Steinn Logi tekur við af Jóhannesi 31. ágúst 2010 05:15 Fyrsta verslunin. Jóhannes Jónsson opnaði fyrstu Bónusverslunina í apríl í Skútuvogi árið 1989. Fréttablaðið/Ljósmyndasafn reykjavíkur „
Það hefur verið ljóst að þetta gæti skeð,“ segir Jóhannes Jónsson, stofnandi Bónuss, sem í gær var vikið úr sæti stjórnarformanns Haga og tilkynnt að hann væri hættur afskiptum af félaginu. Réttur hans til að kaupa tíu prósent hlutafjár í Högum við sölu eða skráningu félagsins á markað var jafnframt felldur úr gildi. Kaupréttur stjórnenda Haga féll um leið niður. Fyrrverandi forstjóri Húsasmiðjunnar tekur við af Jóhannesi sem stjórnarformaður. Arion banki tók yfir 1998 ehf., móðurfélag Haga, í október í fyrra vegna þrjátíu milljarða króna skuldar félagsins við bankann. Jóhannes fær níutíu milljónir króna vegna uppgjörsins við Haga. Inni í upphæðinni eru samningsbundin kaupréttarákvæði og bann við samkeppni við Haga í eitt og hálft ár. Það sama á við um fjölskyldu Jóhannesar. Samhliða þessu samdi Jóhannes um kaup á sérverslunum Top Shop, Zara og All Saint og átta matvöruverslunum í Færeyjum fyrir 1.237 milljónir króna. Heimamenn í Færeyjum hafa átt helming á móti Högum í átján ár. Í tilkynningu frá Arion banka kemur fram að bankinn hafi ekki talið æskilegt að selja sérvöruverslanirnar vegna tengsla milli eigenda umboðanna og fjölskyldu Jóhannesar. Á meðal annarra eigna sem hann kaupir er bíll sem hann hefur haft til umráða, íbúð á Akureyri og sumarhús fyrir austan fjall. Áætlað verðmæti eignanna þriggja eru fjörutíu milljónir króna, samkvæmt upplýsingum úr Arion banka. Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Arion banka, segir áhuga Jóhannesar á að eignast hlut í Högum hafa staðið í mönnum. „Okkur fannst hreinlegra að hann færi út og væri í sömu aðstöðu og aðrir,“ segir hann. Steinn Logi Björnsson, fyrrverandi forstjóri Húsasmiðjunnar, tekur við af Jóhannesi sem stjórnarformaður. Um nokkurt skeið hefur legið fyrir að stjórnarseta Jóhannesar hafi tafið fyrir skráningu félagsins á markað. Fyrirhugað var að félagið færi á markað um mitt ár, en því var frestað. Höskuldur segir skráningarferli langt komið. „Þessir hlutir hafa tekið svolítinn tíma. Það er búið að losa um hluti og það gefur byr undir báða vængi,“ segir hann en stefnt er að því að skrá Haga fyrir áramót. Þegar Jóhannes er spurður hvort hann ætli þrátt fyrir þróun mála að halda til streitu þeirri ætlun sinni að kaupa hlut í Högum svarar hann: „Ég býst við því. Það þekkir félagið enginn betur en ég.“ jonab@frettabladid.is
Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Forstjóri McDonald's hættir vegna sambands við samstarfsmann Viðskipti erlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira