtæki erlendis séu tilbúin að greiða fyrir hana mun hærra verð en gert er ráð fyrir í samningum íslenskra orkufyrirtækja við Norðurál og önnur álfyrirtæki. Áður er komið fram að í þessu bréfi var íslenska ríkinu boðinn forkaupsréttur að ráðandi hlut í fyrirtækinu og einnig opnað á viðræður Magma við íslenska ríkið um styttingu 65 ára leigutíma HS Orku á auðlindum á Reykjanesi. Fréttablaðið hefur óskað eftir því við iðnaðarráðuneytið að fá aðgang að bréfinu. Sú beiðni er til meðferðar í ráðuneytinu. Fram hefur komið í fréttum RÚV að Norðurál hefur vísað deilu við HS Orku til gerðardóms í Svíþjóð þar sem orkufyrirtækið vanefni samning um afhendingu orku til álversins í Helguvík. - pg
Mest lesið Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Viðskipti innlent Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Viðskipti innlent Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Neytendur Högnuðust um hálfan annan milljarð Viðskipti innlent Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Viðskipti erlent Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Viðskipti innlent Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Viðskipti innlent Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Viðskipti innlent Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Sjá meira