Jóhannes: Ætla að eignast Bónus aftur 30. ágúst 2010 17:27 Mynd/E.Ól.
Jóhannes Jónsson, kaupmaður, hefur fullan hug á að gera tilboð í Haga og þar með eignast Bónus aftur. Fyrr í dag var tilkynnt að Jóhannes hefði vikið úr stjórn Haga hf. og hætt störfum og afskiptum af félaginu. Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, segir hagsmuni bankans og Jóhannesar ekki lengur fara saman. Í samkomulagi Jóhannesar og bankans felst meðal annars, að Jóhannes kaupir hlut Haga í SMS, sem rekur matvörubúðir í Færeyjum. Einnig kaupir Jóhannes hluta af sérvörusviði Haga. Með þessum samningi lýkur aðkomu Jóhannesar að rekstri Haga og þar með Bónus, sem hann stofnaði ásamt fjölskyldu sinni fyrir rúmum tuttugu árum og hefur rekið óslitið síðan. ,,Fyrir 21 ári varð til sú hugmynd að opna lágvöruverslun undir nafni Bónuss. Frá fyrsta degi hefur Bónus boðið lægsta vöruverð á Íslandi og svo er enn. Með tilkomu Bónus lækkaði vöruverð á landinu verulega og Bónus hefur haldið fast við þá stefnu að bjóða sama verð um land allt. Bónus var byggð á hugmyndafræði og þekkingu sem við feðgar höfðum þróað með okkur um skeið fyrir opnun fyrstu verslunarinnar," segir Jóhannes í tilkynningu.Kveður fyrirtækið með söknuði Hann segir að Bónus hafi alla tíð verið vel rekið félag og staði við allar sínar skuldbindingar. „Það er sérstök tilfinning að þurfa að kveðja Bónus og ég segði ósatt, ef ég segðist ánægður með þá stöðu." Jóhannes kveður fyrirtækið og starfsfólk þess með söknuði. „Arion banki hefur tilkynnt mér að félagið fari nú í söluferli. Ég hef fullan hug á að gera tilboð í félagið og þar með eignast Bónus aftur," segir Jóhannes.
Mest lesið Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Viðskipti erlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Fleiri fréttir Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Sjá meira