Lilja Mósesdóttir vill uppboðsmarkað fyrir gjaldeyri Hafsteinn Hauksson skrifar 19. maí 2010 12:09 Lilja Mósesdóttir, hagfræðingur og þingmaður Vinstri Grænna, segir afnám gjaldeyrishafta geta reynst skattgreiðendum afar dýrt.
Þingmaður Vinstri grænna leggur til að komið verði á uppboðsmarkaði fyrir gjaldeyri þar sem innlendir eigendur gjaldeyris geta selt hann á yfirverði. Með slíkri aðferð væri hægt að tryggja hægfara afnám gjaldeyrishaftanna á sem ódýrasta hátt fyrir skattgreiðendur.Lilja Mósesdóttir, hagfræðingur og þingmaður Vinstri Grænna, segir afnám gjaldeyrishafta geta reynst skattgreiðendum afar dýrt. Hún tekur sem dæmi áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, en hún segir vaxtakostnað einan vegna gjaldeyrislána hins opinbera hjá sjóðnum nema um tuttugu milljörðum króna á ári. Þá bendir hún í samtali við fréttastofu á að inngrip Seðlabanka til að hafa áhrif á gengið muni einnig reynast kostnaðarsöm.Á þingfundi í vikunni lagði hún til að frekar yrði farin svokölluð uppboðsleið við afnám haftanna. Lilja segir uppboðsleiðina þá ódýrustu fyrir skattgreiðendur þar sem hún dregur úr þörfinni á inngripum á gjaldeyrismarkaði.Uppboðsleiðin felst, að sögn Lilju, í tveim skrefum. Fyrir það fyrsta yrði að lækka vexti verulega. Þannig myndi fjármagn flæða út úr bankakerfinu og í fjárfestingar innanlands, og útstreymisþrýstingur fjármagns minnka.Í öðru lagi segir hún að setja þyrfti á fót uppboðsmarkað með gjaldeyri, þar sem innlendir eigendur gjaldeyris, einkum útflutningsfyrirtæki, gætu selt hann á yfirverði til aðila sem eru tilbúnir að greiða hærra krónuverð fyrir hann en sem nemur skráðu gengi. Þannig væri aflandsmarkaður með krónur í raun færður inn í landið og tryggt að umframverðið félli í skaut innlendra aðila. Lilja leggur að auki til að ríkið skattleggi þann ágóða, svo úr verði nýr skattstofn fyrir hið opinbera.Hún segir helsta kostinn við uppboðsleiðina að Seðlabankinn geti í gegnum uppboðsmarkaðinn stýrt framboði króna á gjaldeyrismarkaði. Þannig sé hægt að tappa hægt og bítandi af því fjármagni sem vill út úr landinu og tryggja hægfara afnám gjaldeyrishaftanna.Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, tók undir hugmyndina sem og nauðsyn þess að lækka vexti.
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Viðskipti innlent TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Sjá meira