Róbert Wessman meðal stærstu skuldara Glitnis Þorbjörn Þórðarson skrifar 27. ágúst 2010 18:57
Róbert Wessman, fyrrverandi forstjóri Actavis, var með 22 milljarða króna útistandandi lán hjá Glitni banka, rétt fyrir hrunið, en aðeins ári áður seldi hann hluti sína í Actavis til Novators fyrir um það bil 11 milljarða króna. Stærstur hluti lánsins er að öllum líkindum glatað fé. Sumarið 2007 keypti Novator, félag Björgólfs Thors Björgólfssonar, sem var stærsti hluthafinn í samheitalyfjafyrirtækinu Actavís, aðra hluthafa út úr fyrirtækinu með lánum frá Deutsche Bank í einni stærstu yfirtöku Íslandssögunna. Meðal þeirra hluthafa sem keyptir voru út var Róbert Wessman, þáverandi forstjóri Actavis. Róbert seldi hluti sína í Actavis og fékk fyrir það rúmlega ellefu milljarða króna. Samkvæmt lánayfirliti Glitnis banka frá 30. september 2008 sem fréttastofa hefur undir höndum og fékk fyrir tilstuðlan vefsíðunnar Wikileaks, kemur fram að félög í eigu Róberts voru með rúmlega tuttugu og tvo milljarða króna útistandandi lán hjá bankanum, aðeins ári síðar. Þetta þýðir að lánveitingar til Róberts voru meðal stærstu áhættuskuldbindingum bankans meðal einstaklinga. Ef þær eru skoðaðar í samanburði við aðra stóra viðskiptamenn Glitnis, má nefna að heildarlánveitingar til Icelandair Group, móðurfélags Icelandair, námu 17 milljörðum króna á sama tíma. Róbert Wessman sagði í samtali við fréttastofu í dag að langstærstur hluti upphæðarinnar, 14-15 milljarðar króna, hafi verið lán til hlutabréfakaupa í Glitni banka. Hann hafi fengið átta milljarðar króna um það bil ári fyrir bankahrunið og afganginn aðeins viku fyrir þjóðnýtingu Glitnis, eða síðari hlutann í september. Róbert sagðist hafa lagt fram tryggingar sem námu þremur og hálfum milljarði króna m.a í formi hlutafjár í Actavis og persónulegra ábyrgða, og það hafi tapast. Róbert segist vera að kanna réttarstöðu sína vegna þessara viðskipta. Þá hafi hluti lánveitinganna verið vegna kaupa á hlutabréfum í þýska lyfjafyrirtækinu Mainsee. Þau bréf hafi verið seld og Glitnir fengið söluandvirðið sem veðhafi.
Tengdar fréttir Engar afskriftir hjá Róberti Wessman Róbert Wessman segir að engin lán Glitnis til hans verði afskrifuð, allar lánveitingar bankans til hans verði gerðar upp og hann hafi ekkert að fela. 27. ágúst 2010 22:43 Mest lesið Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Viðskipti innlent Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Neytendur Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Viðskipti innlent Kaldvík fær enn frekari frest Viðskipti innlent Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fleiri fréttir Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Sjá meira
Engar afskriftir hjá Róberti Wessman Róbert Wessman segir að engin lán Glitnis til hans verði afskrifuð, allar lánveitingar bankans til hans verði gerðar upp og hann hafi ekkert að fela. 27. ágúst 2010 22:43