Jóhannes keypti eitt stærsta smásölufyrirtæki Færeyja Þorbjörn Þórðarson skrifar 31. ágúst 2010 12:15 Jóhannes Jónsson, kaupmaður sem áður var kenndur við Bónus. Færeyska fyrirtækið sem keypt var í gær var með veltu upp á sjö milljarða króna í gær.
Færeyska smásölufyrirtækið sem Jóhannes Jónsson keypti helmingshlut í af Högum er eitt stærsta smásölufyrirtækið í Færeyjum með veltu upp á rúmlega sjö milljarða króna og átta verslanir. Þá keypti Jóhannes þrjár tískuvöruverslanir. Samningur Jóhannesar við Arion banka gerir ráð fyrir að kaupverðið verði greitt með reiðufé. Eins og greint var frá í gær hafa Arion banki og Jóhannes Jónsson, kaupmaður í Bónus, komist að samkomulagi um að Jóhannes víki úr stjórn Haga, en þetta var kynnt í gær aðeins degi fyrir sjötugsafmæli Jóhannesar, sem er í dag. Samhliða þessu var tilkynnt að Jóhannes og bankinn, sem eigandi Haga, hefðu komist að samkomulagi um kaup Jóhannesar á þremur tískuvöruverslunum hér á landi sem reknar voru undir Haga-samstæðunni. Þetta eru verslanir Zöru, All Saints og Top Shop og hluti af kaupunum var einnig 50 prósenta hlutur í verslanafyrirtækinu SMS í Færeyjum, en það er eitt stærsta fyrirtækið þar á sviði smásölu með átta verslanir, fasteignir og veltu sem hljóp á síðasta ári á rúmlega sjö milljörðum króna. Kaupverðið sem Jóhannes greiddi í þessum viðskiptum var rúmlega 1.200 milljónir króna og kveður kaupsamningurinn á um að kaupverðið verði greitt með reiðufé. Samkvæmt heimildum fréttastofu mat Arion banki það svo að það væru ekki hagsmunir bankans að selja Topshop, Zöru og All Saints með Högum, þar sem rekstrarleyfi vegna þessara verslana væru á nafni Jóhannesar og Jóns Ásgeirs sonar hans, en tengsl feðganna við stjórnendur og eigendur þessara fyrirtækja eru einnig sterk. Í þessu samhengi má nefna að áður en Hagar opnuðu Zöru-verslanir á Íslandi höfðu aðrir reynt slíkt hið sama, en ekki tekist og tókst Högum þetta m.a vegna beinna samskipta við Amancio Ortega, stofnanda fyrirtækisins og einn ríkasta mann Spánar. Jóhannes Jónsson vildi ekki veita fréttastofu viðtal í morgun þegar eftir því var leitað. Jón Ásgeir Jóhannesson, sonur Jóhannesar er kvæntur Ingibjörgu Pálmadóttur, sem er stærsti hluthafinn í 365 miðlum sem eiga og reka fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis.
Tengdar fréttir Jóhannes ekki lengur í Bónus Jóhannes Jónsson, kaupmaður, hefur vikið úr stjórn Haga hf. og hætt störfum og afskiptum af félaginu. Bankastjóri Arion banka segir hagsmuni bankans og Jóhannesar ekki fara lengur saman. Jóhannes getur ekki farið í samkeppnisrekstur við Haga næstu 18 mánuði. Gerður hefur verið 12 mánaða starfslokasamningur við Jóhannes auk þess sem hann fær 90 milljóna króna eingreiðslu við fullnaðaruppgjör á viðskiptum sínum við Arion banka. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion banka. 30. ágúst 2010 17:15 Steinn Logi tekur við af Jóhannesi „Það hefur verið ljóst að þetta gæti skeð,“ segir Jóhannes Jónsson, stofnandi Bónuss, sem í gær var vikið úr sæti stjórnarformanns Haga og tilkynnt að hann væri hættur afskiptum af félaginu. Réttur hans til að kaupa tíu prósent hlutafjár í Högum við sölu eða skráningu félagsins á markað var jafnframt felldur úr gildi. Kaupréttur stjórnenda Haga féll um leið niður. 31. ágúst 2010 05:15 Jóhannes fékk ekki lán hjá Arion banka „Kaupverðið fékk hann ekki að láni hjá Arion banka,“ segir Iða Brá Benediktsdóttir, upplýsingafulltrúi Arion banka, í samtali við fréttastofu aðspurð hvort bankinn hafi lánað Jóhannesi Jónssyni fyrir kaupunum á SMS verslununum í Færeyjum og sérvörubúðunum Top Shop, Zara og All Saints. Kaupverð þessara eigna er 1.237,5 milljónir króna. 30. ágúst 2010 18:08 Jóhannes: Ætla að eignast Bónus aftur Jóhannes Jónsson, kaupmaður, hefur fullan hug á að gera tilboð í Haga og þar með eignast Bónus aftur. Fyrr í dag var tilkynnt að Jóhannes hefði vikið úr stjórn Haga hf. og hætt störfum og afskiptum af félaginu. Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, segir hagsmuni bankans og Jóhannesar ekki lengur fara saman. 30. ágúst 2010 17:27 Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Forstjóri McDonald's hættir vegna sambands við samstarfsmann Viðskipti erlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira
Jóhannes ekki lengur í Bónus Jóhannes Jónsson, kaupmaður, hefur vikið úr stjórn Haga hf. og hætt störfum og afskiptum af félaginu. Bankastjóri Arion banka segir hagsmuni bankans og Jóhannesar ekki fara lengur saman. Jóhannes getur ekki farið í samkeppnisrekstur við Haga næstu 18 mánuði. Gerður hefur verið 12 mánaða starfslokasamningur við Jóhannes auk þess sem hann fær 90 milljóna króna eingreiðslu við fullnaðaruppgjör á viðskiptum sínum við Arion banka. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion banka. 30. ágúst 2010 17:15
Steinn Logi tekur við af Jóhannesi „Það hefur verið ljóst að þetta gæti skeð,“ segir Jóhannes Jónsson, stofnandi Bónuss, sem í gær var vikið úr sæti stjórnarformanns Haga og tilkynnt að hann væri hættur afskiptum af félaginu. Réttur hans til að kaupa tíu prósent hlutafjár í Högum við sölu eða skráningu félagsins á markað var jafnframt felldur úr gildi. Kaupréttur stjórnenda Haga féll um leið niður. 31. ágúst 2010 05:15
Jóhannes fékk ekki lán hjá Arion banka „Kaupverðið fékk hann ekki að láni hjá Arion banka,“ segir Iða Brá Benediktsdóttir, upplýsingafulltrúi Arion banka, í samtali við fréttastofu aðspurð hvort bankinn hafi lánað Jóhannesi Jónssyni fyrir kaupunum á SMS verslununum í Færeyjum og sérvörubúðunum Top Shop, Zara og All Saints. Kaupverð þessara eigna er 1.237,5 milljónir króna. 30. ágúst 2010 18:08
Jóhannes: Ætla að eignast Bónus aftur Jóhannes Jónsson, kaupmaður, hefur fullan hug á að gera tilboð í Haga og þar með eignast Bónus aftur. Fyrr í dag var tilkynnt að Jóhannes hefði vikið úr stjórn Haga hf. og hætt störfum og afskiptum af félaginu. Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, segir hagsmuni bankans og Jóhannesar ekki lengur fara saman. 30. ágúst 2010 17:27