Krónan ekki verið jafnsterk gagnvart evrunni í rúmt ár 17. maí 2010 12:16
Gengi krónunnar gagnvart evru heldur áfram að styrkjast og kostar evran 162,4 krónur á innlendum millibankamarkaði þegar þetta er ritað (kl. 11:30). Um áramótin stóð evran í 179,9 krónum og hefur krónan því styrkst um 10,7% gagnvart evru frá þeim tíma, og í raun hefur krónan ekki verið jafn sterk gagnvart evru í rúmt ár.Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að krónan hefur einnig verið að sækja í sig veðrið gagnvart sterlingspundinu, Þegar þetta er ritað kostar pundið 190,4 krónur og hefur krónan styrkst um ríflega 6% gagnvart pundi frá ársbyrjun.„Teljum við, líkt og undanfarið, líklegt að styrking krónunnar eigi rætur að rekja til aukins gjaldeyrisinnflæðis vegna afgangs af vöru- og þjónustuviðskiptum og ólíklegt að inngrip Seðlabankans skýri styrkinguna nú enda hefur bankinn haldið sig fjarri gjaldeyrismarkaði allt frá því í byrjun nóvember á síðasta ári," segir í Morgunkorninu.„Á sama tíma og verð á sterlingspundum og evru hefur lækkað í krónum talið þá hefur verð á Bandaríkjadollar sem og japönskum jenum hækkað. Nú í morgun stóð Bandaríkjadollar í 132,5 krónum og hefur hækkað um rúm 6% í krónum talið frá áramótum. Í raun hefur krónan ekki verið jafn veik gagnvart dollar síðan í desember 2008.Svipaða sögu er að segja um japönsk jen og hefur krónan ekki verið jafn veik gagnvart jenum síðan í janúar 2009. Þarf nú að reiða fram 5% fleiri krónur fyrir jenin en í byrjun árs, en jenið kostar nú rúmlega 1,42 krónur."Við þetta má svo bæta að gengisvísitalan er svo til óbreytt það sem af er degi þannig að styrkingin og veikingin gagnvart þessum ólíku gjaldmiðlum í dag jafna hvora aðra út.
Mest lesið Íslenskt sund í New York Viðskipti erlent Segja Heinemann brjóta gegn stjórnarskrárvörðum rétti Íslendinga Viðskipti innlent Borgunarmálinu lokið og bankinn fær ekki krónu Viðskipti innlent Vikan sem vex og vex: „Magatilfinningin er jafnvel mikilvægust“ Atvinnulíf Gamla nafnið verður nýja nafnið, aftur Viðskipti erlent Bein útsending: Kynningarfundur um hlutafjárútboð í Íslandsbanka Viðskipti innlent Skor aftur synjað um lengri opnunartíma vegna hávaða Viðskipti innlent Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Viðskipti innlent Spá óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Borgunarmálinu lokið og bankinn fær ekki krónu Bein útsending: Kynningarfundur um hlutafjárútboð í Íslandsbanka Skor aftur synjað um lengri opnunartíma vegna hávaða Segja Heinemann brjóta gegn stjórnarskrárvörðum rétti Íslendinga Spá óbreyttum stýrivöxtum Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun Dregur úr tapi og notendum fjölgar um 66 prósent Vonar að almenningur nýti forganginn í bankasölunni Ráðinn forstöðumaður Öryggislausna OK Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Síðasti dropinn á sögulegri stöð Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Sjóvá fundaði með PPP en afþakkaði þjónustu Svandís tekur við Fastus lausnum Ráðinn framkvæmdastjóri Starbucks á Íslandi Tæknin geti komið í veg fyrir þjófnað Hafa þegar skilað nettóbindingu en tafir á stærri föngunarstöð „Umbreyting í átt að velsældarhagkerfi krefst hugrekkis“ Salan á Íslandsbanka: Samið við fjóra erlenda söluaðila Til IDS á Íslandi frá Íslenskri erfðagreiningu Hagnaðist um rúma fimm milljarða á fyrsta ársfjórðungi Hundrað og fimmtíu manns unnu að opnuninni Samþykktu að bæta við leið fyrir stóra fjárfesta í sölu Íslandsbanka Gríðarlegt áhyggjuefni fyrir Norðurþing Ingunn ráðin framkvæmdastjóri Auðnu Rannsakendur og nemendur við HA fá aðgang að sérhæfðu gervigreindartóli Tæplega átta milljarða króna viðsnúningur milli ára Sjá meira